Norðurland - 19.04.1979, Blaðsíða 1
NORÐURLAND
Fréttabréf
UR BARÐARDAL
Nú er að líða óvenjulegur vetur
hér í Bárðardal, frostharður en
með afbrigðum snjóléttur, enda
mátti sjá fé á beit í janúar og
febrúar á sumum jörðum.
Síðan um mánaðamót
febrúar mars, hefur sauðfé
ekki verið beitt, enda staðið
yfir rúningur. Munu nú allir
bændur hér vera búnir
að rýja. Viljum við halda fram
að með jjessu búskaparlagi
séum við að gera góða hluti,
framleiða gott hráefni, útvega
öðrum vinnu og þjóðfélaginu
gjaldeyri. Hins vegar þyrftum
við að fá helmingi meiri ull af
hverri kind, en við fáum nú. Því
markmiði ætti að vera hægt að
ná með kynbótum.
Til jafnaðar fékk ég ekki
nema 1,4 kg. af kind, en hér var
líka um skógdregið fé að ræða,
og svo skiljum við eftir ull aftan
á hverri kind, henni til skjóls
(júgrinu) í vor og sumarhretum,
sem hér eru árviss upp úr
mánaðarmótum maí, júní. Ein-
hverjum mun þykja ljótt að sjá
ærnar svona hálfrúnar, en í
okkar augum er alrúin ær
heldur ljót sjón. Með þessari
aðferð vonumst við líka til að
framleiða ennþá betri ull, þar
sem ætíð er slakasta ullin skilin
eftir á ánni.
Þessi miklu frost sem hér hafa
verið í vetur á snjólausa jörð,
hafa víða orsakað vatnsskort,
og eða frost komist að vatns-
leiðslum í jörð. Þurfa því tveir
bændur að aka vatni í fjárhús,
en ekki langan veg. Hrósa menn
nú happi að þurfa ekki lengurað
vatnskæla mjólk. Sumir spá illa
fyrir um sprettu næsta sumar,
vegna jarðklaka. Sjálfur er ég
mjög svartsýnn á afleiðingar-
nar t.d. voru alls engin svella-
lög, sem ætíð hafa skipt mestu.
Og hvað sem öllu líður með
offramleiðslu, þá viljum við ætíð
fá góða sprettu og mikið hey.
Fátt er ömulegra en að slá og
TONUSTARHA TIÐIN
Að venju verður efnt til tónlistar-
hátíðar hér á Akureyri nú í vor.
Að þessu sinni hefjast Tónlistar-
dagar á Akureyri, sunnudaginn
29. apríl.
A hátíðinni verða þrennir
hljómleikar og alls munu koma
fram um 130 manns á þeim. Að
sögn forráðamanna Tónlistar-
daganna verður efnisval með
svipuðu sniði og verið hefur, en
þó með heldur léttari blæ.
Sinfóníuhljómsveit Islands
ríður á vaðið með tónleikum í
Iþróttaskemmunni að kvöldi
27. apríl kl. 8.30. Verkefni
hljómsveitarinnar eru :
Handel - Concerto grosso op 6
nr. 1
Mozart - Exultate jubilate
Mahler - Sinfónía nr. 4.
Stjórnandi hljómsveitarinnar
að þessu sinni er hollendingur-
inn Hubert Soudant. Hann er
ekki með öllu ókunnur hér, því
hann stjórnaði hljómsveitinni á
Tónlistardögum 1977. Soudat
er ungur maður, fæddur árið
1946, en hefur eigi að síður
stjórnað frægum hljómsveitum
og unnið til ýmissa verðlauna.
Einsöngvari á þessum tón-
leikum er Siegelinde Kahmann
óperusöngkona, sem er öllum
tónlistarunnendum hér að góðu
kunn.
Laugardaginn 28. apríl verða
hljómleikar í Akureyrarkirkju
kl. 5. Þar koma fram listakon-
urnar Manuela Wiesler flautu-
leikari og Helga Ingólfsdóttir
semballeikari.
Efnisskrá: Joh. J. Quantz:
Sónata í e-moll
Egil Hovald: Cantus I
Atli Heimir Sveinsson: Frum-
skógár
Joh. Seb. Bach: Sónata í e-moll
Leifur Þórarinsson: Sumarmál
(1978)
Áke Hermanson: Flauto del
Sole
G. Fr. Handel: Sonata íe-moll.
Þær Manuela og Helga fluttu
þessa efnisskrá á tónleikum í
Kaupmannahöfn í nóvember
1978. Luku gagnrýnendur í
Danmörku miklu lofsorði á
verkefnavali og frábæra túlkun
þeirra.
Tónlistardögunum lýkur í
Iþróttaskemunni sunnudaginn
29. apríl með flutningi á Árstíð-
unum eftir Joseph Haydn.
Árstíðirnar eru oratoríum fyrir
einsöngvara, kór og hljómsveit.
Passíukórinn á Akureyri hefur
æft þetta mikla verk á liðnum
vetri. Það er frábrugðið fyrri
Gleðilegt
sumar
4. árgangur .Fimmtudagur 19. apríl 1979' 13. tölublað.
Ljósm.: Sig. Rúnar.
heyja léleg tún. Á þessum
snjóletta vetri höfum við góðar
samgöngur, vegir færir öllum
bílum. Félagslíf hefur því verið
auðveldara en oft áður, en er því
miður ekki nógu líflegt. Á það
skal þó bent að hér er ekki á
aðra að treysta í þeim efnum en
bændafólkið, er hefur jafnan
mikið að gera við búskapinn.
Mest skortir okkur félagslíf er
aukið gæti á menntun okkar.
Þorrablót héldum við hér í
Þorrabyrjun. Á það komu rúm-
lega 200 manns, eða um 30 fleiri
en allir íbúar sveitarinnar. Auk
þess miðaðist þátttaka við ferm-
ingaraldur, þannig að um það
bil helmingur gesta var utan-
sveitarfólk. Aðeins skorti þátt-
töku af tveimur heimilum í
sveitinni. Þorrablótið var á
vegum ungmennafélagsins. Sér-
stðk nefnd sá um skemmtiatriði
og voru þau heimatilbúin og
flutt af nefndarfólki. Þorramat
komu menn með í trogum
heimanað frá sér. Skemmta
menn sér vel við svona tækifæri,
þar sem jöfnum höndum er
sinnt munni og maga. Og
ákaflega þykir okkur ánægju-
legt hvað þéttbýlisfólk sækir að
okkur á stórhátíðum sem þess-
ari. Enda er gott fyrir báða aðila
að blanda geði.
Vonandi ræður ekki tilviljun
hvort stjórnin heldur velli, og
ógjörningur að spá þar um. Eg
bendi þó á að óvenjulegt er að
ágreiningsmál milli stjórnar-
flokka séu rædd opinberlega,en
ólíklegt er það nú eða að halda
öllum misklíðarmálum leynd-
um og gera svo hrossakaup í
laumi til að hanga við völd út
eitthvert ákveðið tímabil.
Jón Aðalsteinn, Hlíðsskógum.
Heilrceði í hersetuátrúnaði
að halda fast um punginn
((
verkefnum kórsins, að því leyti,
að það er ekki kirkjulegt. Eins
og nafnið gefur til kynna, fjallar
það um árstíðirnar fjórar, hefst
á lofgjörð um vaknandi líf á vori
og rekur síðan söguna með
miklum blæbrigðum. 60 manns
syngja nú í Passíukórnum og
hafa aldrei verið fleiri. Einsöng-
varar eru þrír, þau Ólöf K.
Harðardóttir sópran, Jón
Þorsteinsson tenór og Halldór
Vilhelmsson bassi. 36. hljóð-
færaleikarar úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands aðstoða við flutn-
inginn. Stjórnandi er Roar
Kvam, en hann hefur stjórnað
Passíukórnum frá stofnun hans
1972.
í tilefni sumarkomunnar fer
vel á því að birta hér upphaf
texta árstíðanna, í þýðingu
Þórarins Björnssonar.
Kom milda vor, þú himinblíða,
kom,
úr svalri vetrargröf þú seiðir
lífið fram.
Nú finnum við þess anganblæ,
nú vaknar jörð og loftið hlær.
En fagnið, konur, ei svo fljótt,
í þokuhjúpi læðist aftur oft
hinn grimmi vetur að.
og nístir stráin ung með kaldri,
stirðri hönd.
Kom milda vor.......
»
Herstöðvaandstæðingar á Dal-
vík og í Svarfaðardal héldu
samkomu gegn her í landi
laugardaginn 7. apríl sl. í Berg-
þórshvoli. Setningarávarp flutti
Óttarr Proppé, en hann rakti
einnig nokkur helstu ^ atriði úr
sögu hersetunnar á Islandi og
kynnti síðan kvikmyndina 30.
mars.
Valdimar Bragason flutti
ávarp og minnti m.a. á þörf þess
að menn héldu stöðugt vöku
sinni í baráttunni gegn hervaldi
nær og fjær, en létu ekki teyma
sig sofandi til þátttöku í blóð-
ugu valda- og vígbúnaðarkapp-
hlaupi stórveldanna undir yfir-
skini friðar og frelsis. Benti
hann á ýmislegt úr sögu Nato í
heiminum sem sannaði þá flærð.
Birgir Sigurðsson skáld kom
frá Hrísey og las úr ljóðum
sínum í anda baráttunnar og var
honum ákaft fagnað.
Kristján E. Hjartarson söng
andófssöngva við eigin gítar-
undirleik, bæði sóló og í sam-
spili við sönghóp sem benti á
kátbroslegu hliðar átrúnaðarins
á hersetuna. Einkar stór varð
innlifunin er karlar úr hópnum
sungu Heilræðavísur Þórarins
Eldjárns og Kristins Einarsson-
ar með tilþrifum og fullvissuðu
gesti um vörnina í því „að halda
fast um punginn“.
Sigríður Hafstað las ljóð
Guðmundar Böðvarssonar,
Landið þitt, og bað menn í
inngangsorðum að minnast
þeirra áhrifa er hernaður hefði á
líf barna í veröldinni. Því til
frekari áherslu söng Kristján
undurblíðan vöggusöng eftir
Katjönu Leifsd. og Þórarin
Hjartarson.
Samkomunni lauk með því að
Guðlaugur Arason rithöfundur
las frumsamda skáldsögu, Síld-
arhreistur. Guðlaugur lagði leið
sína allt frá höfuðborginni til að
vera með okkur á þessari
samkomu, en eins og kunnugt
er hafði hann þá nýlega lesið úr
verkum sínum á skáldavöku
hjá herstöðvaandstæðingum í
Reykjavík.
Brynja.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
0PIÐ HÚS
í Eiðsvallagötu 18, Lárusarhúsi, sunnudaginn 22. apríl kl.
15.00. - Sjá nánar á öðrum staö í blaðinu.
BÆJARMÁLARÁÐ ABA
Fundur í Lárusarhúsi mánudaginn 23. apríl kl. 20,30. ATH.:
Allir félagar A8A eiga rétt á setu í ráðinu.
STJÚRNARFUNDUR ABA
í Lárusarhúsi þriðjudaginn 24. apríl kl. 20,30.
Tryggvi skólameistari Gíslason
reisir aftaníossum amerískrar
hersetu níðstöng á bls. 4 og 5.
% Akureyrsku ungskáldin Jón Lax-
dal Halldórsson og Guðbrand-
ur Siglaugsson spretta úr spori
skáldfáksins á bls. 3.
^ Stefán alþingismaður Jónson
gefur ríkisstjórninni nýtt nafn
á baksíðu.