Norðurland - 19.04.1979, Qupperneq 8
NORÐURIAND
Fimmtudagur 19. apríl 1979)
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75 -
AUGLÝSIÐ í
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Stefán Jónsson alþingismaður:
HÆHÆOGHÓHÓ
Það hvarflaði rétt að mér á
skírdag hvort nú væri ekki orðið
tímabært að gefa ríkisstjórninni
okkar nafn. Fram að þessu hefur
það verið látið nægja að Alþýðu-
bandalagið ætti ráðherra í stjórn
en Sjálfstæðisflokkurinn ekki, þá
héti hún vinstristjórn. Þó finnst
sumum að sérstök pólitísk renta
verði að fylgja slíku nafni. Að
vandlega athuguðu máli komst
ég að þeirri niðurstöðu á föstu-
daginn langa, að best sé að nafnið
feli ekki í sér neitt sérstakt
fyrirheit, og geri ekki heldur
tilkall til neinskonar einkunnar í
eftirmælum. Og ég fæ nú ekki
betur séð, héðan úr þingsætinu,
en þess kunni að verða nokkru
lengra að bíða en ýmsir hafa
ætlað, kviðið flestir en sumir
óskað, síðasta misserið, að ríkis-
stjórnin sem Lúðvík myndaði
fyrir Olaf Jóhannesson snúi upp
tánum.
Af hálfu Alþýðubandalagsins
voru ekki gefin nein fyrirheit
um það að ríkisstjórnin sem við
mynduðum með Framsóknar-
flokknum og Alþýðuflokknum í
ágústlok í fyrra mynndi fylgja
vinstristefnu umfram það sem
okkur tækist að knýja hana til
með atbeina verkalýðshreyfmg-
arinnar. Okkar eina loforð var
gefið í kosningabaráttunni i
fyrravor, og hljóðaði upp á það
að við myndum beita því afli,
sem kjósendur veittu okkur, til
þess að reyna að knýja fram þá
stefnubreytingu á strjórnarsetr-
inu, að efnahagsvandamál þjóð-
arinnar yrðu ekki úrtakslaust
leyst á kostnað launafólks. Kjós
endur veittu okkur verulegt afl í
kosningunum. Ég var þeirrar
skoðunar að okkur bæri skylda
til að beifa því samkvæmt
loforðinu. Eg er enn þeirrar
skoðunar að þetta hafi verið
rétt. Okkur hefur að vísu ekki
tekist að sýna samstarfsflokk-
um okkar fram á þau sannindi,
sem okkur finnst þó blasa við,
að það sé ekki kaup framleiðslu-
stéttanna, sem orsaki verðbólgu
á landi hér. Það sem við köllum
verkalaun, það kalla þeir kaup.
Þetta hefur ekki valdið mér
vonbrigðum. Það mátti vera
hverjum manni Ijóst strax í
upphafi að ágreiningurinn milli
Alþýðubandalagsins annars
vegar og Alþýðuflokks og Fram
sóknar hins vegar varðar ekki
aðeins markmið og leiðir heldur
einnig pólitískt innrætí, en um
það verður ekki skipt á skömm-
um tíma. Samstarfsflokkar
okkar hafa ekki reynst hótinu
verri en við var að búast, og
raunar ekki komið okkur
skemmtilega á óvart heldur svo
orð sé á gerandi á þessum langa
vetri. Ég hef því ekki orðið fyrir
vonbrigðum, en ég hef samúð
með þeim góðgjörnu bjartsýnis-
mönnum sem trúðu því að
verkalýðshreyfingin, sem eggj-
aði Alþýðubandalagið lögeggj-
an á hundadögum í fyrra að
mynda nú ríkisstjórn þessa til
þess að vernda kjör alþýðunnar,
myndi einnig veita okkur braut-
argengi, sem nægði til þess að
vega upp á móti sameinuðu
þingfylgi Alþýðuflokksins og
Framsóknar aðbaki ríkisstjórn-
arinnar. Ráðherrum Alþýðu-
bandalagsins vorkenni ég ekki,
ungum mönnum og frískum,
þótt þeir verði að halda áfram
áflogum í ríkisstjórninni. Þeim
var það öllum ljóst þegar við
skipuðum þeim á stólana að set-
an þar yrði ekki vær, heldur yrði
hver einasti dagur þeirra í
stjórnarráðinu linnulaus tog-
streyta um kaup verkafólksins
og kjör.
Ekki svo að skilja að ég þykist
hafa séð hvað eina fyrir af því
sem hent hefur í pólitíkinni í
vetur og kom mér þá helst á
óvart hversu einarðlega margt
af okkar róttækasta fólki í
verkalýðshreyfingunni hefur
látið uppi þann vilja sinn að
Alþýðubandalagið kosti mjög
miklu til þess að ríkisstjórnin
sitji áfram hvað svo sem mál-
efnum líður. Það virðist vera
ríkjandi skoðun, að svo slæm
geti þessi ríkisstjórn ekki orðið
með aðild Alþýðubandalagsins
að önnur stjórn sem tæki við af
henni, hlyti ekki að verða miklu
verri. Vel má þetta hugboð vera
rétt því viska fólksins er mikil,
og ekki er með öllu fráleitt að
ætla að ríkisstjórnin muni
reyndar lifa jafn lengi og svo
stór hluti þegnanna ann henni
þess.
En ekki er það með öllu
tilhlökkunarefni fyrir Alþýðu-
bandalagið að eiga að sitja lengi
í ríkisstjórn til þess eins að draga
úr kjaraskerðingu í stað þess að
rækja það hlutverk, sem því er
þó ætlað að ganga í fararbroddi
í baráttu fyrir kjarabótum. Það
Framhald á bls. 2
Samkór Dalvíkur, sem nú er að Ijúka öðru starfsári sínu, heldur
vortónleika í Dalvíkurkirkju föstudaginn 20. apríl kl. 21.00 og í
Akureyrarkirkju laugardaginn 21. april kl. 21.00. Stjórnandi er Kári
Gestsson. Kórinn hefur í vetur æft Te Deum eftir franska tónskáldið A.
Carpentier, en það er verk fyrir blandaðan kór, fimm einsöngvara og
hljómsveit, og tekur u.þ.b. hálftíma í flutningi. Einsöngvarar verða
Sigrún Gestsdóttir.Ualla Jónasdóttir, Þuríður Baldursdóttir, Gestur
Guðmundsson, og Sigurður Demetz Franzson. Undirleik annast
kammersveit úr Tónlistarskólanum á Akureyri.
A efnisskrá eru einnig lög af styttra taginu eftir ýmsa höfunda,
innlenda og erlenda.
Píanóundirleikari kórsins verður Thomas Jackman, sem einnig mun
leika undir við einsöng Gests Guðmundssonar sérstaklega. Brynja.
Hverjir fá hitaveitu?
Margir þeirra sem ekki hafa
fengið hitaveituvatnið ennþá,
velta því sjálfsagt fyrir sér,
hvenær að því verði, hvort það
verði næsta sumar eða ekki fyrr
en sumarið 1980.
Meðfylgjandi mynd er ætlað
að sýna hvaða bæjarhlutar fá
hitaveitu nú í sumar. Hverfin
eru Glerárhverfi austan Hörgár
brautar, nefndur áfangi 13 hjá
hitaveitunni. Eyrin öll austan
Glerárgötu, þó ekki hús við
Glerárgötu, sunnan Eiðsvalla-
götu. Eyrinni er skipt í þrjá
áfanga nr. 7, 14 og 15.
Einnig verður lagt í iðnaðar-
hverfi syðst í Glerárþorpi vestan
Hörgárbrautar, áfangi nr. 12 og
áfanga nr. 18fránýjummiðhús-
geymi niður fyrir Möl og sand.
Áætlað er að öllum þessum
dreifikerfisáföngum verði lokið
fyrir 1. október.
Leikhópurinn ásamt leikstjóra. A myndina vantar Jóhönnu Birgisdóttur og
Kristlaugu Sigurðardóttur. (Ljósm. Helgi Baldvinsson.)
Sjö stelpur
Næstkomandi þriðjudag 24.
apríl kl. 20.30, frumsýnir Leik-
klúbburinn SAGA á Akureyri
leikritið SJÖ STELPUR í Sam-
komuhúsinu. SJÖ STELPUR
er eftir Svíann Erik Thorstens-
son, en þýðinguna gerði Sig-
mundur Örn Arngrímsson.
Leikstjóri er Viðar Eggertsson
og gerði hann jafnframt leik-
mynd.
Leikendur eru flestir á
aldrinum 15-17 ára. Með hlut-
verk stelpnanna sjö fara:
Kolbrún Reynisdóttir (Ása),
Guðbjörg Guðmundsdóttir
(Barbara), Kristlaug Sigurðar-
dóttir (Elsa), Ólafía Askels-
dóttir (Guðrún), Jóhanna
Birgisdóttir (Gunna), Snjólaug
Brjansdóttir (Maja) og Kristín
Gunnlaugsdóttir (María Lovísa).
. Með hlutverk gæslufólksins
fara: Jónsteinp Aðalsteinsson
(,,Ágústa“), Ása Guðmunds-
dóttir (Nilla), Halldór Björns-
son (Svegas) og Sigurþór
Heimisson (Sveinn).
Aðeins þrjár sýningar eru
fyrirhugaðar á SJÖ STELPUM.
Frumsýning verður eins og fyrr
segir þriðjudaginn 24. apríl, 2.
sýning miðvikudaginn 25. apríl
og þriðja og síðasta sýning
föstudaginn 27. apríl. Hefjast
þær allar kl. 20.30. Miðasalan
opnar í Samkomuhúsinu á
mánudag og verður opin alla
vikuna kl. 13-15 og sýningar-
daga á sama tíma og þá einnig
klukkustund fyrir sýningu. Sími
24073.
Píanó-
tónleikar
Píanóleikararnir ^ Örn
Magnússon frá Ólafsfirði
og Sólveig Jónsdóttir frá
Akureyri leika á tónleikum
í Borgarbíói nk. laugardag
kl. 15.00 þ. 21. apríl. Þau
eru þar með að ljúka efsta
stigs prófi frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri. Þau
leika verk eftir höfuðsnill-
inga á borð við Bethoven og
Bach.
Fjör á skíðum
Húsavík 18/4. Fyrir pásk-
ana var haldið hér skíða-
námskeið. Um fimmtíu
manns tóku þátt í því nám-
skeiði, sen var undir leið-
sögn fjögurra kennara. Það
sannast því að nógur áhugi
er á skíðaíþróttinni, þegar
áhuganum er fylgt eftir.
Aðstæður voru sérlega
skemmtilegar til skíðaiðk-
ana um páskana. Hins
vegar brugðust skíðagestir
hótelsins vegna samgöngu-
erfiðleika. Full skráð var á
hótelið en fólk komst ekki
að sunnan fyrr en á laugar-
dag fyrir páska, - og þá
aðeins hluti þeirra er ætl-
uðu að koma. - Ben/óg
Málverka-
sýning
Húsavík 18/4 Myndbrot,
listamenn frá Akureyri^hélt
myndlistasýningu hér um
páskana. Listamennirnir
Aðalsteinn Vestmann,Rajgn
ar Lár, Guðmundur Ar-
mann og Örn Ingi sýndu
um 40 myndir í Safnahús-
inu. Aðsóknin var nokkuð
góð og 17 myndir seldust.
Þessi sýning er töluverður
viðburður hér á Húsavík, -
en sýningarsalurinn hefur
ekki verið notaður síðan í
desember. - Ben/óg
Opið hús
Nk. sunnudag kl. 15.00
verður opið hús á vegum
Alþýðubandalagsins á Ak-
ureyri. Slíkar samkomur
eru haldnar reglulega í
Lárusarhúsi til mikils
menningarauka meðal
bæjarbúa. Þar koma allir
sem vilja, ungir og aldnir og
drekka kaffi úr kremlar-
rauðum bollum ellegar
kneyfa kóka kóla látandi í
sig ljúffengt meðlæti á milli.
Á sunnudaginn mun m.a.
Kristín Aðalsteinsdóttir
rabba um barnabækur.
Sjálfsbjörg
Athugið: Sjálfsbjörg Ak-
ureyri heldur sumar-
skemmtun föstudaginn 20.
apríl í Alþýðuhúsinu. Hefst
með Bingó kl. 20,30.
Skemmtiatriði, veitingar og
dans. - Félagar og vinir,
mætið öll hress og kát.
Sjálfsbjörg.
Ferðafélag
Akureyrar
Skíðaferð um Þorvaldsdal,
sunnudaginn 22. apríl kl. 9
fh. Þátttaka tilkynnist á
skrifstofu félagsins frá kl. 6
til 7 á laugardag, sími
22720.