Norðurland - 04.05.1979, Síða 4
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Forstöðumaður óskast
að leikskólanum við Hlíðarlund.
Leikskólinn mun taka til starfa 1. ágúst n.k. Umsækj-
andi þarf þó að geta hafið störf fyrr. Einriig er óskað
eftir fóstrum til starfa við dagvistarstofnanir Akur-
eyrarbæjar sem fyrst. Upplýsingar veittar í síma
96-25880 og 25881 kl. 10-12. Umsóknarfrestur er til
20. maí n.k.
Framkvæmdastjóri
Staða framkvæmdastjóra við leikhúsið á Akureyri er
laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Upplýsingar í síma 24073 og 22668.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
ÚTBOÐ
Hitaveita Akureyraróskareftirtilboðum íeftirfarandi:
1. í lagningu dreifikerfis á syðrihluta Oddeyrar (15.
áfangi).
2. í byggingu fimm þúsund rúmmetra miðlunar-
geymis við Súluveg.
Verkið er boðið út í eftirfarandi 3 hlutum:
A. Jarðvinnu og undirstöðu.
B. Stálsmíði.
C. Einangrun og klæðning.
Heimilt er að bjóða í hvern hluta sérstaklega, eða
verkið í heild. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitunnar að Hafnarstræti 88b gegn 50.000 kr.
skilatryggingu fyrir hvort verk. Tilboðin verða opnuð
í fundarsal Bæjarráðs að Geislagötu 9 þann 11. maí
n.k. kl. 10.00 í 15. áfanga dreifikerfisins og kl. 11.00 í
miðlunargeymi.
HITAVEITA AKUREYRAR.
Þtnir peninpar
erumeira vuóií
KJÖRNARHVÐ^
Stóraukið vöruval
Nýjar vörur daglega
HRÍSALUNDI 5
4 - NORÐURLAND
! STAK
[ Starfsmanna- ;
j félag i
I Akureyrarbæjar I
hvetur félagsmenn sína til þáttöku í
atkvæðagreiðslunni í Oddeyrarskólanum
3. og 4. maí n.k. (kl. 14-19 báða dagana). |
B
i STJÓRNIN.
Atkvæðagreiðsla
um samkomulag BSRB og fjármála-
ráðherra frá 23. mars 1979
fer fram dagana 3. og 4. maí 1979.
Kjörstaður á Akureyri er Oddeyrarskólinn (gengið
inn í horninu að norðan og vestan) og verður hann
oþinn kl. 14-19 báða dagana.
Athygli er vakin á reglum um kosningarétt í lögum
BSRB.
Kjörnefnd.
Ræða Svavars
Framhald af bls. 3.
vinnst aldrei að fullu, ævinlega
verður ný verk að vinna og þess
vegna er maðurinn maður. Barátt-
una verður að heyja á öllum víg-
stövum í senn og ekkert má eftir
liggja, enginn má undan víkjast í
baráttu verkalýösins í auðvaldsþjóö-
félagi, baráttu gegn valdi ráöandi
stéttar. Þó við kunnqm að vinna
nokkuð á í kosningum eða kjara-
samningum, breytistekki samstund-
is grundvallareðli okkar samfélags.
Þær breytingar sem við stefnum að
taka langan tíma og verða aðeins
unnar með látlausu starfi. Þess
vegna erum við jafnan undir það
búin að víkja úr ríkisstjórnum eða
öðrum slíkum valdastólum, því líf
okkar er ekki stéttasamvinna, heldur
stéttabarátta. Því aðeins varðveitum
við baráttutæki okkar, aö viö beitum
þeim á réttum augnabiikum, en
látum þau ekki slævast af vegtyllum
valdsins, né heldur misnotum þau
með því að bregða þeim fyrir okkur í
ótíma, þá geta jaau eins hæft þann
sem síst skyldi, það er samherja
okkar jafnvel eins og andstæðinginn
sjálfan. Vopnið á að nota til þess að
höggva í sundur fjötra arðráns og
hersetu; stundum kunna þessir
fjötrar að sýnast fallnir, en það er
misskilningur. Sá fjötur sem gerður
er úr dyn kattarins og hráka fuglsins
reyrist um líf okkar engu síðuren sá
sem sést beru auga.
Félagar.
Hér á Akureyri er einskonar vagga
hinnar róttæku stéttabaráttu á ls-
landi. Fyrir fimmtíu árum voru fundir
í verkalýðsfélaginu hér annan hvern
sunnudag og fundirnir voru þvi
aðeins löglegir og ályktunarfærir að
tveir þriöju fundarmanna mættu.
Allir fundirnir voru löglegir, - þó
haldnir á messutíma sagði mér Einar
Olgeirsson í fyrradag kímileitur.
Einar Olgeirsson er tvímælalaust
einn stærsti leiðtogi íslenskrarverka
lýöshreyfingar á þessari öld og i
þessum bæ hlaut hann 33%atkvæöa
í kosningunum 1934 í nafni Komm-
únistaflokks Islands, mitt í kreppu
og ofsóknum gegn róttækum stuön-
ingsmönnum verkalýéðshreyfingar-
innar. Hér var háö fyrir 49 árum
Krossanesverkfalliö mikla gegn
erlendu auðvaldi og umboðsmönn-
um þess. Hér áttu sér stað einhver
sögulegustu átök kreppuáranna
undir forystu Kommúnistaflokks (s-
lands. Á löngum ferli hefur miðað
nokkuð á leið. Enn er þó mikið verk
að vinna og langt í land og í þessum
bæ með svo rismikla sögu verka-
lýðshreyfingar á að vera gott að
starfa.
Félagar,
Fram til baráttu fyrir þjóöfélagi
réttlætis og frelsis. Fram til baráttu
fyrir sjálfstæðu fslandi gegn hersetu
og hernaðarbandalögum. Fram til
baráttu og sigurs. Fram til sósíal-
ismans.
(Millifyrirsagnir eru blaösins.)
Leiðrétting
í frásögn af Verkalýðsfélagi,
Dalvíkur í síðasta tölublaði var
mishermt að kaup karla hafi
verið árið 1934 ein kr. og tíu
aurar, - það var aðeins ein króna.
Þá var Kristján Jóhannesson
ranglega sagður Jóhannsson í
myndatexta og Pétur Balvins-
son ranglega sagður Valdimars-
son í myndatexta.
Leikfélag
Akureyrar
Sjálfstætt fólk
eftir
HALLDÓR LAXNESS
Sýning fimmtudagskvöld
kl. 20.30.
Sýning sunnudagskvöld
kl. 20.30.
Síðustu sýningar.
Aðgöngumiðasala opin dag-
lega frá 17.00-19.00 og til
kl. 20.30 sýningardagana.
Sími 24073.
Vantar íbúð
Vantar um 4 herbergja íbúð
til leigu á Akureyri frá miðj-
um júní.
Upplýsingar í síma 24024 á
vinnutíma.
Ragnar Einarsson.