Norðurland - 04.05.1979, Qupperneq 6
NORÐURLAND
Föstudagur 4. mai 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I' NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75
AUGLÝSIÐ í
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Fyrsti fundur nýstofnaös leikhúsráös Leikfélags Akureyrar var haldinn fimmtudag 26. apríl. Ráöiö
skipa stjórn Leikfélags Akureyrar formaöur félagsins, Guðmundur Magnússon, sem er jafnframt
formaður leikhúsráðs, Þórey Aðalsteinsdóttir og Sigurveig Jónsdóttir; tveir fulltrúar fastráöins
starfsfólks, Svanhildur Jóhannesdóttir og Viðar Eggertsson; leikhússtjóri, Oddur Björnsson og
fulltrúi bæjarstjórnar Akureyrar, Valgaröur Baldvinsson. Fundi ráösins situr einnig varaformaður
leikfélagsins, Theodór Júliusson. Myndin er af ráðinu.
Unnið hefur verið markvisst að stofnun leikhúsráðs og samþykkti aðalfundur Leikfélagsins 2. apríl
breytingar á lögum félagsins, er gerðu það mögulegt. Hlutverk leikhúsráðs er að hafa umsjón með
allri starfsemi og rekstri ieikhússins. Leikhúsráð tekur allar meiriháttar ákvarðanir er stofnunina varð-
ar, svo sem fjárhagsáætlun leikhússins. Það ræður leikhússtjóra og framkvæmdastjóra og annað
starfsfólk hússins. Leikhúsráð skal vera ólaunað.
Tækifærisvísur
á markaðinn
Ljóðabók
Guðbrands
Fyrsta maí sl. kom út ný
ljóðabók eftir Guðbrand Sig
laugsson. Bókin heitir Tæki-
færisvísur og er önnur bók
höfundar. Bókakápan er fag-
urlega myndskreytt með Ijós
myndum af styttu af frjó-
semisgyðjunni Díönu og
skáldinu á auðnuleysingja-
bekk í skemmtigarði í París.
Fyrsta bók höfundar, Eitrað-
ur orðum, kom út 1977 og er nær
uppseld. Guðbrandur er fæddur
1956 (innrásin í Ungó). Hann
púlar fyrir daglegu brauði í
prentsmiðju á Akureyri, - en
hefur farið víða, m.a. til Breið-
dals.
Hann segist hvorki vera í KA
né Þór, - hins vegar félagi í
Ungmennafélaginu Hrafnkell
Freysgoði. Viðfangsefni höfund
ar eru stemmningar úr hvers-
dagslífmu, „til þess að fá sem
bestan hljóm úr bréfaklemm-
um“ segir skáldið.
Ljóðmæli úr þessari nýju bók
Guðbrands birtust í sumarblaði
NORÐURLANDS. Ljóðavin-
um er bent á, að „Tækifæris-
vísurnar’fást í bókabúðum.
itíTLt MÐ ££
/•A1AÍ 'i
Sumarmálahret
Mývatnssveit 1/5. Á sunnu-
dagsmorgun brast hér á með
norðan hríð, hvassviðri og 6-7
stiga frosti. Fáir áttu von á svo
slæmu sumarmálahretL Til
marks um það, átti Ármann
bóndi Pétursson í Reynihlíð um
áttatíu fjár úti. Þar sem veðrið
var mjög hart og ærnar nýlega
rúnar, þótti mikið liggja við að
ná þeim fljótt í hús.
Björgunarsveitin Stefán var
kölluð til aðstoðar. Leituðu um
20 manns breiðleit um Reykja-
hlíðarheiði. Skyggni var mjög
lítið á köflum og varð einn
leitarmanna viðskila við félaga
sína, en kom fljótlega í leitirnar
aftur. Allt féð mun hafa komist í
hús. Veðrið hefur staðið slælítið
síðan og færð mjög tekin að
spillast, bæði innan sveitar og út
úr henni.
Mjólkurbíll átti í erfiðleikum
á leið til húsavíkur um Hólssand
í gærkvöldi. Gat bílstjórinn gert
vart við sig úr björgunarskýli
Slysavarnarfélagsins sem er á
þessum slóðum. Þetta skýli var
sett upp fyrir tveimur árum að
tilhlutan slysavarnardeildarinn-
ar í Mývatnssveit og á Húsavík.
Ber að þakka það framtak. Þótt
Hólssandur sé ekki langur fjall-
vegur, er hann fjölfarinn og þar
verða veður mjög hörð. Tel ég
skýlið mjög til öryggis fyrir
Mývetninga og aðra sem um
þessa leið ferðast. Mikið er
starfað í björgunarsveitinni
Stefáni. Unnið er af kappi við að
koma á fót vel búinni og öflugri
sveit. Hún hefur eignast nýjan
bíl, sem nú er u.þ.b. búið að
innrétta og útbúa.
Félagar í björgunarsveitinni
hafa sótt námskeið og farið í
æfmgaferðir í vetur. Björgunar-
sveitin Stefán og Slysavarnar-
deildin Hringur eiga ásamt
SVFÍ og starfa í myndarlegu
húsnæði sem er m.a. notað sem
stjórnun almannavarna þegar
umbrotahrinur ganga yfir á
Leirhnúkssprungunni. Eins og
allir vita liggja að Mývatnssveit
víðfeðm öræfí, fjölsótt af ferða-
mönnum og mörgum hefur
orðið villugjarnt í Odáðahrauni.
Er því brýnt að hér sé vel búin og
þjálfuð björgunarsveit. Núver-
andi formadur Björgunarsveit-
arinnar Stefán er Hörður Sigur-
bjarnarson.
- Sig. Ragnarsson.
Agæt afkoma
** í Svarfaðardal
Hreppsnefnd Svarfdæla boðaði
til sveitarfundar í þinghúsinu á
Grund mánudaginn 23. apríl.
í reikningum hreppsins, fyrir
árið 1978 sem Halldór Jónsson
oddviti las og skýrði, kom fram
að afkoma hreppsins á árinu var
mjög góð. Tekjuafgangur var
11.2 milljónir. Eignir sveitar-
sjóðs eru metnar á tæplega 72
milljónirog eru þaðfasteignirað
stærstum hluta. Skuldirsjóðsins
eru aftur á móti sáralitlar.
Félagsheimilissjóður er 6,6
milljónir, framlagður stofnkostn
naður í Dvalarheimili aldraðra á
Dalvík 6 milljónir og í heilsu-
gæslustöðina á Dalvík 1.850
millj.
Miklar umræður urðu um
byggingu félagsheimilis í stað
þinghússins á Grund, sem er
orðið gamalt og þreytt. Var
greinilegur almennúráhugi á því
að gera úrbætur í þessu efni hið
fyrsta. Flestir virtust æskja stað-
setningar félagsheimilisins á
Grund. Er þess að vænta að
skipuð verði nefnd af sveitar-
félaginu, og þeim 3-4 félögum
öðrum sem líklegt þykir að verði
byggingaraðilar, til að fjalla um
stærð og gerð nýs samkomu-
húss.
(Heimild: Norðurslóð)
Neytendasam-
tökin á Akureyri
Fundur 5. maí
Neytendasamtökin á Akureyri,
sem starfað hafa ötullega frá því
þau voru stofnuð um miðjan
mars, - hafa boðaðtil framhalds-
stofnfundar nk. laugardag kl. 4.
Neytendasamtökin munu hafaá
prjónunum að opna skrifstofu
nú næstu daga. Dagskrá fram-
haldsstofnfundarins, sem hald-
inn verður í Hótel Varðborg
(niðri) laugardaginn 5. mai eins
og áður sagði, er þessi: 1.
Skýrsla formanns um undirbún-
ingsstarf stjórnar. 2. Uppkastað
lögum samtakanna lagt fram. 3.
Félagsgjöld ákveðin. 4. Um-
ræður um framtíðarverkefni
samtakanna.
1. maí: Opið hús
Eins og kemur f ram annars staðar í blaðinu þá varð ekkert úr fyrir-
hugaðri dagskrá verkalýðsfélaganna 1. maí sl. Hins vegar var
verulega vönduð dagskrá flutt í tilefni dagsins í Lárusarhúsi á
þriðjudaginn og tókst hið besta.
Milli 80 og 100 manns litu við og nutu góðra veitinga og
skemmtunar í Lárusarhúsi. Þar spilaði drn Arason klassisk verk
spænskra höfunda við góðar undirtektir. Síðan var flutt dagskrá í
tali og tónum undir heitinu „Menning hvunndagsins". Dagskráin
var samansett með sögubrotum, Ijóðalestri og söng. Fjallað var
um daglegt amstur, vonina blíðu og brugðið á léttan leik. Dag-
skráin var unnin upp úr verkum fjölmargra nútímahöfunda og
flutt af Aðalsteini Bergdal, Einari Einarssyni, Hjörleifi Hjartar-
syni, Kristínu Á. Ólafsdóttur, Svanhildi Jóhannesdótturog Viðari
Eggertssyni.
Af skjálfta-
vaktinni
Mývatnssveit 1/5 - Af
skjálftavaktinni: Land
rís stöðugt og er nú
kominn meiri halli á
stöðvarhúsið við Kröflu
en nokkru sinni áður.
Einnig fjölgar skjálftum.
Þeir hafa orðið 26 á
sólarhring, þeir stærstu
eru 2,5 stig á Richter.
Jafnframt því að skjálft-
um fjölgar eru fleiri
þeirra stærri. Sprungur
við Leirhnjúk gliðna stöð
ugt samfara landrisi á
þessum slóðum.
Aðalfundur
verður haldinn í FÉLAGI
ESPERANTISTA á Akur-
eyri, „NORDA STELO“
sunnudaginn 6. maí kl.
16.00 í Eiðsvallagötu 18.
Áhugamenn eru hvattir til
að ganga í félagið.
Tónlístar-
dagarnir
Tónlistarhátíðin á Akureyri
var haldin um sl. helgi með
miklum glæsibrag. Umsögn
Hákons Leifssonar um tón-
listarviðburðina verður því
miður að biða til næsta
blaðs. Passíukórinn, sem
átti að halda tónleika sl.
þriðjudag syðra, komstekki
vegna samgönguerfiðleika.
Tónleikunum var frestað til
nk. sunnudags. Þeir verða í
Háskólabíói 6. maí kl. 2 e.h.
Góð gjöf
Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hefir borist gjöf að
fjárhæð kr. 350.000,00 til
minningar um hjónin
Jakobínu Halldórsdótturog
Hall Sigtrygsson frá Stein-
kirkju í Fnjóskadal. Börn
hjónanna færðu sjúkrahús-
inu þessa gjöf í tilefni þess
að eitt hundrað ár eru liðin
frá fæðingu foreldra þeirra.
F.h. stjórnar Fjórðungs-
sjúkrahússins þakka ég
þessa höfðinglegu gjöf og
óska gefendum alls góðs í
framtið.
Torfi Guðlaugsson.
Finnst ekki
rauður 1. maí
Veðrið fyrsta maí gerði
Akureyringum gramt í geði.
Kröfugangan og útifundur
á vegum verkalýðsfélaganna
féllu niður, - og þótti
flestum miður í röðum
vinstri manna. Rögnvaldur
Rögnvaldsson gerði þessa
vísu fyrsta maí í því tilefni:
Nú er hljótt um borg og bæ
brostinn þekkur strengur.
Fólkið rauðan fyrsta maí
flnnur ekki lengur.
Ferðafélagið
Kötlufjall. Gönguferð.
Sunnudag 6. maí kl. 10.00
f.h. Þátttaka tilynnist á
skrifstofuna kl. 6-7 e.h.
laugard. 5. maí. Sími 22720.
Vélarbilun
Vegna vélarbilunar í prent-
smiðju frestaðist útkoma
þessa tölublaðs af NORÐ-
URLANDI um einn dag. Af
sömu ástæöum er letrið (
þessu blaði litiðeitt öðruvisi
en vanalega. Við biöjumst
velvirðingar á þessu og
vonum að blaðið þyki ekki
torkennilegra en endranær.