Norðurland - 10.05.1979, Side 1
NORÐURIAND
4. árgangur Fimmtudagur 10. maí 1979 16. tölublað
Á Raufarhöfn:
Blómlegt tónlistarlíf
Tónlistarskóla Raufarhafnar
var slitið þann 6. maí sl. og lauk
þar með þriðja stafsári skólans.
Stofnandi skólans og jafnframt
skólastjóri hans fyrsta veturinn
var Margrét Bóasdóttir. Tvo sl.
vetur hefur Karl Jónatansson
verið skólastjóri hans, en hann
lætur nú af störfum.
f vetur voru alls 44 nemendur
í skólanum en 35 luku prófi.
Kennt var á píanó, harmoniku,
gítar, blásturshljóðfæri, fiðlu og
melodiku. Auk Karls Jónatans-
sonar var einn fastur kennari,
Stephen Yates og einn stunda-
kennari Jóhann Jósefsson frá
Ármannslóni. Stephen Yates
hefur verið ráðinn skólastjóri
næsta vetur. Jóhann mun einnig
kenna áfram, en óráðið er í eina
kennarastöðu. Tónlistarlíf
hefur verið blómlegt í vetur.
Auk hinna hefðbundnu
nemendatónleika við skólaslit
Tónlistarskólans, hafa verið
haldnir tvennir tónleikar.
Kirkjukórinn og Barnakórinn
héldu tónleika sunnudaginn 29.
apríl. Einsöngvari með Kirkju-
kórnum var Svava Stefáns-
dóttir.
Þótt tónlistin hafi verið lífleg
þá er ekki hægt að segja það
sama um tóna vorsins. Jörð er
enn alhvít og víða mikil ófærð
inn í bænum. Ekki kemur sá
dagur að ekki snjói og hita-
mælir fer ekki upp fyrir núllið.
Sjómenn hafa lítið sem ekkert
getað róið síðan ísinn fór vegna
ótíðar. Sauðburður er að
hefjast og verður að láta allt
bera í húsum. Elstu menn muna
ekki eftir öðru eins vori og
ekkert lát virðist vera á norðan-
áttinni. Nú standa yfir vorpróf í
grunnskólanum og eru síðustu
próf á föstudaginn nk. Nem-
endur voru 111 í vetur. Skóla-
stjóri er Jón Magnússon. Auk
hans voru 6 fastráðnir kennarar
og 3 stundakennarar. ,
Liney.
Hjá Leikfélagi Akureyrar er sýningum á Sjálfstæðu fólki að Ijúka. Vegna þess hve margir urðu frá að hverfa á síð-
ustu sýningu, hefur verið ákveðið að efna til aukasýningar nk. sunnudag kl. 20.30. Myndin er af Þráni Karlssyni og
Kristjönu Jónsdóttur í hlutverkum sínum. Æfingar á næsta verkefni, sem er enskur gamanleikur, standa yfir og er
stefnt að frumsýningu 25. maí.
Ágóði þjóðarbúsins
Framlag Hríseyinga
Hrísey, 30/4. - Það er eflaust
hægt að færa rök fyrir því,
tölfræðilega, að best sé að
koma öllum Islendingum fyr
ir í einum landsfjórðungi, en
litríki slíkrar byggðaþróun-
ar yrði fáskrúðugt. En hafa
300 manneskjur úti í eyju
efni á að krefjast stórra
hluta?
Til að sýna fram á að Hrís-
eyingar hafí fært eitthvað að
mörkum, til að fara fram á
smálítið af þjóðarkökunni, verð-
ur eftirfarandi birr.
Árið 1976 voru fluttar út
sjávarafurðir frá Hrísey fyrirum
það bil 370 milljónir króna. Árið
1977 var upphæðin komin upp í
svo sem 504 milljónir. Sam-
kvæmt KEA fregnum frá í
febrúar síðastliðinn, tók fisk-
vinnslustöð KEA í Hrísey á móti
3280 tonnum af fiski árið 1978,
og af því magni fóru 76,6% í
frystingu. Verðmæti mmlega
588 milljónir króna. Á þessar
tölur vantar útflutningsgjöld.
Þessar tölur eru ekki settar hér
fram til að slá nein met, heldur
til að sýna framá að Hrísey-
ingar hafi eitthvað fram að
leggja, rétt eins og aðrir lands-
menn. Þó ber þess að geta í
sambandi við þessar tölur, að
Kaupfélag Eyfirðinga á fisk-
vinnslustöðina og einnig mestan
hluta í togaranum, Snæfelli.
Hríseyingar bera þar svo sem
ekki neina reisn. En vinnuaflið
og aðstaðan er þó allavega fyrir
hendi og er þá nokkuð fengið.
Einnig er nokkur trillu- og dekk-
bátaútgerð hér sem er í_ eigu
heimamanna sjálfra. -Guðjón.
Soffia á þing
Soffía Guðmundsdóttir fulltrúi
sósíalista í bæjarstjórn á Akur-
eyri situr nú á Alþingi fyrir Al-
þýðubandalagið. Soffía, sem
hefur oftsinnis setið á þingi áður
gegnir nú þingstörfum fyrir
Stefán Jónsson sem er í embætt-
iserindum í Strassborg á þingi
Evrópuráðsins.
Þessir fjórir knáu heiðursmenn komu í starfskynningu á Norðurland sl.
þriðjudag og Iíta glaðbeittir mót sól og sumri. Piltarnir heita: Björgvin,
Hrannar Björn, Gestur og Sigurgeir Heiðar. Þeir eru í 5. bekk í Lundar-
skóla.
Blindrafelagið
- með námskeið
Barnaársnefnd Blindrafélags-
ins, Hamrahlíð 17, Reyk., hefur
hug á að efna til námskeiðs fyrir
foreldra sjónskertra og blindra
barna. Fyrirhugað er, að nám-
skeið þetta standi í um viku, og
hefjist 19. júní í sumar. M.a. er
ætlunin að veita foreldrum
ýmsar hagnýtar upplýsingar, er
nauðsynlegar eru til þess að
tryggja eðlilegan þroska sjón-
skertra og blindra barna. Enn
fremur er mjög æskilegt, að
foreldrar þessa barnahóps fái
tækifæri til þess að koma
saman, og til þess að ráðfæra sig
við sérhæfða blindrakennara og
aðra, er eitthvað kunna að hafa
til málanna að leggja.
Grunur leikur á, að nokkuð
sé um sjónskert og blind börn
víðsvegar um landið, sem fara á
mis við sjálfsagða þjónustu.
Barnaársnefnd Blindrafélags-
ins skorar því á alla þá, er áhuga
hafa á þátttöku, að tilkynna sig
sem fyrst til blindraráðgjafa í
síma (91)38488.
Slippstöðin: ^ r
KOSIÐISTJORNINA
Aðalfundur Slippstöðvarinnar
hf verður haldinn 19. inaí nk.
Bæjarstjóra er falið að fara þar
með umboð Akureyrarbæjar.
Að tillögu bæjarráðs skal hann
tilnefna sem aðalmenn í stjórn
fyrirtækisins þá Helga M. Bergs
og Lárus Jónsson, en Hákon
Hákonarson og Frey Ófeigsson
sem varamenn.
Ekki voru bæjarstjórnar-
menn einhuga um þessa tilnefn-
ingu á bæjarstjórnarfundi sl.
þriðjudag. Fulltrúar sósíalista
Helgi Guðmundsson og Kristín
Á. Olafsdóttir lýstu þeirri skoð-
un sinni að þarna ætti bærinn
að nota tækifærið og setja
fulltrúa stórs hluta starfsmanna
inn sem aðalmann í stjórn. Áttu
þau þar við annan varamann-
inn, Hákon Hákonarson, er
hann formaður Sveinafélags
járniðnaðarmanna jafnframt
því að vera formaður Alþýðu-
sambands Norðurlands. Þegar
tillaga bæjarráðs var borin
undir atkvæði sat annar fulltrúi
Alþýðuflokksins, Þorvaldur
Jónsson hjá ásamt Helga, en
Kristín greiddi atkvæði á móti.
Ásamt 2 fulltrúum Akureyrar
bæjar eiga sæti í stjórn Slipp-
stöðvarinnar 4 fulltrúar til-
nefndir af ríkinu og 1 frá KEA.
Hœkkun
fargjalda
Fargjöld Strætisvagna Akur-
eyrar hækka í dag um 25% og
eru því:
Fyrir fullorðna kr. 150.00
Fyrir börn kr. 35.00
Farmiðakort fullorðinna 34 stk.
kr. 4.000.00.
Farmiðakort fullorðinna 7 stk.
kr. 1.000.00.
Farmiðakort barna 30 stk. kr.
500.00.
Farmiðakort aldraðra 34 stk.
kr. 2.000.00.
Þessi hækkun er í samræmi
við samning SVA við bæinn um
að fargjöld skuli vera þau sömu
og hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur. Af strætisvagnamálumer
það annars að frétta að nú er
verið að athuga hvar koma skuli
fyrir biðskýlum þeim sem byggð
verða í sumar. 5 milljón króna
fjárveiting til þess verks dugir
aðeins til að koma upp 3 til 4
skýlum.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Félagsfundur
í kvöld kl. 20.30 í Lárusarhúsi.
DAGSKRÁ:
1. Verkalýðsmál - Undirbúningur að stofnun verkalýðs-
málaráðs ABA.
2. Tillögur að forvalsreglum.
3. Önnur mál. Félagar fjölmennum.
Stjórnarfundur
þriðjudaglnn 15. maí kl. 20.30.
SjC Reynt að varpa ljósi á hina dul-
arfullu frímúrarareglu. - Sjá
bls. 2 og 3
Hinn skeleggi pistill Starra í
Garði um pólitík eymdarinnar
er á bls. 5
Vorboðinn ljúfi, Tumi skrifar
um Tónlistardagana á Akur-
eyri. - Sjá baksíðu