Norðurland - 31.05.1979, Side 1
NORÐURLAND
4. árgangur _Fimmtudagur 31. maí 1979_19, tölublað
Aðalafundur ABA:
Heitar umræður
Alþýðubandalagið á Akureyri
hélt aðalfund sinn sl. þriðjudags-
kvöld. Fráfarandi _ formaður
félagsins, Kristín A. Olafs-
dóttir setti fundinn, fundarstjóri
var Óttar Einarsson og fundar-
ritari Jóhannes Jósefsson.
Kristín Á. Ólafsdóttir flutti
síðan skýrslu fráfarandi stjórn-
ar. Þar kom fram ma. að 32
stjórnarfundir voru haldnir á
starfsárinu, 7 félagsfundir og
einn almennur fundur. Félags-
málanámskeið var haldið sl.
haust á vegum stjórnarinnar
með góðum árangri. Þrjár
nefndir störfuðu á vegum stjórn
arinnar; undirbúningsnefnd að
stofnun verkalýðsmálaráðs,
nefndir vegna opins húss og
árshátíðarnefnd. Árshátíðin var
haldin 3. febrúar með glæsibrag;
Þá gaf stjórnin út fréttabréf til
félaga á starfsárinu. Þá fjallaði
Kristín almennt um stjórnmála-
ástandið og gat um skort á
gagnrýnni umræðu um störf og
stefnu flokksins og nauðsyn á
fræðslu um sósíalismann á
vegum Alþýðubandalagsins.
Jón Hafsteinn Jónsson flutti
skýrslu hússtjórnar. Miklum
tíma og fyrirhöfn auk fjársafna
hefur verið fórnað í að stand-
setja fundarsal í Lárusarhúsi.
Enn eru miklar framkvæmdir
eftir á vegum hússtjórnarinnar,
sem þola litla bið. Þ.á.m. er
lagning hitaveitu og endurbæt-
ur á raflögnum hússins. Hilmir
Helgason formaður bæjarmála-
ráðs skýrði frá störfum ráðsins
þann tíma sem það hefur starfað
og verkefnum framundan (sjá
viðtal við Hilmi inni í blaðinu).
Bæjarmálaráð hefur haldið 26
fundi á starfsárinu. Þá las
Höskuldur Stefánsson reikn-
inga félagsins, sem voru endur-
skoðaðir án athugasemda og
samþykktir á fundinum. Var nú
gert kaffíhlé á fundinum og
nutu fundarmenn veitinga í
boði fráfarandi stjórnar.
Eftir hléð var gengið til
dagskrár undir röggsamri stjórn
Óttars aftur. Samþykktar voru
tillögur undirbúningsnefndar
verkalýðsmálaráðs ABA um lög
fyrir ráðið. Þá var samþykkt
lagabreyting um stjórnarkjör.
Þá talaði Steinar Þorsteins-
son fyrir uppstillinganefnd og
lagði fram tillögur hennar sem
Hluti fundarmanna á aðalfundinum.
Nóg komið qf tilslökunum
Aðalfundur ABA lýsir yfir
stuðningi við tillögur þær um
efnahagsráðstafanir, sem ráð
herrar Alþýðubandalagsins
hafa lagt fram í ríkisstjórn-
inni. Fundurinn telur að
stjórnarsamstarfíð hafi vald-
ið vonbrigðum og að nóg sé
komið af tilslökunum og mála
miðlunum. Það er skoðun
fundarins að nái þessar tillög-
ur Alþýðubandalagsins ekki
fram að ganga, sé mælirinn
orðinn fullur og beri því að
slíta stjórnarsamstarfinu án
tafar.
Sumarleyfi Norðurlands
Óskar hættir
Með þessu blaði lætur
Óskar Guðmundsson af rit-
stjórn NORÐURLANDS,
sem hann hefur haft á hendi
frá áramótum. Óskar flyst nú
brott frá Akureyri, fyrst til
Reykjavikur og þaðan á vit
framandi þjóða. Utgáfustjórn
NORÐURLANDS þakkar
honum samstarfið og óskar
honum velfarnaðar á komandi
árum.
Ekki hefur enn verið ráð-
inn ritstjóri í Óskars stað.
Undanfarin sumur hefur ver-
ið gert nokkurra vikna hlé á
útgáfu blaðsins vegna sum-
arleyfa og svo verður enn
gert. Er þetta því síðasta
blaðið að sinni.
Útgáfustjórn vinnur nú að
því að fá nýjan ritstjóra og
mun ganga frá þeim málum í
sumarleyfinu, þannig að á
útáliðnu sumri geti blaðið
haldið áfram göngu sinni á
ný með nýjum manni við
stýrið.
Jafnframt því sem útgáfu-
stjórn mun fá blaðinu nýjan
ritstjóra verður í sumarleyf-
inu unnið kappsamlega að
því að styrkja blaðið fjár-
hagslega í sessi. Þar þarf
einnig að koma til ykkar
hlutur, lesendur góðir. Þessa
dagana er verið að innheimta
áskriftargjöld fyrri hluta yfir
standandi ára. Menn eru
beðnir að greiða fljótt og vel
gjöld sin hvort sem að dyrum
berja innheimtumenn, eða
þeir fá senda gíróseðla.
Minnist þess að blaðið á ekki
til annarra en ykkar að
sækja, og dragið það því ekki
of lengi á krónunum.
Stór áskrifenda-
söfnun
En útgáfustjórn hyggur á
fleira en innheimtu áskriftar-
gjalda. í vændum er stór-
felld áskriftaherferð, fyrst og
fremst hér í kjördæminu. Á
þeim dögum sem liðnir eru af
þessu ári er ekki fjarri að
blaðinu hafi bæst einn nýr
áskrifandi á dag. En betur
má ef duga skal. Takmark
okkarer lOOOnýiráskrifend-
ur á árinu. Því mun útgáfu-
hléið verða ósleitilega notað í
því skyni að það mark náist,
og þar kemur aftur til ykkar
hlutur. Bjóðið því kunningj-
um ykkar og vinnufélögum
að gerast áskrifendur, fá
a.m.k. tilraunaáskrift og til-
kynnið blaðinu um nöfn
þeirra.
Takmark okkar er að inn-
heimta útistandandi skuldir í
júní og nota þann mánuð og
hinn næsta til að safna nýjum
áskrifendum að þessu ágæta
blaði, sem svo heiisar ykkur
aftur vígreift fyrir haustið.
Tryggvi Jakobsson mun á
næstu vikum hafa stjórn
þessara mála á hendi, og eru
menn hvattir til að hafa sam-
band við hann á skrifstofu
NORÐURLANDS, meðpen
inga sína, nýja áskrifendur
og fleira sem þeir kunna að
hafa að færa blaðinu eða
þurfa að létta af hjarta sínu.
Útgáfustjórn.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi
Hinn nýkjörni formaður, Höskuldur Stefánsson.
voru samþykktar án breytinga.
Formaður var kjörinn Hösk-
uldur Stefánsson. Aðrir í stjórn
og varastjórn voru kjörnir:
Brynjar Ingi Skaptason, Gísli
Ólafsson, Páll Hlöðversson,
Haddur Júlíusson, Tryggvi
Jakobsson, Katrín Jónsdóttir,
Sigríður Stefánsdóttir, Helgi
Haraldsson og Geirlaug Sigur-
jónsdóttir. Endurskoðendur
voru kjörnir Jóhannes Jósefs;
son og Friðrik Kristjánsson. í
Fulltrúaráði voru kjörnir eftir-
taldir félagar: Helgi Guðmunds
son, Soffía Guðmundsdóttir,
Steinar Þorsteinsson, Hólm-
fríður Guðmundsdóttir, Óttar
Einarsson, Guðrún Aðalsteins-
dóttir, Bragi Skarphéðinsson,
Geir ívarsson, Geirlaug Sigur-
jónsdóttir og Torfi Sigtryggs-
son. Varamenn: Ragnheiður
Pálsdóttir, Magnús Ásmunds-
son, Jón Hafsteinn Jónsson,
Sigtryggur Jónsson og Harald-
ur Bogason. í hússtjórn Lárusar
Framhald á bls. 7
Aðrar leiðir í baráttunni
Aðalfundur ABA haldinn 29.
maí 1979 ítrekar ályktun fé-
lagsfundar frá í vetur um sam-
tvinnun ísl. auðvaldsins og
amerískrar hersetu. Telur
fundurinn, að það sé ekki
sósíaliskum markmiðum til
framdráttar að taka þátt í
borgaralegum ríkisstjórnum,
sem stíga ekkert skref í þá átt
að Iosa landið við ameríska
herinn og þjóðina úr Nató.
Aðildin að Nató og hersetan
eru þjóðinni til auðmýkingar
og auðvelda alþjóðlegu auð-
valdi samruna við íslenskt. Því
telur aðalfundurinn að fram-
vegis beri að sinna öðrum
leiðum en þingræðisleiðinni
einni í sósíaliskri baráttu
Alþýðubandalagsins.
Raufarhöfn og Þórshöfn:
Næg verkefni
- fyrir 2 tannlœkna í 5 ár
Raufarhöfn 29/5. Ennþá er
íshrafl inni á höfninni; - en
ístíðinni er vonandi að Ijúka.
Bryggjur, sem reyndar eru gaml-
ar og fúnar, eru farnar að gefa sig
undan ísnum. Bátar hafa orðið
fyrir mjög miklu veiðafæratjóni
héðan, - sérstaklega grásleppu-
bátar. Hins vegar eru grásleppu-
kallar enn bjartsýnir á veiði, því
grásleppan er ekkert farin að
hrygna ennþá. Bændurínágrenn-
inu er farnir að miðla heyjum.
Lionsfélagið gaf hingað tann-
læknatæki fyrir rúmu ári. Þau
hafa staðið hérna ónotuð síðan.
Tannlæknanemar buðust til að
koma hingað, - en fengu ekki
leyfi frá Tannlæknafélaginu. Þá
var auglýst erlendis eftir dönsk-
Frá Dalvik
Við óskum NORÐUR-
LANDI gleðilegs sumars og
góðrar hvíldar og vonum að
það fari af stað aftur af
endurnýjuðum lífsanda í
haust. Ritstjórann, Óskar
Guðmundsson og starfsfólk
blaðsins, þau Kristínu Á.
Ólafsdóttur og Tryggva
Jakobsson, sem öll eru að
hætta störfum kveðjum við
með sárum trega og þökkum
hressilegt samstarf.
Stefán Björnsson,
Rúnar Lund,
Sólveig Brynja Grétarsd.
Dalvík.
s___________________________^
um tannlæknum og sýndu þeir
áhuga. Þá tóku þeir við sér hjá
tannlæknafélaginu og gátu sent
hingað mann í 6 vikur. Það
dugir hins vegar skammt, því
hér á Raufarhöfn og Þórshöfn
eru verkefni fyrir tvo tannlækna
í fimm ár. Það er skringilegt að
læknanemar séu sendir út á land
eins og ekkert sé, - meðan að
tannlæknanemar fá ekki að
spreyta sig á jafn ærnum
verkefnum og bíða i tanngörð-
um sveitamanna. Líney.
f---------------------------\
Kristín kvödd
Útgáfustjórn sér nú á bak
einum þriðjungi sínum, þar
eð Kristín Ólafsdóttir er nú
á förum úr bænum og stefnir
úr landi. Saga hennar og
saga blaðsins hafa verið
meira en lítið tengdar allt
frá upphafi þess, og ýmis
önnur mál einnig ekki síst
ijárhagsmálin. Kristín hef-
ur eins og menn vita löngum
séð um rekstur og dreifingu
blaðsins, og oft hefur bið
hennar orðið löng eftir kaup-
inu sínu, og fleiri ósvífni
hefur afkvæmið sýnt henni,
en Kristín umborið. Það er
því með eftirsjá að blaðið sér
á bak Kristínu, en það og að-
standendur þess aðrir þakka
samstarfið og óska henni
alls hins besta í framtíðinni.
Útgáfustjórn.
^■■—■■■■....... ■■■■■■ ■ ■'» » ------------------------------------------------------- —..... '
^ Guðjón Björnsson í Hrísey segir
frá spennandi ferð umhverfís
eyna á bls. 3
Leikdómur Oddu Margrétar
um nýjasta verk LA - Skrítna
fuglinn á bls. 4
Viðtöl við nokkra fulltrúa ABA í
bæjarnefndum Akureyrar eru á
bls. 5