Norðurland - 20.09.1979, Page 1
Minna v:
Við breytum skipulaginu
A nýafstöðnu Fjórðungsþingi
Norðlendinga var m.a. samþykkt
ályktun um hvernig staðið skuli
að framkvæmd friðunaraðgerða
á þorskstofninum, þannig að sem
minnstum sveiflum valdi á störf-
um landverkafólks. Kristján As-
geirsson á Húsavík sem var
framsögumaður sjávarútvegs-
nefndar sagði í samtali við Norð -
urland að meining flutnings-
manna væri sú að ef fara ætti eftir
tillögum Hafrannsóknarstofnun -
arinnar varðandi hámarksafla á
þorski yfir árið yrði að standa
þannig að málum að veiðar og
vinnsla dreifðust yflr árið allt í
stað þess að stöðva veiðar síð-
ustu mánuði ársins eins og nú
blasti við ef tillögum Hafrann-
sóknarstofnunar ætti að fram-
fylgja. í ár reiknar stofnunin með
280-290 þús. tonna hámarksafla
og því marki verður fljótlega náð.
„Núverandi ástand hefur
marga ókosti í för með sér,“
sagði Kristján. „Meðan keppst
er við að fiska upp í kvótann
anna vinnslustöðvarnar ekki
því að vinna hráefnið eins og
þær hefðu annars möguleika á,
afleiðingin verður sú að fyrsta
flokks hráefni fær annars flokks
Nýr ritstjóri
Nýr framkv.stjóri
Jón Guðni Kristjánsson.
Loftur H. Jónsson.
Eins og kemur fram annars staðar á síðunni, taka nú nýir starfs -
kraftar við á blaðinu. Óskar Guðmundsson fýrrum ritstjóri er
sigldur til náms í Kaupmannahöfn en við starfí hans hefur tekið
Jón Guðni Kristjánsson frá Sigtúnum í Eyjaflrði sem áður var
kennari í Reykjavík og endur fyrir löngu var blaðamaður á Tím-
anum undir járnhæl Kristins Finnbogasonar. NORÐURLAND
býður hann velkominn til starfa.
Nú hefur Tryggvi Jakobsson sem séð hefur um fjármálahlið
útgáfunnar einnig látið af störfum við blaðið og gerst kennari
við Hrafnagilsskóla. Við starfi hans er tekinn Loftur H. Jóns-
son bankastarfsmaður í Reykjavík. Loftur er þaulkunnugur í
völundarhúsi bókhaldstækninnar og hefur ákveðið að nýta þá
þekkingu sína : þágu hinnar sósíalistísku baráttu í Norður-
landskjördæmi eystra. Við vonum að honum vegni vel í starfi og
að víxlum NORÐURLANDS fækki undir hans stjórn en inni-
stæður aukist. Tryggva Jakobssyni árnum við heilla í nýju starfl
og þökkum honum vel unnin störf.
vinnslu m.ö.o. verðmæti afurð-
anna verður alls ekki það sem
gæði hráefnisins gefur tilefni til.
Það er ekkert fjarlægt að hugsa
sér að með betri skipulagningu
veiðanna geti útflutningsverð-
mæti 290 þúsund tonna orðið
jafnmikið og 320 þúsund tonna
við núverandi ástand. Auk þess
vill verkafólk í fískvinnslu
gjarna fá að líta upp úr vinnunni
yfir sumarmánuðina eins og
aðrir en eins og að málum er
staðið nú er óhóflegt vinnuálag
á þessu fólki.“
I ályktun sjávarútvegsnefnd-
ar er bent á eftirfarandi atriði
sem beri að hafa í huga ef
tryggja skuli næga friðun, stöð-
uga atvinnu og sem mest út-
flutningsverðmæti:
L byrjun árs liggi fyrir friðun-
aiaðgerðir sem miðist við að
veiðin dreifist á alla aflamánuði
áirsins.
Tryggðir verði hagsmunir ein
stakra staða með fiskmiðlun.
Með tilfærslu milli greina í
sjávarútvegi verði hvatt til auk-
innar sóknar í vannýtta fiski-
stofna og um leið tryggð sala
þeirra afurða.
Frá útgáfustjóm
L
NORÐURLAND heilsar ykk-
ur lesendur komið úr sumar-
leyfi sínu sem varð í lengra lagi
að þessu sinni. Má þar til nefna
ritstjóraleysi fyrst og nú síðast
þegar fara átti af stað dundi yfir
verkbann á Grafíska sveina-
félagið sem stöðvaði alla prent-
vinnu við blaðið. En nú hefur á
hvoru tveggja verið ráðin bót,
samningar tekist í kjaradeil-
unni og nýr ritstjóri, Jón Guðni
Kristjánsson, ráðinn og er hann
kynntur hér annars staðar á
síðunni.
Blaðið mun taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið fyrir
sumarleyfi og vitja kaupenda
sinna vikulega sem áður og nú
a.m.k. 8 síður í hvert skipti. Það
er fyrst og fremst kjördæmis-
blað og mun því einkum leggja
rækt við fréttir af Norðuriandi
eystra sem áður, þótt e.t.v.
verði víðar seilst til fanga. Þá
hefur blaðið aldrei farið dult
með pólitíska afstöðu sína og er
það von okkar að sósíalistar
ræði þar áfram málefni sín af
fyllstu ábyrgð og hreinskiini.
Til þess stendur það opið.
Enn er þess að geta að leitast
mun við að gera blaðið virkara í
umræðu þeirra mála sem efst
eru á baugi hverju sinni, ekki
síst í byggðum kjördæmisins.
Eru lesendur hvattir til að vera
óragir að senda því greinar,
aðeins bent á að sökum tak-
markaðs rúms verður að stilla
lengd þeirra mjög i hóf.
Ný ritnefnd hefur verið skip-
uð til að starfa með ritsjóra. í
henni er að vísu enginn sem ekki
hefur áður komið nokkuð við
sögu blaðsins og því lesendum
kunnir. Ritnefndina skipa:
Böðvar Guðmundsson, Erling-
ur Sigurðarson, Helgi Guð-
mundsson, Soffía Guðmunds-
dóttir og Tryggvi Jakobsson.
Blaðið hefur frá upphafi
verið i sókn og á þessu ári hafa
því bætst um 100 nýir áskrif-
endur. Engu að síður er fram-
tíð þess undir því komin að
áskrifendum fjölgi enn veru-
lega. Til að svo verði stendur nú
yfir stórsöfnun nýrra áskrifta.
Er í því sambandi heitið á alla
velunnara blaðsins að leggja
sitt af mörkum og færa því einn
nýjan áskrifanda hver. Auk þess
er blaði þessu dreift í hvert hús í
þéttbýlisstöðum í kjördæminu
til kynningar og verður mönn-
um í kjölfarið boðin áskrift að
því.
Því er ekki að leyna að rekst-
ur blaðsins hefur verið fjár-
hagslega erfiður. Það á ekki í
önnur hús að venda en til les-
1 enda sinna sem hafa líf þess í
höndum sér. Því hefur nú verið
ráðist í fjársöfnun meðal þeirra
og eru menn beðnir að bregðast
vel við er til þeirra verður
leitað. Stuðningsfé má leggja
inn á reikning blaðsins í Lands-
bankanum á Akureyri nr. 24620
eða senda það beint til blaðsins í
pósthólf 492.
Utgáfustjórn veit um góðan
hug margra. Hann er henni
hvatning til dáða að efla blaðið
og gera það stærra og betra.
Vinstri hreyfing á Islandi yrði
fátækari ef ekki væri NORÐ-
URLAND.
Útgáfustjórn.
Atvinnuástandið
á Dalvík
blaðsíðu 5.
Pistilinn
skrifar
Jón Ingimarsson.
Gerist áskrifendu r að Norðuriandi