Norðurland - 20.09.1979, Qupperneq 6
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ EINING:
Fulltrúakjör
Auglýst er eftir framboðslistum vegna kjörs fulltrúa
félagsins á 9. þing Verkamannasambands íslandsog
16. þing Alþýðusambands Norðurlands.
Framboðslisti til þings Verkamannasambandsins
skal skipaður 14 félagsmönnum og jafnmörgum til
vara, framboðslisti til þings AN 28 fulltrúum og jafn-
mörgum til vara. Þá skulu fylgja hverjum lista með-
mæli 100 fullgildra félagsmanna.
Framboðslistum skal skila á skrifstofu félagsins í
Skipagötu 12 á Akureyri eigi síðar en kl. 12 á hádegi
mánudaginn 24. september nk.
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður auglýst síðar,
komi fram fleiri en einn listi vegna fulltrúakjörs til
hvors þings.
Akureyri, 17. september 1979.
Verkalýðsfélagiö Eining.
Skrifstofustarf
Lífeyrissjóðurinn Sameining óskareftirstarfsmanni.
Umsóknir sendist sjóðnum fyrir 10. okt. nk. ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Allar upplýsingar gefur Jón Helgason, forstöðumað-
ur sjóðsins, Skipagötu 12, sími 21739.
Lífeyrissjóöurinn Sameining.
mm-----rr*rs------
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Tilkynning
til hundaeigenda á Akureyri
Hér með er eigendum og eða umráðamönnum
óskráðra hunda á Akureyri fyrirskipað að láta skrá þá
á skrifstofu heilbrigðisfulltrúa fyrir 1. október 1979.
Eftlr þann tíma verða óskráðirhundarfjarlægðirhvar
sem til þeirra næst.
Jafnframt er öllum hundaeigendum bent á að
óheimilt er að láta hunda ganga lausa á almanna-
færi og varðar það leyfissviftingu.
Heilbrigðisfulltrúinn Akureyri.
n P
Lopa- peysur Tökum á móti heilum lopapeysum. Óskum eftir Ijósgráum, hvítum og mórauðum peysum. Hækkað verð. Iðnaðardeild SÍS
□ HBS á u
AKUREYRARBÆR
AUQLÝSIR
... ■ ■ ■■ :.:.:..
Framkvæmda-
gleði
á Raufarhöfn
Starfsmaður óskast
að skóladagheimilinu Brekkukoti sem fyrst. Starfið
felst m.a. í umsjón með smíðum og föndri og þurfa
umsækjendur helst að hafa bíl til umráða. Umsókn-
um sé skilað á Félagsmálastofnun, Geislagötu 5, fyrir
20. þ.m. Nánari upplýsingar fást í síma 25880 og
25881 milli kl. 10 og 12.
........—--
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Meindýraeyðing
Meindýraeyðir Akureyrarbæjar hefur fengið nýtt
símanúmer.
Viðtalstími verður framvegis á þriðjudögum og föstu-
dögum frá kl. 10-12 í síma 25602.
Garftyrkjustjóri.
............. .... ..
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
——— ....i ..... ...■■■
Kartöflugeymsla
Þeir aðilar sem hafa hólf í Geymslu bæjarins, eru
beðnir að greiða leigu fyrir þau fyrir 1. október, á
skrifstofu bæjargjaldkera.
Að öðrum kosti verða hólfin leigð öðrum.
Garðyrkjustjóri.
Lífeyrissjóður trésmiða
Sjóðsfélagar, sem hyggjast sækja um fasteignaveðs-
lán haustið 1979, þurfa að skila umsóknum á tíma-
bilinu 1. til 15. október.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrif-
stofu sjóðsins, Ráðhústorgi 3.
Stjórn Lífeyrissjóðs trésmiða.
Hafin er
slátursala
hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar.
Sendum I bœinn, minnst 10 slðtur.
flutníngsgjald er 1000 kr.
Síminn er 21338.
Þó að Raufarhafnarbúar hafí
■taðið agndofa gagnvart tíðar-
farinu í sumar hafa þeir þó ekki
síður staðið agndofa gagnvart
ölium þeim framkvæmdum sem
staðið hafa yfír á vegum hrepps-
ins í sumar. I alit sumar hafa ekið
hér um göturnar hersingar þunga
vinnuvéia af ölium tegundum.
Þær framkvæmdir sem þorpsbúar
bíða nú í mestri ofvæni eftir að
ljúki er lagning nýrrar vatns-
leiðslu frá lindum rétt fyrir
sunnan bæinn, en eins og kunnugt
er höfum við búið við ónýtt
drykkjarvatn í marga mánuði.
Framkvæmdum miðar vel áfram
og var verið að steypa uppistöðu-
lón við lindirnar og byggja dælu-
stöð í þorpinu. Ætlunin er að
Ijúka verkinu fyrir 15. októberog
þá fáum við milli 40 og 50
sekúndulitra af vatni sem er
helmingi meira en við notum nú.
, Meiningin var að olíubera
Asgötu og helming Aðalbrautar
í sumar og er búið að undirbúa
göturnar fyrir slitlagið. Litlar
líkur eru nú til þess að takist að
ljúka verkinu þar sem'hiti má
ekki vera lægri en fimm gráður
og veður þarf að vera þurrt
meðan olíumölin er lögð.
Ellefu íbúða fjölbýlishús er í
smíðum á vegum hreppsins og
stefnt að því að það verði fokhelt
fyrir áramót. Þá hefur verið
slegið upp fyrir síðasta áfanga
íþróttahússins og verður byrjað
að steypa einhvern næstu daga.
Ekki má það minna vera en
fólk lyfti sér upp eftir barning
sumarsins enda hefur þegar ver-
ið kjörin skemmtinefnd fyrir
árshátíð Alþýðubandalagsins.
Meiningin er að hún fari fram
um miðjan október. - Líney.
---------------—-----\
Efiðar göngur
Blm. hringdi í Tjörn í
Svarfaðardal til að frétta af
göngum og réttum þar í sveit
um sl. helgi. Hjörleifur Hjart
arson sagði að elstu menn
myndu ekki annað eins veður
í göngum.
- Skyggni var bókstaflega
ekkert, þó held ég að heimtur
hafi verið sæmilegar, sagði
Hjörleifur. - Fé var flest
gengið niður, þó gekk hálf
illa að koma_því í réttina á
Krosshóli, óttaleg fýla bæði í
fé og hestum fyrir veðrið.
Dráttur gekk nokkuð vel á
sunnudaginn þrátt fyrir leið-
indaveður. Menn voru hress-
ir, héldu uppi söng og létu
pelann ganga. Dilkar eru
mjög smáir hér sem annars
staðar. - Brynja.
Göngum
frestað
Hjá Rafni Arnbjörnssyni
fengust þær upplýsingar að
búið hefði verið að fresta
göngum á Dalvík um viku,
þ.e. til 22. sept., en ákveðið
var i skyndi að ganga sl.
laugardag þar sem veðuryar
mjög slæmt. Sagði Rafn að
fremur fátt fé hefði komið að
réttinni, þó mætti ætla að
eitthvað hefði verið komið
niður til bæja fyrir göngur.
Gangnamenn fundu á með
tveimur nýfæddum lömbum
á.Böggvisstaðadal, giskað er
á að lömbin séu um viku
gömul. í heild sagði Rafn að
göngur og réttir hefðu gengið
vel þrátt fyrir slæmt veður. -
Stefán.
V - J
6 - NORÐURLAND