Norðurland - 20.09.1979, Blaðsíða 8
NORÐURLAND
Fimmtudagur 20. sept. 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
í NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
,ÁSKRIFENDUR
- Súninn er 2-18-75
AUGLYSIÐ í
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75 -
Vandrceðaástand víða um Norðurland
Stórfelld fækkun búfjár
virðist nú óumflýjanleg
Sumarið hefur orðið bændum í
Norður-Þingeyjarsýslu þungt í
skauti. Ekki er annað sýnna en
að þar verði um stórfelldan
niðurskurð á búfé að ræða í
haust. Blaðið hafði samband við
bændurna Pétur Þorsteinsson á
Daðastöðum í Núpasveit og
Jóhannes Sigfússon á Gunnars-
stöðum í Þistilfirði. Þeir sögðu
að til undantekningar heyrði ef
bændur væru búnir að ná meiru
en helmingi inn af heyfeng
sínum, algengt væri að einungis
þriðjungur væri kominn í hús.
Verkun mun vera sæmileg víðast
hvar á þeim heyjum sem náðst
hafa en spretta var undir
meðallagi. Tíðarfar nú er með
þeim hætti að bændur eru
uggandi um að ekki muni takast
að ná öllu meiri heyjum í hús í
haust og stefnir þá í algert
neyðarástand hjá fjölmörgum.
Heykaup verða erfið, hey er í
háu verði og óvíða á landinu
munu bændur vera aflögufærir.
Ekki bætir úr skák fyrir norður
sýslungum að vestan Jökulsár á
Fjöllum og austan Jökulsár á
Dal gætir riðuveiki í fé og því
ekki um heykaup að ræða
þaðan. Forða gæslumenn vinna
nú að könnun á heyfeng og þess
er að vænta að bændur í sýslunni
komi saman á næstunni, ræði
ástandið og geri tillögur um
aðgerðir. Stórfelldur niður-
skurður mundi koma sér einkar
illa fyrir bændur á þessu svæði
því bú eru þar yfirleitt lítil.
Fyrstu göngur eru nú víða afstaðnar, fé er rýrt og víða verður mikil fækkun í haust.
Bændur vestan
Vaðlaheiðar
eru ekki eins
illa staddir
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Starfið framundan
Félagsfundur
veröur í Alþýðubandalagsfálagi Akureyrar laugardaginn 22. september
kl. 15.00 í Lárusarhúsi.
DAGSKRA:
1. Kjör fulltrúa á kjördæmisþing.
2. Kjör fulltrúa á flokksráðsfund.
3. Stefán Jónsson, alþm., ræðir stjórnmálaviðhorfið.
4. önnur mál.
Bæjarmálaráð
Fundur verður í Bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á mánudagskvöld
24. september kl. 20.30.
Mætum vel.
Hafa ekki efni á
að kaupa hey
Að þessu sinni munu bændur á
norðurlandi vera verr undir
veturinn búnir en verið hefur um
langt skeið. Verst mun ástandið
vera í Norður -Þingeyjarsýslu,
svo og í Bárðardal, Tjörnesi og
Köldukinn. NORÐURLAND
náði tali af nokkrum mönnum og
spurðist fyrir um horfurnar og
fara svör þeirra hér á eftir.
Vestan Vaðlaheiðar eru bændur
ekki eins illa staddir og kollegar
þeirra fyrir austan. Hjörtur
Þórarinsson á Tjörn í Svarfaðar-
dal sagði að ein þurrkvika
myndi gera að verkum að
bændur í dalnum mundu ná
heyjum eins og í meðalári en enn
væri allmikið úti bæði slegið og
óslegið. Þó yrðu bændur hey-
minni í veturen venjulega vegna
þess að fyrningar voru engar í
vor. Eitthvað hafa Svarfdæl-
ingar keypt af heyi innan úr
Eyjafirði en óhjákvæmilega
verður um' fækkun á bústofni að
ræða í haust. Þetta hefur verið
eitt allra leiðinlegasta sumar
sem komið hefur lengi sagði
Hjörtur.
Ævar Hjartarson ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar sagði Norðurlandi að
víða um hérað væri eitthvað úti
af heyjum. Ástandið yrði að
teljast sæmilegt í miðhéraðinu
þ.e. Öngulsstaða-Hrafnagils-og
Glæsibæjarhreppum en verra
annars staðar. Næstu dagar
skera úr um hvort ástandið
verður þolanlegt eða afleitt í
héraðinu í heild. Einhver hey-
sala mun hafa áttsér stað innan
úr firði, en Fákur kauprir árlega
hey þaðan. Ævar taldi gangverð
á heyi 60-70 krónur hvert kg.
Ljóst er að ekki verður um
mikla kartöflusprettu að ræða,
líklega láta margir við það sitja
að taka upp í útsæði.
„Við neitum nú ennþá að trúa
öðru en að við náum heyjunum
á endanum en útlitið er óneitan-
lega dökkt,“ sagði Jón Aðal-
steinn á Hlíðskógum í Bárðar-
dal þegar við simuðum til hans í
síðustu viku. „Það er mikið af
heyjum úti ennþá, viða allt að
helmingur, og sums staðar er
eitthvað óslegið. Það sem náðst
hefur af heyjum er gott og
sprettan náði meðallagi á end-
anum. Núna er alhvítt niður í
byggð og maður er farinn að
byggð og maður er farinn að
óttast að fé geti fennt. Þar
að auki búast menn nú ekki $íð
vænu fé eftir svona sumar.
Svona hret er reyndar ekkert
óalgengt um þetta leyti árs en
þegar það kemur í kjölfarið á
jafn slæmu sumri og verið hefur
nú þá er auðvitað hætt við að
neyðarástand skapist. Menn
hafa ekki efni á að kaupa hey og
þrautalendingin verður að skera
niður.“
Styðjum Norðurland
Eitt
verð ég
að segja
þér
nefnist hljómplata sem Sam-
tök herstöðvaandstæðinga
hafa nýverið sent á markað.
Á henni flytur hópur tón-
listarmanna, sem kalla sig
Heimavarnarliðið texta sem
beinast gegn herstöðvum á
íslandi og veru landins í
NATO. Tónlistin á plötunni
var annars flutt á baráttu-
samkomu herstöðvaandstæð
inga í Háskólabíói 30. mars
s.l. er NATOaðildin fyllti 30
ár illu heilli. Kaup á þessari
plötu er stuðningur við bar-
áttu samtakanna fyrir tak-
marki sínu.
Sjúkravöllur
við Ólafsfjörð
Framkvæmdir standa nú
yfir við flugvallargerð á
Ólafsfirði, og er stefnt að
því að þar verði tilbúinn
sjúkraflugvöllur fyrir vet-
urinn. Hægt hefur verið að
lenda á Ólafsfirði út úr neyð
en aðstaðan hefur verið
mjög slæm. Ekki ergert ráð
fyrir áætlunarflugi til Ólafs
fjarðar á næstunni.
Sex ára
flugvalla-
ácetlun
Þriðjudagskvöldið 4. sept.
var haldinn á Akureyri
fundur þar sem fulltrúar frá
flugmálastjórn kynntu nýja
áætlun varðandi uppbygg-
ingu fliigvalla á Norður-
landi. Áætlunin er gerð til
sex ára eða 1979-1985 og
nær til þeirra flugvalla sem
nýttir eru til áætlunarflugs í
dag. Gert er ráð fyrir að
tveim milljörðum miðað við
verðlag í júní s.l. verði varið
á ári hverju til viðbóta og
viðgerða á flugvöllum svo
og til öryggisútbúnaðar við
vellina. Viðstaddir á fund-
inum voru nokkrir þing-
menn úr norðlensku kjör-
dæmunum, starfsmenn flug
málastjórnar á Norður-
landi, starfsmenn flugfé-
laga og áhugamenn um flug
mál. Sigurður Aðalsteins-
son hjá Flugfélagi Norður-
lands sagði í samtali við
blaðið að það hefði vakið
furðu sína að enginn bæjar-
fulltrúi frá Akureyri var
staddur á fundinum né held
ur bæjarstjórinn. Hafa
þessi mál þó mikla þýðingu
einmitt fyrir Akureyri,
sagði hann.
Raufarhafnar-
búar agndofa
Sumarið mun lengi í minn-
um haft hér á Raufarhöfn
vegna kaldrar og vætu-
samrar veðráttu og gæfta-
leysis. Sólardagar voru
varla fleiri en tíu og þau
skipti áreiðanlega teljandi á
fingrum annarrar handar
þegar hitinn skreið yfir tíu
stig.
Eftir lélega grásleppu-
veiði s.l. vor hafa smábáta-
eigendur beðið í allt sumar
eftir að þorskveiðin glædd-
ist, en þá fáu daga sem hef-
ur verið sjóveður hefur
varla fengist bein úrsjó. Nú
vonast menn eftir góðri
loðnuveiði.
Þrátt fyrir gæftaleysið
hefur þó verið næg vinna í
frystihúsinu í sumaren tog-
arinn Rauðinúpur hefur
aflað ágætlega. - Líney.