Norðurland - 11.10.1979, Síða 1
NORÐURIAND
. argangur
Talið að Ólafur biðjist
lausnar í dag
Minnihlutastjórn með stuðningi krata
----------——. .: í fæðingu?
• Alþýðubandalag og Framsókn-
arflokkur leggjast gegnþingrofi
• Ákvörðun A Iþýðuflokksins gerir
nýja viðreisnarstjórn nánast
eina valkostinn eftir kosningar.
• Kjarasamningar verða gerðir
við mjög erfið skilyrði.
• Kosningar verða líklega þann
16. desember.
„Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga.“
Bæði framsóknar og alþýðu- sjálfstæðismenn lögðu í gær
bandalagsmenn hafa lagst gegn eftir þingsetningu fram þings-
þingrofi og kosningum, en ályktunartillögu þess efnis.
Nú er ei til Bessa-
staða leiðin löng
• Stjórnar Sjálfstœðisflokkurinn
með bráðabirgðalögum fram yfir
áramót?
Flokkarnir eru sammála um að
þingrof nú hefði í för með sér
afyrirsjáanlegar afleiðingar
þegar tillit er tekið til þess að
kjarasamningar A.S.I. og
B.S.R.B. eru lausir um áramót
auk þess sem fjárlög og láns-
fjáráætlun mega illa dragast
langt fram á næsta ár. Beri því
að láta reyna á hvorki ekki sé
unnt að mynda stjórn sem hefði
á bak við sig þingmeirihluta nú
þegar Ólafía hefur gengið fyrir
ætternisstapann. Þá er það
einnig sanngirniskrafa að
Alþýðuflokkurinn láti í fullri
alvöru reyna á það hvort þeir
geti fengið stuðning við þær
tillögur sem þeir segjast hafa
barist fyrir án árangurs í
fyrrverandi stjórnarsamstarfi,
ástandið í landinu krefst þess að
þeir sem yfir bjargráðum búa
setji ekki Ijós sitt undir mæliker.
Bíða menn nú spenntir eftir að
fá að vita hvort fyrsta bjargráð-
ið verður að afnema þau
rómuðu Ólafslög sem þeir vildu
leggja undir þjóðaratkvæði sl.
vetur. Ljóst er að margvís-
leg lagasetning bíður þingsins
því bráðabirgðalög sem sett
voru í sumarfríi þingsins falla úr
gildi er þing kemur saman.
Kemur því í hlut þeirra sem við
taka að leggja ný lög fyrir
alþingi eða setja ný bráðabirgða
lög verði þingrof ofan á eftir að
Geir hefur tekið við tónsprot-
anum.
Aðferð Alþýðuflokksins við.
að slíta stjórnarsamstarfmu og
koma þar með boltanum til
íhaldsins hefur verið með þeim
ólíkindum að menn velta fyrir
sér hvort þingmönnum krat-
anna sé sjálfrátt eða hvort Geir
sé fjölkunnugur og hafi magnað
þeim seið. Þanniggátuþeirekki
útskýrt fyrir samráðherrum
sínum né öðrum hvað í ákvörð-
un þeirra fælist hvort þeir ættu
að sitja í stjórninni fram yfir
kosningar eða ekki ef til þing-
rofs kæmi af hálfu Olafs
Jóhannessonar, en það er eins
og allir vita mikið hagræði
í því fyrir stjórnmálamenn að
gera sér grein fyrir því hverju
sinni hvort þeir eru í stjórn eða
ekki.
Þing Verkamannasambandsins
verður á Akureyri um helgina
Ákvörðun Alþýðuflokksins um
að segja sig úr ríkisstjórninni
getur ekki orðið til annars en að
færa Sjálfstæðisflokknum völd-
in á silfurfati. Vart er hægt að
hugsa sér úrslit kosninga á
annan veg en þann að tveir
möguleikar verði til myndunar
meirihlutastjórnar, þ.e. ný við-
reisnarstjórn eða samstjórn
þeirra þriggja flokka sem setið
hafa að völdunum undanfarið
ár. Sá möguleiki er naumast
fyrir hendi eftir það sem nú
hefur hent.
Að margra áliti var Sjálf-
stæðisflokknum ljóst að
Alþýðuflokkurinn hyggði á
stjórnarslit áður en til úrslita
dró þótt samstarfsaðilar fengju
fregnirnar fyrst í gegnum sjón-
varpið. Þótt kratar og sjálf-
stæðismenn hafi látið eftir sér
hafa að litlu skipti þótt fjárlög
yrðu ekki afgreidd fyrr enn á
þorranum þá eru fíestir svo
sanngjarnir að ætla það þeir séu
ekki svo skyni skropnir að
meina það i alvöru. Þegar þetta
er skrifað er það einnig talið að
Alþýðuflokkurinn muni hafa
samstarf við sjálfstæðismenn
um kjör þingforseta.
Níunda þing Verkamannasam-
bands Islands verður haldið á
Akureyri nú um hetgina og hefst
á Hótel KEA á föstudagskvöld.
Auk venjulegra þingstarfa
verða kjaramálin höfuðvið-
fangsefni ráðstefnunnar. Eins
og flestum mun kunnugt eru
kjarasamningar aðildarfélag-
anna lausir um áramót og er
þess að vænta að stefna verði
mótuð fyrir komandi kjara-
samninga á þinginu.
Þórir Daníelsson fram-
kvæmdastjóri Verkamannasam
bandsins sagði í samtali við
NORÐURLAND að það
óvissuástand sem nú ríkir í
íslenskum stjómmálum muni
óhjákvæmilega hafa einhver
áhrif á störf þingsins og stefnu-
mótun en taldi þó ástæðulaust
að ætla að hin nýju viðhorf í
pólitíkinni komi til með að
valda miklum ágreiningi. „Frá
upphafi sambandsins höfum
við borið gæfu til að komast hjá
flokkspólitískum deilum innan
þess, “ sagði Þórir.
Alls eiga 46 verkalýðsfélög
með samtals 22 þúsund félags-
mönnum aðild að Verkamanna
sambandi íslands.
Verkalýðsleiðtogar Kjördœmisþing Leiðari L.A. frumsýnir
á Norðurlandi A Iþýðubandalagsins Helga Galdrakarlinn
um stjórnarslitin. á Norðurlandi eystra Guðmundssonar. í Oz.
Bls. 3. Bls. 7 Bls. 4 Bls. 5
Gerist áskrifendur að Norðuriandi