Norðurland - 25.10.1979, Side 2
Amtsbóka safnið miðsafn
fyrir Eyjafjarðarsýslu
Ekkienn
heitt vatn
í Hrísey
Þann 13. október síðastliðinn
var haldinn á Amtsbókasafninu
á Akureyri fundur bókavarða
úr Eyjafjarðarhéraði, að til-
hlutan bókafulltrúa ríkisins var
amtsbókasafnsins. Voru þar
mættir bókaverðir og stjórnar-
menn bókasafna frá Ólafsfirði,
Dalvík, Hrísey, Skriðuhreppi,
Öxnadal og Þelamörk, einnig
bókavörður Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri og bóka-
verðir Amtsbókasafnsins svo og
bókafulltrúi ríkisins Kristín H.
Pétursdóttir.
Gafst fundarmönnum þarna
tækifæri til að ræða við bóka-
fulltrúa, greina frá sínum vanda
málum og leita ráða og upplýs-
inga. Kristín H. Pétursdóttir
greindi frá hvert væri hlutverk
bókafulltrúa og ræddi tengls
hans við almenningsbókasöfnin
í landinu. Lagði hún mikla
áherslu á gott og náið samband
við bókasöfnin og nauðsyn þess
að söfnin stæðu ætíð skil á
ársskýrslum sínum til bókafull-
trúa, því skýrslur þessar eru
mikilvægur liður í því að skapa
þá heildarmynd af bókasaafns-
starfseminni í landinu sem
nauðsynleg væri við gerð fram-
tíðaráætlana í bókasafnsmál-
um. Bókafulltrúi greindi einnig
frá þvi að í ráði er að koma af
stað námsskeiði í bréfaskóla-
formi fyrir bókaverði og kynnti
einnig starfsemi Þjónustumið-
stöðvar bókasafna sem væntan-
lega mun nú taka að sér útgáfu
og dreifingu á skráningar-
spjöldum, auk þess em hún
hefur á boðstólum ýmsar vörur
til bókasafna, eða annast út-
vegun þeirra.
Á síðastliðnu ári gekk í gildi
ný reglugerð um almennings-
bókasöfn. Samkvæmt henni
skal landinu skipt í bókasafns-
umdæmi og í hverju umdæmi
skal vera eitt miðsafn. Akureyri
og Eyjarfjarðarsýsla er eitt
umdæmi, með Amtsbókasafnið
á Akureyri sem miðsafn. Ólafs-
fjörður og Dalvík eru sérstök
umdæmi.
Hlutverk miðsafna gagnvart
öðrum bókasöfnum í umdæm-
inu er meðal annars að „veita
hreppssöfnum, skólasöfnum og
stofnanasöfnum í umdæminu
aðstoð og þjónustu og efla
samvinnu þeirra“, eins og segir í
áðurnefndri reglugerð.
Til þessa hefur nokkuð skort
á að samband væri á milli hinna
einstöku bókasafna i héraðinu
og var því, í samráði við
bókafulltrúa ríkisins, brugðið á
það ráð að boða til þessa
fundar. Verður hann væntan-
lega til þess að efla samstarf og
auka kynni milli bókasafnanna
hér um slóðir.
Daginn eftir fór bókafulltrúi
ásamt tveim bókavörðum
Amtsbókasafnsins til Ólafs-
fjarðar til skrafs og ráðagerða
við forráðamenn bókasafnsins
þar og bæjarfulltrúa kaupstað-
arins.
Bókasafn Ólafsfjarðar hefur
um skeið verið í nokkrum
öldudal, en heimamenn hafa
fullan hug á að ráða þar bót á og
reyna að efla safnið og bæta í
framtíðinni.
voruna
BRYNJÓLFUR HALLDÓRSSON
skípstjóri á b/v ögra RE 12 fiskaði
4652 tonn árið 1978. Hann segir:
Áreiðanlegasta umsögn um troll-
net kemur frá íslenskum togveiði-
skipstjórum og netagerðar-
mönnum. Fáir sjómenn í heim-
inum þurfa jafn sterk troll með jafn
nákvæmum möskvastærðum sem
þeir. 80% neta á íslenskum tog-
veiðiskipum eru frá Hampiðjunni.
Það er helmingur framleiðslu okkar
á því sviði. Hinn helmingurinn fer til
kröfuharðra skipstjóra úti í heimi.
„Við togum nú á botni sem enginn
hefði reynt við fyrir örfáum árum.
Það hefði verið óhugsandi án
þeirra eiginleika sem trollin frá
Hampiðjunni hafa nú í dag. Þau
eru þrælsterk og dragast vel, hafa
mikið núningsþol."
Við bjóðum efni í botn- og flottroll úr snúnu og fléttuðu garni, poka
mottur, benslagarn, fiskilínur, blýkaðla og alla aðra kaðla.
Stakkholti 4, Reykjavík, sími 28100
Borun eftir heitu vatni í Hrísey
hefur enn ekki borið árangur.
Eins og áður hefur verið getið
um í NORÐURLANDI borar
jarðborinn Ýmir eftir heitu
vatni í Hrísey. Sú borun hefur
þó ekki borið árangur enn þá.
í byrjun mánaðrins var lokið
holunni, en hann komst niður á
630 m. dýpi. Á botni þeirrar
holu mældist hiti 83.6 gráður á
celsíus.
Nú er borinn kominn niður á
230m. í annari holu, og á því
dýpi er hitinn 62 gráður.
Heita vatnið í Hrísey var í
upphafi 65 gráður en er nú
komið nokkuð niður fyrir sex-
tíu. Það er muög miður að fá
ekki vatn með því háa hitastigi
sem þarna hefur fundist, því
varla er vatnið þar kaldara en
berglögin.
Vandræðaástand getur skap-
ast í vetur ef ekki rætist úr. Því
eins og áður hefur verið getið í
NORÐURLANDI mun hita-
veitan ekki anna þörfinni í vetur
eins og ástandið er nú.
Samsýning
Myndhópsins
Fyrsta samsýning sem Mynd-
hópurinn á Akureyri stendur
fyrir, síðan hann var formlega
stofnaður í janúar sl„ verður
haldin í félagsheimilinu Hlíðar-
bæ, dagana 17. til 25. nóvember
nk.
Sú nýbreytni verður upp
tekin, að öllu norðlensku mynd-
listarfólki er boðið að senda
verk til sýningarnefndar Mynd-
hópsins, en hún sker úr um það,
hvort verk verður tekið til
sýningar eða ekki. Engin tak-
mörkun er á fjölda innsendra
verka, en sýningarnefnd er að
sjálfsögðu bundin stærð sýn-
ingarsalar.
Senda má hverskonar gerðir
myndverka, t.a.m. málverk,
teikningar, höggmyndir, grafík,
vefnað, textil, keramik og ljós-
myndir.
Verkum skal skila í Hlíðar-
bæ, fimmtudaginn 15. nóvem-
ber nk. kl. 17-19. Þátttökugjald
skal þá greiðast um leið, en það
er kr. 5000 fyrir utanfélags-
menn, en kr. 7000 fyrir félags-
menn.
Það er ósk sýningarnefndar
Myndhópsins, að sem flestir
norðlenskir myndlistarmenn
taki þátt í þessari sýningu, en
þátttakan mun að sjálfsögðu
skera úr um það, hvort fram-
hald verður á sýningum sem
þessum.
Nánari upplýsingar um sýn-
inguna gefur sýningarnefndin,
en hana skipa Guðmundur
Ármann, símar 24895 og 22196,
Jón Bjarni, sími 21704 og
Ragnar Lár, sími 23688.
Sýningarnefndin.
Lóreftstuskur
Léreftstuskur
Léreftstuskur
Léreftstuskur
Kaupum hreinar
lóreftstuskur
á hœsta verði
| Skjaldborg hf.j
Hafnarstræti 67
Sími 24-0-24
2 -NORÐURLAND