Norðurland - 25.10.1979, Qupperneq 3
Egilsstaðaskóli settur
99 nemendur í skólaruim í vetur
Sunnudaginn 14. okt. sl. var
Menntaskólinn á Egilsstöðum
settur í fyrsta sinn. Athöfnin fór
fram í Egilstaðakirkju og hófst
kl. 14.
Fjölmenni var við setningar-
athöfnina og fluttu ávörp: Séra
Vigfús I. Ingvarsson, formaður
bygginganefndar skólans,
Raghar Arnalds menntamála-
ráðherra og að síðustu Vil-
hjálmur Einarsson skólameist-
ari.
Að lokinni athöfninni í
kirkjunni bauð skólameistari
gestum að skoða' skólann og
þyggja veitingar.
Þar fluttu þingmenn og fleiri
ræður. Einnig var skólanum
færðar gjafir.
Þó að skólasetningin væri
þann 14. okt. var skólastarf þó
hafið fyrir nokkru. Nemendur í
skólánum eru 99 í vetur. Flestir
eða y4 eru af austurlandi.
Skólinn starfar eftir samræmdu
eininga og áfangakerfi fjöl-
brautaskólanna.
Skólahúsið er afar vandað,
nemendaherbergi búin snyrti-
herbergjum með steypibaði.
Mötuneyti er rekið við skól-
ann bæði fyrir heimavistanem-
endur og þá sem búa úti í bæ.
M.M.
Slátrun að Ijúka
Lélegir dilkar fyrir austan
Slátrun er nú að ljúka á
sláturhúsunum norðanlands og
mun víðast hvar vera lélegri
útkoma en í fyrra og að
meðaltali virðist vera um að
ræða V/i kg. lægri meðalvikt en
í fyrra. A sláturhúsunum á
Þórshöfn, Kópaskeri og Húsa-
vík gáfu sláturhússtjórarnir upp
þessa tölu sem líklegustu niður-
Hálf naut
og
hálf svín
Tilbúin i frystikistuna.
Kaupfélag
Svalbarðseyrar
Svalbarðseyri
Símar 21338 og 21204
^ ....... ■*
stöðuna. Slátun er lokið á
Húsavík, á Þórshöfn er fullorð-
insslátrun ólokið en er að Ijúka
á Kópaskeri.
Það er ljóst að um all mikla
fækkun er að ræða hjá
fjárbændum en of snemmt
er að nefna nokkrar tölur í því
sambandi. í Þistilfirði og á
Langanesi er algengt að bændur
setji ekki á eitt einasta lamb.
Að sögn Árna Óskarssonar
frystihússtjóra á Dalvík er nú
reiknað með að vinnsla heQist í
frystihúsinu á staðnum eftir
helgina en eins og fram hefur
komið í NORÐURLANDI hef-
ur vinnsla legið þar niðri síðan í
endaðan júlí vegna viðgerða á
frystihúsinu. Togarar Dalvík-
inga sigldu báðir með afla sinn
Hins vegar stendur þar enn yfir
heyskapur og þurrkdagarnir nú
þessa dagana eru notaðir til hins
ýtrasta til að freista þess að ná
inn einhverju af því sem liggur á
túnum. Það er því ekki öll nótt
úti enn, þótt ekki séu heyin
merkileg þá duga þau kannske
til að bjarga nokkrum ærlífum
sem annars hefðu verið dauða-
dauðadæmd.
einu sinni hvor í september en
þegar þetta er skrifað er annar
nýbúinn að losa afla sinn í
heimahöfn en hinn að landa í
Hrísey. „Það hafa verið mörg
ljón á veginum“, sagði Árni, og
ófyrirsjáanlegar tafir hafa orðið
á viðgerðunum en þetta kemst í
eðlilegt horf nú eftir næstu
helgi.
Vinnsla hefst 1 frysti-
húsinu á Dalvík
Orólegt við Kröflu
Landris hefur átt sér stað nú að
undanförnu við Kröflu oghefur
land nú risið hærra en í maí s.l.
en þá gekk síðasta hrina yfir.
Karl Grönvold hjá útibúi Orku-
stofnunar á Reykjahlíð sagði
NORÐURLANDI að ekki væri
neitt um málið að segja á þessu
stigi annað en að allt gæti gerst.
Jarðskjálftar hafa ekki orðið að
neinu marki en menn bíða
átekta.
Ragnar Arnalds. Vilhjálmur Einarsson.
SÖLUBÖRN
NORÐURLAND óskar eftír börnum til aö selja
blaðið á föstudögum.
NORÐURLAND
Auglýsið í
NORÐURLANDI
NORÐURLAND
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
I NORÐURLANÐS-
KJÖRDÆMI EYSTRA
Fréttir af Norð-
urlandi.
Hressileg póli-
tísk umræða.
Skrif um listir og
menningarmál.
Skákþáttur Helga
Ólafssonar.
Krossgátan.
íþróttir.
Norðurland
er 8 síður og
kemur út
vikulega.
Áskriftargjald inn-
heimtist tvisvar á ári.
Áskriftargjald fyrir
hálft árið er kr. 3.500.
Sími21875
Eiðsvallagata 18
Pósthólf 492
Akureyri
Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að
NORÐURLANDI:
Nafn:_______________________________________________
Heimili:____________________________________________
Póstnúmer:__________________________________________
NORÐURLAND - 3