Norðurland - 25.10.1979, Page 4
NORÐURIAND
NORÐLENSKT VIKUBLAÐ
Málgagn sósíalista í Norðurlandskjördæmi eystra
Rltnefnd: Böövar Guðmundsson, Erlingur Slguröarson,
Helgl Guömundsson, Sofffa Guðmundsdóttir, Tryggvi Jakobsson.
Ritstjóri: Jón Guöni Kristjánsson (ábm.).
Framkvæmdastjóri: Loftur H. Jónsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Eiösvallagötu 18, sími 21875.
Póstfang: Box 492, 602 Akureyri.
Offsetprentun: Prentsmiöja Björns Jónssonar.
Gefið út af kjördæmisráði Alþýðubandalagsins
í Norðurlandskjördæmi eystra.
Kj ördæmisþing
fordæmdi
brotthlaup
Alþýðuflokksins
Á kjördæmisþingi Alþýðubandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra var eftirfarandi stjórnmálaályktun
samþykkt.
Kjördæmisþing Alþýðubandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra, haldið á Akureyri dagana 20. og 21.
október 1979, fordæmir brotthlaup Alþýðuflokksins
frá stjórnarsamstarfinu, og telur að þar hafi fram komið
það sem marga uggði þegar í upphafi, að Alþýðuflokk-
urinn vildi enn sem fyrr, fyrst og fremst, samstarf við
Sjálfstæðisflokkinn.
Þrátt fyrir ýmsa annmarka sem voru á stjórnarsam-
starfínu það rúma ár sem það stóð, þá náðust fram ýmis
þýðingarmikil umbóta og réttindamál fólksins, enn
önnur voru í undirbúningi í ráðuney tum og svo vel á veg
komin að þau hefðu komið fram í mynd stjórnarfrum-
varpa nú þegar á því haustþingi sem Alþýðuflokkurinn
rauf með atbeina og að forgöngu Sjálfstæðisflokksins.
Kjördæmisþingið telur að forsendur hafí verið fyrir
samstarfí verkalýðshreyfíngar og ríkisstjórnarinnar um
mótun efnahags- og kjaramálastefnu sem nægt hefði til
þess að hamla gegn verðbólgu og tryggja fulla atvinnu í
landinu. Það var því á úrslitastundu sem Alþýðuflokk-
urinn valdi þann kost að ganga heldur til samstarfs við
afturhaldsöflin í landinu og efna til skammdegiskosn-
inga með fyrirheiti um áframhaldandi samstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn.
Fyrir liggur ítarleg stefnuskrá Alþýðubandalagsins í
atvinnu og efnahagsmálum undir heitinu „fslensk
atvinnustefna“, sem er andstæða við þau lögmál
frumskógarins sem Sjálfstæðisfíokkurinn boðar nú
undir yfírskriftinni „Endurreisn í anda frjálshyggju.“
f desemberkosningunum verður tekist á um þær
fyrirætlanir afturhaldsaflanna, undir forystu Geirs
Hallgrímssonar, að leysa efnahags- og verðbólgu-
vandamálin á kostnað vinnustéttanna annars vegar, og
á hinn bóginn þá stefnu Alþýðubandalagsins að leita
nýrra úrræða til að bæta lífskjör fólksins og standa vörð
um þau félagsleg réttindi sem þegar hafa áunnist með
áratugabaráttu verkalýðsstéttarinnar í landinu. f þeirri
baráttu sem nú er framundan standa verkalýðshreyf-
ingin og Alþýðubandalagið hlið við hlið til sóknar og
varnar gegn íhaldsöflunum. Ennfremur er það Ijóst af
skýlausum yfírlýsingum Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins að þeir munu í sameiningu knýja fram
fyrirætlanir sínar um erlenda stóriðju. Því mun
kosningarnar skera úr um það hvort fslendingar munu
selja orku sína og vinnuafl erlendum aðilum fyrir lítið
verð, eða hvort auðlindirnar verða nýttar í þágu
fólksins í landinu. Samstaða Sjálfstæðiflokks og
Alþýðuflokks í þeim meginmálum er lúta að orku og
iðnaði birtist hvað ljósast í andstöðu þeirra gegn
sameinaðri Landsvirkjun og í stöðvun lokafram-
kvæmda við Kröfluvirkjun, en nauðsynlegt er að hefja
þær skipulega nú þegar.
Af sama toga og stóriðjufyrirætlanirnar er spunnin
seta bandaríska hersins á fslandi.
Það er stefna Alþýðubandalagsins að fslendingar fari
úr Atlantshafsbandalaginu og losi sig við bandaríska
herinn, því erlend herseta og aðild að hernaðarbanda-
lagi samrýmist ekki íslensku þjóðfrelsi.
Frá kjördæmisþingi Alþ
lagsins um síðustu helgi
Páll Hlöðvesson léttir þingfulltrúum setuna. Aðrir á myndinni María Kristjánsdóttir, Guðjón E. Jónsson og Runólfur
Elentínuson.
Erlingur Sigurðarson í „ræðustól“.
4 -NORÐURLAND
Fulltrúar Húsvíkinga hlýða á umræður. F.v. Snædís Gunnlaugsdóttir, Sigurjón Benediktsson, Jóhanna Axelsdóttir, Hel;
Bjarnason og Jón Aðalsteinsson.