Norðurland - 25.10.1979, Page 5
ýðubanda-
Um síðustu helgi var haldið í
Lárusarhúsi á Akureyri kjör-
dæmisþing Alþýðubandalags-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Voru mættir til þings um
30 fulltrúar frá öllum flokks-
félögum í kjördæminu. Fráfar-
andi formaður setti þingið en
forsetar voru María Kristjáns-
dóttir frá Húsavík og Tryggvi
Jakobsson Akureyri.
Helstu mál sem fyrir þessu
þingi lágu voru forvalsmál, en
send höfðu verið út gögn til
félaganna í kjördæminu þar
sem kynntar voru forvalsreglur
Alþýðubandalagsins í öðrum
kjördæmum og skyldi þingið
síðan ákveða hvort gengið
skyldi til forvals fyrir komandi
kosningar eða ekki og jafnframt
ákveða eftir hvaða reglum
skyldi farið.
Umræður um forvalsmálin
stóðu lengi og urðu menn sam-
mála um að forval væri sjálf-
sögð lýðræðisleg aðferð til að
velja menn á framboðslista en
hins vegar greindi menn á um
hvort aðstæður fyrir þessar
kosningar væru þess eðlis að
rétt væri að viðhafa þessa að-
ferð. Báru menn við tímaskorti
bæði til að gaumgæfa hvaða
reglur hentuðu best aðstæðum í
kjördæminu og til framkvæmd-
ar forvals. Varð niðurstaðan sú
að ekki verður gengið til forvals
fyrir þessar kosningar. Hins
vegar samþykkti þingið að héð-
an í frá skuli framboðslistar
ákveðnir með forvali og sam-
þykkti síðan reglur þar að lút-
andi.
Þegar þingið hafði komist að
þessari niðurstöðu á laugar-
dagskvöld var framkvæmd
skyndikönnun á skoðunum
þingfulltrúa á hvernig listinn
yrði best skipaður að þeirra
dómi og fékk uppstillingar-
nefnd niðurstöður könnunar-
innar í veganesti.
Á sunnudagsmorgun uíinu
starfshópar um útgáfumál og
um stjórnmálaályktun og eftir
hádegið kom þingið saman á ný
og ræddi álit hópanna og af-
greiddi ályktanirnar. Lokslagði
uppstillingarnefnd fram tillög-
ur um lista. Kom fram að Stefán
Jónsson hafði fengið yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða í fyrsta
sæti en að öðru leyti hafði orðið
nokkur uppstokkun. Miklar
umræður urðu um tillögur
nefndarinnar en niðurstöðurn-
ar urðu þær að ekki þóttu
nægar forsendur til að gera stór-
vægilegar breytingar á lista sem
í fyrra vann glæsilegan kosn-
ingasigur. Dómur kjósenda fyr-
ir einu ári yrði að vega meira en
handahófskennd athugun með-
al þrjátíu þingfulltrúa. Var síð-
an samþykktur listi sá sem birt-
ur er annars staðar í blaðinu.
Þinginu lauk síðan með kosn-
ingum í stjórn kjördæmisráðs,
útgáfustjórn NORÐUR-
LANDS og miðstjórn. Ákveðið
var að flytja miðstöð kjör-
dæmisráðs um set eða frá Akur-
eyri í S-Þingeyjarsýslu.
Stjórnina skipa nú þeir Jón
Aðalsteinsson Húsavíkformað-
ur og með honum Snær Karls-
son Húsavík og Runólfur
Elentínusson Tröð í Reykjadal.
í útgáfustjórn voru kosin Stein-
ar Þorsteinsson, Erlingur Sig-
urðarson, Tryggvi Jakobsson,
Hólmfríður Guðmundsdóttir
og Loftur H. Jónsson. Fulltrúar
í miðstjórn voru kjörin Helgi
Guðmundsson, Steingrímur
Sigfússon og Hólmfríður Guð-
mundsdóttir en til vara Angan-
týr Einarsson og Óttar Proppé.
Forvalsreglur fyrir
Alþýðubandalagið
í Norðurlands-
kjördæmi eystra
1. Forvalið ferfram á tveimur
umferðum á sérstökum forvals-
fundum eða eftir nánari ákvörð
un kjörnefndar.
2. Kjörnefnd, kosin af kjör-
dæmisráði annast framkvæmd
forvalsins í samráði við stjórn
kjördæmisráðs. Flokksmönn-
um skulu kynntar forvalsreglur
í tæka tíð fyrir forvalið með
bréfi.
3. Fyrri áfangi forvalsins
gegnir því hlutverki að tilnefna
8 menn til þátttöku í síðari
áfanga. Hann fer þannig fram
að flokksmenn rita nöfn fjög-
urra manna á sérstakan kjör-
seðil og skiptir röð nafna í þeirri
umferð ekki máli við undirbún-
ing síðari umferðar. Heimilt er
að tilnefna menn utan flokks-
félaganna í kjördæminu. Ekki
má nefna fleiri en 3 úr sama
félagi. Kjörnefnd vinnur úr
gögnum fyrri áfanga.
4. Útnefningu til síðari um-
ferðar hljóta þeir 8 menn sem
nefndir eru á flestum kjörseðl-
unum. Verði tveir eða fleiri með
jafnmargar tilnefningar í 8. sæti
hljóta þeir allir tilnefningu til
síðari áfanga, kjörnefnd er
heimilt að bæta við 2 nöfnum á
listann.
5. í síðari áfanga skal velja
íjóra menn til framboðs í efstu
sæti listans af þeim átta sem
flestar tilnefningar hlutu í fyrri
áfanga. Kjörnefnd raðar nöfn-
um þeirra í stafrófsröð á
sérstakan kjörseðil að fengnu
samþykki þeirra til þátttöku.
Við atkvæðagreiðslu ritar kjós-
andi tölurnar 1, 2, 3 og 4 við 4
nöfn á listanum, eins og hann
óskar að þeim sé raðað á fram-
boðslista. Kjörseðill er gildur
þótt merkt sé við færri nöfn en
4. Sé merkt við fleiri en 4 er
íjórar fyrstu gildar.
6. Kjörnefnd telur atkvæði í
síðari umferð og birtir flokks-
félögum niðurstöðurnar. Nið-
urstöður eru ekki bindandi fyrir
kjörnefnd _sem heldur áfram
störfum að loknu forvali og
raðar á framboðslista til alþing-
iskosninga. Listinn skal síðan
lagður fyrir kjördæmisráð til
endanlegs frágangs og sam-
þykktar.
7. Rétt til að greiða atkvæði í
forvali hefur hver fullgildur
félagi í Alþýðubandalaginu
(skuldlaus eða gjaldfrír) eða
gengur í félagið í síðasta lagi á
forvalsdegi og greiðir þá
árgjald.
8. í 1. sæti er sá kjörinn sem
flest atkvæði fær í það sæti. Fái
tveir eða fleiri sömu tölu
atkvæða í það sæti ræður
samanlagður fjöldi atkvæða í
fyrsta og annað sæti. Sé þájafnt
skal telja 3. sæti með, og 4. sæti
verði þá enn jafnt. í 2.-4. sæti er
sá kjörinn sem flest atkvæði fær
í hvert sæti að viðbættum þeim
atkvæðum án vægis sem hann
fær í efri sæti. Sé jafnt skal beita
sömu aðferðum og við skipan 1.
sætis.
Rætt við Stefán Jónsson, alþingismann
Kosið um mörg hagsmuna
mál alþýðu fólks
Hvað segir þú um aðdrag-
andann að þessum kosninga-
slag?
Frá upphafi. Það er alveg
rétt, að telji Kratar það ávinn-
ing að hafa blekkt okkur - þá
geta þeir verið ánægðir. En þeir
hrósa þá samskonar sigri yfir
ráðherrunum sínum - ekki
komu stjórnarslitin þeim síður á
óvart. Og að minnstakosti
helmingurinn af þingflokknum
þeirra varð steinhissa. Einhverj-
ir þeirra hafa verið búnir að
ræða málið við forystu Sjálf-
stæðisflokksins. Hinir álpuðust
bara með.
Að þetta makk þeirra hafi
bara byrjað nú á haustdögum.?
Nei. Sennilega hefurnútekist
skipulegt samband seinnipart-
inn í fyrravetur. Hugsanlega í
þann mund sem Mathías Á.
Mathiesen gekk til Sighvats
Björgvinssonar í atkvæða-
greiðslunni í Neðrideild um lán
til handa bændum, og spurði:
„Ætlið þið ekki að ganga út
líka.“ Annars hefur tilboð Geirs
Hallgrímssonar til Kratanna
staðið frá því fyrir stjórnar-
myndunina. Líklega hafa það
þó verið gylliboð í upphafi
samanborin við þau smánarboð
sem þeir Alþýðuflokksmenn
máttu ganga að í lokin, þ.e.a.s.
að fá að sitja í ráðherrastólum
og gera ekki neitt annað en að
lána íhaldinu Sjöfn til afnota í
Landsvirkjunarmálinu.
Já, nú er Landsvirkjunarmál-
ið eitt af fyrstu málunum sem
komu til kast þessaarar ríkis-
stjórnar sem lofaði íhaldinu því
að gera ekki neitt?
Það er nú þó sennilegt að
einmitt þessu hafi þeir Alþýðu-
flokksmenn lofað að láta Sjöfn
gera. Að stoppa þetta mikils-
verða hagsmunamál dreifbýlis-
ins og þá ekki síst Norðlend-
inga. Það þarf brjóstheilindi hjá
Braga Sigurjónssyni iðnaðar-
ráðherra að samrýma þessa
ákvörðun fyrri tiltektum sínum,
að hindra orkuöflun við Kröflu
og bregða fæti fyrir virkjun
Bessastaðaár. Þetta er svo sem
spegilmynd af pólitíkinni sem
Álþýðuflokkurinn hefur rekið
síðustu misserin.
Hvað þá um Kröflu, þetta
gamla bitbein hér í kjördæm-
inu?
Kröflumálið, sem samþykkt
var á Alþingi með atkvæðum
allra þingmanna allra flokka,
þar á meðal Kratanna, hefur nú
verið með ýmisskonar yfir-
bragði. Það voru nú þeir
foringjar Alþýðuflokksins hér í
kjördæminu, Bragi Sigurjóns-
son og Bárður Halldórsson,
sem knúðu á það við Magnús
Kjartansson á sínum tíma á
fundinum í Varðborg sællar
minningar, að ráðist yrði í þessa
stórvirkjun á Norðurlandi. Það
var eftir það að þeir gáfust upp
við að knýja fram lögbrot við
Laxá. Framkvæmdunum við
Kröflu var flýtt úr hófi fram og
þó e.t.v. af illri nauðsyn, vegna
þess að Gunnar Thoroddsen
vinur Alþýðuflokksins og er-
lendrar stóriðju taldi sér póli-
tískan hag í því að tefja lögn
byggðalínunnar. Að vísu kom
það fram við umræður á
Alþingi að núverandi iðnaðar-
ráðherra taldi sér hvergi nærri
óviðkomandi þau eldsumbrot
sem urðu á Kröflusvæðinu.
öðrum landsfeðrum komu þau
á óvart, og sáu engin ráð til að
Stefán Jónsson.
stöðva þau. Bragi sá aftur á
móti ráð til þess með atbeina
flokksbræðra sinna að stöðva
orkuöflun við Kröflu nú í sumar
þegar virkjunarframkvæmdum
er að öðru leyti lokið. Fyrir
liggja útreikningar verkfræð-
inga sem benda til þess að hver
borhola sem gerð hefði verið í
sumar fyrir 300 milljón krónur
stykkið, hefði gefið okkur 1400
milljón krónur í hreinartekjurá
næsta ári með olíusparnaði.
Afstaða þeirra Kratanna er
sprottin upp af heiftarmálunum
við Laxá - og þar að auki af
þeim sérstaka skýrleika sem
einkennt hefur alla pólitíska
hugsun nýja flokksins með
gamla nafninu. í kosningunum
greiða Norðlendingar nú meðal
annars atkvæði um traust eða
vantraust á orkumálastefnu
Braga Sigurjónssonar.
Og um fleira?
Já, býsna mörg þýðingar-
mikil mál sem þeir Kratar
brugðu fæti fyrir með því að
skipa sér undir merki Geirs
Hallgrjmssonar. í stjórnmála-
ályktuninni sem við samþýkkt-
um á sunnudaginn er einmitt
drepið á þetta. Fyrir utan
Landsvirkjunarmálið og Fljóts-
dalsvirkjun má minna á verð-
tryggðan lífeyrissjóð fyrir alla
landsmenn. Endurskoðun trygg
ingarlöggjafarinnar þar sem
ráðgert var fæðingarorlof fyrir
allar konur, iðnþróunaráætlun,
sem hefur úrslitaþýðingu um
atvinnu á næstu árum. Endur-
skoðun verslunarmálanna.
Framkvæmdaáætlun pósts og
síma. Framkvæmd vegaáætl-
unar með framhaldi af því
stórátaki sem gert var nú í
sumar í samgöngumálum í
kjördæminu okkar. Nýja stefnu
í húsnæðismálum og ótalmargt
annað, sem varðar kjöralþýðu.
En trúir þú því í raun og veru
að ríkisstjórn þessara þriggja
flokka hefði getað starfað
áfram?
Það er nú svona með skil-
dagatíðina. - Engin ríkisstjórn á
landi hér hefur fengið aðra eins
uppáskrift hjá verkalýðshreyf-
ingunni eins og þessi. Skilyrðið
var aðeins eitt: að ríkisstjórnin
tæki mið af þeirri áþreifanlegu
pólitisku staðreynd að laun-
þegasamtökin fluttu kjarabar-
áttuna inn í kjörklefann í
síðustu kosningum. Sem sagt að
staðið yrði við þau fyrirheit að
leita nú annarra ráða til þess að
leysa efnahagsvandamálin en
þeirra einna að rýra laun fólks-
ins. Ekki vantaði þingstyrkinn
heldur. Raunin varð hinsvegar
sú að Framsóknarflokkurinn
vildi halda áfram efnahagsmála
stefnu ríkisstjórnar Geirs Hall-
grímssonar og Alþýðuflokkur-
inn féllst á það. - Hvað afstöðu
verkalýðshreyfingarinnar á-
hrærði, þá var gild ástæða til að
ætla að hún væri enn fáanleg til
þess að styðja skynsamlegar
stjórnaraðgerðir til þess að
treysta efnahag og atvinnu
landsmanna - meðal annars
með róttækum aðgerðum gegn
verðbólgunni.
Hverskonaar aðgerðir, sem
hvorki rýrðu kaupgetu fólksins
né stefndu í atvinnuleysi?
Vextir af lánum sem hvíla á
íbúðarhúsnæði í einni eða ann-
arri mynd hafa hækkað vegna
„Ólafslaganna“ að forgöngu
Krata um a.m.k. 40 milljarða á
árinu sem er að líða. Með því
einu móti að lækka vexti ofan í
það sem þeir voru gætum við
sennilega aukið kaupmátt verka
launa um nærfellt þá upphæð
sem samsvarar kröfum verka-
lýðssamtakanna. Verðtryggður
lífeyrir, fæðingarorlof og enn
íleiri félagslegar framfarir hefðu
efalaust verið metnar til verðs af
hálfu launþega. - Varðandi
önnur atriði, sem lúta að því að
vinna sig fram úr erfiðleikum er
best að vitna í íslenska atvinnu-
stefnu.
Er þá Alþýðuflokkurinn höf-
uðóvinur Alþýðubandalagsins í
þessum kosningum?
Nei. í þetta sinn höfum við
hann í sömu skotlínu og Sjálf-
stæðisflokkinn. Undir hans
merki eru Kratarnir komnir.
Þeir fá sömu dembuna. Það fer
ekki á milli mála að þeir ætla sér
samstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn að kosningum loknum.
Þú þykist viss um að þeir fái
meirihluta til samans?
Það er ég ekki viss um. Við
vonum ekki. Sjálfstæðisflokk-
urinn ætlar að hirða aftur af
Alþýðuflokknum að sem hann
tók í síðustu kosningum. Gera
sér kannski von um að reita enn
meira af honum - og svo
sennilega að brúka afganginn til
stjórnarmyndunar ef með þarf.
En hvert hlutskipti ætlar þú
Framsóknarflokknum?
Spurningin er sú, hvert hlut-
skipti skjósendur ætla honum.
Vonandi eru þeir þess minnugir
að Framsóknarflokkurinn hef-
ur alltaf stækkað í samstarfi við
Alþýðubandalagið og notið til-
trú kjósenda síðan til þess að
ganga í samstarf með íhaldinu.
Hvernig segir þér svo hugur
um kosningabaráttuna í þessum
víðlenda kjördæmi í skamm-
deginu?
Ef marka má þá Geir Hall-
grímsson og Benedikt Gröndal
þá eru samgöngur nú orðnar
svo góðar hér norðurfrá að ekki
þarf að óttast ófærðina. Ekki
óskaði ég þeim nú beinlínis
næturgistingar í skafli þegar ég
heyrði þá segja þetta í þingrofs-
ræðunum. En það eru ekki
mörg ár síðan sá flokkur hefði
verið talinn feigur, sem kallaði
þessháttar kosningar yfir lands-
fólkið. - Nú er mest í húfi fyrir
okkar flokk að stuðningsfólk
okkar notfæri sér heimildina til
utankjörstaðaratkvæðagreiðslu
vikuna fyrir kjördag ef veður
leyfir, því hugsanlegt er að hann
brysti á með þessháttar veður á
kjördag að einungis verði fært
karlmennum á borð við Geir og
Benedikt en engum Norðlend-
ingi.
NORÐURLAND - 5