Norðurland - 25.10.1979, Side 6
Sjúkrahús á Akureyri
Tilboð óskast í að reisa og fullgera gas- og
súrmiðstöð við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri. Húsið er ein hæð, um 600 m3 að
stærð og að mestu niðurgrafið.
Verkinu skal að mestu lokið 15. júní en
lóðarfrágangi 15. september 1980.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
og skrifstofu bæjarverkfræðings á Akur-
eyri gegn 50.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
föstudaginn 2. nóvember 1979, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Lausar stöður
Á skattstofu Norðurlandsumdæmis eystra,
Akureyri, eru eftirtaldar stöður lausar til um-
sóknar:
Staða fulltrúa I. Aðalstarf umsjón með tölvu-
skráningu, vélritun og skattbreytingaskrám.
Staða skrifstofumanns. Nauðsynlegt er að við-
komandi hafi æfingu í tölvuskráningu og
vélritun.
Umsóknir er greini aldur menntun og fyrri störf
óskast sendar skattstjóra.Norðurlandsumdæm-
is eystra, Hafnarstræti 95, Akureyri, fyrir 1.
desember n.k.
Fjármálaráðuneytið, 22. október 1979.
Fulltrúakjör
Kjör fulltrúa Iðju félags verksmiðjufólks á Akureyri á
16. þing Alþýðusambands Norðurlands. Ferfram að
viðhafðri allsherjarathvæðagreiðslu.
Framboðslistum með nöfnum 9 aðalfulltrúa og 9 til
vara skal skila til skrifstofu félagsins Brekku-
götu 34 Ak. eigi síðar en kl. 17 föstudaginn 26.
október 1979.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli eitt
hundrað fullgildra félaga.
Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs Iðju liggur
frammi á skrifstofu félagsins Brekkugötu 34.
Akureyri 17/10 1979
Stjórn Iðju
Framtíðarstarf
Sliþþstöðin h.f. óskar að ráða starfsmann tn
skrifstofustarfa í innkaupadeild.
Starfssvið: Toll og verðútreikningur
Telexþjónusta
Vélritun og fleira.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 21300.
Sýning Myndhópsins
NORÐLENSKT MYNDLISTARFÓLK
Móttaka verka á sýningu félagsins verður í Hlíðarbæ,
fimmtudaginn 15. nóvember nk. kl. 17 til 19. Þátt-
tökugjald greiðist við afhendingu verka.
Sýningarnefndin.
Ef grannt er skoðað
Framhald af haksifiu.
sanngjarnt sé að greiða honum fyrir afnotin af bílnum vegna
Kröfluvirkjunar, um leið og bílaleiguviðskipti eru athueuð.
Við nánari skoðun þeirra atriða sem nú liggja fyrir í
,;símamáli“ Jóns Sólness, verður því ekki með rökum fullyrt
að hann sé eins og hver annar glæpon sem hafi dregið sér fé
með ólöglegum hætti. Til þess að slíkt staðhæfing fái staðist
þuffa miklu fleiri atriði að koma fram í dagsljósið.
Hitt er allt annað mál að öllum almenningi þykir
skiljanlega, sem þingmaðurinn hafi búið við næsta bærileg
launakjör að geta haft full þingmannslaun og 60%aflaunum
yfirverkfræðings við Kröfluvirkjun, auk umtalsverðra launa
fyrir yfirvinnu og margvíslegra fríðinda. Skal engan undra þó
að ýmsum þyki nóg um slíkan rausnarskap. Þar að auki er
svo ljóst, að ekki myndi öðrum mönnum líðast að umgangast
reglur um bókhald og meðferð fylgiskjala með þeim hætti
sem allt betta mál vitnar um.
Ándstæðingum Jóns Sólness í hans eigin flokki hefur nú
tekist að koma á hann þvílíku höggi út af þessu máli þó allt sé
ósannað um endanlega sekt eða sakleysi hans að honum er nú
ýtt til hliðar af framboðslista Sjálfstæðisflokksins hér í
kjördæminu að því er hann segir sjálfur í Morgunblaðinu sl.
þriðjudag. Það sem mesta athygli vekur við þær breytingar
sem Sjálfstæðismenn hyggjast gera á framboðslista sínum er
að einn af þremur yfirskoðunarmönnum ríkisreikninga er
varamaður hans á þingi og keppinautur um þingsætið um
árabil. Halldór Blöndal. Það er auðvitað alveg Ijóst að
vfirskoðunarmenn ríkisreikninca eiea að vinna starf sitt af
kostgæfni. Hefðu þeir ekki gert athugasemdir við þau atriði
sem allt þetta mál snýst um hefðu vinnubrögð þeirra verið
með öllu forkastanleg og ástæða til að gagnrýna þau.
Tilviljanirnar eru hins vegar einatt dálítið merkilegar.
Hvernig stendur á að mál þetta komst í þvílíkt hámæli
nákvæmlega á þessum tíma, þegar ljóst er að í því geta verið
ýmis álitamál, sem gera sök hins ákærða minni en nú virðist
augljóst.
Það er vitað, að yfirskoðunarmenn höfðu rekist á þau
atriði í ríkisreikningunum, sem málið snýst um áður en til
þess kom að ríkisstjórnarsamstarfið var rofið, og ákveðið að
boða til kosninga. Ástæða er því til að velta fyrir sér: Hefði
ekki verið réttlætanlegt að kalla þá þegar Jón Sólnes til
viðtals, og fá hjá honum sjálfum skýringar á umræddum
atriðum? Hefði ekki verið ástæða til að gera sér grein fyrir
heildarviðskiptum hans við iðnaðarráðuneytið vegna
Kröfluvirkjunar, áður en hann varð fyrir þvílíkum ásökunum
í fjölmiðlum sem raun hefur orðið, þó ekki hafi verið til
annars en að styrkja yfirskoðunarmennina í^grun sínum um
misferli? Er það einber tilviljun að málið kemst í hámæli,
einmitt rétt áður en tekin er ákvörðun um framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í kjördæmi Jóns Sólnes, og einn þriggja
yfirskoðunarmanna er jafnframt helsti keppinautur hans um
sæti á framboðslistanum? Og síðast en ekki síst: Af hverju var
forseta sameinaðs þings skrifað um þetta mál en ekki
iðnaðarráðherra þegar hið meinta misferli snéri að
iðnaðarráðaneytinu?
Þessum spurningum er skiljanlega ekki hægt að svara til
neinnar hlýtar en enginn þarf að vera undrandi á þó að þeirra
sé nú spurt manna á meðal.
Jóni Sólnes „svellur móður“ eins og hann kemst sjálfur að
orði í Morgunblaðinu ogsegirjafnfraamt: „Þeim hefurtekist
að ná takmarki sínu með því að bola mér út af lista
sjálfstæðismanna í N-lands kjördæmi eystra. Verði þeim sá
sieur að góðu eftir bví sem beir hafa til unnið“.
Þeim sem þekkja til hins „harðskeytta baráttumanns
íhaldsins", eins og hann sjálfur hefur gjarnan viljað láta kalla
sig kæmi á óvart ef hann væri nú allur í pólitíkinni. Hvað á
hann við þegar hann segir: „verði þeim að góðu“ o.s.frv.
Megum við kannski eiga von á tveimur lístum af ysta hægri
vængnum hér í kjördæminu, eða er leiknum raunverulega
lokið?
Þrándur.
........ ......
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Félagsstarf aldraðra
Síðdegisskemmtanir verða í Sjálfstæðishúsinu kl. 3
eftirtalda sunnudaga til áramóta:
Sunnudaginn 28. október.
Sunnudaginn 18. nóvember.
Sunnudaginn 9. desember.
Þeir sem óska eftir að verða sóttir heim, hringi í síma
22770 kl. 13.00 - 14.00 samdægurs.
„Op/'ð hús“ hefur starfsemi sína að Hótel Varðborg
miðvikudaginn 31. október nk. kl. 15.00.
Geymið auglýsinguna.
Félagsmálastofnun Akureyrar
Réttur
kaupenda
Hvaða rétt hefur kaupandi,
þegar hann skilar keyptri vöru?
Ef varan er gölluð getur hann
rift kaupunum, þ.e. fengið
endurgreiðslu. Vandinn getur
þó stundum orðið að meta hvað
er gölluð vara. Neytendasam-
tökin leitast þar við að veita
réttlátan úrskurð í ágreinings-
málum, ef til þeirra er leitað.
öðru máli gegnir, þegar vöru
er skilað af öðrum ástæðum,
t.d. að flík passi ekki nógu vel
eða of mikið keypt af einhverju.
Þá er seljandi ekki skyldur að
greiða til baka, þótt sumar
verslanir geri það. Áðrar bjóða
vöruskipti, sem oft er þegið. Ef
kaupandinn finnur ekkert við
sitt hæfi í versluninni, getur
hann víða fengið innleggsnótu,
sem hægt er að taka út á síðar.
Það er eðlilegt og sjálfsagt, en
athygli okkar var vakin á þeirri
venju ýmissa verslana að
stimpla slíkar nótur með
ákveðnum gildistíma, 3 vikur,
2, 3 og 6 mánuðir eru dæmi úr
verslunum hér í bæ. Við spurð-
umst fyrir um ástæður þessarar
venju í nokkrum verslunum.
Svörin voru misjöfn: ástæður
óljósar, óþægilegt að liggja
lengi með slíkar nótur eða
einfaldlega umhyggja fyrir við-
skiptavininum. Einnig kom
fram að ekki væri þessu strang-
lega framfylgt í sumum versl-
unum, fólk gæti tekið út á eldri
nótur eða framlengt frestinn.
Það liggur ljóst fyrir, að í
óðaverðbólgunni okkar er hag-
ur handhafa nótunnar að taka
út á hana sem fyrst, þeim mun
minna fæst fyrir andvirðið sem
það er lengur dregið.
En hver er réttur eiganda
innleggsnótu, sem orðin er of
gömul samkvæmt dagsetningu
verslunarinnar?
Það er samdóma álit lögfræð-
inga, að slík einhliða yfirlýsing
útgefanda innleggsnótunnar sé
ekki bindandi fyrir handhafa
hennar. Hér gildi algengur
fyrningafrestur viðskipta-
skulda, sem er 4 ár.
Sem sagt: innleggsnóturgilda
í 4 ár, en sjálfsagt er fyrir
handhafa þeirra að taka út á
þær sem fyrst, áður en raun-
verulegt verðgildi þeirrra rýrnar
í verðbólgunni.
StV
ÍNAN-fréttir).
MUNIÐ
BÍLBELTIN
JMFERDARRAÐ
Kettlingar
óskast
Uppl. í síma 22225.
Óskum eftir að kaupa
rafmagnshitadunk
fyrir neysluvatn, 2-300
lítra. Stærð hitatúbu
2.5-5 kw.
Vinsamlega hringið í
síma 24013. (Sveinn)
6 -NORÐURLAND