Norðurland - 25.10.1979, Side 8
NORÐURLAND
l immtudagur 25. októbcr 1979
MÁLGAGN SÓSÍALISTA
í NORÐURLANDSKJÖR-
DÆMI EYSTRA
GERIST
ÁSKRIFENDUR
- Síminn er 2-18-75 -
AUGLYSIÐ f
NORÐURLANDI
- Síminn er 2-18-75
Kosninga-
vika
Heilsugæslustöð á Dalvík
Sið-
blinda
Oft hafa kratar sýnt það og
sannað, að ekki er á þá logið,
þegar þeir eru sakaðir um að
selja hugsjónir fyrir fé og
metorð. Um það má finna
mörg dæmi gömul og ný, og
hafa sum þeirra komist í
hámæli. En hitt er nokkur
nýlunda að heyra forystu-
menn þeirra gefa í ríkisút-
varpinu sýnidæmi um það,
hvernig þessi sérstæðu við-
skipti við sér ríkari og
voldugri aðila hafa afsiðað
þá smátt og smátt.
Sennilega hefir enginn í
siðvæðingardeild Alþýðu-
flokksins hrokkið við s.l.
þriðjudagsmorgun, þegar
Benedikt Gröndal flokks-
formaður og forsætisráð-
herra heyrðist segja eftirfar-
andi í tilefni af prófkjöri
flokksins í Reykjavík við þá
morgunpóstsmenn ríkisút-
varpsins. .. og nú stendur
það eftir, að það verður bara
kosið um fyrsta sætið, og ég
dreg enga dul á það, að ég hef
meiri áhyggjur af því heldur
en nokkru öðru í landsins
málum í dag, því að það er í
fúlustu alvöru sá möguleiki,
að ég geti tapað þessu
prófkjöri á sunnudaginn, og
þá dett ég út af þingi, og þá
þarf að leita mér að annarri
góðri atvinnu.“
Það er sannarlega bót í
máli, að Benedikt Gröndal er
ekki bara forsætisráðherra,
heldur einnig utanríkisráð-
herra, og verður það áfram
um mánaðarskeið eftir hið
Framhald a bls. 7.
V___________________
Framkvæmdir eru nú hafnar að
nýju við heilsugæslustöðina á
Dalvík sem búin er að standa
fokheld í tvö ár. Áætlað er að
þar verði fyrir fyrsta desember
1980 tilbúinn sá hluti stöðvar-
innar sem ætlaður er fyrir alla
almenna læknisþjónustu en eft-
ir er að ganga frá samningum
um álmu sem ætluð er fyrir
tannlækningar, sjúkraþjálfun
og fleira en ekki er gert ráð fyrir
neinu legurými. Það er Tréverk
h.f. á Dalvík sem sér um
framkvæmdirnar.
Eggert Briem héraðslæknir á
Dalvík sagði í samtali við
NORÐURLAND að Dalvík-
ingar hugsuðu nú mjög gott til
glóðarinnar vegna þeirrar að-
stöðu sem þeir nú hafa í
sjónmáli. Ástandið er nú með
þeim hætti að á Dalvík er ein
lækningastofa og er hún á
annarri hæð og engin lyfta í
húsinu. „Það komast eiginlega
ekki aðrir til læknis hér en þeir
sem eru sæmilega heilsugóðir“
sagði hann. Eggert sem er eini
læknirinn á Dalvík og þjónar
auk þess Hrísey, Árskógsströnd
og Svarfaðardal sagði að þetta
starf væri erfitt og þreytandi.
„Það er kannske ekki meir að
gera hjá mér en gengur og gerist
hjá læknum" sagði hann „en
þessi stöðuga vaktþjónusta er
mjög slítandi. Maður þarf að
vera viðlátinn allan sólarhring-
inn allt árið nema þennan mán-
uð sem maður er í fríi. Læknar
spyrja varla lengur um stöður
þar sem þeir þurfa að vera einir“
sagði Eggert.
Er leiknum Íokið?
Landsmenn hafa nú um sinn átt þess kost að fylgjast með
þeim hasar sem stendur um framboðsmál í ýmsum
kjördæmum. Að venju er mest um að vera hjá
Alþýðuflokknum. Kveður svo rammt að því að formaður
flokksins og forsætisráðherra landsins telur ekki ástæðu til
að hafa áhyggjur af öðru fremur, en veikum vonum sínum um
að geta haldið þingsæti sínu fyrir ásókna Dr. Braga
.lósefssonar, sem fjarstýrt hefur nrófkiörsbaráttu sinni frá
Bandaríkjunum.
Hér í kjördæminu eru það Sjálfstæðisflokkurinn og
Alþýðuflokkurinn sem eiga við alvarleg innanhússvandamál
að stríða þessa dagana. Ekki er talið líklegt að Bragi
Sigurjónsson falli fyrir Jóni Ármanni, eða Árna Gunnarssyni'
þó að alls ekki sé loku fyrir það skotið. Þá er og talið afar
ósennjlegt að Jón Helgason ráði við hinn mikla frændagarð
Jóns Ármanns Héðinssonar. í svipinn sýnast því mestar líkur
fyrir því að kratarnir muni tefla fram Braga Sigurjónssyni,
Jóni Ármanni og Sigbirni Gunnarssyni í þrem efstu
sætunum. Fæst úr þessu skorið núna um helgina.
Hjá Sjálfstæðismönnum er höfuðverkurinn annarskonar
og miklu verri viðureignar. Jón Sólnes er kominn fast að
sjötugu, en þrátt fyrir það, er baráttukraftur hans enn
þvílíkur að andstæðingar hans og keppinautar innan
flokksins, áttu enga von um að koma honum út af listanum,
ef ekki hefði svo „heppilega" viljað til, að hann hafði farið full
frjálsmannlega með bókhaldsreglur í starfi sínu hjá
Kröflunefnd. í Morgunblaðinu sl. þriðjudag ritar Jón grein
undir yfirskriftinni „Að leikslokum" og segir þar meðal
annars:
„Því verður svo hins vegarekki neitað, að óhjákvæmilega
vaknar hjá manni grunur um, að eins og haldið hefur verið á
þessu máli, því hampað í fjölmiðlum, í skúmaskotum, á bak
við tjöldin, að þá hafi þótt meira í mun aað spilla fyrir
erfiðum keppinaut um þingsæti og pólitískum andstæðingi,
heldur en að rettlætistilfinningin eingöngu hafi ráðið
ferðinni, og lái mér hver sem vill, þó að slíkur grunur læðist
að mér í sambandi við þetta mál.“
Með sanngirni verður Jóni varla láð þó að hann telji
málatilbúnaðinn gegn sér, mótast af þeim áhuga sem hann
lýsir í framangreindri klausu. Af beim málavöxtum. sem
hann hefur sjálfur greint frá bæði á Alþingi og í
Morgunblaðinu er að vísu ljóst að hann hefur verið full
„ónákvæmur" í meðferð sinni áfjármunum Kröfluvirkjunar,
segir enda sjálfur að í því efni sé ekki við annan að sakast en
sjálfan hann. Hann hafi ekki gætt sín á því að alls staðar séu
til menn sem vilji leggja allt út á versta veg.
Jón telur að hann eigi inni hjá Kröflunefnd fiármuni sem
nema að minnsta kosti upphæð hinna tvíborguðu
símareikninga. Um það sé að vísu ekki fenginn úrskurður
iðnaðarráðuneytisins, en á meðan svo sé hafi ekki verið nein
ástæða til að vera að blanda Alþingi í málið, enda hafi þingið
ekki greitt honum eina krónu umfram það sem honum bar að
fá sem þingmanni. Nú geta menn auðvita deilt um það hver
sanngirni hafi verið í þeim myndarlegu greiðslum sem
þingmaðurinn fékk sem framkvæmdastjóri Kröflunefndar
samhliða starfi sínu á Alþingi. Eigi að síður má gera ráð fyrir
að vörn hans í málinu myndi byggjast á því sem að framan er
nefnt. Hvernig dómstólar myndu taka á þessum málsatvikum
skal ósagt látið, en ekki er fráleitt að niðurstaða þeirra yrði
eitthvað á hessa leið' Alhinpi hefur ekki greitt Jóni Sólnes
annað en það sem því bar. Að hluta til hefur hann hins vegar
innheimt sömu reikninga hjá Kröflunefnd ogverður að telja
það ásamt hirðuleysislegri meðferð skjala í hæsta máta
ámælisvert. Til málsbóta er hins vegar það, að ákærði telur
sig eiga ógreidda reikninga úr hendi Kröfluvirkjunar sem
nemi að minnsta kosti sömu upphæð og málið snýst um.
Fullyrðingarnar um að Jón sé að gera tilraun til að láta
tvíborga sér fyrir notkun á einkabíl með reikningunum til
iðnaðarráðunevtisins burfa þessarar athugunar við: Hve
langt er þingmönnum ætlað að aka á þeim bílastyrk sem þing
ið greiðir þeim? Sé bílastvrkurinn grundvallaður á tilteknum
kílómetrafjölda, auk tveggja ferða heim í kjördæmi á
mánuði, þá er vandalaust að gera sér grein fyrir því, hvort
Framhald a bls. 6.
— 7.1 0 x l'iL g rann b 0 V 3 k o ö a
Samkvæmt bráðabirgða-
lögum þeim sem gefin hafa
verið út um kosningarnar
mega allir kjósa utan kjör-
staðar frá 25. nóvember.
Þetta þýðir að kosninga-
baráttu lýkur í raun þann
dag. Er mikilvægt að fólk
noti sér þessa kosninga-
viku og kjósi sem fyrst ef
veður leyfa, því „á
skammri stund skipast veð-
ur í lofti“.
Sameigin-
legir fram -
boðsfundir
Hér í kjördæminu var það
lengi siður að hver einstak-
ur flokkur hélt eigin fram-
boðsfundi sem gjarna leit-
uðu í það far að meira
líktist messu en stjórn-
málaumræðum. Þarræddu
frambjóðendur viðkom-
andi fíokks við sína stuðn-
ingsmenn og varð útkoman
yfirleitt sú að allir fóru
glaðir heim, frambjóð-
endur sannfærðir um eigið
ágæti og fundarmenn um
ágæti frambjóðendanna og
flokksins.
Um síðustu kosningar
snerist dæmið þannig að
flokkarnir héldu sameigin-
lega fundi þar sem fram-
bjóðendur urðu að standa
hver upp í hárinu á öðrum
og á fundarmönnum ef
verkast vildi. Allar horfur
eru á að flokkarnir haldi
einnig sameiginlega fram-
boðsfundi nú. Er búist við
fjórir fundir verði haldnir í
kjördæminu og að útvarp-
að verði frá þeim öllum.
„Heima er
best“
Eftirfarandi vísa áskotnað-
ist blaðinu fyrir nokkru.
Hana kvað Rögnvaldur
Rögnvaldsson í haust ný-
kominn heim af suðrænum
slóðum.
Gekk ég um glæstar hailir,
gekk ég um suðrænan skóg,
sigldi yfir Svartahafið,
en sælastur var ég þó
er fjöllin mín fann ég aftur.
Fjöllin mín hvít af snjó.
Stjórnar-
slitavísur
Loks bárust blaðinu eftir-
farandi vísur um stjórnar-
slitin sem virðast ætla að
verða mönnum drjúgt yrkis
efni.
Leikur krata ljótur var.
Líkaböngin gellur.
Á vélabrögðum Vilmundar
vinstri stjórnin fellur.
Óli er risinn upp við dogg,
undan fæti hallar.
Ihaldskratar ibba gogg,
ungamamman kallar.
Verði kosning komið á
kannski er von um bata,
því líklega munu
landsmenn þá
losa sig við krata.