Norðurland - 08.11.1979, Qupperneq 1
NORÐURLAND
ALÞYDUBANDALAGIÐ
4. árgangur Fimmtudagur 8. nóvember 1979 27. tölublað
Magnús ræðir við Asgeir og Orn.
Urgur í grásleppu-
sjómönnum á Húsavík
Attu von á lánum vegna netatjóns um miðjan
september, en þau hafa ekki borist ennþá
Starfið framundan
OPIÐHÚS
Alþýðubandalagið á Akureyri verður með opið hús sunnu-
daginn 11. nóvember. Á dagskrá eru óformlegar viðræður
manna í milli yfir kaffi og kökum, Einar Kristjánsson leikur
á harmoniku og Arnar Björnsson kosningastjóri ræðir um
kosningaundirbúninginn. Allir eru velkomnir bæði börn og
fullorðnir.
Kosninga-
skrifstofan
á Húsavík
í Snælandi
f kvöld 8. nóvember opna Alþýðubandalagsmenn á Húsa-
vík kosningaskrifstofu í Snælandi. Verður skrifstofan opin
á fimmtud. og föstud. frá 8-11 og á laugard. og sunnudag frá
14-18. Frá 22. nóvember verður skrifstofan opin alla virka
daga frá 20-23 og um helgar frá 14-16. Þó verður lokað
mánudaginn 26. nóvember. Á sunnudaginn 11. nóvember-
verður sérstök barnasamkoma þar sem lesnar verða sögur og
farið í leiki frá kl. 14-15.30.
Kosningastjórar Alþýðubandalagsins á Húsavík verða
þeir Kristján Pálsson og Þorkell Björnsson. Félagar á Húsa-
vík eru beðnir um að mæta vel og duglega því mikil vinna
er framundan.
Meðal sjómanna á Húsavík,
hefur að undanförnu mikið ver-
ið rætt um þau lán, er lofuð
voru grásleppu sjómönnum sem
misstu net sín í hafísnum fyrir
Norður- og Norðausturlandi í
vor sem leið. Nú þegar, mun
hafísnefnd hafa skilað niður-
stöðum til ríkisstjórnarinnar, en
engin lán hafa borist ennþá, og
er urgur í sjómönnum því mikill
kostnaður er við að byrja grá-
sleppuútgerð upp á nýtt. Við
hittum að máli tvo grásleppu
sjómenn, þá Ásgeir Þórðarson
og Örn Arngrímsson, en þeir
urðu fyrir verulegu netatjóni
í vor.
- Hvað misstuð þið mörg net
í vor?
- Við töpuðum eða eyðilögð-
um öll okkar net, þau voru
hundrað og fimm. Við vorum
rétt búnir að leggja þegar ísinn
Tregur afli
hjá drag-
nótabátum
Sæmilegur afli hefir verið hjá
línubátum þegar gefið hefir á
sjó. Hjá dragnótabátum hefir
afli verið tregur í allt haust.
Nýlega hóf einn bátur róðra
með net og hefir afli verið lítill.
Sömu sögu er að segja um afla
rækjubáta.
kom, og misstum því fljótlega
mikið af netum. Svo þegarísinn
fór að síga frá, lögðum við
aftur, en það var sama sagan,
hann rak aftur inn, svo það end-
aði með því að við urðum að
hætta um mánaðamótin apríl-
maí, þá voru öll okkar net ónýt.
- Hvernig er með þessi lán
sem ykkur var lofað?
- Hafísnefnd hélt aldrei fund
með okkur hér á Húsavík, en
síðar var okkur tjáð að ríkis-
stjórnin hefði samþykkt að lána
tvo þriðju af skaðanum.
- Hvenær áttu þessi lán að
koma?
- Þau áttu að koma um miðj-
an september, en ennþá hefur
ekkert komið. Við vorum það
óheppnir að þegar við hættum á
grásleppu var línufiskiríið búið,
en þeir sem héldu áfram á grá-
sleppu gerðu fínustu vertíð. Svo
við misstum bæði af línu oggrá-
sleppuvertíðinni. Síðan vorum
við á færum í sumar og þá fékk
enginn bátur í soðið.
- Hvernig er þá staðan hjá
ykkur núna?
- Það má segja að við höfum
verið stopp. Við vorum búnir að
kanna það, að fá keypt net, en
drógum það, því við vildum
hafa það öruggt að við fengjum
þessa aura. Svo fengum við að
vita það um daginn að búið væri
að selja þessi net. Svo eins og
stendur er allt í óvissu hvort við
komumst aftur á grásleppu.
- Eru margir eins illa staddir
og þið?
- Þetta er örugglega það
versta. Við vorum þeir einu sem
þurftu að hætta vegna neta-
leysis.
- Hvað gerið þið núna?
- Við erum við beitingu á
einum heimabátnum og verðum
við það í vetur.
- Hvað með ykkar bát, ætlið
þið að eiga hann áfram?
- Það er nú meiningin að
reyna það. Við vorum rétt búnir
að kaupa hann, þannig að það
má segja að við höfum aldrei
fengið skot á bátjnn.
- Hvað er þetta stór bátur?
- Sex tonn.
- Er ekki dýrt að koma sér af
stað aftur?
- Það er ekki hægt að koma
upp neinni grásleppuútgerð fyr-
ir minna en tvær og hálfa til
þrjár milljónir og þá er vinnan
ótalin.
- Og að lokum?
- Já, það átti að veita þeim
styrki sem yrðu með lítinn afla,
en við misstum algjörlega af því
vegna þess, að þetta er fyrsta ár-
ið sem við gerum út, en það er
tekið mið af þrem síðustu árum
en breytist við nýja eigendur, þó
báturinn hafi verið ágrásleppu í
tuttugu ár. Við verðum ekki
hressir fyrr en við förum að fá
eitthvað af þessum lánum, það
er betra seint en aldrei.
Magnús Hreiðarsson.
Sameiginlegir
framboðs-
fimdir
í kjördæminu
Þann 7. nóv. á fundi þeirra aðila sem bjóða fram til Alþingis
voru ákveðnir sameiginlegir framboðsfundir í kjördæminu.
Sunnud. 11. nóv. Raufarhöfn kl. 15.00.
Mánud. 12. nóv. Þórshöfn kl. 21.00.
Föstud. 23. nóv. Húsavík kl. 21.00.
Laugard. 24. nóv. Ólafsfjörður kl. 15.00.
Sunnud. 25. nóv. Dalvík kl. 15.00.
Fimmtud. 29. nóv. Akureyri kl. 21.00.
Fundarformið verður nú með öðru sniði en síðast. í fyrstu
umferð verða 15 mín. á hvern lista. Þegar þessum framsögu-
ræðum er lokið verður fyrirspurnartími. Formið á þessum
fyrirspurnum verður þannig að þær verða skriflegar og mun
fundarstjóri siðan lesa þær upp.
Flokkarnir munu síðan fá 20 mín. í tveimur umferðum til
að fjalla um þessar fyrirspurnir en þó þannig að í síðustu
umferð tali menn ekki lengur en í 10 mín. Síðasta sameigin-
lega fundinum sem verður á Akureyri verður útvarpað.
Nánar verður auglýst um fundarstaði síðar.
Alþýðubandalagið í kjördæminu vill beina þeimtilmælum
til sinna manna að þeirfjölmenni á fundina og taki þátt í þeim
umræðum sem verða.
Rætt við Arnar Björnsson Rætt við
Guðmund Ármann kosningastjóri Helga
listmálara skrifar leiðarann Guðmundsson
bls. 3 bls. 4 bls. 5
Jóhann Antonsson
skrifar
Pistilinn
bls. 7
Geríst áskrífendur að Norðurlandi
>