Norðurland - 29.11.1979, Page 3
NORÐURLAND RÆÐIR VIÐ
NOKKRA KJÓSENDUR
Rögnvaldur og Hlín.
SAMTAKAFÓLK
SAMEINIST UM
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Bændur
vilja
V-stjóm
Benóný var nýkominn úr Qár-
húsunum og var gesti umsvifa-
laust boðið til kvöldverðar.
Ræddi fjölskyldan af miklu
fjöri um stjórnmálin, nema
Valgerður Jónsdóttir yngri, en
hún er nú bara tveggja ára. Fer
hér á eftir stutt viðtal við
Benóný:
Hvernig heldur þú að það
komi niður á bændum ef íhaldið
vinnur sigur í kosningunum?
- Það getur ekki komið öðru
vísi en illa við bændur. Boðað er
óheft markaðslögmál, lögmál
frumskógarins, sem meðal ann-
ars felst í afnámi á niðurgreiðsl-
um landbúnaðarafurða, en það
mundi þýða stórfelldan sam-
drátt. Eins og nú er ástatt í
landbúnaðinum í þessu kjör-
dæmi og fleirum, vegna nýgeng-
ins harðæris, hafa bændur þörf
fyrir annað og meira en sam-
drátt af manna völdum.
Hvernig líst þér á ástandið í
stjórnmálum?
- Mér líst illa á það. Fyrir
síðustu kosningar var mikil
hreyfing á kjósendum, en að-
stæður eru nú gjörbreyttar og
mér virðist þær hafa haft þau
áhrif að fólk sé hætt að hugsa
um pólitík, niðurstaða úr próf-
kjörum bendir einnig til þess.
Eiríkur Ágústsson, varafor-
maður verkalýðsfélagsins Ein-
ingar, og formaður Dalvíkur-
deildar félagsins.
Láglauna-
fólki í hag
Ég styð Alþýðubandalagið
vegna þess að ég tel þeim lægst
launuðu hiklaust hag í því að
styrkur þess aukist á þingi. Ég
held að Alþýðubandalagið og
Framsókn geti í sameiningu
helst komið í veg fyrir íhalds-
stjórn og fáa langar í viðreisn.
Kratar hlupu út úr vinstri
stjórn, brott frá mörgum góð-
um frumvörpum sem hefðu
verið verkafólki mjög í hag og
vantaði ekki nema herslumunin
á að yrðu afgreidd. Alþýða
landsins kýs sér ekki í hag með
því að krossa við kratana.
Það er ekki kaup launþega
sem er verðbólguvaldurinn í
þjóðfélaginu og það virðist
Alþýðubandalagið einn flokka
hafa getað skilið og hefur
sannað það með því að standa
gegn sífelldum árásum Fram-
sóknar og krata á kaup launa-
fólks í fráfarandi ríkisstjórn
Benóný Arnórsson, bóndi,
Hömrum, Reykjadal.
Undirstaðan undir því að
alþýðan nái völdum í landinu
er að hún hugsi um pólitík og
starfi í pólitik.
Hverskonar stjórn mundir þú
vilja fá að kosningum loknum?
- Ég tel tvímælalaust að
samstjórn Alþýðubandalags og
Framsóknar sé sú eina stjórn,
sem vinstri sinnað fólk getur
sætt sig við. Tapi þessir flokkar
hinsvegar verður það til fram-
dráttar fyrir svæsnustu aftur-
haldsstjórn, sem við höfum séð
til þessa. Má þar til nefna
leiftursókn þá gegn lífskjörúm
og samhjálp, sem afturhaldsöfl-
in hafa boðaða.
(Ljósm. og viðtal: JA)
undir því yfirskini að ná verð-
bólgunni niður. Þetta þarf
launafólk að gera sér ljóst.
Næg verkefni
í félagsmálum
sjómanna
Jóhann Gunnarsson, stýrimað-
ur, Dalvík.
Ég greiði Alþýðubandalaginu
atkvæði mitt í þessum kosning-
um þar sem ég tel að það muni
best standa vörð um hagsmuni
vinnandi stétta. Sem sjómaður
tel ég Alþýðubandalagið líklegt
til að vinna að úrbótum á
félagsmálum sjómanna, en þar
eru næg verkefni fyrir félags-
hyggjuflokk.
Eg er einlægur andstæðingur
herstöðva á íslandi og veru
okkar í NATO. Eins og allirvita
er Alþýðubandalagið eini flokk
urinn sem hefur það á stefnu-
skrá sinni að koma ameríska
hernum burt. Ég trúi því að með
auknum þingstyrk muni flokk-
urinn standa við gefin heit i
þeim efnum.
Vinstri menn
skilji sinn
vitjunartíma
Freyr Bjarnason er maður
önnum kafinn, en einnig skjótur
til svars og áræðis. Það tók ekki
langan tíma að hrista eitt viðtal
fram úr erminni.
Hvað finnst þér um leiftur-
sókn íhaldsins?
- Mér fínnst þetta í einu orði
sagt hroðaleg stefnuyfirlýsing
og ég tel að hún boði atvinnu-
leysi og allsherjar samdrátt.
Þetta er ekkert annað en ný
viðreisn að koma aftur í ennþá
grófari mynd, og ég tel að eina
raunhæfa leiðin til að sporna
við „viðreisnar" stefnunni sé
samstarf vinstri flokkanna.
Telur þú ekki sigur Alþýðu-
bandalagsins mikilvægan?
- Hann er nauðsynlegur til að
sporna við stefnu viðreisnar-
flokkana og hættuni á að
Framsókn hlaupi með íhaldinu
þrátt fyrir gefin loforð.
Að lokum?
- Ég tel sérstaklega mikilvægt
nú að vinstri menn skilji sinn
vitjunartíma.
(Ljósm. og viðtal: JA)
Freyr Bjarnason, múrara-
meistari, Húsavík.
Brynjólfur Gíslason kennari á
Þórshöfn er einn af stofnfélög-
um Alþýðubandalagsfélagsins á
Þórshöfn sem stofnað var í
haust. Hann sagði er NORÐ-
URLAND hafði samband við
hann:
Ég styð Alþýðubandalagið
vegna þess í fyrsta lagi að sá
flokkur er hinn eini sem hefur
ákveðna stefnu á móti hernum
og NATO-aðildinni. Hinir
flokkarnir eru reikandi í þessu
máli og engum þeirra er þar
treystandi. Þeir hafa ekki rétttil
að rísa gegn sifjaspellunum á
Keflavíkurflugvelli.
Tíðindamenn NORÐUR-
LANDS heimsóttu Rögnvald
Rögnvaldsson og Hlín Stefáns-
dóttur konu hans í Munkaþver-
árstrætinu og ræddum við þau
yfir kaffi og meðlæti. Við
spurðum þau hvernig þeim litist
á ástandið ístjórnmálunumnún
a við þessar kosningar.
,,Ég hef nú alltaf verið róttæk
og kosið til vinstri,“ sagði Hlín.
,,Og það verður að segja það
eins og er að öllum flokkum
sem bjóða fram núna að Al-
þýðubandalaginu undanskildu
eru sterk íhaldsöfl sem ráða
ferðinni. Við þurfum auðvitað
ekkert að ræða um íhaldiðj við
vitum að það styður þá sem
ráða fjármagninu ogþaðstarfar
í andstöðu við alþýðuna. Við
vitum alveg hvar við höfum
íhaldið, það er það góða við
það.
En éghefalltaf haft megnustu
andstyggð á þeim sem ekki geta
komið fram án þess að villa á sér
heimildir og sigla undir fölsku
flaggi. Alþýðuflokkurinn hefur
mjög góða stefnuskrá en það
sorglega er að þar komast sífellt
til valda menn sem vinna gegn
stefnuskrá síns eigin flokks.
Fyrir mig kemur því ekkert til
greina annað en að styðja
í öðru lagi styð ég Alþýðu-
bandalagið vegna landsbyggð-
arstefnu þess. Framsóknar-
flokkurinn hefur gefist upp á
því sviði. Stefna hans er löngu
stirðnuð og geld.
Hvernig er hljóðið í mönnum
á Þórshöfn?
Ég held að það sé óhætt að
segja að það sé mjög gott. Við
erum nýbúnir að stofna félag
hérna og það er kraftur í því og
ég hef orðið var við að margir
sem kjósa í fyrsta skipti nú
styðja Alþýðubandalagið.
Alþýðubandalagið, það er eini
heilsteypti vinstri flokkurinn
sem býður fram núna.
Er valið eins auðvelt fyrir þig
Rögnvaldur?
Eg er einn af stofnendum
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna og virkur félagi þar
síðan. Samtökin voru stofnuð á
sínum tíma til að safna saman
vinstra fólki sem var dreift og
aðrir flokkar fengu ekki hljóm-
grunn hjá. Árangurinn varsáað
við fengum fimm menn kjörna á
þing og urðum úrslitaaflið í
vinstri stjórn. Og þó við bjóðum
ekki fram nú getum við enn sem
fyrr lagt okkar að mörkum til
þess að vinstri stjórn verði
mynduð að loknum þessum
kosningum. Ég tel að Frjáls-
lyndir og vinstri menn ættu að
sameinast um það nú að styðja
Alþýðubandalagið.
Hvernig rökstyður þú það?
í fyrsta lagi hefur Alþýðu-
bandalagið mjög sterk ítök í
launþegahreyfingunni og er mál
svari hennar og vinstri stjórn
verður ekki mynduð án þátt-
töku Alþýðubandalagsins með
stuðningi verkalýðshreyfingar-
innar.
í öðru lagi nýtist hvert
atkvæði sem Alþýðubandalagið
fær við útreikning uppbótar-
sæta. Sú staða getur kornið upp
að mörg hundruð atkvæði
greidd Framsóknarflokknum
falli dauð og ómerk á n
þingmanns og vinstri hreyfingin
má ekki við því.
Hvað Alþýðuflokkinn varðar
þá hafa forustumenn hans ekki
sýnt þá ábyrgð í vinstra sam-
starfi sem umbjóðendur þeirra
ætluðust til. En þeir sem telja sig
eygja persónulega framavon
með því að styðja þá þeir geta
auðvitað gert það á sína ábyrgð.
En útkoman í síðasta prófkjöri
hjá Alþýðuflokknum hér í
kjördæminu sýnir það ótvírætt
að verkalýðsleiðtogar og aðrir
launþegar eiga ekki upp á
pallborðið í þeim herbúðum.
Þar lét formaður stærsta verka-
lýðsfélags utan Reykjavíkur í
minni pokann' tyrir landflótta
og uppgjafa atvinnurekanda af
Suðurnesjum. Soprin hræða.
Með þetta í huga þykir mér
einsýnt fyrir mig að samherja
mína úr Samtökum sem vilja
hugsjón sinni truir að kjósa G-
listann í komandi kosningum.
Byggðasteftian
og hermálið
ráða úrslitum
NORÐURLAND- 3