Norðurland - 13.12.1979, Blaðsíða 1
NORÐURIAND
4. árgangur Fimmtudagur 13. desember 1979 32. tölublað
Kjaramálaráðstefna ASÍ
Tal um klofning
er tilhæfulaust
Rœtt viÖ Hákon Hákonarson, formann ASN
Um helgina síðustu hélt A.S.Í.
kjaramálaráðstefnu í Reykja-
vík. Þar var rætt um stefnuna
varðandi komandi samninga-
gerð en ráðstefnunni var síðan
frestað til 10. janúar n.k. Mikið
veður hefur verið gert út af því í
fjölmiðlum að ráðstefnan hafi
borið vott um mikla sundrung
innan Alþýðusambandsins, síð-
degisblöð hafa talað um að
A.S.f. sé að klofna. NORÐ-
URLAND hafði samband við
Hákon Hákonarson formann
Alþýðusambands Norðurlands
sem sat ráðstefnuna og bað
hann að segja álit sitt á þessu
klofningstali og greina frá nið-
urstöðum ráðstefnunnar.
„Það ætti nú ílestum að vera
það ljóst um hvað málið snýst,
sem sé það með hvaða hætti á
að greiða verðlagsbæturnar, á
að greiða þær í prósentum,
þannig að sama prósenta komi
á öll laun, frá þeim lægstu til
hæstu eða á að greiða sömu
prósentutölu upp að einhverju
tekjumarki og síðan ákveðna
krónutölu á laun þar fyrir ofan?
Eða á hinn bóginn á að miða
vísitölubæturnar við einhver
ákveðin lágmarkslaun á þann
Rátt að sama krónu talan komi
á öll laun og nota verðlagsbæt-
urnar á þann hátt til jöfnunar á
launastiganum?
Eins og gert var ráð fyrir í
tillögum Verkamannasam-
bandsins í haust?
Já, þetta var á döfinni þar.
Skoðanaágreiningurinn stend-
ur fyrst og fremst um þetta.
Hins vegar vil ég taka mjög
skýrt fram að fyrirsagnir ýmissa
íjölmiðla varðandi þessa ráð-
stefnu eru náttúrulega í engu
samræmi við þann anda sem
þar ríkti. Það er algerlega
tilhæfulaust aða vara að gera
ráð fyrir einhverjum klofningi
innan A.S.í. eða að vera að gera
því skóna að einhver illindi hafi
verið á ferðinni, málið er
einfaldlega það að þegar menn
hittast og fara að skiptast á
skoðunum þá er það afskaplega
eðlilegt að menn séu ekki allir á
eitt sáttir í fyrstu lotu. Það er
ágreiningur um ákveðin mál en
það er engin ástæða til að blása
það upp eins og eitthvert
stórmál að mínu mati.
Hitt er svo alveg morgunljóst
að ástæðan til að þessari
ráðstefnu var frestað var fyrst
Frá 9. þingi V.M.S.I. á Akureyri í haust.
Hákon Hákonarson.
og fremst sú að það standa yfir
stjórnarmyndunarviðræður í
landinu eins og allir vita og
menn vilja einfaldlega hafa á
hreinu við hverja þeir eiga að
tala. Menn skyldu ekki gleyma
því að ríkisvald á hverjum tíma
hefur ákaflega mikið að segja,
hvað sem verið er að semja um.
Þó svo að nú sé mikið talað um
frjálsa kjarasamninga. Við vit-
um ekki núna hverjir verða
húsbændur í árslok eða á
nýbyrjaða árinu og ég tel það
mjög eðlilegt að menn vilji fá
það á hreint áður en þeir setja
sig í stellingar.
Spilaði kröfugerð BSRB ekkert
inn í umræðurnar hjá ykkur?
Jú, það segir sig sjálft að
þegar jafn fjölmenn og sterk
launþegasamtök og BSRB setja
fram kröfur sem ganga svo
dæmi sé tekið þvert á tillögur
verkamannasambandsins þá
hefur það óneitanlega áhrif.
Praktíska hliðin á þessuermjög
einföld, þannig að það er
ástæðulaust að vera að gera því
skóna að um sé að ræða
klofning milli láglaunamanna
og hálaunamanna að ræða,
klofning eftir pólitískum skoð-
unum eða afstöðu til þessarar
eða hinnar ríkisstjórnarinnar;
spurningin er einfaldlega: erum
við í A.S.Í. tilbúin til þess að
samþykkja skertar vísitölubæt-
ur til okkar fólks meðan enginn
aðili annar í landinu gerir það.
Um það snýst málið og ekkert
annað. Það er mikil ábyrgð sem
hvílir á okkur það skyldu menn
hafa í huga þegar þeir eru síknt
og heilagt að kasta boltanum á
A.S.Í.
Happdrætti Þjóðviljans
og Norðurlands
Á morgun verður dregið í Happdrætti Þjóðviljans, sem
NORÐURLAND annast hér í kjördæminu, en drætti var
frestað frá 1. des. Stefnt er að því að vinningsnúmer verði birt
á Þorláksmessu, svo sem verið hefur undanfarin ár, en til að
svo megi verða þurfa menn að hafa gert skil hjá
umboðsmönnum eða aðalskrifstofunni á Akureyri. Sérstak-
lega eru þeir sem fengu gíróseðla senda með miðum sínum
beðnir að greiða þá sem allra fyrst.
Minnist þess að útgáfa beggja blaðanna byggist að
verulegu leyti á happdrættinu.
Umboðsmenn eru:
Ólafsfjörður: Agnar Víglundsson, Kirkjuvegi 18
Dalvík: Hjörleifur Jóhannsson, Stórhólsvegi 3
Hrísey: Guðjón Bjömsson
Húsavík: Snær Karlsson, Uppsalavegi 29
María Kristjánsdóttir, Arhóli 8
Raufarhöfn: Angantýr Einarsson
Þórshöfn: Arnþór Karlsson
Akureyri: Skrifstofa NORÐURLANDS, Eiðsvallagötu 18
Dregið verður á morgun - 14. desember.
Styrktarmannakerfi:
Korniðfyllir
mælinn
Á Kjördæmisþingi Alþýðubandalagsins í haust var m.a.
ákveðið að koma á fót styrktarmannakerfi til að tryggja
útgáfu NORÐURLANDS. Þeir sem þannig yrðu styrktar-
menn greiddu þá mánaðarlega smáupphæð af íaunum sínum
til blaðsins, minnugir þess að margt smátt geirir eitt stórt.
Því er ekki að leyna að útgáfa blaðsins þetta árið hefur
verið mjög erfið, en það lifir á seiglunni. Hins vegar er framtíð
þess nú öll undir því komin að takast megi að koma slíku
styrktarmannakerfi á fót frá næstu áramótum. Því eru þeir
sem vilja á þann hátt styrkja blaðið beðnir að hafa samband.
við ritstjórn eða útgáfustjórn sem fyrst.
Það hlýtur að vera nokkurs virði vinstri hreyfíngu á
Norðurlandi eystra og öllu landinu að eiga sér skeleggt
málgagn svo sem NORÐURLAND hefur lengstum verið.
Blaðið hefur líka verið í stöðugri sókn og áskrifendum
fjölgað jafnt og þétt, en ekki samt nóg til að tryggja
fjárhagslega afkomu blaðsins. Það hefur því átt líf sitt í
höndum lesenda sinna, sem margir hverjir hafa vikið að því
góðu. Það er líka ekki albölvað því að fyrir bragðið finna
menn betur að þetta er þeirra blað og líf þess er samtengt
þeirra lífsbaráttu og hugsjónum.
Útgáfustjórn heitir því á alla velunnara NORÐUR-
LANDS að standa vörð um blaðið að það megi vaxa og
dafna. Hvert lítið framlag af þeirra hendi er framlag til
baráttu fyrir betra mannlífi, jafnrétti og frelsi óháði veldi
auðsins. Því er til nokkurs að vinna að NORÐURLAND geti
haldið áfram að koma út. Það dugar ekki að auka skuldirnar,
en styrktarmannakerfi ætti að geta komið í veg fyrir slíkt og
tryggt reksturinn með mánaðarlegum greiðslum, ef nógu
margir vilja gerast félagar. Skráið ykkur hví sem fyrst.
ÚTGÁFUSTJÓRN.
KRAKKAR - OPIÐ HÚS
verður í Lárusarhúsi á sunnudaginn kemur 16. desem-
ber. Takið foreldra ykkar með i jólaföndur. Takið með
ykkur skæri og lím og hverskonar efni sem breyta má í
skemmtilegt jólaskraut, garnafganga, pappír o.s.frv.
Að sjálfsögðu verða veitingar.
JÓLASVEINNINN.
Leiðarinn Umsagnir um „Gísl“ Pistillinn
er um nýjar bœkur sýndurá er að venju
vísitölumálin eru í Dalvík á
bls. 4 opnu sjá opnu bls. 7
Gerist áskrifendur að Norðurlandi
v
j