Norðurland


Norðurland - 13.12.1979, Blaðsíða 2

Norðurland - 13.12.1979, Blaðsíða 2
okkar bækur bregðast ekki Ólafur Jóhann Sigurösson: Ritsafn Ólafur Jóhann Sigurðsson hefur fyrir löngu skipað sér á bekk með okkar fremstu rithöfundum. Margar af hans bestu bókum hafa verið ófáanlegar um langt skeið, en nú með þessari nýju og glæsilegu útgáfu á ritsafni Ólafs Jó- hannserbættúrbrýnniþörf. Áttabækur: Fjallið og draumurinn, Vorköld jörð, Þrjár sögur, Út á þjóðveginn (sögur 1935—1940), í gestanauð (sögur 1940-1945), Margs að gæta (sögur 1945-1962), Gangvirkið og Seiður og hélog. Verð til áramóta aðeins kr. 65.000. Eftir þann tíma verður safnið seltá kr. 94.400. -Wtíkmi Heinesen TltYtiOVl ÍMILSSOX FYRIR mmm William Heinesen Sigurður A. Magnússon Árni Bergmann Steinbeck: John Þrúgur reiðinnar Undir kalstjörnu Miðvikudagar í Moskvu í morgun- kulinu Ein af skærustu perlum heims- bókmenntanna. Steinbeck (Nóbels- verðlaun 1972) segir hér sögu amer- ískrar bændafjölskyldu sem flosnar upp í kreppunni miklu, selur búslóð sína fyrir notaðan bílgarm og heldur af stað yfir meginlandið, lokkuð af óprúttnum gylli- boðum. Bókin er í snilldarþýðingu Stef- áns Bjarman. Verð kr. 10.005. Félagsverð kr. 8.505. Einstaklega falleg og um leið átakanleg uppvaxtarsaga, sem fjailar um æskuár ungs drengs í fátækra- og jaðarhverfum Reykjavíkur á kreppuárunum. Bókin hefur nú þegar hlotið frábærar viðtökur, enda um að ræða einstæðan bók- menntaviðburð. Verð kr. 9.945. Félagsverð kr. 8.455. Fáir Islendingar hafa kynnst sovésku samfélagi eins náið og Árni Bergmann, sem fór ungur að árum í háskólanám til Moskvu. Hér segir hann frá reynslu sinni, frá kynnum af jábræðrum skipu- lagsins, andófsmönnum og öllu þar á milli, um leið og hann gerir úttekt á þjóðlífi og þjóðskipulagi þar eystra. Afar fróðleg og hreinskilin bók. Verð kr. 9.945. Félagsverð kr. 8.455. Samtímasaga frá Færeyjum. Sögu- sviðið er ofurlítiðeyjarsamfélag í Færeyj- um milli stríða. Ýmsar sviptingar ganga yfir undir merki Mammons, Erosar og Drottins allsherjar. Þriðja bók Heine- sens í afburðasnjallri þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Verð kr. 11.285. Félagsverð kr. 9.500. Norma E. Samúelsdottir: Tryggvi Emilsson: Næstsíðasti Fyrir sunnan dagur arsins Snorri Hjartarson: Hauströkkrið yfir mér Magnus Kjartansson: Elds er þörf Þriðja og síðasta bindi æviminninga Tryggva. Hér segir hann frá því þegar hann flyst til Reykjavíkur, lýsir harðri lífsbaráttu í höfuðstaðnum, segirfrá ná- grönnum, vinnufélögum og verkalýðs- átökum. í lokin er bókarauki um syst- kinin frá Hamarkoti. Fyrri bækur Tryggva, Fátækt fólk og Baráttan um brauðið vöktu fádæma hrifningu og voru báðar tilnefndar til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs. Verð kr. 12.200. Félagsverð kr. 10.370. a- Beta, húsmóðir í Breiðholtinu, situr við dagbókarskriftir. Með frjálsu dagbókar- formi, þar sem renna saman endurminn- ingar, hugleiðingar og frásagnir frá líð- andi stund.tekst höfundi að bregða upp skýrri mynd persónu og umhverfis af hispursleysi og listrænni dirfsku. Verð kr. 9.720. Félagsverö kr. 7.880. Fjórða Ijóðabók Snorra Hjartarsonar — stærsti viðburður á íslenskum bóka- markaði í ár. Hinn listfengasti af núlif- andi Ijóðskáldum kveður sér hljóðs eftir þrettán ára hlé. Verð kr. 8.540. Félagsverð kr. 7.260. Úrval af greinum og ræðum sem Magnús hefur samið og flutt af ýmsum tilefnum síðustu þrjá áratugi þegar hann var í eldlínu íslenskra stjórnmála sem ritstjóri, alþingismaðurog ráðherra. Verð kr. 11.000. Félagsverð kr. 9.435. Mál og menning Iffl 2 -NORÐURLAND

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.