Einherji - 07.09.1934, Blaðsíða 1
III. árg.
Siglufirði, Föstudaginn 7. sept. 1934
22. tbl.
Síldveiðin. S T Ö L K A ,
sera er sæmilega vel að sér í skrift og reikningi, get-
ur fengið atvinnu við verzlun mína frá l. okt. n.k. í
4 mánuði. Innheimta og útburður blaða til fastra
kaupenda er innifalið í starfinu.
Hannes Jónasson.
Mikil líkindi eru til, að síldveiði
sé lokið á þessu sumri. Varð skjót-
ur endir á veiðinni og var þar um
að kenna öhagstæðu tíðarfari, storm-
uin og sjógangi. Eftir fregnum að
dæma mun síld vera ennþá á veiði-
svæðinu, allt frá því á vestanverð-
um Húnaflóa og austur fyrir Gríms-
ey. Lengra að austan hafa ekki
fregnir borist nýlega, en eftir því
sem menn þekkja til um göngu
síldarinnar seinnipart sumars og að
hanstlagi, heldur hún austur með
norðurströndinni, lendir hún, þegar
austur dregur, samkvæmt rannsúkn-
um mag. Arna Friðrikssonar, í
nokkurskonar kreppu milli Póls-
straumsins og lands, en sjálf heldur
hún sig í þeirri æð Golfstraumsins
er liggur austur með landi.
Hin siðasta ganga síldarinnar á
þessu sumri, kom frekár seint eftir
því sem venja er til. — Getur vel
svo farið, og er ekki ósennilegt, að
sildin haldi sig á veiðisvæðinu all-
an þenna.n mánuð, gæti þá svo far-
ið að ennþá veiddist nokkuð, ef
tíðarfar batnaði og skip þá ekki
verða hætt veiðum.
Eftir því sem komist verður næst
er síldveiðin á öllu landinu á þessu
sumri tæp, 200 þús. tn. Par afhafa
verið saltaðar hér i Siglufirði 143,-
500 tn. Hin eiginlega söltun hér
byrjaði 24. júli og hin síðasía síld
var söltuð 2. sept. Söltunardagar eru
samtals 33. Meet varveiðin dagana
1. til 15. ágúst og voru þá á því
tímabili saltaðar 121,812 tn. eða til
jafnaðar um 8120 tn. á dag. Mest
var söltunin 3. ág. 12644 tn.
Eftir 15. ág. fór mjög að draga
úr veiðinni helst sökum ótíðareins
og að framan er sagt. Mesta dag-
söltun eftir þann tíma var 18. ág.
4645 tn. Márgir dagar hafa fallið
úr, þannig að ekkert hefir veiðst.
Um síldveiði útlendinga hér við
land á sumrinu er ekki kunnugt svo
ábyggilegt sé. Pó má telja víst, að
Norðmenn hafi aflað vel, og sömu-
leiðis Finnar. Aftur á móti mun
reiði Svía vera fremur lítil.
Verð á síld var framanaf mjög
lágt, en hækkaði nokkuð þegar á
sumaiið leið og mun vera aillsæmi-
legt vsrð á saltsíld nú. Matjessíld
er eingöngu seld gegnum hið nýja
sölusamlag og er ekki opinberlega
fullkunnugt um verð það er sam-
lagið hefir selt fyrir, en verðið mun
vera mjög sæmilegt á þvi af mat-
jessíldinni sem þegar er selt.
Petta sumar hefir verið Siglufirði
óhagstætt. Porskafli brást í vor,
sildveiðin að mokkru leyti og önn-
ur atvinna hefir verið mjög af
skornum skammti. Afkoma manna
öll með lakara móti. Má vera að
haustvertíð, ef hún gengur vel, geti
bætt úr þessu að nokkru.
Síðan grein þessi var skrifuð
hefir útlitið breytst til batnaðar
hvað síldveiðina snertir. Aðfaranótt
hins 6. voru saltaðar hér 2745 tn.
og fregnir hafa í dag (6. sept.) bor-
ist um að skip hafi fengið síld.
Síldin veiðist á Skagafirði.
Fjöldi skipa er ha»tt veiðum og
er það mest vegna óvilja sjómann-
anna að stunda veiðina lengur.
Bíður þó flestra þeirra atvinnu-
leysi heima fyrir. Síldin mun nú
seld á 10 og jafnvel 12 kr. upp-
söltuð tunna. Reknetasíld mun
hærra borguð.
Bakkus konungur.
U*danfarið heflr verið sýnd hér
á Bíó mynd með þessu nafni og
er myndin tekin eftir samnefndri
sögu eftir anaeríska rithöfundinn
Upton Sinclair.
Pótt mynd þessi sýni ekki nema
nokkurn hluta þess, sem bókin fjall-
ar um, er hún þó næsta eftirtektar-
verð og lærdómsrík. Hún sýnir
hvernig Bakkus konungur eyðilegg-
ur alla þá, er lag sitt leggja við hann,
hvernig hann tortímir líkama
þeirra og sál, ruglar hugsanir þeirra
og dómgreind svo þeir geta ekki
gert greinarmun á góðu og illu,
réttu og röngu og afleiðingin verð-
ur sú, að þessir menn villast út á
braut lasta og glæpa.
Pessi mynd sý«ir einnig hvernig
fégjarnir og óhlutvandir menn safna
fjármunum með þvi að nota sér
drykkjufýsn manna, þannig að þeir
brugga og selja allskonar óþverra
er menn drekka. Um það hugsa
þessir menn ekki þótt líf, heilsa og
velft rð fjölda meðbræðra þeirra fyr-
.irfarist fyrir aðgjörðir þeirra.
Sagan er amerísk. Par er allt
stórfenglegt, illt og gott. En við ís-
lendingar höfum líka sögu að segja
þótt í smærri stíl sé. Allir kannast
við landabruggið, sem gengið hefir
líkt og skæðasta farsótt yfir landið.
Bruggarnir, og þeir er fyrir þá
selja, hafa þungar sakir á samvizku
sinni, þeir hafa leitt mikla bölvu*
yár þjóðina.