Einherji


Einherji - 21.12.1934, Page 1

Einherji - 21.12.1934, Page 1
j: —'ir III árg. Siglufirði, Föstudaginn 21. des. 1934 32 tbl. N Ý J A - R í Ó Sýnir annan jóladag kl, 4 Alþ.s. Niðursett verð. „M ó ð u r á s t“. Kl. 6 „Hættur að hugsa um stúlkur“. Kl. 84: ' „Eg syng um þig“. Hin stórfenglega söngmynd með JAN KIEPURA og JENNY JUGO í aðalhlutverkunum. J ó l. Enn er komið að jólum. Enn hlakka börn og fullorðnir til fiátíðar hátíðanna, Jólanna. Rau hafa, enn sem fyrri, í sér fólgið það töfraafl, sem enginn fær á móti staðið, afl sem á djúpar ræíur í lífi þjóðanna, afl, sem aldrei mun þrotna meðan lönd og lýðir eru til á þessari jörð. Engin hátíð ársins er sem jólin. Pá keppast allir við að hafa hús sín fáguð og prýdd. Hver sem nokkur tök hefir á gefur vinum sínum gjafir, og reynir að komast eftir hver gjöf muni kærkomnust. Pað er eins og á jólunum springi út og skjóti fagurri blómkróuu allur sá hlýleíki, öll sú velvild og allur sá innileiki, er ávallt er til í brjósti hvers manns, þótt liann sé annars venjulega falinn undir önnum og striti hins daglega lífs, Pá gleymast um stund allar erjur er vera kunna milli manna og jafnvel óvinir heilsa hver öðrum á vingjarnlegan hátt. Svo mikils fá jólin til vegarkomið. Og hvernig stendur þá á þessum miklu áhrifum jólanna? Pað má segja að hátíðahald jól- anna sé erfðavenja kristinna þjóða gegnum aldaraðir. En það setn á bak við stendur og mestu ræður, er sá fögnuður, sú gleði og sú hrifn- ing, er allir kristnir menn finna til er þeir minnast komu Krists í heiminn og þess fagnaðarboðskapar er hann flutti öllum þjóðum. Við komu hans og kenningu var brugð- ið skæru Ijósi yfir tilgang lifsins hér og framhalds þess síðar og við það Ijós hefir mannkynið yljað sér i þrautum, hötmungum og hrakviðr- um lífsins. og við það ljós hefir það öðlast styrk og þrótt, fögnuð og gleði. Pví er það að jólahá- tiðin er eigi síður hátið „innra fyrir andann“, en hátíð hinna ytri at- hafna. Peir, sem komnir eru á efri ár, muna mörg jól, jól barnsins, jól æskumannsins, jól hins þroskaða manns og jól ellinnar. Oll eru þessi jól sitt með hverjum hætti. Pau. hafa ef til vill ekki verið öll jafn gleðileg, hver aldurstími heör sínar sorgir og sin erfiðu viðfangs- efni. En flestum mun þó virðast svo, er þeir líta til baka og minn- ast liðinna jóla, að þau í heild hafi verið þeim uppspretta sannrar gleði og ánægju, ýmist þeirrar gleði er aðrir hafa þeim veitt, eða þá þeirr- ar, sem er sú hreinasta sem til er, að þeir hafi gert aðra glaða. Eftir fáa daga byrjar jólahátíðin. Vér .viljum óska að hún breiði blæju friðar, kærleika og samúðar yfir þennan bæ og yfir þetta land. Vér viljum flytja ungum sem göml- ■ um vorar beztu óskir um Gleðileg jól. Nýar bækur . GYÐINGURINN GANGANDI, nokkur útvarpserindi flutt af Guð- brandi Jónssyni. Dr. Guðbrandur er mjög ritfær maður og frásagnar- list hans snjöll og iýsir eftirtekt hans og skilningi. Verð, ób. 5,00, innb. 7,00. LASSARÓNAR. eftir Sigurð Haralz. Nokkrir dagar og nætur á norður Spáni. Segir í bókinni frá æfintýrum þeim er höf. lenti í. Verð 2,50 ób. NEl SKO BÖRNIN! Eftir Paul Eipper, t ýdd af Valdi- mar Össurarsyni. Bók þessi er með 30 myndum af börnum, þar af 14 af íslenzkum börnum. Bókin tjallar um börn, sálarlíf þeirra og aðbúð við þau. Frágangur allur vandaður. Verð ób. 4,00 KAK, Eireskimóinn. Bók þessi er

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.