Einherji


Einherji - 26.08.1937, Qupperneq 1

Einherji - 26.08.1937, Qupperneq 1
Jptafr Jfratn$óknarmatttta t VI. árgangur j Siglufirði, fimmtudaginn 26. ágúst 1937 31. tölublað c‘tVrfrríííXW íwr,i Bindindismál ■ jfjlands, að koma fram gagnvart AI- j i þingi og ríkisstjórn út af ályktun- > um fundarins. um væntanlegar >' breytingar á áfengislöggjöfinni. — ný.ta-ríó HPmm sýnir fimtud. 26. ágúst kl. Eins og getið var um í síðasta blaði Einherja var fundur haldinn á Þingvöllum um miðjan þennan mánuð. Voru þar samþykktar merkilegar tillögur, er snertu bind- indis- og menningarmál. Rúm blaðsins leyfir ekki að allar þessar tillögur verði birtar, en hér fara á eftir nokkrar þeirra, þær er mesta þýðingu hafa. Fundur bíndindismanna og ann- ara áhugamanna um varnir gegn áfengisnautn, haldinn á Þingvöllum dagana 14.—15. ágúst 1937, vill jafnframt því, sem hann vekur at- hygli alþjóðar á hver voði þjóðinni er búinn af þeirri geigvænlegu nautn áfengra drykkja, sem við nú horfumst í augu við og drykkju- skaparóreglu, sem siglir i kjölfar hennar, skora alvarlega og ein- dregið á alla hugsandi menn og konur að beita sér með alhuga og af afli gegn áfengisbölinu með því m. a.: 1. Að styðja og efla kröftuglega og þróttmikla bindindisstarfsemi innan Góðtemplarareglunnar og gera hana áhrifaríka í því að móta hugsunarhátt einstaklinganna og alla setningu og meðferð löggjafar um áfengismál. 2. Að stuðla að því, að ung- mennafélögin og önnur æskulýðs- félög svo og íþróttafélögin taki upp öfluga baráttu gegn áfengis- nautn og hverskonar drykkjuskap- aróreglu. ,, 3. Og síðast en ekki sízt, að fá því til vegar komið, að í skóluml landsins sé kostað kapps um að beita uppeldislegum áhrifum á nemendurna til gagns og fram- dráttar bindindishugsjóninni. Og að við val og skipun kennara sé höfð hliðsjón af því að þessum tilgangi verði náð. Fundurinn skorar á: a) Fræðslumálastjórn og kenn- arastétt þjóðarinnar að beita sér fyrir skipulagðri bindindisfræðslu í skólum landsins. b) Fræðslumálastjórn ríkisins að útvega kennurum Iandsins góð fræðslutæki um áfengi og tóbak og aðrar skaðanautnir, t. d. kvik- myndavélar og kvikmyndir. c) Fræðslumálastjórn ríkisins að gefa út ársfjórðungsrit, er fræði um áhrif áfengis og tóbaks og nýjustu rannsóknir um þau efni, svo og það, er varðar kennslu um þau mál. d) Útvarpsstjórn að láta mán- aðarlega halda fræðandi fyrirlestra um áfengi og tóbak, flytja bind- indisfréttir og styðja bindindi á all- an hátt. e) Heilbrigðisstjórn og lækna Iandsins að beita sér fyrir að flutt verði af héraðslæknum í hverju læknishéraði, að minnsta kosti einn fyrirlestur á ári um skaðsemi á- fengis og tóbaks. Fundurinn skorar á næsta Al- þingi, að samþykkja þegar í stað fullkomin héraðabönn þ. e. að kaupstöðum og sveitum Iandsins verði fenginn sjálfsákvörðunarrétt- ur um áfengissölu og áfengisveit- ingar, og að gagngerðar breyting- ar verði að öðru leyti gerðar á á- fengislöggjöfinni um allt það, er máli skiptir að dómi Stórstúku ís- lands og bindindisfélaga landsins. Fundurinn samþykkir að skipa þriggja manna nefnd til þess, á- samt fulltrúum frá Stórstúku ís- Með þvi að erlendur gjaldeyrir er ekki fyrir hendi til brýnustu nauðsynja, þá skorar fundurinn á þing og stjórn að takmarka inn- flutning áfengis og tóbaks að miklum mun. I. Þingvallafundur um bindindis- mál, 15. ágúst 1937, samþykkir að skipa þriggja manna nefnd til þess að undirbúastofnun landssambands bindindis- og menningarfélaga, með því verkefni m, a. að auka menn- ingarbrag í skemmtana- og sam- kvæmislífi þjóðarinnar II. Þingvallafundi um bindindismál, 15. ágúst 1937, er það ljóst, að atvinnuleysi og iðjuleysi unglinga er undirrót margskonar spillingar, eiturnautna og afbrota. Þess vegna skorar fundurinn á Alþingi, að gera þegar á þessu ári róttækar ráðstafanir til þess, að allir ung- lingar i landinu eigi kost á nægi- legu og þroskavænlegu viðfangs- efni. III. Þingvallafundur um bindindis- mál, 15, ágúst 1937, skorar á öll blöð landsins að beita áhrifum sin- um gegn neyzlu áfengis og tóbaks. Fundurinn samþykkir að skipuð verði 15 manna nefnd, er vinni að og undirbúi Þingvallafund, til að ræða um áfengismál og bindindis- starfsemi. Nefnd þessi beiti sér fyrir því, að sveita- og bæjafélög, svo og önnur félög, er mál þetta vilja styðja, sendi fulltrúa á fundinn. Aðalverkefni þess fundar skal Einu sinni aö næturlagi. Kl. 10|: Heiðursmaöur heimsækir borgina. vera það að stofna landssamband, er vinni gegn áfengisböli. Frá nokkrum fundar- mönnum. Um leið og fundurinn viður- kennir og virðir hið háleita og blessunarríka starf, sem kirkjan vinnur með þjóð vorri, þakkar hann þann stuðning, sem hún hefir veitt bindindismálinu og með því að Reglan er byggð á kristi- legum grundvelli telur fundurinn eðlilegt og sjálfsagt að kirkjan, Reglan og önnur bindindisfélög sameinist um að beita sér fyrir hverskonar siðbótum og menning- armálum. Á tillögum þeim, sem hér eru birtar og þeim öðrum tillögum, sem samþykktar voru á fundinum, má sjá það, að bindindisvinir út um land geta fengið ærinn starfa með þvi að styðja í orði óg verki það starf og þær fyrirætlan- ir, sem grundvöllur var lagður að á þessum þýðingarmikla fundi. Nú er þess þörf, að allir hugs- andi menn vakni til dáða og sam- eini krafta sína til baráttu gegn á- fengisbölinu. Ef þjóðin heldur á- fram á sömu braút og hún hefir

x

Einherji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.