Einherji - 26.08.1937, Side 3
EINHERJI
3
Manchetskyrtur
og bindi
væntanl. með »Dettifoss«.
Kaupfél. Siglfirðinga.
BÓKAFREGN
Sigfús Elíasson: BERGMÁL
Ljóð.
Akureyri. Prentverk Odds
Björnssonar.
Sigfús Elíasson er all-mikilvirkur
á Ijóðagjörð. Fyrir fáum árum
kom út eftir hann stór ljóðabók,
Urðir, og nú aftur þessi, sem hér
verður minnst á.
Svo virðist sem Sigfúsi Elias-
syni sé létt um að yrkja og kvæði
hans bera vott um þrá hans og
þörf til þess að semja ljóð. Bregð-
ur því fyrir í kvæðum hans, að
hann finnur til þess, að löngun
hans til að yrkja og kröfur lífsins
rekast á, og vill svo oft verða,
að menn geta ekki haldið sig að
því sem þeim er hugkvæmast.
Kemur þetta t. d. fram í kvæðinu:
Rima rakarans, en þar segir svo:
»Liðinn er dagur en lúin hönd
að loknu dagsverki pennann
grípur«.
Og síðar:
»Herm þú mér spegill, nú spyr
eg þig-
Spélaus þú getur rætt við mig,
þú mælir aldrei hið minnsta tál.
En mega ei rakarar hafa sál?«
Það mun annars vera svo um
þennan höfund, eins og svo marga
aðra, að ljóð hans eiga erfitt með
að ná til alþjóðar, vegna þess, að
önnur skáld eru meira »móðins«,
ef svo mætti að orði kveða. Þó er
það svo, að í Bergmál eru mörg
kvæði, sem standa jafnfætis ýmsu
því, sem dáð er hjá öðrum meira
þekktum skáldum, bæði að vali
yrkisefna, hugsanahreinleik og orða-
vali. Hinu skal ekki neitað, að
fágun sumra kvæðanna i Bergmál
hefði mátt og getað verið meiri.
Það sem sérstaklega einkennir
skáldskap Sigfúsar Elíassonar, er
ást hans og aðdáun á náttúrunni,
fegurð hennar og mikilleik, samúð
hans með öllu því, sem er minni
rnáttar og trú hans á sigur hins
góða.
Hér .er eklti tækifæri til að til-
Steíán
Guðmundsson,
óperusöngvari,
syngur í BÍÓ ANNAÐ KVÖLD kl. 7 e. h.
Við hljóðfærið:
Páll ísólfsson, organleikari.
Aðgöngumiðar seldir á afgreiðslu Eimskipafélags íslands eftir kl. 1 í
dag og kosta kr. 2,00 niðri og kr. 2.50 uppi.
færa mikið úr bók hans, en hér
fer á eftir síðasta erindjð úr kvæð-
inu: Þar sem . . .
Þann Drottinn skal tigna
sem eilífur alheimi stjórnar,
því'aldrei hann nokkurri mannssál
til glötunar fórnar.
Við menn höfum gróðursett
þistia og þyrnana hörðu,
en það er vor köllun
að skapa hér Guðsríki á Jörðu.
Verum bræður og blessum með söng
vora bláfjallaþröng.
Ritstjóri Siglfirðings
fárast mjög um það í síðasta Sigl-
firðingi að Pálmi Hannesson skyldi
ná kosningu í Skagafirði við s.l.
Alþingiskosningar, þar sem P. H.
hefði flutt aðeins eina ræðu i kjör-
dæminu, fyrir kosningarnar. Virðist
á skrifum ritstjórans að hann álíti
að Sjálfstæðisflokknunr hafi borið
með réttu þessi þingsæti í Skaga-
firði sökum hins mikla ræðufjölda
Magnúsar Guðmundssonar og Jóns
á Reynistað. En ritstjórinn mávita
það, að það er ekki nóg nú orðið
aðeins að tala, orðunum verða að
fylgja athafnir, en það er orða-
gjálfur og athafnaleysi sem hefir
einkennt Sjálfstæðisflokkinn, svo
ritstjórann þarf ekkert að undra það
þó að Sjálfstæðisflokkurinn tapi
meira og meira fylgi því fleiri
ræður sem fulltrúar flokksins flytja.
*
Gísli Halldórsson
segir í viðtali í Alþýðublaðinu að
allar »endurbæturnar« á verksmiðj-
unum hafi »kostað tiltölulega mjög
lítið«. — Tveir verksmiðjustjórnar-
menn segja litlu siðar í viðtali við
N. Dagbl. að nýja þróin og »end-
urbæturnar« á verksmiðjunum hafi
kostað T miljón króna. Nú er það
vitað að áætlað verð nýju þróar-
innar var 175 þús. kr. Endurbæt-
urnar ættu þá eftir því að hafa
hlaupið upp á 325 þús. kr. eða
jafnmikið og SRP kostaði með
lóð, bryggjum og öllum húsum.
Það verður tæplega talíð »mjög
lítið«.
BRÚKUÐ ÍSLENZK
F R í M E R K I
hrein og ógölluð,
kaupir
Hannes Jónasson.
Steýán
Guðmundss.
óperusöngvari,
syngur í Bíó í kvöld samkv.
auglýsingu á öðrum stað í blað-
inu. Allir aðgöngumiðar að þess-
um konsert seldust upp á tæpum
klukkutíma. Söngvarinn mun end-
urtaka konsertinn í Bíó annað
kvöld kl. 7. Aðgöngumiðar verða
seldir á skrifstofu Eimskip eftir kl. ■
1 á morgun.
isveinn GuðmundssJ
útgerðarmaður
andaðist hér í bænum í morgun.
Hann lézt úr lungnabólgu eftir
skamma legu.
Auglýsið í »Einherja«
það borgar sig bezt.
Spil og
íilmur
ættuð þér að kaupa hjá
Gesti Fanndal.
Ferða-
töskur
margar stœrðir.
Hannes )ónasson.
Hljóðfærahús Siglufjarðar.
Samkvæmt auglýsingu í blað-
í dag hefir nýlega verið opnuð
hljóðfæraverzlun hér á Siglufirði,
er það útibú frá Hljóðfærahúsi
Reykjavíkur. Það er nýjung fyrir
Siglfirðinga að fá þessa verzlun,
því hingað til hefir ekki verið
hægt að fá hér nótur eða annað
nema frá Reykjavík eða Akureyri.
Ættu Siglfirðingar að nota þetta
tækifæri og byrgja sig nú upp til
vetrarins. Ennfremur hefir verzlun-
in mikið úrval af leðurvörum, svo
sem dömuveskjum o. fl.
Brúökaup
S.l. laugardaginn voru gefin sam-
an í hjónaband frk. Ásta Hall-
grímsson og Jón Stefánsson fulltrúi.-
Einherj óskarbrúðhjónunum hjart-
anlega til hamingju.