Einherji - 03.11.1937, Side 3
EINHERJI
3
VidtaI
við B3ARNA 3ÓHANNSSON, yfirlögregluþjón.
L ö g t a k.
Samkvæmt kröfu umboðsmanns Brunabótafélaés íslands,
Siglufirði, úrskurðast að ógreidd, gjaldkræf brunabótagjöid verða
tekin lögtaki að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar aug-
lýsingar.
Skrifstofu Siglufjarðar 2. nóv. 1937.
O. Hannesson.
»Ef þú vilt kynnast bænum, þá
spurðu lögregluna og farðu á
bænasamkomur., er haft eftir nafn-
kenndum norskum manni, að hann
hafi sagt við kunningja sinn, sem
kom i kynnisför til Noregs og
heimsótti hann. Einherji vill hafa
sama ráðið, að minnsta kosti að
nokkru leyti. Hann vill kynna fleira
en það sem blasir við auga þeirra
sem lítið eru á ferli eða aðeins
koma snöggvast til bæjarins, og
því snýr hann sér til yfirlögreglu-
þjónsins, Bjarna Jóhannssonar til
þess að spyrja um ýmislegt. Verð-
ur hann vel við og svarar öllum
spurningum greiðlega.
Hvað segið þér um drykkjuskap
og óspektir í bænum, fara þær
vaxandi eða minnkandi?
Hvað viðvíkur áberandi ölvun
og óspektum, er því til að svara
að sé gerður samanburður á sama
tímabilinu í fyrra sumar og í sum-
ar, tímabilinu frá 23. júní til 23.
sept., þá hafa á þeim tíma í fyrra
verið sektaðir 78 menn fyrir þær
sakir, en í sumar aðeins 33. Þetta
er glæsileg lækkun, ef af því
mætti ráða að drykkjuskapur hefði
minkað sem þessu næmi, en svo
er þvi miður ekki, heldur stafar
þetta að miklu Ieyti af betri að-
stöðu lögreglunnar. Það er í fyrsta
sinn í sumar, sem hún hefir haft
bíl til afnota og hefh- það oft af-
stýrt óspektum. Áður hafa þær oft
stafað af því að þegar við lögreglu-
þjónarnir höfum orðið að leiða
eða jafnvel bera drukkna menn
um götur bæjarins, kemur það
ekki ósjaldan fyrir að hálfdrukkn-
ir menn hafa komið og viljað taka
þá af okkur, og fái þeir það ekki.
hljótast oft af því upphlaup og ó-
spektir, og ýmsir hljóta sektir.
Slíkum hindrunum verður löregl-
an ekki fyrir, ef hún getur tekið
drukkna manninn upp í vagn,
hvort heldur er af götunni eða
kaffihúsi, og ekið honum þangað
sem hann á að fara. Það er því
vafalaust hin brýnasta nauðsyn, að
lögreglan hafi vagn til umráða
yfir sumartímann, enda ekki sam-
boðið siðaðri þjóð að láta útlenda
og innlenda menn, horfa á lög-
regluna vera að bera eða draga
drukkna menn á eftir sér á götunni.
Þið hafið vonandi ekki sömu
sögu að segja hér og lögreglan í
Reykjavík að þið séuð iðulega
kallaðir heim á heimilin til þess
að stilla til friðar milli heimilis-
manna, eða húsráðenda og gesta
þeirra?
Nei, sem betur fer, en á sumrin
erum við talsvert oft kallaðir í
»brakkana«, einkum til þess að
reka út drukkna menn, sem vilja
ryðjast inn til síldarstúlknanna og
kemst þá stundum allt í uppnám.
Þess er þó sjálfsagt að geta, að
tæplega kemur það fyrir að ölvun
sjáist á nokkurri stúlkunni, og það
eru þær, sem leita hjálpar lögregl-
unnar til þess að losna viðdrykkju-
slánana.
Álitið þér að mikið sé uin leyni-
vínsölu hér i bænum?
Á því er lítill vafi að hún er
allmikil, en örðugt er við það að
ráða. Áfengið er keypt hjá Á-
fengisverzlun ríkisins, og svo selt
eftir lokunartíma verzlunarinnar og
á sunnudögum, en þá er auðvelt
að bera ýmsu við, maðurinn hafi
fengið flöskuna geymda þarna frá
þvi fyr um daginn o. s. frv. Mikið
rnundi það vafalaust auðvelda eft-
irlitið, væri sú regla tekin upp að
nýju að skrá alla viðskiftamenn
Áfengisverzlunarinnar, og hve mik-
ið þeir keyptu í hvert skipti. —
í sumar höfum við handsamað 5
menn sem játað hafa á sig áfeng-
issölu.
Eru Siglfirðingar ekki yfirleitt
ráðvandir menn?
Það lítur út fyrir þeir séu það,
að minnsta kosti ber mjög lítið á
gripdeildum, nema helzt um það
leyti sem aðkomufólkið er að fara
héðan og skipin að hætta veiðum,
enda ber þá mest á drykkjuskap.
Vill þá oft til að síldartunnur
hverfa af bryggjum, fatnaður úr
brökkum o. fl. Innbrot eru sjald-
gæf en koma þó fyrir. Slæmt ar
að eiga við það, hvað margir tapa
yfrrhöfnum sínum, köfuðfötum og
skóhlífum á kaffihúsunum á kvöld-
in þar sem dansað er og stafar
það af því að ekkert kaffihúsanna
hefir sérstaka fatageymslu nema
Alþýðuhúsið. Hin kaffihúsin þyrftu
nauðsynlega að koma sér lika upp
fatageymslu, þar sem tekið væri á
móti fötum kaffigesta, og þau af-
hent samkv. númerum. Mundu
gestgjafar, þjónustufólk og lögregla
með því móti losna við marghátt-
uð vandræði og jafnvel íllindi, sem
af þessari fataóreiðu leiðir.
(Framhald).
Bóksafn
Siglufjarða r
byrjar útlánastarfsemi föstudag
5. nóv. n. k. í húsi Péturs kaup-
mannsBjörnssonar. (Inng. að vestan)
Verður safnið opið eins og að und-
anförnu, þriðjudaga og föstudaga
kl. 5—7 e. m.
Siglufirði 2. nóv. 1937.
Pétur Á. Brekkan.
Frétlir.
E. s. »Skeljungur«
kom hingað beint frá Reykjavík
um síðustu helgi. Var skipið á
leið til Akureyrar með olíu, en
kom hér inn vegna óveðurs. Ingv-
ar Guðjónsson útgerðarmaður kom
með skipinu frá Reykjavik.
Finnbogi R. Þorvaldsson,
verkfræðingur, er staddur hér í
bænum um þessar mundir. Er hann
ráðunautur hafnarnefndarinnar um
öll hin miklu hafnarmannvirki sem
hafnarnefndin hefir með höndum
og leiðbeinandi bæjarstjórnar um
ýmsar verklegar framkvæmdir í
bænum.
Oddviti bæjarstjórnar
vinnur nú af miklu kappi að
undirbúningi fjárhagsáætlunar fyrir
næsta ár og munu fjárhagsnefndar-
fundir hefjast bráðlega til þess að
ræða og semja fjárhagsáætlunina.
Veltur mikið á um afkomu bæjar-
ins í framtíðinni, að yfirstandandi
alþingi samþykki lög um verulega
tekjustofna til bæjar- og sveitar-
félaga og munu allir bæir óska
þess og treysta því að gifta fylgi
störfum Alþingis í því efni, enda
virðast allir aðal þingflokkarnir
skilja nú orðið þörfina á því að
veita bæjunum og sveitunum aukna
tekjustofna. Meira að segja eru
jafnaðarmenn á þingi farnirað við-,
urkenna nauðsyn á þessu.
fást í
ðCjöfbúð Slglufjarðar.
Efri deild
Alþingis
er þannig mönnum skipuð:
Framsóknarfl.:
Bernharð Stefánsson
Einar Árnason,
Hermann Jónasson,
Ingvar Pálmason,
Jónas Jónsson,
Páll Hermannsson
Páll Zophoníasson.
Sjálfstœðisfl.:
Bjarni Snæbjörnsson,
Guðrún Lárusdóttir,
Jóhann Jósefsson,
Magnús Guðmundsson,
Magnús Jónsson,
Þorsteinn Þorsteinsson.
Alþýðufl.:
Jón Baldvinsson
Sigurjón Ólafsson.
Kommúnistafl.:
Brynjólfur Bjarnason.
í neðri deild ern 12 Framsókn-
armenn, 11 Sjálfstæðismenn, 6 Al-
þýðuflokksmenn, 2 Bændaflokks-
menn og 2 kommúnistar.
Kaupið, lesið og
útbreiðið
Nýja Dagblaðið