Einherji - 03.11.1937, Blaðsíða 4
6. ARGANGUR —41. BLAÐ
E I N H E R J I
SiGLUFIRÐI, 3. NOV. 1937.
Það er beif að kaupa
Smjörlíkisgerð KEA.
Braga-
kaffi
með
Freyju-kaffibætir
er
drykkur
sem
allir
þurfa
að
smakka.
NÝJA-BÍÓ
sýnir fimmtud. 4. nóv. kl. 8.40:
Dýratmninga-
maðurinn.
Afar spennandi mynd með
hina heimsfrægu leikara
Wallace Beery og Jackie Cooper
í aðalhlutverkunum.
Líftryggingardeild.
Pað er aðeins eitt
íslenzkt
líftryggingarfélag,
og það býður betri kjör en nokkurt
annað líftryggingarfélag starfandi hér
á landi.
Líftryggingardeild
Sjóvátryggingarfél. Islands h.f.
Urrlboð á Siglufirði hefir
f’orrr.óður Eyólfsson, konsúll.
Bezta
Munntóbakið
er frá
Brödrene Braun
KAUPMANNAHOFN
Biðjið kaupmann yðar um
, munntóbakið
Fæst allsstaðar.
KAUPFÉLAGIÐ.
Bókarfregn
Guðm. Finnbogason:
MANNFAGNAÐUR.
ísafoldarprentsm. h.f. ’37
Höfundúr bókar þessarar, dr.
Guðmundur Finnbogason, er löngu
kunnur alþjóð sem einn hinn snjall-
asti ræðumaður núlifandi. Mér
verða t. d. með öllu ógleymanlegir
fyrirlestrar hans, er hann flutti í
Rvík veturinn 1909—1910 nýkom-
inn heim að loknu námi. — Það
var eins og þytur færi um allan
bæinn, og menn hlökkuðu til
næsta fyrirlestrar og biðu hans
með óþreyju. Svo var um okkur
Kennaraskólanemendur og flesta
aðra, enda sýndi aðsóknin, að hér
var um að ræða eftirsótta hluti.
En dr. Guðm. Fínnbogason hefir
ekki eingöngu flutt fyrirlestra,
heldur og tækifærisræður um ýmis
efni á mannfundum og i sam-
kvæmum, bæði hérlendis og er-
lendis. Hefir sennilega ekki verið
leitað oftar til nokkurs manns, i
þessum efnum, en einmitt til hans.
Er slíkt að vonum, því að ræður
hans eru að jafnaði frábærar, bæði
um efni, málfar og flutning.
Nú hefir dr. Guðmundúr safnað
saman nokkru úrvali tækifæris-
ræðna og birt í bók, er hann
nefnir: »Mannfagnað«, »af því«,
segir hann í formála, »að þær eru
fluttar í samkvæmum og á
skemmtifundum úti eða inni«.
Ræðurnar eru 52 alls, um hin
fjarskyldustu efni, og fluttar ýmist
úti í löndum, í glæstustu veizlu-
sölum stórborga, eða á íslenzkum
réttarvegg. — Og tímabilið, sem
þær ná yfir, er 35 ár.
Má þegar af þessu ráða, að hér
er um óvenjulega fjölbreytt efni
að ræða. Þar að auki er bókin
hin skemmtilegasta aflestrar og
málfar gott og fallegt.
ísafoldarprentsmiðja h. f. hefir
gefið bókina út og vandað mjög
til, svo að bókin er hin prýðileg-
asta um útlit og allan frágang. —
Hér er því bók, er taka ber tveim
höndum, og allir bókavinir munu
einróma fagna. Væri freistandi að
tilfæra eitthvað úr ræðunum, en
KAUPI
gömul sleðajárn
af sparksleðum (stærstu tegund).
Sigurjón Benedikísson,
járnsmiður.
rúmið leyfir það ekki. — En kaup-
ið bókina og lesið, það mun veita
ykkur hreina gleði og efla ást
ykkar á »mannviti, þekkingu og
drengskap-.
Hafi höfundur hugheilar þakkir
fyrir ræðurnar og ísafoldarprent-
smiðja fyrir útgáfuna.
Siglufirði, 24. okt. 1937.
F. Hjartar.
Soðin
s vid
á þriöjudögum og
fimmtudögum.
Kjötbúð Siglufjarðar.
Ábyi-gðarmaöur:
PÁLL S. DAIMAR.
Siglufj arðarprentsmiðj a.