Morgunblaðið - 03.12.2009, Page 5
Nú hefur verið tilkynnt að kröfuhafar Kaupþings hafi eignast 87% hlut
í Arion banka. 13% verða áfram í eigu ríkisins. Ákvörðun kröfuhafa sýnir að
þeir meta rekstur bankans traustan og hafa trú á framtíð hans og íslensks
efnahagslífs.
Samkomulag um eignarhald bankans felur í sér að kröfuhafar leggja fram
66 milljarða kr. eigið fé í stað ríkisins. Þetta skilar sér í minni lánsfjárþörf
íslenska ríkisins og þar með lægri álögum á landsmenn.
Í krafti tengsla við erlenda kröfuhafa getur Arion banki aukið tiltrú erlendra
aðila á íslenskan fjármálamarkað og verið í forystu við uppbyggingu efnahags-
lífsins.
Arion banki heyrir áfram að öllu leyti undir íslensk lög og íslenskar eftirlits-
stofnanir. Þetta felur í sér að innstæður í bankanum eru jafn tryggar og áður.
Arion banki stendur á traustum grunni, hefur á að skipa hæfu starfsfólki
með mikla þekkingu og er velgengni bankans samofin hagsmunum kröfuhafa.
Það er markmið okkar hjá Arion banka að byggja upp öflugan banka, vinna
með og fyrir fólkið í landinu. Með nýju eignarhaldi getum við beitt okkur
af fullum krafti að endurreisn og uppbyggingu íslensks efnahagslífs.
Með fagmennsku, framsækni, ábyrgð og umhyggju að leiðarljósi setjum
við viðskiptavini okkar í fyrsta sæti.
Nánari upplýsingar má finna á vef bankans: arionbanki.is
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
48
33
1
Nýtt upphaf
með breyttu
eignarhaldi
Í stuttu máli:
• Kröfuhafar eignast 87% í Arion banka
• Kröfuhafar leggja fram 66 milljarða króna
• Innstæður verða áfram tryggðar
• Breytt eignarhald styrkir bankann
• Hagsmunir bankans og kröfuhafa fara saman
• Bankinn stendur á traustum grunni
Nýtt eignarhald
13% Ríkissjóður87% Kröfuhafar