Morgunblaðið - 03.12.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
AF 58 apótekum sem eru í land-
inu eru 42 í eigu stóru lyfjaversl-
anakeðjanna tveggja, Lyfju og
Lyfja og heilsu. Verslanir þeirra
raðast afar misjafnlega í lands-
hluta og borgarhluta í Reykjavík.
Forsvarsmenn keðjanna segja
ástæðuna sögulega.
Sigurbjörn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Lyfju, bendir á að
áður hafi ríkið úthlutað leyfum til
apóteka á grundvelli þess hvort
markaðurinn bæri þau, þannig
hafi t.d. aðeins verið leyfi fyrir
einu apóteki á Ísafirði o.s.frv.
Þegar þessu var breytt árið 1996
og markaðurinn opnaður hafi
Lyfja keypt apótek af sjálfstæðum
apótekurum á þessum svæðum og
lyfjaútibú stundum fylgt með í
kaupunum. Með apótekinu á
Húsavík fylgdu t.d. útibú á Kópa-
skeri, Raufarhöfn og Þórshöfn.
Hið sama á við á Austurlandi og
Vestfjörðum. Varla sé grundvöllur
fyrir fleiri en eitt apótek á fá-
mennari stöðum úti á landsbyggð-
inni. „En á öllum stærri stöðum
þar sem markaður er til staðar,
þar er samkeppni.“
Guðni B. Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Lyfja og heilsu,
bendir á að keðjan hafi verið
mynduð af lyfsölum sem vildu
ekki selja Lyfju. „Þetta eru bara
gömlu apótekin sem voru til á
þessum stöðum. Það hefur ekki
orðið nein skipting og umræðan
um að lyfjakeðjurnar séu að
skipta svæðum á milli sín er fá-
ránleg.“ Þá liggi fyrir að í bæjum
sem eru fámennari en um 5.000
íbúar sé ekki grundvöllur fyrir tvö
apótek.
Apótekarinn á Akureyri
Lyfja rekur nokkur lágverðs-
apótek undir nafninu Apótekið.
Slíkt apótek er á Akureyri og þar
reka Lyf og heilsa einnig lág-
verðsapótek undir nafninu Apó-
tekarinn.
Lágverðsapótek er hvergi ann-
ars staðar að finna á landsbyggð-
inni en Lyf og heilsa stefna nú á
að opna Apótekarann á Akranesi,
en loka í staðinn apóteki undir
eigin nafni. Hvorki Lyfja né Lyf
og heilsa hafa í hyggju að opna
lágverðsapótek á Selfossi þótt í
nágrenni Selfoss búi töluvert fleiri
en í nærsveitum Akraness og um-
ferð ferðamanna um Selfoss sé
mun meiri.
Guðni B. Guðnason hjá Lyfjum
og heilsu sagði í samtali við Morg-
unblaðið á föstudag að ekki væru
skilyrði fyrir að opna lágverðsapó-
tekið Apótekarann á Selfossi, m.a.
vegna þess að Lyf og heilsa á Sel-
fossi væri hluti af verslunarkjarna
og ætlast væri til að afgreiðslutími
væri lengri en raunin er í Apótek-
aranum. Hann bendir á að mikið
sé selt af dýrum snyrtivörum í
Lyfjum og heilsu en þær eru ekki
á boðstólum í Apótekaranum. Í
sjálfu sér stæði samt ekkert í vegi
fyrir því að opna Apótekarann á
Selfossi. „Hinn möguleikinn er að
hafa lengri afgreiðslutíma og selja
þessar dýrari [snyrti-]vörur,“ seg-
ir hann.
Spurður um ástæður þess að
Apótekarinn verður opnaður á
Akranesi en ekki á Selfossi, segir
hann að staðan hafi einfaldlega
verið sú að markaðshlutdeild
Lyfja og heilsu á Akranesi hafi
verið komið niður í 30%. Þar geti
hins vegar ekki verið tvö apótek
nema hvort um sig hafi um 50%
markaðshlutdeild. „Við vorum
komnir niður í 30% og apótekið
var að deyja. Þannig að við gátum
annað hvort lokað eða gert eina
tilraun til viðbótar og náð henni
upp í 50%. Sú staða er ekki uppi á
Selfossi. Svæðið þar er miklu
stærra og ber miklu meira en tvö
apótek.“ Hugsanlega væru þó for-
sendur til þess að opna líka Apó-
tekarann. „En þetta er alltaf
spurning um framboð og eft-
irspurn. Ef eftirspurnin er ekki
meiri fyrir okkar apótek á Akra-
nesi er ekki annað fyrir okkur að
gera en að hætta.“
Lyfja skoðaði Vesturbæinn
Eins og fyrr sagði er Lyfja að-
eins með eitt apótek í vesturhluta
Reykjavíkur. Sigurbjörn Gunn-
arsson segir að skýringin sé að
hluta til söguleg. Lyfja hafi keypt
Laugavegsapótek og reki það nú
undir eigin nafni en hafi ekki opn-
að nýtt apótek í þessum borg-
arhluta. Lyfja hafi á hinn bóginn
skoðað Vesturbæinn. „Við vorum
að skoða hann mjög alvarlega áð-
ur en hrunið varð. Þá reyndar
opnaði Apótek Vesturlands nýtt
apótek þar, Reykjavíkur apótek,
og það hafði sín áhrif,“ segir hann.
Skipting landsins sögð
eiga sögulegar ástæður
Lyfjaverslanir og lyfjaútibú
Landsbyggðin Höfuðborgarsvæðið
Vík
Kirkjubæjarklaustur
Höfn
Stöðvarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Vopnafjörður
Þórshöfn
Borgarfjörður
Egilsstaðir SeyðisfjörðurNeskaupst.
EskifjörðurReyðarfjörður
Kópasker
Húsavík
Siglufjörður
Ólafsfj.
Dalvík
AkureyriSauðár-
krókur
Skagaströnd
BlönduósHólmavík
Bolungavík
Ísafjörður
Þingeyri
Patreksfjörður
Hvammstangi
Búðardalur
Borgarnes
Akranes
Ólafsfjörður
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Reykjanesbær
Grindavík
Þorláks-
höfn
Vestmannaeyjar
Hvera-
gerði Laugarás
Selfoss
Hella
Hvolsvöllur
Aðrar lyfjaverslanir
Raufarhöfn
Lyf og heilsa opna lágverðsapótek á Akranesi en ekki á Selfossi sem þó er vænlegri verslunarstaður
Í HNOTSKURN
» Lyfja rekur verslanirundir merkjum Lyfju,
Apóteksins, Heilsuhússins
og Lyfjalausna. VÍS á 40%
í Lyfju, Kaupfélag Suð-
urnesja á 40% og VBS
Fjárfestingabanki á 20%.
» Lyf og heilsa rekaverslanir undir nafni
Lyfja og heilsu, Apótek-
arans og Skipholtsapó-
teks. Lyf og heilsa er í
eigu Karls og Steingríms
Wernerssona en þeir
keyptu félagið út úr Mile-
stone.
Í Reykjavík vestan Kringlumýrar-
brautar búa 40.000 manns. Þar
rekur Lyfja eitt apótek en Lyf og
heilsa reka á hinn bóginn fimm
apótek á þessu svæði. Skýringin
er sögð söguleg.
Hinn 15. september 2007 birti Ólaf-
ur Adolfsson sem rekur Apótek
Vesturlands auglýsingar undir yf-
irskriftinni: „Ert þú að niðurgreiða
lyf fyrir Skagamenn?“ Þar kom
fram að verð hjá Lyfjum og heilsu
og Apóteki Akraness væri nánast
alltaf hið sama, en hjá Lyfjum og
heilsu í Vesturbæ væri verðið mun
hærra eða allt frá 22% til 77%.
Sama dag gerði Samkeppniseft-
irlitið húsleit hjá Lyfjum og heilsu.
Ólafi Adolfssyni finnst rannsókn
Samkeppniseftirlitsins hafa tekið
alltof langan tíma. „Í því er ákveð-
inn sigur fyrir Lyf og heilsu, vegna
þess að menn hugsa sig nú tvisvar
um áður en þeir leggja út í sam-
keppni við lyfjarisana ef þeir þurfa
að þreyja þorrann í upp undir þrjú
ár áður en niðurstaða fæst í mál-
inu.“
Finnst rannsókn á samkeppni ganga hægt
RÓSA Dögg
Flosadóttir, sett-
ur forstjóri Út-
lendingastofn-
unar, segir að
tónlistarmann-
inum Ben Frost
hafi ekki verið
synjað um fram-
lengingu á tíma-
bundnu dvalarleyfi, sem dvöl hans
hér hafi byggst á, heldur hafi honum
verið synjað um búsetuleyfi sem sé
ótímabundið. „Það er rétt að taka
skýrt fram að það er ekki verið að
meina honum frekari dvöl hér á
landi,“ segir hún.
Sá sem fær búsetuleyfi þarf að
hafa búið hér í a.m.k. fjögur ár, á
grundvelli tímabundins dvalarleyfis.
Meðal skilyrða fyrir veitingu slíks
leyfis er svokölluð trygg framfærsla.
Útlendingastofnunin hafi ekki talið
þessum skilyrðum uppfyllt og var
umsókninni synjað. Sú ákvörðun var
kærð til dómsmálaráðuneytis. Í við-
tali við Ben Frost í Morgunblaðinu í
gær undraðist að hann fengi aðra
meðferð, en Bobby Fischer sem fékk
ríkisborgararétt sem Alþingi veitti
honum með sérstakri ákvörðun.
Frost getur
dvalið hér
áfram
Ben Frost