Morgunblaðið - 03.12.2009, Síða 10
Jólateiti Varðar
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
ávarpar samkomuna, sr.Hjálmar Jónsson dómkirkju-
prestur les úr nýrri bók sinni
og Tríó Eddu Borg leikur
létta jólatónlist.
– Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík verður haldið föstudaginn
4. desember frá kl. 17 til 19 í Valhöll
Bjarni Benediktsson Hjálmar Jónsson
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Forsetinn fór í útvarpsviðtal til að tjásig ekki um viðbrögð við áskor-
unum vegna Icesave. En forsetinn er
búinn að tjá sig. Yfirlýsingin sem hann
gaf við undirritun núverandi laga er
mjög afdráttarlaus. Ef forsetinn vill
vera sjálfum sér samkvæmur getur
enginn vafi leikið á viðbrögðum hans
við nýju ríkisábyrgðarfrumvarpi. En
hitt er ekki útilokað að forsetinn hafi
svo sem ekki áhuga á að vera sjálfum
sér samkvæmur að þessu sinni
Nú segist forsetinn ekki mega tjá sigá meðan þetta mál sé til með-
ferðar á þingi. Mikið rétt. Hann hafi
einmitt gætt þessa er fjölmiðla-
frumvarp var til meðferðar. Það er nú
svo.
Þá breytti forsetinn ferðaplönum oglagði nótt við dag til að komast
heim. Hann lenti í eltingarleik við
blaðamenn. Hann sendi Dorrit eina í
konunglegt brúðkaup í Danmörku og
sat eftir á Bessastöðum, ef ske kynni
að Alþingi lyki umræðunni. Málið var
enn til umræðu þegar Dorrit kom
heim. Það vissu því allir sjáandi menn
með góðum fyrirvara hvað stóð til.
Kosningastjórinn Sigurður G. og
skjólstæðingurinn Jón Ásgeir gátu
andað rólega.
Látbragðsleikarar hafa margsannaðað það má segja langa sögu sem
ekki verður misskilin án þess að mæla
orð frá vörum.
Allir vita líka að fjölmiðlalögummátti breyta aftur hvenær sem
þingið kaus og allt var komið í samt
lag. Icesave-lögin munu hins vegar
bíta íslenskan almenning í áratugi og
enginn fær því breytt. Ólánið felst í
því að nú er það fólkið sem á mikilla
hagsmuna að gæta en í fyrra dæminu
var það fjölmiðlakóngurinn og frænd-
inn. Þetta er ekki miklu flóknara en
það.
Forsetinn og fjölmiðlakóngurinn.
Tjóar ekki um að tala
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
EKKI hefur tekist að færa sönnur á að fimm
menn, sem grunaðir eru um að hafa ætlað að gera
19 ára stúlku frá Litháen út í vændi hér á landi,
hafi verið með fleiri stúlkur á sínum snærum.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokið rannsókn
á málinu. Lögreglan hefur ekki viljað útiloka að
fleiri stúlkur tengist málinu. Umfangsmikil rann-
sókn málsins hefur hins vegar ekki staðfest þenn-
an grun.
Gæsluvarðhald yfir fimm mönnum frá Litháen
sem grunaðir eru um að hafa ætlað að selja stúlk-
una mansali hér á landi hefur verið framlengt til
30. desember. Mennirnir hafa verið í varðhaldi frá
13. og 18. október.
Málið hófst þegar 19 ára stúlka frá Litháen kom
til landsins í október. Ýmislegt þótti benda til þess
að landar hennar hér á landi ætluðu sér að fá hana
til að stunda vændi. Grunur beindist líka að því að
Íslendingar tengdust málinu og sat einn maður
alllengi í varðhaldi sem grunaður var um aðild að
málinu. Málið er núna hjá ríkissaksóknara sem
tekur ákvörðun um ákærur. Mennirnir fimm eru
einnig grunaðir um innbrot, ofbeldisbrot og að
hafa innheimt verndargjald af löndum sínum frá
Litháen sem búa hér á landi. Þeir hafa flestir áður
gerst brotlegir við lög.
Grunur lék einnig á að mennirnir tengdust
bruna í fiskverkunarhúsi í Grundarfirði, en ekki
er talið að hann eigi við rök að styðjast. Eigandi
húsnæðisins hefur einnig verið grunaður um að
hafa valdið brunanum. Ekki hefur hins vegar tek-
ist að sýna fram á að rekja megi brunann til
íkveikju.
Rannsókn á mansalsmálinu lokið
Ekki hefur tekist að sanna að fleiri stúlkur tengist mansalsmálinu á Suðurnesjum
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 1 snjókoma Lúxemborg 4 skýjað Algarve 19 léttskýjað
Bolungarvík -1 snjókoma Brussel 6 skýjað Madríd 11 skýjað
Akureyri 2 rigning Dublin 8 skýjað Barcelona 14 léttskýjað
Egilsstaðir 2 skýjað Glasgow 7 skýjað Mallorca 15 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 3 rigning London 10 léttskýjað Róm 13 heiðskírt
Nuuk -6 léttskýjað París 9 skúrir Aþena 13 skúrir
Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 5 súld Winnipeg -6 snjóél
Ósló -6 snjóél Hamborg 2 skýjað Montreal 3 alskýjað
Kaupmannahöfn 3 skýjað Berlín 1 léttskýjað New York 9 heiðskírt
Stokkhólmur -5 heiðskírt Vín 6 léttskýjað Chicago 6 skýjað
Helsinki -4 heiðskírt Moskva 9 þoka Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
3. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.28 0,4 6.40 4,3 13.01 0,4 19.03 3,9 10:52 15:44
ÍSAFJÖRÐUR 2.36 0,2 8.39 2,3 15.13 0,2 21.05 2,0 11:29 15:17
SIGLUFJÖRÐUR 4.37 0,2 10.53 1,3 17.18 0,0 23.44 1,2 11:13 14:59
DJÚPIVOGUR 3.55 2,2 10.14 0,3 16.09 1,9 22.16 0,2 10:29 15:06
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Austan og norðaustan 8-13
m/s, en hægari breytileg átt
norðaustanlands. Víða él eða
slydduél, einkum við ströndina,
en lengst af þurrt suðvest-
anlands. Hiti 1 til 6 stig, en
vægt frost inn til landsins.
Á laugardag
Austan og suðaustan 5-10 m/s,
en 10-15 vestan til á landinu
fram eftir degi. Víða slydda eða
rigning, en úrkomuminna seinni
partinn. Hlýnandi veður.
Á sunnudag
Stíf austlæg átt, rigning og hiti
2 til 8 stig, en slydda með köfl-
um norðanlands og hiti rétt yfir
frostmarki.
Á mánudag og þriðjudag
Útlit fyrir austlæga átt með
skúrum eða éljum, en úrkomu-
lítið norðan og vestan til. Hiti
breytist lítið.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðlæg átt, 5-13 m/s og dálítil
slydda eða rigning, en létt-
skýjað að mestu SV- og S-
lands. Hiti 1 til 6 stig að deg-
inum, en annars um eða rétt yf-
ir frostmarki.
957 karlar og 772 konur voru án at-
vinnu á Suðurnesjum í gær, eða
samtals 1.729 manns. Að sögn Ket-
ils Jósefssonar, forstöðumanns
Vinnumálastofnunar á Suður-
nesjum, er atvinnuástandið veru-
lega bágborið en reynt er að útvega
atvinnuleitendum úrræði til gagns
á meðan beðið er betri tíðar.
„Nóvember, desember og janúar
eru myrkir, langir og kaldir. Það
virðist hafa áhrif hvort sem árferði
er gott eða slæmt. Við erum samt
bjartsýn og horfum fram á betri
tíma með hækkandi sól,“ segir Ket-
ill.
Í millitíðinni nýtir Vinnumála-
stofnun á Suðurnesjum tímann til
að útvega þau úrræði sem hægt er.
M.a. með samstarfi við atvinnulífið
sem boðið hefur upp á starfsþjálf-
unarsamninga í 3-6 mánuði.
1.729 atvinnulausir á Suðurnesjum