Morgunblaðið - 03.12.2009, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÍSLENDINGAR borga 110-115
milljónir króna á dag í vexti af Ice-
save, sagði Þór Saari, þingmaður
Hreyfingarinnar, við aðra umræðu
um Icesave-málið í gær. Það gerir
ríflega 40 milljarða króna á ári.
Bar hann þetta saman við heildar-
tekjur ríkisins af tekjuskatti ein-
staklinga og fékk út að allur tekju-
skattur 79.041 íslensks skatt-
greiðanda á árinu 2009, færi í eins
árs vaxtakostnað af Icesave-
skuldinni. „Þetta er hrikaleg staða.
Þetta eru þær tölur sem menn neita
að horfast í augu við,“ sagði Þór og
bætti því við að 104 milljarðar
króna, fjórðungur allra tekna rík-
issjóðs, ættu að fara í afborganir
skulda á ári hverju.
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
maður Framsóknarflokks, spurði
Þór þá hvort ekki væri verið að tví-
telja þær krónur sem ríkið hefði til
ráðstöfunar, þar sem þessir tæplega
áttatíu þúsund skattgreiðendur
ættu að borga Icesave-vextina, en
síðan væri gert ráð fyrir sömu
sköttum í fjárlagafrumvarpinu, sem
hluta af aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar til að loka fjárlagagatinu.
Fyrr um morguninn hafði Pétur H.
Blöndal, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, gagnrýnt harðlega að það
vantaði inn í bæði fjárlagafrumvarp
og fjáraukalög, að gert væri ráð fyr-
ir 16 milljarða kostnaði við tónlistar-
húsið og 700 milljarða kostnaði
vegna Icesave.
Sagðist Þór vita af hverju ekki
væri búið að setja Icesave-tölurnar
inn í fjárlagafrumvarpið, en það
væri vegna þess að deilur stæðu um
það hvernig, nákvæmlega, ætti að
færa þær í ríkisreikninginn.
Þór sagði niðurstöðu fram-
kvæmdavaldsins í málinu ekki rök-
studda. „Það má kannski kalla það
því nafni að styðjast við tölur frá
Seðlabankanum, en þær tölur eru að
hluta til skáldskapur, ég vil fá betri
rökstuðning.“ Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn hefði bent á að skuldir
þjóðarbúsins væru ósjálfbærar
næstu fimm árin en eftir það gætu
Íslendingar mögulega einhvern tím-
ann borgað þær.
„Ég var á fundi OECD í París um
skuldastöðu ríkissjóða Afríkuríkja
og OECD-ríkja þar sem Afríkuríkin
buðu Ísland velkomið í hópinn.“
Sagðist hann hafa fengið aðvaranir
frá Afríkumönnum um að leiðin sem
Ísland væri á væri slæm. Sum ríki
hefðu orðið þróunarríki þegar þau
reyndu að standa við óviðráðanlegar
skuldir en festust í skuldafeni.
„Það var áhugavert að heyra mál
fulltrúa Alþjóðabankans og OECD
vera nánast samhljóða í þá veru að
við séum komin með ósjálfbæra
skuldastöðu og það þurfi að leita
annarra leiða, en að skattleggja al-
menning inn að beini,“ sagði Þór.
Morgunblaðið/Golli
Skáldskapur Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, tjáði sig um Icesave. Sagði hann rökstuðning ríkisstjórnar-
innar í málinu að hluta til reistan á skáldskap frá Seðlabanka Íslands, um viðskiptajöfnuð og hagvöxt á næstu árum.
Tölurnar sem þingmenn
neita að horfast í augu við
Tekjuskattur 80.000 skattgreiðenda tvítalinn en nýtist bara í eitt: Icesave-vexti
„ÞETTA er alveg
yndislega, ótrú-
lega ómerkilegt,“
sagði fjármála-
ráðherra Stein-
grímur J. Sigfús-
son á Alþingi í
gær um meintar
leynilegar ástæð-
ur sem þrýsti á
um lok Icesave-
málsins.
„Ég er einfaldlega að tala um hinn
augljósa veruleika, að ýmislegt
tengt okkar stöðu nú er viðkvæmt.
Er það eitthvað skrýtið?“ spurði
Steingrímur. Hann sagði erfið
vandamál tengjast hagsmunum Ís-
lendinga hjá meðal annars stórum
norrænum og evrópskum bönkum
og sjóðum.
„Og auðvitað tölum við varlega
um það héðan úr ræðustóli á Al-
þingi,“ sagði Steingrímur.
Yndislega, ótrúlega
ómerkileg upphlaup
Steingrímur J.
Sigfússon
ÓSÆTTI er milli þingflokka um
hvernig farið skuli með skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis, sem
væntanleg er í febrúar. Þingflokkur
Hreyfingarinnar er ekki aðili að
breytingum á lögum um nefndina og
vill að í þingnefnd sem mun fjalla um
skýrsluna verði tryggt að enginn
þingmaður eigi sæti, sem var á Al-
þingi í október 2008. Útiloka verði
að Alþingi sópi skýrslunni undir
teppið. Ekki fæst séð að framlagt
frumvarp uppfylli þau skilyrði.
Þessari breytingartillögu Hreyf-
ingarinnar, sem og öðrum tillögum
hennar, var hins vegar hafnað, segir
í bréfi til forseta Alþingis frá þing-
mönnum Hreyfingarinnar.
Deila um meðferð
rannsóknarskýrslu
Bestu vinir þínir eru bestu vinir þínir og Síminn elskar alla jafnt.
Í Sex vinir óháð kerfi hjá Símanum velurðu þér sex vini hjá
hvaða farsímafyrirtæki sem er og sendir þeim SMS eða
hringir í þá fyrir núll krónur.*
Skráðu þína sex vini á siminn.is, í næstu verslun Símans
eða í síma 800 7000.
Sex vinir alveg óháð kerfi
Sími
Netið
SjónvarpÞað er800 7000 • siminn.is
Hengjum
okkur ekki í
smáatriði!
Vinátta – alveg
óháð kerfi.