Morgunblaðið - 03.12.2009, Qupperneq 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Kæra Hulda, ég mun halda áfram
að leita til þín með huga og hjarta.
María Birna.
Um undra-geim, í himinveldi háu,
nú hverfur sól og kveður
jarðarglaum;
á fegra landi gróa blómin bláu
í bjartri dögg við lífsins helga
straum.
Þar dvelur mey hjá dimmu fossa tali,
og drauma vekur purpurans í blæ,
og norðurljósið hylur helga sali,
þar hnígur máninn aldrei nið’r í sæ.
(Benedikt Gröndal.)
Elsku ljúfan, ekki óraði okkur
fyrir því að þessu mundi ljúka svona
fljótt. Við sem áttum eftir að gera
svo margt saman, fara saman norð-
ur á Akureyri, í útilegur í gömlu
tjaldvögnunum okkar, sitja saman
og spjalla um lífið og tilveruna, því
þegar þau mál bar á góma var ekki
komið að tómum kofunum hjá ykkur
Gunna. Yndislegar stundir og oft
var fallegt glas í hendi hjá okkur
konunum.
Mikið erum við þakklát fyrir að
hafa kynnst ykkur hjónum þegar
börnin okkar fóru að draga sig sam-
an og úr varð yndisleg vinátta. Mik-
ið á Fönn eftir að sakna ömmu
Huldu – þessi mikla vinátta og kær-
leikur ykkar á milli. Við munum
gera okkar besta til að halda vel ut-
an um Gunna og litlu fjölskylduna á
Akureyri, þeim og fjölskyldum
hinna bræðranna er missirinn mik-
ill.
Elsku ljúfan, það var yndislegt að
fá að kveðja þig og eiga með þér
stund áður en þú kvaddir lífið.
Elsku Hulda, takk fyrir vinátt-
una.
Margrét og Hjálmur Geir.
Það er með sorg í hjarta sem ég
kveð kæran vinnufélaga og vinkonu.
Ég kynntist Huldu fyrir 10 árum
þegar hún kom til starfa á Grens-
ásdeild Landspítala. Með okkur
myndaðist traust samband og góð
vinátta. Í Huldu átti ég trúnaðarvin
sem ég gat deilt með gleði og
áhyggjum í starfi og leik.
Hulda sem var menntaður
sjúkraliði ákvað um fertugt að
skella sér í háskólanám og lauk hún
prófi í hjúkrunarfræði frá Háskól-
anum á Akureyri 1998. Hulda var
því ungur hjúkrunarfræðingur þeg-
ar hún kom til starfa á Grensás-
deildinni þó svo að hún hefði langa
reynslu af umönnun sjúklinga og
störfum á sjúkrahúsi. Hulda var
mjög metnaðarfull og dugleg og var
fljótt valin til stjórnunarstarfa eftir
að hún hóf störf á Grensási, fyrst
sem aðstoðardeildarstjóri og síðar
sem deildarstjóri haustið 2000.
Hulda var farsæll deildarstjóri sem
leitaðist ætíð við að gera veg deildar
sinnar sem mestan og var ötul og
óþreytandi við að leita leiða til að
bæta aðbúnað og fagmennsku á
deildinni með hagsmuni sjúklinga,
aðstandenda og starfsfólks að leið-
arljósi.
Í starfi sínu sem stjórnandi þurfti
Hulda að leiða starfsfólk sitt í gegn-
um ýmsar breytingar og hvetja það
til að takast á við ný og ögrandi
verkefni. Þessi verkefni voru Huldu
misauðveld en hún tókst á við þau
með samstarfsfólki sínu af festu og
einurð. Síðasta verkefni hennar í
vor sem deildarstjóri var að taka
þátt í að sameina legudeildirnar
tvær á Grensási. Hún tókst á við það
verkefni af heilum hug þó það væri
henni erfitt, henni var efst í huga að
gera sjúklingum og starfsfólki
deildarinnar sameininguna sem
auðveldasta.
Hulda var ekki einungis góður
samstarfsmaður heldur var hún
einnig skemmtilegur félagi og
hvatamaður að ýmsum skemmtileg-
um ferðum og uppákomum meðal
samstarfsfólks á Grensásdeild.
Hulda lét af starfi deildarstjóra
síðastliðið vor og hóf störf á blóð-
meinafræðideild spítalans í ágúst.
Hulda var spennt að takast á við ný
verkefni en hún hafði ekki verið
nema stuttan tíma á nýjum stað
þegar hún veiktist.
Með Huldu er gengin öðling-
skona. Hlýja, glaðlyndi og ljúf-
mennska einkenndu fas hennar sem
samstarfsfólk hennar mun minnast
um ókomna tíð.
Ég votta Gunnari og öðrum að-
standendum mína innilegustu sam-
úð.
Þórdís Ingólfsdóttir.
Í dag er Hulda Bergvinsdóttir
kvödd hinstu kveðju. Við samstarfs-
fólk hennar á Grensásdeild erum
harmi slegin vegna skyndilegra
veikinda hennar og fráfalls. Eftir
situr minningin um góðan starfs-
félaga sem við nutum samvista við í
áratug. Að loknu hjúkrunarfræði-
námi kom Hulda til starfa á end-
urhæfingardeildina á Grensási árið
1999. Henni var fljótlega falin aukin
ábyrgð og gegndi hún starfi deild-
arstjóra mestan hluta starfstíma
síns. Hulda var farsæl í starfi og bar
hag sjúklinga og starfsfólks ætíð
fyrir brjósti. Ábyrgð og trúmennska
einkenndu störf hennar sem stjórn-
anda ásamt glaðværð og hlýju gagn-
vart öllu samferðafólki sínu. Við
ótímabært fráfall Huldu fyllist hug-
ur okkar sorg og söknuði en jafn-
framt þakklæti fyrir að hafa átt
samleið með henni og notið alls þess
góða sem hún hafði fram að færa.
Starfsfólk Grensásdeildar færir
Gunnari, eiginmanni hennar, og
fjölskyldu samúðarkveðjur sínar og
hluttekningu.
Stefán Yngvason yfirlæknir.
Við starfsfélagarnir á Grensási
minnumst Huldu, kærs vinnufélaga
og deildarstjóra okkar til margra
ára. Við sjáum hana fyrir okkur
mæta fyrsta í vinnuna á morgnana,
fríska eftir göngutúrinn að heiman
og tilbúna að takast á við verkefni
dagsins með okkur. Hún var mjög
skipulögð og bar hag deildar sinnar
og starfsfólks fyrir brjósti. Hún
treysti starfsfólki sínu, var ábyrgð-
arfull, jákvæð, hvetjandi og for-
dómalaus gagnvart trú og lífsskoð-
unum annarra. Haft hefur verið á
orði hve vel hún tók á móti erlend-
um starfsmönnum og var annt um
velferð þeirra. Hulda var falleg
kona með heillandi framkomu,
skaprík og mikil tilfinningavera.
Hún kunni virkilega að gleðjast með
glöðum. Heimili hennar stóð okkur
ætíð opið og áttum við margar góðar
stundir með henni og „Gunna mín-
um“.
Við minnumst einnig margra
skemmtilegra ferða bæði innan-
lands og utan, þar sem Hulda var
mikil stemningskona og hafði
sterka nærveru. Við minnumst
þess, þegar Grensásdeildin tók við
nýjum og krefjandi verkefnum
haustið 2006, hve Hulda skipulagði
þau vel og studdi starfsfólkið til að
framkvæma flókin verkefni. Grens-
ásdeildin var Huldu hugfólgin og
var hún með fyrstu mönnum að skrá
sig í Hollvinasamtök Grensásdeild-
ar. Það var öllum þungbært þegar
Hulda greindist með alvarlegan
sjúkdóm fyrir þremur mánuðum.
Hún fékk allt of skamman tíma með
sínum nánustu sem voru henni svo
kærir.
Huldu er sárt saknað en minning
góðs starfsfélaga lifir.
Um leið og við þökkum Huldu
samfylgdina sendum við Gunnari og
öðrum ástvinum hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Fyrir hönd hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða á Grensásdeild,
Halldóra Kristjánsdóttir. ✝
Hjartkær systir mín,
GUÐBJÖRG AUÐUNSDÓTTIR
frá Minni-Völlum,
lést á dvalarheimilinu Lundi þriðjudaginn
1. desember.
Jarðsungið verður frá Skarðskirkju þriðjudaginn
8. desember kl. 13.00.
Ásgeir Auðunsson.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir, barnabarn og
frændi,
HLYNUR ÞÓR SIGURÐSSON,
Grófarseli 18,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju föstudaginn
4. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
Hlyns Þórs Sigurðssonar, kt. 411209-0160, banki 115-05-60550.
Sigurður B. Arnþórsson, Aðalheiður Diego Hjálmarsdóttir,
Arnþór Sigurðsson, Elísabet Lúðvíksdóttir,
Kristján Þór Sigurðsson,
Arnþór Sigurðsson, Arndís Árnadóttir,
Hjálmar Diego Arnórsson, Anna Kristjánsdóttir
og frændsystkini.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
KATRÍN KÁRADÓTTIR
ljósmyndari,
Boðahlein 5,
Garðabæ,
lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn
1. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Eiríkur Svavar Eiríksson,
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, Dirk Lubker,
Steinunn Eiríksdóttir, Þorsteinn Lárusson,
Þóra Eiríksdóttir, Ómar Guðjónsson
og barnabörn.
✝
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar,
WALTER HELGI JÓNSSON
húsgagnabólstrari,
lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn
1. desember.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð
Hjartaverndar.
Aðstandendur vilja koma fram sérstöku þakklæti til starfsfólks deildar
B-7, Landspítalanum Fossvogi.
Jón Þorvaldur Waltersson, Jolanta Tomaslewska,
Hrönn Waltersdóttir, Kristján H. Lárusson,
Ólöf Birna Waltersdóttir, Kristján Einarsson,
Auðun Helgi Waltersson, Gerda Christine Waltersson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð,
hlýju og vináttu við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, afa, sonar, bróður, mágs
og tengdasonar,
JÓHANNS MÁS JÓHANNSSONAR,
Heiðardal 1,
Vogum.
Við viljum þakka öllu starfsfólki D-deildar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir frábæra
umönnun og kærleik í okkar garð. Ennfremur viljum við þakka lækninum
hans, Friðbirni Sigurðssyni, Hrönn Finnsdóttur hjúkrunarfræðingi og
öllum öðrum á deild 11-B sem hlúðu að honum á Landspítalanum fyrir
frábæra umönnun og hlýhug.
Við þökkum Ísfelli fyrir frábæran stuðning.
Ragnhildur B. Svavarsdóttir,
Íris Ósk Jóhannsdóttir, Kristján Guðbrandsson,
Helga Dögg Jóhannsdóttir,
Aron Freyr Kristjánsson,
María Jóhannesdóttir, Jóhann Th. Þórðarson,
Jóhanna Valdís Jóhannsdóttir, Ingi Karl Ingibergsson,
Hermann Freyr Jóhannsson, Bryndís María Björnsdóttir,
Anna Bergmann Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Waage.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN BECK ELBERGSSON,
Hrannarstíg 18,
Grundarfirði,
lést sunnudaginn 29. nóvember.
Útför fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn
5. desember kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónína Guðrún Kristjánsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JENNÝ GUÐLAUGSDÓTTIR,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
föstudaginn 27. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. desember kl. 15.00.
Björn Jónsson, Erna Nielsen,
Kristín Jónsdóttir,
Guðlaugur Jónsson, Sigríður Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÓLI JÓSEFSSON,
Kleppsvegi 16,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti fimmtudaginn
26. nóvember.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn
8. desember kl. 13.00.
Sigurveig Jakobsdóttir,
Bjarni Ólason, Sif Ólafsdóttir,
Rósa Björg Óladóttir, Bergsveinn Marelsson,
Halldór Ólason, Elín Þóra Böðvarsdóttir
og barnabörn.