Morgunblaðið - 03.12.2009, Page 32
32 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
9 7
2 1 5
8 6
6 8
1 8 9 3 7 2
9 2
5 3 6 1
2
1 5 9
7 3 8 4
5 8 6 7
4
7 4
3 8 6 1
9 3 1
5 9
9 7
3 6
1 3
2
3 8
9 8 6
6 5 1 4
7 3 8 2
7 5 4
1 7 6 9
4 1
8 2 4 7 9 6 5 1 3
6 1 3 8 5 2 4 9 7
9 5 7 3 4 1 2 6 8
4 3 2 6 1 8 9 7 5
1 9 6 5 3 7 8 4 2
7 8 5 9 2 4 6 3 1
5 6 1 4 8 3 7 2 9
3 7 9 2 6 5 1 8 4
2 4 8 1 7 9 3 5 6
1 4 3 7 2 9 5 8 6
6 7 8 1 4 5 9 3 2
2 9 5 6 8 3 7 1 4
7 3 2 9 5 4 1 6 8
4 8 1 3 6 7 2 9 5
9 5 6 2 1 8 4 7 3
3 2 7 4 9 6 8 5 1
8 6 4 5 7 1 3 2 9
5 1 9 8 3 2 6 4 7
9 3 2 7 4 1 6 8 5
4 8 6 9 3 5 7 1 2
5 1 7 2 6 8 9 3 4
1 6 5 3 9 4 8 2 7
8 7 3 5 1 2 4 9 6
2 4 9 6 8 7 1 5 3
6 9 8 4 2 3 5 7 1
7 2 4 1 5 9 3 6 8
3 5 1 8 7 6 2 4 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 3. desember,
337. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Vertu ekki hrædd, litla
hjörð, því að föður yðar hefur þóknast
að gefa yður ríkið. (Lk. 12, 32.)
Íslendingar hafa margir spurthvers vegna enginn vildi hjálpa
Íslandi eftir að íslenskir bankar
höfðu skilið eftir sig sviðna jörð víða
um Evrópu. Ísland varð vissulega
fyrir höggi í október í fyrra, en engu
að síður eru kjör fólks víða um heim
mun bágari en á Íslandi. Íslensk
stjórnvöld skera nú niður framlög til
þróunarmála, þótt meiri reisn hefði
verið í því að styðja þá, sem eiga von
á stuðningi okkar, þrátt fyrir
hremmingarnar. Reyndar hafa ís-
lensk stjórnvöld alltaf átt erfitt með
að finna peninga til þess að leggja til
þróunarstarfs – hvort sem verið hef-
ur góðæri eða hallæri – og hafa þar
verið eftirbátar annarra Norð-
urlanda. Almenningur hefur hins
vegar verið fús til að leggja sitt af
mörkum þegar neyðarkall hefur
borist utan úr heimi. Á morgun er
dagur rauða nefsins. Þá hyggst Uni-
cef á Íslandi safna fé fyrir börn í
neyð. Eins og fram kemur á heima-
síðu Unicef er hugmyndin að baki
Degi rauða nefsins að gleðjast og
gleðja aðra um leið og fé er safnað til
að styðja börn í fátækari löndum
heims. Hugur Víkverja verður hjá
fátækum börnum á morgun. Hann
vonar að Íslendingar sýni að þeir
eru enn aflögufærir.
x x x
Víkverji hefur fylgst með spurn-ingakeppninni, sem fram fer í
morgunþætti Rásar tvö á fimmtu-
dagsmorgnum. Fyrirkomulagið á
þáttunum er þannig að sá sem tapar
á að gera tillögu um næsta kepp-
anda. Þegar Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, féll úr leik skoraði hann
á Ólaf Ragnar Grímsson forseta að
taka við keflinu. Forsetinn gaf ekki
kost á sér og var þá Anna Kristín
Jónsdóttir fréttamaður, sem áður sá
um morgunvaktina og nú er í Spegl-
inum, kvödd til leiks og sýndi þegar
rækilega hversu víðlesin og fjölfróð
hún er. Víkverji hefur ekki tölu á því
hvað Anna Kristín hefur oft haft bet-
ur í þessum þáttum, en hefur á til-
finningunni að það sé farið að nálg-
ast tvo mánuði. Vonandi fær hún
laun sem staðgengill forseta fyrir
frammistöðu sína. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 áþekkur, 8
leður, 9 ægisnálin, 10
gljúfur, 11 suða, 13 hinn,
15 gleðjast, 18 sussar á,
21 vitrun, 22 drepa, 23
fnykur, 24 lygi.
Lóðrétt | 2 ökumaður, 3
prútta, 4 Evrópubúa, 5
ekki gamlan, 6 spil, 7
flanar, 12 væg, 14 tangi,
15 vatnsfall, 16 grotta,
17 flýtinn, 18 furðu, 19
tími, 20 vitlaus.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ósjór, 4 þokki, 7 kerlu, 8 ötull, 9 föl, 11 prik, 13
vinn, 14 eigna, 15 ómar, 17 næmt, 20 Óli, 22 ertur, 23 lú-
ann, 24 akrar, 25 tossi.
Lóðrétt: 1 ósköp, 2 jarfi, 3 rauf, 4 þjöl, 5 kauði, 6 iglan,
10 öngul, 12 ker, 13 van, 15 ópera, 16 aktar, 18 Ævars,
19 tangi, 20 órar, 21 illt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. Rd2 bxc4
5. e4 Bb7 6. Bxc4 g6 7. Re2 Bg7 8.
Rc3 d6 9. O-O O-O 10. Be2 Rbd7 11.
Dc2 Hb8 12. Rc4 Ba6 13. Re5 Rxe5
14. Bxa6 c4 15. Da4 Rfd7 16. Be3 Rd3
17. Da3 Hxb2 18. Bxc4 Hc2 19. Rb5
Rxf2 20. Da4 Rg4 21. Bxa7 Hb2 22.
Hab1
Staðan kom upp á Evrópumeist-
aramóti landsliða sem lauk fyrir
nokkru í Novi Sad í Serbíu. Serbneski
stórmeistarinn Bojan Vuckovic (2600)
hafði svart gegn frönskum kollega sín-
um Sebastien Feller (2570). 22… Rb6!
og hvítur gafst upp enda getur hann
ekki umflúið liðstap. Af Norðurlönd-
unum stóðu Finnar sig best á mótinu,
þeir lentu í 19. sæti af 38 sveitum en
Danir lentu í 22. sæti, Norðmenn í 24.
sæti og Íslendingar í 34. sæti. Svíar og
Færeyingar sendu ekki lið til keppni.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Einhyrningur.
Norður
♠Á72
♥D105
♦ÁKDG10
♣96
Vestur Austur
♠K ♠G104
♥Á93 ♥KG8642
♦9532 ♦74
♣ÁDG43 ♣102
Suður
♠D98653
♥7
♦86
♣K875
Suður spilar 4♠.
Alfred Sheinwold (1912-1997) hélt
úti vinsælum bridsþætti í bandarískum
dagblöðum áratugum saman. Hann
hafði þá stefnu í skrifum sínum að
halda sig við eitt atriði í einu – spilin
urðu að vera „one pointers“. Árið 1994
sat hann á öxlinni á Eric Rodwell og
fylgist með handbragðinu. Kom þá upp
spilið að ofan: „Engin snilld, svo sem,“
skrifaði Sheinwold, „en gott dæmi fyrir
dálkinn minn.“
Austur hafði opnað á 2♥ og því kom
vestur út með ♥Á. Vestur spilaði
hjarta áfram og Rodwell trompaði.
Rodwell spilaði nú spaða og sá kónginn
koma úr vestrinu. Eftir smáumhugsun
ákvað Rodwell réttilega að leyfa vestri
að eiga slaginn. Trompstaðan lá ljós
fyrir og Rodwell vildi ekki leyfa austri
að komast inn til að þruma laufi í gegn-
um kónginn. Góður einhyrningur.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Væri það ekki frábært ef ástfangið
fólk væri alltaf jafn tillitssamt? En þannig
er það bara ekki. Samt er grunsamlegt ef
einhver er sammála öllu sem þú segir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Svo virðist sem allir séu mjög hrifnir
af áætlunum þínum. Ekki láta óánægju
eða óöryggi þitt valda því að þú segir eitt-
hvað sem þú síðar gætir séð eftir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert sannkallaður gleðigjafi og
þess vegna sækjast margir eftir fé-
lagsskap þínum. Vertu því staðfastur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér er ráðlagt að fara varlega í að
tjá þig við þína nánustu. Haltu þig við það
sem þú þekkir, það gerist þá að minnsta
kosti ekki neitt sem kemur flatt upp á þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú munt sennilega eiga óvenjumikil
samskipti við foreldra þína næstu dagana.
Sumir dagar eru bara þannig að það vant-
ar fleiri klukkutíma í sólarhringinn.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það gleður þig að komast að því að
einhver er reiðubúinn að styðja þig fjár-
hagslega eða með öðrum hætti. Leystu
því eigin mál áður en þú fæst við annarra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er mikilvægt að þú áttir þig á að
þig er farið að lengja eftir ró og næði
heima fyrir. Aðrir munu virða þig fyrir að
standa á þínu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að gefa þér betri
tíma til að sinna því sem raunverulega
skiptir máli. Settu því ekki upp hunds-
haus þótt þú mætir smámótbyr.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú verður valin/n til að hreinsa
til. Ekki hika við að sýna væntumþykju
þeim sem þú umgengst reglulega. Stund-
um er best að telja upp að tíu áður en orð
eru látin falla.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert ekki nógu skipulögð/
lagður og það pirrar þig þegar skipulags-
leysið kemur niður á frítíma þínum. Inn-
blásturinn færðu í þínu nánasta umhverfi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er hægt að lyfta sér upp án
þess að kosta miklu til. Gæti það verið
betra? Fjölbreyttara? Einfaldara? Þú
gerir alla brjálaða með spurningum þín-
um en þeir eiga eftir að þakka þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Eitthvað sem þú ert að spá í er
sennilega ekki mjög góð hugmynd. Betra
er að kanna málin sjálf/ur og vita hvað
raunverulega er á ferðinni.
Stjörnuspá
3. desember 1886
Oscar Nickolin, lyfjasveinn í
Reykjavíkurapóteki, auglýsti í
Þjóðólfi að hann tæki að sér
„tannlækningar án þess að
draga tennurnar út“ en þetta
mun vera fyrsta íslenska aug-
lýsingin um tannlækningar.
3. desember 1970
Verslunarmiðstöðin Glæsibær
í Reykjavík var tekin í notkun.
Þar var m.a. verslun Silla og
Valda sem þá var stærsta mat-
vöruverslun landsins.
3. desember 1979
Framsóknarflokkurinn vann
einn sinn stærsta sigur í Al-
þingiskosningum, hlaut 24,9%
atkvæða og 17 þingmenn.
3. desember 1981
Menntamálaráðuneytið stað-
festi ákvörðun Náttúruvernd-
arráðs um að friðlýsa Þjórs-
árver við Hofsjökul.
3. desember 1992
Georgíumaðurinn Grigol
Matsjavariani kom til landsins
í boði ríkisstjórnarinnar, en
hann var sjálfmenntaður í ís-
lensku. „Ég er meira en glað-
ur, fremur agndofa,“ sagði
hann í viðtali við Morgun-
blaðið. Grigol dvaldi hér í
hálft ár við fræðistörf.
3. desember 1998
Hæstiréttur kvað upp þann
dóm að fimmta grein laga um
stjórn fiskveiða væri í and-
stöðu við jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar. Morg-
unblaðið sagði að „líklega hafi
ekki verið kveðinn upp jafn
óvæntur og jafn afdrifaríkur
dómur í 78 ára sögu Hæsta-
réttar“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
AUK þess að fagna hálfrar aldar afmæli í dag á
Gylfi Þór Orrason þrjátíu ára starfsafmæli hjá
Bændasamtökunum á þessu ári. „Ég hef unnið þar
nánast allan minn starfsaldur og það liggur við að
ég sé að verða þar allra karla elstur,“ segir skrif-
stofustjórinn um brauðstritið. Gylfi er þó eflaust
þekktari fyrir áhugamál sitt, en hann var til
skamms tíma einn fremsti knattspyrnudómari
landsins og dæmdi fjölmarga leiki á alþjóðavett-
vangi. Hann er varaformaður Knattspyrnusam-
bands Íslands og m.a. formaður dómaranefndar.
„Áhugamálin eru meira og minna tengd bolt-
anum, það má segja að þar séu mínar ær og kýr,“ segir Gylfi. „Ég hef
haldið með West Ham frá blautu barnsbeini og það breytist ekki. West
Ham hefur verið mitt lið frá því að Englendingar urðu heimsmeistarar
1966 með West Ham-snillingana Moore, Hurst og Peters innanborðs.“
Spurður um veisluhöld í tilefni afmælisins segir Gylfi að slíkt standi
ekki til. Hann hafi haldið veglega upp á fertugsafmælið. „Í það afmæli
mættu Framarar, dómarar, bændur og vinir mínir úr öllum áttum og
skemmtu sér konunglega saman. Ég sá þá að slíka hátíð væri ekki hægt
að endurtaka.“ aij@mbl.is
Gylfi Þór Orrason knattspyrnudómari 50 ára
Slík hátíð ekki endurtekin
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is