Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
DREGIÐ var í riðla fyrir deildabik-
arkeppnina í knattspyrnu í gær. FH-
ingar, sem unnu deildabikar karla á
síðasta tímabili, í fimmta sinn á átta
árum, fengu úrvalsdeildarlið Fram,
Selfoss og Vals með sér í riðil.
Í ár er leikið í þremur átta liða riðl-
um í A-deild karla, ekki í fjórum sex
liða riðlum eins og síðasta vetur. Lið-
in leika því sjö leiki hvert í riðla-
keppninni í stað fimm áður. Það eru
liðin 24 í tveimur efstu deildunum
sem skipa A-deildina hverju sinni.
Tvö efstu liðin í hverjum riðli kom-
ast í 8-liða úrslit, ásamt tveimur þeim
liðum í þriðja sæti sem eru með best-
an árangur.
Í hverjum riðli A-deildar eru fjögur
lið úr úrvalsdeild og fjögur úr 1. deild
og riðlarnir eru þannig skipaðir:
A-riðill: Fylkir, Grindavík, Hauk-
ar, Stjarnan, Fjarðabyggð, ÍA,
Njarðvík, Þór.
B-riðill: FH, Fram, Selfoss, Valur,
Fjölnir, KA, Leiknir R., Víkingur R.
C-riðill: Breiðablik, ÍBV, Keflavík,
KR, Grótta, HK, ÍR, Þróttur R.
Í B-deildinni leika liðin 12 í 2. deild
ásamt sex efstu liðum 3. deildar. Þar
eru riðlarnir þannig skipaðir:
A-riðill: Höttur, Huginn, KS/
Leiftur, Magni, Tindastóll, Völsung-
ur.
B-riðill: Ægir, Hamar, ÍH, KFS,
Reynir S., Víkingur Ó.
C-riðill: Afturelding, BÍ/Bolung-
arvík, Hvöt, KV, Víðir, Ýmir.
Í C-deild karla leika síðan önnur lið
3. deildar í fjórum riðlum.
Sex efstu liða úrvalsdeildar í fyrra
leika í A-deild kvenna. Þar á Þór/KA
titil að verja en A-deildin er þannig
skipuð:
Valur, Breiðablik, Þór/KA, Stjarn-
an, Fylkir, KR.
Í B-deild kvenna leika síðan
Grindavík, Afturelding, ÍR, Keflavík,
Haukar, FH og ÍBV. Önnur lið leika í
C-deild. vs@mbl.is
FH mætir
Fram, Val
og Selfossi
TVEIR áratugir eru nú liðnir síðan
KA landaði fyrsta Íslandsmeist-
aratitli sínum, eða þeim fyrri. Það
var árið 1989 sem KA varð Íslands-
meistari karla í blaki í fyrsta sinn og
síðan endurtók liðið það tveimur ár-
um síðar, eða árið 1991. Síðan hefur
liðið ekki náð að verða Íslandsmeist-
ari en setur stefnuna ótrautt á þann
titil á þessu leiktímabili.
KA-menn komu saman á dög-
unum til að fagna fyrsta tilinum, en í
því liði voru meðal annars Stefán Jó-
hannesson, varaformaður Blak-
sambandsins, Sigurður Arnar Ólafs-
son, formaður blakdeildar KA og
tannlæknirinn Haukur Valtýsson,
sem þótti sérlega lunkinn uppspilari.
Tuttugu ár frá
fyrsta titli KA
ÍSLENSKU keppendurnir á Evrópumeist-
aramótinu í sundi í 25 metra laug settu þrjú
Íslandsmet á lokaspretti mótsins. Þar voru á
ferðinni þau Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH,
Sindri Þór Jakobsson, ÍRB, og Inga Elín
Cryer, ÍA. Aukinheldur syntu nokkrir alveg
við sinn besta tíma þannig að árangur kepp-
endanna á mótinu var fínn.
Tvö þessara meta féllu á laugardaginn,
fyrst var það Hrafnhildur sem bætti eigið met
í 100 metra bringusundi. Gamla metið var síð-
an í nóvember en á laugardaginn synti hún á
1.08,34 og bætti gamla metið sitt um 12/100 úr sekúndu. Hún endaði í
36. sæti og hefði þurft að synda á 1.07,51 til að komast í undanúrslit.
Sindri Þór keppti í 200 metra flugsundi á laugardaginn og syndi
vegalengdina á 1.57,21 og bætti eigið met, 1.58,30, sem var aðeins
nokkurra daga gamallt, en áður átti Örn Arnarson metið. Sindri Þór
endaði í 22. sæti en hefði þurft að synda á 1.53,73 til að komast í und-
anúrslitin.
Skagakonan Inga Elín setti síðan
þriðja Íslandsmet helgarinnar í gær
er hún synti 400 metra fjórsund á
4.50,96. Með því náði þessi 16 ára
stúlka að taka metið af Erlu Dögg
Haraldsdóttur, 4.52,56, síðan í mars
2008. Inga Elín var alveg við sinn
besta tíma í 400 metra skriðsundi á
laugardaginn, synti á 4.17,94.
Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR
synti 50 metra skriðsund í gær á
25,16 sekúndum, sem er rétt við Ís-
landsmet hennar. Hún endaði í 25. sæti.
Sindri Þór bætti tíma sinn í 50 metra flugsundi er hann kom í mark
á 24,42 sekúndum.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, ÍRB, synti alveg við sinn besta tíma
í 200 metra skriðundi, fékk tímann 1.53,02. Hann bætti tíma sinn um
1/10 úr sekúndu í 100 metra baksundi á laugardaginn, synti á 55,56
sekúndum. skuli@mbl.is
Hrafnhildur, Sindri Þór og Inga Elín settu öll
Íslandsmet á lokasprettinum í Istanbúl
Hrafnhildur
Lúthersdóttir
Sindri Þór
Jakobsson
Inga Elín
Cryer
EKKERT lát er á sigurgöngu Alfreðs Gíslasonar með lið Ki
knattleik. Um helgina vann Kiel auðveldan sigur á Burgdor
arsson gerði fimm marka Kiel. Hannes Jón Jónsson lék ekk
fyrr í efsta sæti og hefur 27 stig eftir 14 umferðir, og er eina
leik. Kiel hefur aðeins tapað einu stigi, gerði 27:27 jafntefli
Hamburg er í öðru sæti, stigi á eftir Kiel, en Hamborgara
helgina á móti N-Lübbecke þar sem Marcin Lijewski tryggð
skömmu fyrir leikslok. Heiðmar Felixson gerði tvö marka L
meiddur og lék því ekki með.
Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen lagði Magdeburg a
Guðjón Valur Sigurðsson sex mörk og þeir Snorri Steinn G
ánsson þrjú mörk hvor. Löwen er í þriðja sæti deildarinnar
Íslensku leikmennirnir í leik Grosswallstadt og Düsseldo
er fyrrnefnda liðið sigraði 33:21 í gær. Sverre Jakobsson sk
Grosswallstadt af kostgæfni og Einar Hólmgeirsson er mei
Ásgeirsson gerði eitt marka Düsseldorf.
Alexander Petersson gerði 6 mörk fyrir Flensburg þegar
arsson og félaga í Gummersbach og hafði eins marks sigur,
urmarkið. Þar með skaust Flensburg upp í 5. sætið, upp fyr
Lærisveinar Alfreð
áfram á sigurbraut
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Fylkiskonur skutust í efsta sæti 1. deildar
kvenna á föstudaginn með því að leggja KA
að velli, en það var ekki lengi því HK krækti
sér í efsta sætið með 3:0 sigri á KA á laug-
ardeginum. Sigurinn var nokkuð öruggur
því norðanstúlkur kræktu sér í 17 stig í
fyrstu hrinu, 10 í þeirri næstu og 15 í þriðju
hrinunni.
Kópavogsliðið fór því í efsta sætið með tíu
stig eins og Fylkir en HK hefur tapað færri
hrinum og er því í efsta sætinu. Raunar hafa
leikir HK allir endað 3:0, liðið hefur sigrað
3:0 í fimm leikjum og tapað einum 3:0, gegn
Þrótti í Neskaupstað um miðjan október.
Ætlaði að vera upp á punt
„Deildin er bara nokkuð skemmtileg og
jöfn sýnist manni. Fylkir kemur verulega á
óvart, stelpurnar þar eru mjög duglegar og
eru búnar að vinna bæði KA og Þrótt Nes-
kaupstað. Norðfirðingar eru einnig með fínt
lið og eins KA. Við erum líka með fínt lið þó
það sé ungt og við þessar gömlu teljum okk-
ur í það minnsta trú um að þær þurfi enn á
okkur að halda til að ná að klára þetta alveg.
Þegar ég skoðaði hópinn hjá okkur í haust
þá leist mér rosalega vel á þetta og sá fram
á að maður gæti bara mætt svona upp á
punt, en annað hefur komið í ljós,“ sagði
Ingibjörg.
HK er með talsvert breytt lið frá því liðið
sigraði þrefalt í fyrra. „Við stefnum auðvit-
að að því að vera í efsta sæti áfram og telj-
um okkur vera með mannskap til þess.
Reyndar erum við með mjög ungt lið núna
og svo nokkrar „kerlingar“ eins og mig,“
sagði Ingibjörg um lið sitt. „En nokkrar af
þeim reyndu eru á meiðsla- og barn-
eignalista. Þannig að reynsluliðið frá því í
fyrra er ekki til staðar, ég held ég sé sú eina
sem er eftir í byrjunarliðinu,“ sagði Ingi-
björg.
Tveir aðrir leikir voru í kvennablakinu,
Þróttur á Neskaupstað vann Stjörnuna 3:0,
25:11, 25:18 og 25:23. Þá vann Þróttur úr
Reykjavík lið Ýmis 3:0 í hnífjöfnum leik þar
sem hrinurnar enduðu 26:24, 27:25 og 25:22.
Lið KA skaust í efsta sætið í 1. deild karla
með 3:1 sigri á HK, en fyrir leikinn voru lið-
in jöfn að stigum með átta stig. Stjarnan
kemur þar á eftir með sex stig og Þróttur úr
Reykjavík hefur ekkert stig sem er óvenju-
legt á þeim bænum.
KA hafði betur í fyrstu tveimur hrin-
unum, 25:18 og 25:21, en Kópavogsliðið
svaraði með 25:20 sigri í þriðju hrinu.
Fjórða hrinan var síðan æsispennandi en
svo fór að KA hafði betur 26:24 og komst
þar með á toppinn.
Lungnabólgan sagði til sín
„Við erum rosalega ánægðir með þennan
sigur enda höfðu margir leikmenn legið í
veikindum og þau sögðu til sín í þessum leik.
Þrír okkar erum búnir að vera með lungna-
bólgu og við erum því mjög sáttir við sig-
urinn,“ sagði Hilmar Sigurjónsson, leik-
maður KA eftir sigurinn.
„Það er auðvitað alveg frábært að vera í
efsta sætinu og þar eigum við heima, hvergi
annars staðar,“ sagði Hilmar kampakátur
með sigurinn og efsta sætið.
KA hefur verið með mjög ungt og hávaxið
lið síðustu árin, en það er breytt. „Liðið okk-
ar er langt því frá því jafn hávaxið og síð-
ustu ár og þar munar miklu að tvíburarnir
úr Hveragerði, Kristján og Hafsteinn, héldu
til Danmerkur eftir síðasta vetur og við það
lækkaði liðið verulega,“ segir Hilmar.
Hann sagði að deildin væri ekki eins sterk
og í fyrra. „Þrátt fyrir að deildin sé ekki jafn
sterk og í fyrra þá er alveg hægt að gera
gott úr þessu. Þróttarar duttu eiginlega al-
veg út, það er einn úr byrjunarliðinu hjá
þeim eftir.
Við ætlum okkur að vera áfram á toppn-
um, en liðið hjá okkur á það til að detta nið-
ur og við verðum að halda einbeitingu okkar
í leikjunum. Þá er það ekki spurning að við
verðum á toppnum,“ sagði Hilmar.
Hávörn HK-stúlkur virðast hafa náða verja skell KA með hávörninni
maður KA, er við öllu búin. HK vann góðan sigur og er í efsta sætinu
HK og KA
á toppnum
Fyrirliði HK ætlaði að vera með upp á
punt „Þurfa enn á þeim gömlu að halda“
Góður sigur KA þrátt fyrir mikil veikindi
í hópnum „Verðum á toppnum“
„ÞETTA var auðveldari sigur en við áttum
von á. KA-stelpur voru dálítið vængbrotnar
þar sem það vantaði einn reyndan leikmann
í lið þeirra. Ekki þar fyrir að ef værum með
allan okkar mannskap þá held ég að við vær-
um samt sem áður með yfirburði,“ sagði
Ingirbjörg Gunnarsdóttir, fyrirliði kvennaliðs
HK í blaki eftir að liðið hafði lagt KA 3:0 í
síðasta leik deildarinnar á þessu ári. HK fór
þar með á toppinn líkt og KA gerði í karla-
flokki, en norðamenn lögðu HK á laugardag-
inn 3:1.
Skellur KA-menn sækja hér að liði HK og virðast koma boltanum yfir