Magni - 11.02.1965, Qupperneq 5
Fimmtudagur 11. febrúar 1965
M A G N 1
5
- Lóðaleiguhœkkunin...
Framhald af 1. síðu.
Hvar er smuga til hækkunar
í slíkum samningi sem þessum?
Er samningurinn ekki nægi-
lega skýr og ákveðinn? Hann
gerir ráð fyrir einni verðlags-
breytingu: Að leigan megi
nema innlánsvöxtum Lands-
bankans af fasteignamatsverði
landsins að liðnum 25 árum frá
útgáfudegi. Þetta getur ekki
augljósara verið. Leigutakar
með slíka samninga þurfa ekk-
ert að óttast og það er ólíklegt
að nokkur bæjarstjórn sé svo
grunnfær að ætla sér að inn-
heimta hærri leigu með mál-
sókn.
2. Hinir yngri samningar —
sem svo eru nefndir — eru
teknir í notkun upp úr 1950 og
hafa verið notaðir síðan óbreytt
ir. Samningur um lóðina nr.
7 við Brekkubraut er birtur hér
sem dæmi:
Bœjarstjórinn á Akranesi gjörir kunnugt:
Að ég hér með, í umboði bœjar-
stjórnarinnar ó Akranesi, leigi Ríkarði
Jónssyni Sandabraut 6, lóð þá í Garða-
landi, sem honum hefir verið mœld út
til að reisa á íbúðarhúsið nr. 7 við
Brekkubraut, frá fardögum 1953, með
rétti til að selja on veðsetja afnotarétt
sinn á lóðinni ásamt húsum á bann hátt,
sem ekki kemur í bága við bréf þetta,
eða kvaðir þœr er á Garðalandi hvíla.
Lóðin er leigð til 50 - fimmtíu - ára.
1. Lóðin er 20 m með Brekkubraut og
26,25 m djúp eða 525 - fimm hundr-
uð tuttugu og fimm fermetrar að
flatarmáli.
2. I afgjald af lóðinni skal hann greiða
bœjarsjóði Akraness 1. október ár
hvert, kr. 0,10 fyrir hvern fermeter,
eða kr. 52,50, fimmtíu og tvœr
50/100 á ári, og skal gjald þetta
greitt í peningum. — Afgjaldið er
tryggt með forgangsveðrétti í lóðinni
í tvö ár frá gjalddaga.
Eftir 25 ár, eða árið 1978 er bœjar-
stjórn heimilt að hœkka leiguna svo
að hún nemi innlánsvöxtum Lands-
bankans af fasteignamatsverði lands-
ins.
3. Afgjaldið er miðað við vísitölu árið
1939. Bœjarstjórninni er heimilt að
innheimta afgjaldið með allt að
400% álagi, eða eins og það kann
að verða ákveðið á hverjum tíma.
4. Bœjarstjórnin áskilur sér rétt til að
breyta leigumálum þessum, enda
komi til samþvkki stjórnarráðsins í því
efni.
Til staðfestu er nafn mitt.
Akranesi, 11. júlí 1953.
Sveinn Finnsson
bœjarstjóri (stimpill)
Ég hefi tekið við leigusamningi sam-
hljóða þessum, og skuldbind mig til þess
að halda framangreinda skilmála.
Akranesi, 13/7 1953.
Ríkarður Jónsson.
Vitundarvottar:
Guðmundur Jónsson.
Finnur Árnason.
Hálmstrá meirihlutans var
4. greinin. Hún er að engu orð-
in, þar sem ráðuneytið hefur
synjað um staðfestingu, með
þvi að samþykktin er ekki
byggð á lögum.
Samkvæmt þessum samn-
ingi eru tveir möguleikar til
hækkunar á lóðaleigu:
1. Eftir 25 ár — með sama
hætti og í fyrri samningnum
— að þá megi lóðaleigan nema
innlánsvöxtum Landsbankans
af fasteignamatsverði landsins.
2. Bæjarstjórininni er heim-
ilt að innheimta afgjaldið með
400% álagi. Með þessum samn
ingi var grunngjaldið ákveðið
10 aurar á ferm.
Lóðaleigan hefur, frá því
samningarnir tóku gildi, verið
innheimt með 200% álagi, eða
30 aurar á ferm. Samkvæmt
samningunum var heimilt að
fara upp í 50 aura á ferm.
Þetta lét meirihlutinn sér ekki
nægja heldur fór upp í 1,00 kr.
svo sem kunnugt er fyrir íbúð-
arlóðir. Er það helmingi hærri
leiga en i Kópavogi og mun
hærri en í Beykjavík. Sé ein-
hver rekstur á lóðinni var leig-
an hækkuð í 3,00-4,00 kr. Með
þvi móti var var leigan í ýms-
um tilfellum 20 földuð. Þannig
er mönnum refsað með því að
veita atvinnu og þjónustu í
bænum.
Með lögum skal
land byggja.
Eftir að ráðuneytið synjaði
um staðfestingu á hækkun
lóðaleigunnar hefði hver ein-
asta bæjarstjórn, sem virðir
lög og reglugerðir, tekið sam-
þykkt sína aftur, þegar full
ljóst var, að hún var ekki byggð
á löglegum forsendum. Meiri-
hlutinn á Akranesi gerði það
ekki. Hann vildi ógjarnan
brjóta odd af oflæti sínu. Hann
hefur áður gert samþykktir
gegn lögum og reglum, sem
kostað hafa bæjarsjóð stórfé.
Hann virðist ætla að halda
þeim ljóta leik áfram og er þá
hvorki hugsað um fjárhag bæj-
arins né virðingu. Kjörorðið er
einatt hið sama: Látum bæinn
borga. Við getum þó alltaf
hækkað útsvörin og fasteigna-
gjöldin.
D. Á.
Skagapósiur
Framhald af 6. síðu
Annóll 1964.
Á Akranesi hafa fæðzt 109 lifandi
börn. 51 stúlka og 58 drengir. 1 fyrra
106.
Sóknarpresturinn hefur skýrt
117 böm. 57 stúlkur og 60 drengi.
Hann fermdi 97 börn. 53 stúlkur og
44 drengi. Gaf saman 20 brúðh)ón.
Flutti 60 messur í prestakallinu.
Dónardœgur.
A KONUR:
1. Hólmfriður G. Jónsd., húsfrú,
Fjólugr. 6. 9/3. F. 11/1 ’85.
2. Guðlaug Ólafsdóttir, Skagabr. 36
7/5. F. 23/3 ’07.
3. Kristjana J. Guðjónsdóttir, húsfrú
Skagabr. 42, 15/5. F. 30/10 ’88.
4. Ingveldur Kristjánsdóttir, húsfrú
Skólab. 10, 16/5. F. 22/8 ’75.
5. Valdis Böðvarsdóttir, f. simstj.,
Bakkat. 10, 21/5. F. 27/9 ’86.
6. Guðriður Jónsdóttir, húsfr. Kirk.
23, 21/5. F. 5/4 1864.
7. Hjálmfriður Árnadóttir, húsfrú,
Vitateig 4, 11/6. F. 4/5 ’72.
8. puðmunda Sigurðardóttir, húsfr.,
Vesturg. 46, 27/6. F. 22/6 ’99.
9. Margrét Erlendsdóttir, húsfrú.
Skagabr. 38, 27/8. F. 22/12 ’23.
10. Halldóra Helgadóttir, húsfrú,
Bakkat. 24. 30/10. F. 6/9 ’76.
11. Steinunn Ölafsdóttir, húsfrú,
Kirkjubr. 30, 14/12. F. 4/9 ’74.
12. Þorbjörg Erlendsdóttir, húsfrú,
Vesturg. 121, 25/12. F. 1/11 ’94.
13. Margrét Finnsdóttir, húsfrú,
Skólahr. 27, 31/12. F. 3/11 ’81.
B KARLAR:
1. Björn Bergmann Jónssyn bryti,
Mánabr.6, 12/1. F. 12/3 ’06.
2. Oddur Guðmundsson, vjélstj.,
Presthúsabr. 29, 7/3. F. 9/1 ’Ol.
3. Ragnar Blómqvist Jónsson, barn,
Bjarkarg. 3, 19/4. F. 29/6 ’63.
4. Vilhjálmur Jónsson, f. bóndi,
Þinghól, 8/5. F. 13/9 ’67.
5. Daniel Vigfússon, trésmíðam.,
Skagabr. 48. 11/5. F. 16/11 ’03.
6. Ólafur E. Sigurðsson, útgerðarm.
Krókat. 9, 13/6. F. 12/1 ’26.
7. Óskar R. Halldórsson, verkam.
Suðurg. 118, 17/6. F. 9/10 ’40.
8. Jóhannes Bachmann Jónss., vkm,
Vesturg. 63, 22/7. F. 23/12 ’Ol.
9. Klemens Jónsson, f. bóndi, Fjólu-
gr. 6, 26/7. F. 26/6 ’74.
10. Sveinn Guðmundsson, rafvm.,
Suðurg. 45, 29/7. F. 13/2 ’97.
11. Valdimar Kristmundsson, skipstj.
Skólabr. 8, 17/8. F. 7/5 ’88.
12. Gústaf Karlsson, múrarameistari,
Höfðabr. 3, 29/8. F. 18/9 ’17.
13. Jóhann B. Guðnason, f. bygginga
fulltr. Suð. 100, 29/8. F. 12/5 ’94.
14. Jóhann Gestsson, verkam., Króka
túni 1, 25/9. F. 25/5 ’83.
15. Árni Andrésson, verkam., Vestur
götu 117, 28/9. F. 29/9 ’95.
16. Guðmundur Jónsson, verkam.,
Skagabr. 34, 2/10. F. 1/12 '01.
17. Guðjón Jónsson, f. bóndi Skóla-
braut 29, 16/10. F. 18/7 ’90.
18. Ásgeir Sigurðsson, vélsm., Mána-
br. 22, i nóv. F. 25/6 ’04.
19. Ágúst S. Ásbjörnsson, sjóm., Mel-
teig 6, 27/11. F. 2/8 ’83.
Þessi dánartala er óvenjuhá. Til
samanburðar skal þess getið, að árið
1963 létust 17 á Akranesi.
985 gestir í ByggSasafninu
í GörSum.
Byggðasafnið i Görðum er opið á
laugardögum og sunnudögum kl. 4-
6 á timabilinu 20. mai til 25. okt. og
aðra daga eftir samkomulagi. Á s.l.
ári skrifuðu 985 nöfn sin í gestabók
safnsins. 1 þeim hópi voru margir
útlendingar frá hinum fjarlægustu
löndum. Aðgangur var ekki seldur að
safninu heldur var komið fyrir gjafa-
bauk fyrir þá, sem vilja styrkja
Hús til sölu
Einbýlishús við Vesturgötu,
5 herb. og eldh., bílskúr inn-
byggður. — Tveggja hæða
hús á Heiðarbraut, efri hæð
nýbyggð. — Tveggja íbúða
hús á Brekkubraut.
Lögfræðiskrifstofa
Stefáns Sigurðssonar
Vesturgötu 23, Akranesi.
Sími 1622.
safnið með fjárframlögum. Gaf það
góða raun og kom inn meira fé en
sem svaraði aðgangseyri hin síðustu
árin.
Sokkagerðin Adam.
Stofnað hefur verið á Akranesi
nýtt fyrirtæki, sem hlotið hefur nafn
ið Sokkagerðin Adam. Eigandi þess
er Friðrik Adólfsson útvarpsvirki.
Mun það ætla sér að framleiða karl-
mannasokka. Þar með eru komin
Adam og Eva á Akranesi, sem verð-
ur þeirra Paradís.
Bílasala Akraness.
Bergur Arnhjömsson hefur stofn-
að nýtt fyrirtæki á Akranesi, sem
heitir Bílasala Akraness. Tilgangur
fyrirtækisins er að annast umboðssölu
á bifreiðum likt og bifreiðasölur í
Reykjavik gera.
Eyleifur Hafsteinsson
hinn 17 ára knattspyrnukappi á
Akranesi, er nýlega farinn til Skot-
lands og tekur upp æfingar hjá
hinu þekkta knattspyrnuliði Glasgow
Rangers. Hann ráðgerir að verða
þar a.m.k. til aprílloka. Þetta er
sama knattpyrnufélagið og Albert
Guðmundsson hóf knattspymuferil
sinn hjá, og hefur hann haft milli-
göngu um þessa ferð Eyleifs.
Akranes og ísafjörður keppa.
1 þætti útvarpsins — kaupstaðirnir
keppa —• völdust Akranes og Isa-
fjörður saman. Upptakan fór fram
í Bíóhöllinni 12. janúar, en var út-
varpað 17. janúar. Isafjörður vann
með 125 stigum. Akranes hlaut 120
stig. Fulltrúar Akraness í keppninni
voru: Ólafur Haukur Ámason skóla-
stjóri, Magnús Guðmundsson fulltrúi
og Þórhallur Sæmundsson bæjarfó-
geti.
Af hálfu Isfirðinga mættu til leiks:
Högni Torfason ritstjóri, Jóhann
Gunnar Ólafsson bæjarfógeti og
Ragnar H. Ragnars söngkennari.
EVA — TAUSCHER
HUDSON — 3 TANNEN
Þessir viðurkenndu sokkar fást í
Vcrzlunin Cind
SKAGAVERI.
Tilkynning
frá Skattstofu Vesturlands-
umdœmis, Akranesi.
Hinn 28. febrúar rennur út frestur
þeirra til að skila skattframtölum,
sem atvinnu stunda. Sama frest
hafa börn og hjú bænda.
Ef sérstaklega stendur á veitir
skattstjóri eða umboðsmaður hans
frekari framtalsfrest.
SKATTSTJÖRI.
Borgfirðingar!
Veitum yður alhliða
TRY GGINGAÞ J ÓNU STU.
Leitið upplýsinga hjá umboðs-
manni okkar í Borgarnesi,
PÉTRI GEIRSSYNI,
eða hjá aðalskrifstofunni í
Reykjavík.
Tryggingafélagiö HEIMIR hf.
Lindargötu 9. — Sími 21260.