Morgunblaðið - 23.12.2009, Side 1

Morgunblaðið - 23.12.2009, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2009 íþróttir Körfuboltinn Margrét Kara æfði frjálsíþróttir til að búa sig sem best undir tímabilið. KR með fullt hús í kvennaflokki. Mikil spenna hjá körlunum þar sem sex lið berjast um toppsætin. 2-3 Íþróttir mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Einbeittar Þessar körfuboltastúlkur úr Grindavík voru greinilega staðráðnar í að standa sig vel á Actavis-móti Hauka á Ásvöllum um síðustu helgi, ef marka má þessi svipbrigði. Mótið var fjölmennt og vel heppnað en fleiri myndir frá því eiga eftir að birtast í íþróttablaði Morgunblaðsins. ÓVEÐUR sem gekk yfir suður- hluta Svíþjóðar fyrir síðustu helgi varð til þess að Dóra Stefánsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Malmö, gat ekki farið í aðgerð á hné eins og til stóð. Álag á sjúkra- húsinu í Malmö var það mikið á föstudaginn að fresta þurfti að- gerðinni og Dóra gengst undir hana hinn 30. desember. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í síðustu viku þarf Dóra að fara í speglun öðru sinni. Hún var byrjuð að æfa eftir þá fyrri sem var framkvæmd í haust en fann fyr- ir óþægindum í hnénu og ákveðið var að hún færi aftur. Dóra sagði þá við Morgunblaðið að hún yrði ekki lengi frá æfingum af þessum sökum. Lið Malmö kemur saman til æf- inga eftir jólafríið hinn 7. janúar og vegna frestunarinnar er ljóst að Dóra nær ekki að byrja að æfa strax með liðinu. vs@mbl.is Aðgerð Dóru frestað vegna óveðurs Dóra Stefánsdóttir Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is ,,ÉG er undir það búinn að færa mig um set. Ég held þó að liðin séu eitthvað að ræða saman um hugsanlegt framhald en meira veit ég ekki,“ sagði landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson við Morg- unblaðið í gær. Heiðar er í láni hjá Watford frá QPR og rennur lánssamningurinn út hinn 28. þessa mánaðar. Hann mun því spila tvo næstu leiki Watford, gegn Nottingham Forest á öðrum degi jóla og Bristol City á mánudaginn. ,,Það er ýmislegt búið að ganga hjá báðum lið- um. Hjá Watford eru mikil fjárhagsvandræði og á tímabili leit út fyrir að liðið færi í greiðslustöðvun. Það tókst þó að bjarga málum fyrir horn. Hjá QPR urðu svo stjóraskipti,“ sagði Heiðar en Jim Magilton var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra QPR á dögunum og Paul Hart, fyrr- verandi knattspyrnustjóri Hermanns Hreiðarssonar hjá Portsmouth, ráðinn í hans stað. Heiðar var inntur eftir því hvort hann vildi halda kyrru fyrir hjá Watford eða fara QPR sem hann er samningsbundinn til 2011. ,,Ég hreinlega veit það ekki. Ég væri alveg til í að Watford keypti mig en ég veit ekki hvort félag- ið getur það. Eins og staðan er í dag geri ég ráð fyrir að fara aftur til QPR þangað til mér verður sagt annað,“ sagði Heiðar. QPR og Watford eru jöfn að stigum en bæði hafa þau 30 stig og eru í 10.-13. sæti í ensku 1. deildinni en aðeins fjögur stig eru í Leicester sem er í sjötta sæti deildarinnar. Liðin sem enda í sæt- um 3-6 fara í umspil um eitt laust sæti í úrvals- deildinni. Heiðar hefur skorað 5 mörk í þeim átta leikjum sem hann hefur spilað með Watford frá því hann kom til liðsins í september og hafa forráðamenn félagsins verið mjög ánægðir með framlag Dalvík- ingsins. „Liðin eru að ræða saman“  Heiðar á eftir að spila tvo leiki með Watford áður en lánssamningur rennur út  Væri alveg til í að Watford keypti hann af QPR  Snýr aftur þangað um áramót Heiðar Helguson GUÐMUNDUR Pedersen hand- boltakappi, fyrr- verandi fyrirliði FH-inga, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann verður því ekki með Hafn- arfjarðarliðinu seinni hluta tímabilsins. Guðmundur er 36 ára gamall og hefur verið lengi í eldlínunni með FH-liðinu. Hann byrjaði að leika með meistaraflokki félags- ins tímabilið 1992-93 og hefur leikið með því síðan, utan þess að hann spilaði tvö tímabil með Haukunum. Guðmundur er einn leikjahæsti leikmaður FH frá upphafi en hann hefur spilað samtals um 550 leiki og er einn af fimm leik- mönnum FH sem hafa spilað 500 leiki eða fleiri fyrir félagið frá upphafi. Guðmundur hefur verið í hópi bestu hornamanna landsins mörg undanfarin ár og hefur verið ákaflega drjúgur í markaskorun fyrir Hafnarfjarðarliðið þó svo að hann hafi haft frekar hægt um sig með liðinu í haust. gummih@mbl.is Guðmundur er hættur hjá FH-ingum Guðmundur Pedersen VIGNIR Svavarsson, landsliðs- maður í handknattleik og línumaður þýska liðsins Lemgo, er ekki inni í framtíðaráætlunum forráðamanna liðsins og fær ekki nýjan samning þegar núverandi samningur rennur út í júní á næsta ári. Þetta hefur Morgunblaðið samkvæmt heim- ildum. Vignir er nú á sínu öðru keppn- istímabili hjá Lemgo. Hann hefur leikið stórt hlutverk í liðinu á yf- irstandandi leiktíð, jafnt í vörn sem sókn, ekki síst þar sem þýsku lands- liðslínumaðurinn Sebastian Preiß, hefur verið meira og minna fjarver- andi vegna meiðsla í vetur. Árangur Lemgo hefur ekki verið í samræmi við væntingar á keppn- istímabilinu. Þess vegna má búast við mikilli uppstokkun í leikmannahópn- um og fleiri leikmenn en Vignir verði neyddir til að róa á ný mið. Annar Íslendingur, Logi Geirsson, er leikmaður Lemgo. Samningur hans rennur einnig út um mitt næsta ár. iben@mbl.is Vignir fær ekki nýjan samning Vignir Svavarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.