Morgunblaðið - 23.12.2009, Síða 3

Morgunblaðið - 23.12.2009, Síða 3
3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2009 Sverre Andr-eas Jak- obsson skoraði sitt fyrsta mark í þýsku 1. deildinni í gærkvöldi þegar lið hans, Gross- wallstadt, vann Lübbecke, 26:25, á heimavelli í jöfnum og spennandi leik. Heiðmar Felixson skoraði ekki mark fyrir Lübbecke og Þórir Ólafsson var fjarri góðu gamni sökum meiðsla.    Guðjón Valur Sigurðsson skoraðifjögur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen þegar liðið vann stórsigur á HSG Düsseldorf, 33:23, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson skoruðu ekki fyrir Lö- wen að þessu sinni. Sturla Ásgeirs- son skoraði þrjú mörk fyrir Düssel- dorf.    Róbert Gunnarsson og félagar íGummersbach unnu góðan sig- ur á Magdeburg, 31:24, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Róberti lánaðist ekki að skora. Hon- um var hinsvegar einu sinni vísað af leikvelli í tvær mínútur.    Þriðja leikinn íröð er Eiður Smári Guðjohn- sen ekki valinn í 18 manna leik- mannahóp Móna- kó en liðið sækir Le Mans heim í frönsku 1. deild- inni í kvöld. Þetta er síðasta umferðin á árinu en fyrsti leikur Mónakó á nýju ári verður gegn Montpellier 13. janúar. Eiður var ekki í leikmannahópi Mónakó á sunnudaginn þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Lyon og hann var heldur ekki í hópnum þegar Mónakó bar sig- urorð af Rennes, 1:0.    Einar Örn Guðmundsson, hand-knattleiksmaður sem leikið hef- ur með sænska úrvalsdeildarliðinu IFK Kristianstad frá því í haust leik- ur ekki áfram með liðinu á nýju ári. Hann gerði aðeins samning við það fram til áramóta. Einar Örn hefur ákveðið að halda heim og ljúka námi eftir því sem fram kemur í Kristian- stadsbladet. Einar Örn lék með Vík- ingi á síðustu leiktíð en hefur einnig verið í herbúðum Aftureldingar og Vals.    Knattspyrnumaðurinn HjálmarÞórarinsson skrifaði í gær und- ir nýjan samning við Framara til næstu tveggja ára. Hjálmar er 23 ára gamall sóknarmaður, uppalinn í Þrótti, en fór ungur til skoska úrvals- deildarfélagsins Hearts. Hann kom þaðan til liðs við Framara fyrir þrem- ur árum. Hjálmar var markahæsti leikmaður Fram í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili með 7 mörk. Fólk folk@mbl.is ÞEGAR úrvalsdeild karla í körfu- knattleik er hálfnuð er ljóst að sex efstu liðin skera sig úr og virðast vera nokkuð jöfn að getu. Fimm næstu lið þar á eftir verða í baráttu um að falla ekki með FSu í næstefstu deild. FSu hefur enn ekki unnið leik og engar lík- ur á því að það breytist í næstu 11 leikjum. Stjarnan er á toppi deild- arinnar en liðið hefur komið verulega á óvart. Njarðvík og KR eru með sama stigafjölda og Stjarnan í næstu sætum þar fyrir neðan. Íslandsmótið hefur farið ágætlega af stað en það er ekki eins mikil spenna í loftinu og fyrir ári. „Ofurlið“ KR var þá helsta frétta- efnið með þá Jón Arnór Stefánsson, Jakob Örn Sigurðarson og Helga Má Magnússon í aðalhlutverkum. Logi Gunnarsson sneri einnig heim úr at- vinnumennsku og lék með sínu gamla liði Njarðvík. Landsliðsmennirnir fjór- ir sem nefndir voru til sögunnar hér á undan eru allir farnir frá Íslandi. Grindvíkingar hafa ekki náð sér á strik Það eru nokkur atriði sem hafa kom- ið á óvart á fyrri hluta tímabilsins. Grindvíkingar hafa alls ekki náð sér á strik en liðið var hársbreidd frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn sl. vor gegn KR. Grindavík hefur tapað 4 leikjum af alls 11 eftir að hafa fagnað sigri í fyrirtækjabikarkeppni KKÍ í upphafi tímabilsins. Friðrik Ragn- arsson þjálfari Grindavíkur valdi þann kost að fá Darrel Flake frá Bandaríkj- um í stað landa hans Amani Bin Daan- ish sem lék þrjá deildarleiki með Grindavík. Nokkrir af lykilmönnum Grindavíkur eiga talsvert mikið inni á flestum sviðum og má þar nefna Pál Axel Vilbergsson og Arnar Frey Jóns- son. Grindvíkingar eru eflaust rólegir yfir þessu öllu saman enda nóg eftir að tímabilinu og langt þar til að úr- slitakeppnin hefst. Skilar Kínaferð KR árangri? Sá sem þetta ritar hefur séð töluvert marga leiki með Íslandsmeistaraliði KR í vetur – og er óhætt að segja að liðið á töluvert í land. Sóknarleikur liðsins er alls ekki nógu góður og er- lendu leikmenn liðsins hafa ekki sýnt þann stöðugleika sem krafist er af þeim. Páll Kolbeinsson vonast eflaust til þess að ævintýraferð liðsins til Kína nýverið skili sér á síðari hluta tímabils- ins. Það er mitt mat að Keflavík eigi eftir að landa góðum erlendum leikmanni á næstu vikum en fáir eiga eftir að muna eftir Rahson Clark þegar fram líða stundir. Clark stóð aldrei undir vænt- ingum og ég er ekki frá því að liðið hafi leikið betur eftir að Keflvíkingar sendu hann vestur um haf á ný. Keflavík mun án efa landa góðum bandarískum leik- manni. Nóg er framboðið og sagan segir að frábærir leikmenn séu tilbúnir að leika fyrir nánast ekki neitt. At- vinnulið á meginlandi Evrópu hafa átt í fjárhagsvandræðum og miklar svipt- ingar eiga sér stað á leikmannamark- aðinum á næstu tveimur til þremur vikum. Nýr leikmaður gæti breytt miklu hjá Tindastóli ÍR, Hamar og Tindastóll munu berj- ast um sæti 7-8, en átta efstu liðin kom- ast í úrslitakeppnina. ÍR er með fínt lið á „pappírnum“ en það hefur ekki skilað sér í baráttuna úti á vellinum. Tvíeykið Marvin Valdimarsson og Andre Dab- ney halda sóknarleik Hamars á floti en þeir eru í 2. og 3. sæti yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar. Vandamál Hamars er að liðið er ekki líklegt til af- reka þegar skytturnar tvær eiga slæma leiki. Tindastóll rak á dögunum banda- ríska leikmanninn Amani Bin Daanish en hann afrekaði það að vera rekinn frá tveimur liðum á aðeins tveimur mánuðum – en hann landaði einum titli með Grindavík í fyrirtækjabik- arkeppninni. Tindastóll mun eflaust reyna að krækja í góðan bandarískan leikmanna á næstu vikum. Ef þeir hafa heppnina með sér er aldrei að vita nema að liðið nái sér á strik á síðari hluta deildarinnar. Fjölnir og Breiðablik eru bæði með 4 stig eftir 11 leiki. Það er nokkuð ljóst að þessi lið munu berjast um að forðast fall í 1. deild. Fjölnisliðið er með áhugaverða leikmenn í sínum röðum. Má þar nefna Ægi Þór Steinarsson sem er í öðru sæti á stoðsendingalist- anum. Breiðablik á ekki leikmann sem kemst á topp 10 lista í stigaskorun, frá- köstum eða stoðsendingum. Justin Shouse í sérflokki? Erlendir leikmenn setja svip sinn á deildina líkt og áður. Að mínu mati er Justin Shouse, leikmaður Stjörnunnar, sá leikmaður sem flest lið væru til í að hafa í sínum röðum. Shouse er klókur og stýrir einföldum sóknarleik Stjörn- unnar af festu. Hann er stigahæsti leikmaður deildarinnar en að auki er hann í fimmta sæti yfir þá sem gefa flestar stoðsendingar. Varnarleikurinn vefst ekki fyrir Shouse frekar en öllu Stjörnuliðinu. seth@mbl.is Spennan magnast Morgunblaðið/hag Skytta Justin Shouse, leikstjórnandi Stjörnunnar, kann vel við sig á toppi Iceland Express-deildarinnar.  Sex lið skera sig úr í úrvalsdeild karla í körfubolta  Fjölnir og Breiðablik á hættusvæði  Fátt getur bjargað FSu  Erlendir leikmenn gætu breytt miklu Á VELLINUM Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson Úrvalsdeild kvenna 1. Hildur Sigurðardóttir KR 6,1 2. Sakera Young Valur 5,3 3. Heather Ezell Haukar 4,6 4. Bryndís Guðmundsd. Keflavík 3,9 5. Shantrell Moss Njarðvík 3,8 6. Margrét Kara Sturludóttir KR 3,7 7. Kristen Green Snæfell 3,7 8. Ingibjörg Jakobsdóttir Grindavík 3,3 9. Kristi Smith Keflavík 3,2 10. Koren Schram Hamar 3 Hildur Sigurðardóttir Úrvalsdeild kvenna 1. Ragna M. Brynjarsdóttir Haukar 11,9 2. Signý Hermannsdóttir KR 11,4 3. Harpa Hallgrímsdóttir Njarðvík 10,4 4. Helga Hallgrímsdóttir Grindavík 10,2 5. Heather Ezell Haukar 10,1 6. Bryndís GuðmundsdóttirKeflavík 9,4 7. Shantrell Moss Njarðvík 9,4 8. Helga Jónasdóttir Njarðvík 9,3 9. Michele DeVault Grindavík 9,3 10. Hrund Jóhannsdóttir Valur 9,2 Ragna M. Björnsdóttir Úrvalsdeild kvenna 1. Heather Ezell Haukar 31,5 2. Shantrell Moss Njarðvík 28,3 3. Kristen Green Snæfell 22,5 4. Koren Schram Hamar 20,1 5. Michele DeVault Grindavík 19,3 6. Kristi Smith Keflavík 17,7 7. Margrét Kara Sturludóttir KR 16,9 8. Sigrún S. Ámundadóttir Hamar 15,4 9. Birna I. Valgarðsdóttir Keflavík 14 10. Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík 13,9 Heather EzellSean Burton Flestar stoðsendingar aðmeðaltaliFlest fráköst að meðaltaliFlest stig að meðaltalið meðaltali Úrvalsdeild karla Staðan: Stjarnan 11 9 2 951:860 18 Njarðvík 11 9 2 942:793 18 KR 11 9 2 1020:900 18 Keflavík 11 8 3 973:836 16 Grindavík 11 7 4 996:865 14 Snæfell 11 7 4 1010:883 14 ÍR 11 5 6 908:945 10 Hamar 11 4 7 902:948 8 Tindastóll 11 4 7 915:944 8 Breiðablik 11 2 9 829:974 4 Fjölnir 11 2 9 837:976 4 FSu 11 0 11 706:1065 0 Morgunblaðið skoðar stöðuna í körfuknattleiknum í árslok

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.