Morgunblaðið - 23.12.2009, Síða 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 2009
SVISSLENDINGURINN Roger
Federer og Serena Williams frá
Bandaríkunum voru í gær útnefnd
tennisfólk ársins af Alþjóðatennis-
sambandinu. Þetta er í fimmta
skipti sem Federer verður fyrir val-
inu og í annað sinn sem Serena
hreppir þessa viðurkenningu.
Federer átti frábært ár á tenn-
isvellinum og hann vann sitt 15.
risamót á árinu þegar hann bar sig-
urorð á Wimbledon mótinu. Hann komst þar með upp
fyrir Pete Sampras sem vann 14 risamót á ferli sínum.
,,Það er mikill heiður að vera valinn tennismaður
ársins í fimmta sinn. Þetta var magnað ár hjá mér,
bæði innan vallar sem utan,“ sagði
hinn 28 ára gamli Federer. ,,Að vera
búinn að vinna flest stórmót allra
tennismanna frá upphafi og að kom-
ast á topp stigalistans að nýju er
frábært og það hefur mikla þýðingu
fyrir mig að enda árið á toppnum.“
Serena vann tvö risamót í einliða-
leik á árinu en hún fagnaði sigri á
Wimbledon mótinu og Opna ástr-
alska mótinu og hún hefur á ferli
sínum borið sigur úr býtum á 11 risamótum. Þá voru
Serena og Venus systir hennar valdar tvíliðapar ársins
í kvennaflokki, en þær systur hafa unnið tíu stórmót á
ferlinum í tvíliðaleik. gummih@mbl.is
Federer og Williams best á árinu
Roger
Federer
Serena
Williams
ELMAR Dan Sigþórsson knatt-
spyrnumaður, fyrrverandi fyrirliði KA,
er genginn til liðs við norska 2. deildar
liðið Førde. Elmar lék með Tornado
Måløy í norsku 3. deildinni á síðustu
leiktíð og átti eitt ár eftir af samningi
sínum við félagið en Førde náði sam-
komulagi við Tornado Måløy um að fá
Akureyringinn í sínar raðir.
,,Þetta er góð jólagjöf fyrir félagið að
fá Elmar Dan til liðs við okkur. Við átt-
um viðræður við Tornado Måløy og þar
kom fram að það vildi helst ekki missa
hann en þegar Elmar gaf það út að hann
vildi spila með Førde þá gaf félagið eft-
ir,“ segir Odd Hagen formaður Førde
við norska vefmiðilinn firda.no.
Elmar verður löglegur með Førde frá
og með 1. janúar en hann er 27 ára gam-
all varnarmaður sem lengst af sínum
ferli hefur leikið með KA og var þar fyr-
irliði um skeið. Hann hefur einnig leikið
með Fjarðabyggð og Víkingi Reykjavík.
Hjá Førde hittir Elmar Dan fyrir fyrr-
verandi samherja sinn með KA en það
er norski framherjinn Steinar Tenden
sem lék með KA-mönnum í efstu deild
sumarið 2003 og skoraði 9 mörk fyrir
liðið í 18 leikjum og var markahæsti
leikmaður liðsins. gummih@mbl.is
Elmar upp um deild í Noregi
„ÉG hef bara tekið þann pól í hæðina að vera bjart-
sýnn og einbeita mér að handknattleiknum. Okkur
hefur gengið vel inni á leikvellinum það sem af er
keppnistímabilinu þrátt fyrir að á ýmsu hafi gengið
utan vallar,“ segir Guðmundur Þórður Guðmunds-
son, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins GOG.
Rekstur félagsins hefur verið mjög þungur síðustu
mánuði og ljóst að leikmenn verða að taka á sig á
milli 25 og 30% launalækkun sem er á meðal aðgerða
sem liggja nú fyrir til þess að bjarga félaginu frá
gjaldþroti. Fleiri hugmyndir um sparnað í rekstri eru
til athugunar. Í gær samþykkti stjórn félagsins að-
gerðaráætlun sína til björgunar á félaginu. Á næstu
dögum er reiknað með að gengið verði frá nýjum
samningum við alla leikmenn þar sem m.a. er kveðið
á um fyrrgreinda launalækkun.
Auk Guðmundur Þórðar er Ásgeir Örn Hall-
grímsson landsliðsmaður á mála hjá félaginu en GOG
seldi Snorra Stein Guðjónsson til Rhein-Neckar Lö-
wen í haust.
Þrátt fyrir erfiðleika utan vallar hefur liðinu geng-
ið vel á leiktíðinni. Það er í fjórða sæti úrvalsdeildar
með 22 stig að loknum 15 leikjum og er aðeins einu
stigi á eftir FCK og Kolding sem eru í öðru og þriðja
sæti, og sex stigum á eftir Bjerringbro/Silkeborg
sem trónir á toppnum.
„Vissulega hafa slæmar fregnir af stöðu félagsins
haft sín áhrif á leikmenn en sem betur fer hefur þeim
tekist að einbeita sér að því að leika handknattleik
þrátt fyrir erfiða stöðu,“ sagði Guðmundur Þórður
Guðmundsson. iben@mbl.is
Einbeiti
mér að
hand-
knatt-
leiknum
Aðgerðir í gangi til að
bjarga GOG frá gjaldþroti
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Erfiðleikar Guðmundur Þ. Guðmundsson hefur náð góðum árangri með lið GOG í vetur þrátt fyrir
afar erfiða fjárhagsstöðu félagsins. Lið hans er í fjórða sætinu, stigi á eftir liðinu sem er númer tvö.
Birkir Bjarna-son, leik-
maður með 21-árs
landsliði Íslands í
knattspyrnu, hef-
ur verið útnefnd-
ur „Víkingur árs-
ins“ í kosningu
lesenda Roga-
lands Avis, sem
kusu hann þar með besta leikmann
úrvalsdeildarliðsins Viking frá Stav-
anger á árinu 2009. Birkir lék alla 30
leiki liðsins í úrvalsdeildinni og skor-
aði 7 mörk. Í umfjöllun blaðsins seg-
ir að Birkir hafi verið einn af fáum
leikmönnum sem stóðu upp úr í ann-
ars bitlausu liði Viking á árinu. Kjör
hans komi því ekki á óvart en Birkir
fékk 34 prósent atkvæða frá lesend-
um. Annar varð Thomas Myhre,
fyrrum landsliðsmarkvörður Nor-
egs, með 29 prósent atkvæða.
Portúgalska knattspyrnukonanJoana Rita Nunes Pavao, sem
hefur leikið með ÍR undanfarin þrjú
ár, er gengin til liðs við FH, nýliðana
í úrvalsdeildinni, og samdi í gær við
þá til eins árs. Joana er 33 ára gömul
og hefur leikið þrjá landsleiki fyrir
Portúgal en hún lék með Sporting
Huelva á Spáni áður en hún kom til
ÍR. Landa hennar, Liliana Martins,
kom einnig til FH frá ÍR fyrr í vetur,
en þær voru samherjar hjá ÍR,
Sporting Huelva og 1. Dezembro í
Portúgal.
Kári KristjánKrist-
jánsson skoraði
tvö mörk fyrir
Amicitia Zürich
þegar liðið tapaði
á útivelli fyrir
Wacker Thun,
23:21, í A-deild
svissneska hand-
knattleiksins í fyrrakvöld. Þetta var
lokaumferð deildarinnar á þessu ári
en þráðurinn verður tekinn upp að
loknu Evrópumeistaramótinu í byrj-
un febrúar. Amicitia er í þriðja sæti
með 24 stig að loknum 17 leikjum.
Björgvin Páll Gústavsson og sam-
herjar í Kadetten eru efstir með 31
stig eftir 17 leiki. Þeir léku ekki í
fyrrakvöld.
Níundi þjálfarinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu var lát-
inn poka sinn á þessu tímabili í gær
þegar Udinese rak Pasquale Marino
og réð í hans stað Gianni De Biasi.
Udinese fór vel af stað á tímabilinu
undir stjórn Marino en heldur hefur
hallað undan fæti hjá liðinu síðustu
vikurnar.
Bandaríski knattspyrnumaðurinnLandon Donovan er kominn
með atvinnuleyfi á Bretlandseyjum
og getur þar með farið frá LA Ga-
laxy sem lánsmaður til Everton um
áramótin.
Donovan, sem er 27 ára gamall
framherji og mesti markaskorari
bandaríska landsliðsins frá upphafi,
kemur til Everton 2. janúar og dvel-
ur hjá liðinu í hálfan þriðja mánuð,
eða fram í miðjan mars.
Fólk sport@mbl.is
MAGNAÐASTA „endurkoma“ hjá liði í NBA-
deildinni í körfuknattleik í þrettán ár átti sér
stað í Chicago í fyrrinótt. Leikmenn Chicago
Bulls virtust stefna í stórsigur gegn Sacramento
Kings því þegar þrjár mínútur voru liðnar af síð-
ari hálfleik var staðan 79:44, þeim í hag. Mun-
urinn var 35 stig og slíkt forskot ætti allajafna
að vera óvinnandi.
En hvort sem leikmenn Sacramento Kings
voru of ungir til að átta sig á slíkum „stað-
reyndum“, eða heimamenn gerðust of værukær-
ir, þá sneru gestirnir blaðinu við. Þeir jöfnuðu
metin þegar tæplega tvær mínútur voru eftir af
leiknum og knúðu síðan fram frækinn sigur,
102:98. Þetta var aðeins þriðji
útisigur Kings í fjórtán úti-
leikjum á þessu tímabili. Liðið
er þó komið með 13 sigra í
fyrstu 27 leikjum sínum í
deildinni.
Síðast gerðust önnur eins
undur og stórmerki árið 1996
þegar leikmenn Utah Jazz
unnu upp 36 stiga forskot
Denver Nuggets.
„Ég hélt að þetta yrði löng
og leiðinleg heimferð, en nú verður þetta
skemmtilegasta heimferð nokkru sinni,“ sagði
Gavin Maloof, eigandi Kings, við fréttamenn
þegar hann kom útúr búningsklefa liðsins eftir
leikinn. „Tyreke Evans er alvöru leikmaður,“
bætti hann við en nýliðinn Evans gerði 23 stig í
leiknum og skoraði 11 stig sjálfur gegn þremur
stigum Chicago á lokakafla leiksins.
„Við erum ekki nógu góðir til að slaka á í eina
mínútu, hvað þá í heilan hálfleik. Við hættum að
spila af krafti, hættum að sækja, og þegar liðum
er hleypt inn í leik á þennan hátt fá þau mikið
sjálfstraust,“ sagði Vinny Del Negro, þjálfari
Chicago en lið hans náði aðeins að skjóta að
körfu Kings 10 sinnum í fjórða leikhluta, og
skoraði úr tveimur skotum. vs@mbl.is
Mögnuð endurkoma hjá Kings
Sacramento var 35 stigum undir í Chicago Vann samt leikinn, 102:98
Tyreke
Evans