Ísfirðingur


Ísfirðingur - 08.01.1960, Blaðsíða 4

Ísfirðingur - 08.01.1960, Blaðsíða 4
 Happdrætti r Islands Sala hlutamiða hefur aldrei verið eins mikil og á árinu 1959. Hefur því verið ákveðið að fjölga miðum á næsta ári um 5,000 upp í 55,000. Jafnframt verður vinningum fjölgað sem hér segir: 6 á 10.000 kr. 94 - 5.000 — 1.150 - 1.000 — Vinningar verða samtals 13,750 þannig að sama vinningshlut- fall helzt, að fjórði hver miði hlýtur vinning að meðaltali. Vinningar ársins skiptast þannig: 2 vinningar á 500.000 1.000.000 kr. 11 — - 100.000 1.100.000 — 13 — - 50.000 650.000 — 102 — - 10.000 1.020.000 — 272 — - 5.000 1.360.000 — 13.350 — - 1.000 13.350.000 — Samtals 18.480.000 kr. Lægsti vinningur er eitt þúsund krónur. Verð miðanna er óbreytt 1/1 hlutur 40 kr. mánaðarlega 1/2 — 20 — — 1/4 — 10 — — Viðskiptamenn hafa forkaupsrétt að númerum sínum til 10. janúar. Sala miða og enaurnýjun stendur nú sem hæst. Dregið í 1. flokki 15. janúar. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLANDS Umboðið á ísafirði JONA§ AR TO MAS S OMAR Hvað er í fréttum? Hjúskapur. Gefin hafa verið saman í hjóna- band: Þann 14. nóv. s.l. frk. Ágústa Guðmundsdóttir, verzlunarmær, Reykjavík. og Ólafur Gunnarsson, verkfræðingur. (Jóh. Gunnars Ól- afssonar, bæjarfógeta). 12. des. frk. Astrid Hammers- land og Sigurður Árni Jónsson, bóndi, Eyri, Skötufirði. 20. des. frk. Bára Guðmunds- dóttir og Haraldur Olgeirsson, skipstjóri, Hnífsdalsvegi 13, ísaf. 25. des. frk. Olga Ásbergsdóttir, skrifstofust., ísaf., og Jóhann Bjarnason, sjóm. Suðureyri. Sama dag, frk. Erna Magnús- dóttir, Isaf. og Helgi Geirmunds- son, verkam., Hnífsdal. Sama dag, frk. Þ'óra Gestsdóttir, Dalvík, og Hans Haraldsson, stud. öcon., Isafirði. 26. des. frk. Guðný Hermanns- dóttir og Halldór Geirmundsson, Hnífsdal. 31. des. frk. Pálína Snorradóttir, kennari, og lsak E. Jónsson, kenn- ari, Isafirði. Andlát. Sigurrós Helgadóttir, Tangagötu 32, Isafirði, andaðist í Fjórðungs- sjúkrahúsinu hér í bænum 20. f. m., 65 ára gömul. Hún var ekkja Hjartar Ólafssonar, trésmiðs, en hann dó 1930. Þau eignuðust 3 syni sem allir eru búsettir hér í bænum, — þá, Gunnar, verka- mann, Ólaf, verkamann og Helga, verzlunarmann. Sigurrós var dótt- ir hins kunna borgara Helga Sig- urgeirssonar, gullsmiðs, sem flestir eldri bæjarbúar muna eft- ir. Sigurrós var hin mesta myndar- og skapfestukona. Sveinbjörn Benediktsson. Þann 23. des. s.l. kl. rúml. 1 e. h. fór Sveinbjörn Benediktsson, for- maður og útgerðarmaður, Silfur- götu 8 hér í bænum að heiman frá sér, og ætlaði um borð í bát sinn, Mumma ÍS 505, sem lá við bæjar- bryggjuna. Sagði-hann konu sinni að hann myndi koma heim aftur um kl. 3. Um kl. 3,30 fór Valde- mar, sonur Sveinbjarnar, um borð í bátinn, og var Sveinbjörn þar ekki, en vélin var í gangi og ljós á bátnum. Nokkru síðar var haf- in leit, og daginn eftir var kafað við bryggjuna og slætt í höfninni. Síðan hefur verið af og til leit- að, og 6. þ. m. var kafað aftur, en allt án árangurs. Talið er, að Sveinbjörn muni hafa fengið aðsvif og fallið út- byrðis er hann var að vinna á þil- fari bátsins. Sveinbjörn var fæddur 24. des. 1906 og hefði því orðið 53 ára gamall á aðfangadag jóla. Hann var hinn mesti elju- og dugnaðar- maður og drengur góður. Sveinbjörn var giftur Guðrúnu Guðmundsdóttur, og áttu þau eina kjördóttur, Kolbrúnu, sem er 12 ára gömul. Áður en Sveinbjörn giftist eign- aðist hann son, Valdimar, sem áð- ur er nefndur, og er hann 28 ára gamall. Ervin Reinsch, sjómaður frá Bremerhaven, andaðist í Fjórð- ungssjúkrahúsinu hér í bænum 19. nóv. s.I. o o o Upplýst æfingasvæði fyrir skíðafólk Ljósum hefir verið komið fyrir á túninu fyrir innan Tungubæinn. Allir sem skíði eiga ættu að not- færa sér þetta, meðan snjór er. FRAMSÓKNARVIST Framsóknarvist verður spiluð í Góðtemplarahúsinu sunnu- dagskvöldið 10. þ. m. kl. 9. Skemmtineíndin. Mínar beztu þakkir færi ég „Lionsklúbb ísaf jarðar“ og „Verka- lýðsfélaginu Baldri“ fyrir rausnarlegar gjafir, sem mér voru færðar nú fyrir jólin. Einnig vil ég að öðrum ógleymdum þakka Ragnari Ásgeirs- syni, héraðslækni, fyrir sérstaka velvild í minn garð. Isafirði, 4. janúar 1960. Sigurður J. Jóhannsson.

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.