Ísfirðingur - 18.01.1962, Síða 2
2
ISFIRÐINGUR
l^sfirilu0or
/ vtimAKViuóiHXHi
Útgcfandi:
Samband Framsóknarfélaganna
í Vestfjarðakjördæmi
Ritstjórar:
Halldór Kristjánsson og
Jón Á. Jóhannsson, áb.
Afgreióslumaóur:
Guðmundur Sveinsson
Engjaveg 24 - Sími 332
Aflabrögd
Framhald af 4. síðu.
Bíldudalur. Vb. Andri var eini
báturinn, sem þaðan gekk. Aflaði
hann 139 lestir í mánuðinum í 16
sjóferðum. Togskipið Pétur Thor-
steinsson mun og hefja veiðar
bráðlega. — Fjórir bátar voru á
rækjuveiðum í desember. Einn
þeirra, 20 lesta bát, keypti Bjarni
Jörundsson o. fl., en þeir áttu áð-
ur vélbátinn Jörund Bjarnason, en
hann var seldur úr plássinu s.l.
sumar. Rækuveiðibátarnir þarna
öfluðu sæmilega.
Þingeyri. Aflahæsti báturinn
þar var vb. Hrafnkell frá Nes-
kaupstað, leigubátur Hraðfrysti-
húss Dýrfirðinga, með 155 lestir
í 20 sjóferðum, Fjölnir með 117
lestir í 18 sjóferðum, Þorbjöm
110 lestir í 18 sjóferðum, Þorgrím-
ur 107 lestir í 18 sjóferðum.
Flateyri. Vb Ásgeir Torfason
135 lestir í 20 sjóferðum, Einar
Þveræingur 119 lestir í 20 sjó-
ferðum, Víkingur frá Bolungarvík
(leigubátur) 119 lestir í 20 sjó-
ferðum, Hinrik Guðmundsson
102,5 lestir í 17 sjóferðum.
Suðureyri. Vb. Draupnir 128,7
lestir í 16 sjóferðum, Júlíus
Björnsson frá Dalvík (leigubátur)
116,7 lestir í 15 sjóferðum, Há-
varður 111,7 lestir í 16 sjóferðum,
Friðbert Guðmundsson 105,2 lestir
í 14 sjóferðum (tafðist vegna bil-
unar), Gyllir, 27 lesta með 6 mönn-
um, 45 lestir í 10 sjóferðum. —
Bátar þarna gerðu uppihald á veið-
um sínum frá 20. desember og
fram yfir áramót.
Bolungarvík. Stærri bátarnir:
Vb. Þorlákur 139,3 lestir, Einar
Hálfdáns 136,7 lestir í 17 sjóferð-
um, Heiðrún 130,8 lestir í 19 sjó-
ferðum, Hugrún 108 lestir í 17
sjóferðum. — Miðbátamir með 5
til 6 mönnum: Hrímnir 52 lestir
í 18 sjóferðum, Húni 51,8 lestir í
22 sjóferðum, Sigurfari 31,7 lestir
í 16 sjóferðum, Geirúlfur 21,7 lest-
ir í 15 sjóferðum, Haukur 27 lestir
í 16 sjóferðum. Loks smábátar:
Snæbjörn 8000 kg. í 14 sjóferðum,
Sjöfn 7500 kg. í 14 sjóferðum,
Fákur 6500 kg. í 15 sjóferðum.
Bolungarvíkurbátar gerðu uppi-
hald á sjóferðum 21. desember.
Hnífsdalur. Vb. Rán fékk 148
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllllllllllll■lllllllllllllllllllll!IIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII•llllllllllllllllllll
( Aðvörun!
Bæjarbúar eru hér með aðvaraðir við samneyti við útlendinga |
| af þýzkum eða brezkum skipum. |
Um þessar mundir gengur bólusótt í nokkrum stöðum í |
Þýzkalandi og Bretlandi, og er því hugsanlegt að um smit- |
1 hættu geti verið að ræða. |
| Isafirði, 18. janúar 1962. |
| HEILBBIGÐISNEFND. |
>lllllllltlll»llllllllllllll>«llltl»llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllltIIIIV'llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllÍÍ
iiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiÉuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiyiiiiiiiiiiiiiiiJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
| Frá pósti og síma, Isafirði: |
| T v æ x* stiilknp
| á aldrinum 17—25 ára með gagnfræðapróf eða hliðstæða mennt- |
1 un, verða ráðnar við talsímaafgreiðslu við símastöðina á ÍSA- |
| FIRÐI, frá 1. apríl 1962, eða við talsímakonunám frá 1. febrúar |
| 1962. |
| Eiginhandarumsóknir, þar sem getið sé aldurs og menntunar, |
1 sendist mér fyrir 31. janúar 1962. |
| SÍMASTJÓRINN ISAFIBÐI. |
iTiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
IðgjalilaMkoii
Iðgjöld samlagsmanna hækka í 55 krónur á mánuði |
| frá 1. janúar 1962. |
— 2
| ísafirði, 3. janúar 1962. |
| SJUKRASAMLAG ISAFJABÐAE.
■ m
— —
— 2
llllll■lllll■lllllllllll■lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll(|||>l|||||■ iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiTi
lestir í 19 sjóferðum, Mímir 139,5
lestir í 19 sjóferðum, Páll Pálsson
128,7 lestir í 19 sjóferðum, Einar,
18 lesta bátur með 5 mönnum,
47.5 lestir í 16 sjóferðum. — Auk
þessara báta lagði mb. Vinur upp
37 lestir af ýsu í hraðfrystihúsið
þ.arna, en afganginn á stöð ísfirð-
ings h.f. ísafirði, og er afli hans
talinn með ísafjarðarbátum.
Isafjarðarbær. Vb. Guðbjörg
fékk 186,3 lestir i 21 sjóferð. —
Guðbjörg er að vanda metbátur í
fjórðungnum. Guðbjartur Kristján
166.5 lestir í 19 sjóferðum, Gunn-
vör 148,1 lest í 18 sjóferðum,
Ilrönn 137,2 lestir í 20 sjóferðum,
Guðný 136,4 lestir í 19 sjóferðum,
Vinur 131,8 lestir í 19 sjóferðum,
Gunnhildur 131 lest í 19 sjóferð-
um, Víkingur II. 130 lestir í 17
sjóferðum, Straumnes 129 lestir í
19 sjóferðum, Ásúlfur 119,3 lestir
í 18 sjóferðum, Gylfi byrjaði 17.
desember, 51 lest í 8 sjóferðum.
Aðeins einn rækjuveiðibátur, Svan-
ur l.S. 398, stundaði rækjuveiðiar
nokkurnveginn að staðaldri, en
aflaði sáralítið.
Súðavík. Vb. Svanur fékk 134,1
lest í 18 sjóferðum, Trausti 118,2
lestir í 18 sjóferðum, Sæfari 102
lestir í 18 sjóferðum.
Trúlofunarhringar, margar gerðir.
Allt silfur á upphluti, fyrir full-
orðna og börn. Hálsmen, armbönd,
eyrnalokkar, krossar, stokkabelti
hnappar, brjóstnálar, skúfhólka,
kápu- og frakkaskildir, plötu- og
steinhringar, gull og silfur, knipp-
lingar, hvítir og gylltir, og margt
fleira. — Hreinsa og gylli silfur-
muni. Fljót og góð afgreiðsla.
Munið að íslenzki búningurinn er
fallegasti þjóðbúningur í heimi.
Póstsendi um land allt.
Höskuldur Ámason, gullsmiður,
Silfurgötu - Isafirði.
Steingrímsfjörður. Fjórir hæstu
bátarnir öfluðu sem hér segir: Vb.
Guðmundur frá Bæ 46 lestir í 9
sjóferðum, Hilmir 38 lestir í 8
sjóferðum, Farsæll 36 lestir í 8
sjóferðum, Sigurfari 33 lestir í 6
sjóferðum. Aflahæsti trillubátur-
inn fékk 18 lestir í 9 sjóferðum.
Drangsnesbátarnir tveir eru sagð-
ir með um 40 lestir hver.
Veljið
NÚTÍMA
saumavél með
frjálsum armi
Frjálsi armurinn auðveldar yður
stórum sauma, þar sem ella er
erfitt að komast að, t.d. við að
sauma í ermar, bæta drengjabux-
ur o.fl.
Aðeins HUSQVARNA vélar með
frjálsum armi hafa þessa undra-
verðu kosti:
★ Skyttu, sem ekki flækir,
★ Hraðaskiptingu,
★ Langan, granman, frjálsan
arm,
★ Flytjara, sem getur verið
hlutlaus.
—1
Husqvarna Rotary
Saumavél með frjálsum armi fyrir
venjulegan saum.
Verð kr. 5.990,00.
Husqvarna Zig-Zag
Ódýr saumavél með frjálsum armi
og sjálfvirk að nokkru leyti.
Verð kr. 7.700,00.
Husqvarna Automatic
Automatisk saumavél með frjáls-
um armi, saumar beinan saum og
zig-zag auk fjölda mynztra.
Verð kr. 9.630,00.
Kennsla fylgir með í kaupunum.
Kjartan R. Guðmundsson
Mánagötu 2 - ísafirði
Sími 117