Morgunblaðið - 05.01.2010, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
íþróttir
Krísa Alex Ferguson beitir væntanlega „hárþurrkunni“ á sína menn þessa dagana.
Tveir ósigrar Manchester United á Old Trafford með stuttu millibili 4
Íþróttir
mbl.is
„ÉG er klár í slaginn og hlakka til að takast
á við þetta verkefni,“ sagði Gunnar Sverris-
son í gær en hann hefur verið ráðinn þjálf-
ari karlaliðs ÍR í körfuknattleik. Gunnar
tekur við af Jóni Arnari Ingvarssyni sem
hætti í lok sl. árs af persónulegum ástæð-
um.
Jón Arnar hafði þjálfað lið ÍR frá tíma-
bilinu 2006-2007 og undir hans stjórn varð
liðið bikarmeistari í Subwaybikarnum. ÍR-
ingar eru í 7. sæti úrvalsdeildarinnar eftir
leiknir í Kennaraháskólanum þar sem liðið
æfir tvisvar í viku. „Við æfum líka í Selja-
skólanum og Breiðholtsskóla. Það tekur
töluvert á fyrir liðið að æfa nánast aldrei á
sama staðnum og á mismunandi undirlagi.
Vonandi fá ÍR-ingar íþróttahús við félags-
heimilið í Mjódd á allra næstu misserum,“
bætti Gunnar við.
Fyrsti leikur ÍR undir stjórn Gunnars
verður gegn Njarðvík á útivelli þann 11.
janúar. seth@mbl.is
krossbandi. „Það hefur gengið á ýmsu hjá
ÍR í vetur. Sveinbjörn meiðist og Eiríkur
Önundarson kemur seint inn í þetta vegna
meiðsla á hné. Ég hlakka til að fá tækifæri
með þetta lið,“ sagði Gunnar en hann er yf-
irþjálfari yngri flokka ÍR og þjálfar sjálfur
þrjá yngri flokka.
Æfa út um alla borg
ÍR-ingar æfa út um alla borg eins og
þjálfarinn orðar það. Heimaleikir liðsins eru
ellefu umferðir af 22 og hafa unnið fimm af
ellefu leikjum sínum. Gunnar þjálfaði lið
Þórs frá Akureyri í úrvalsdeildinni veturinn
1997-1998 þar sem liðið endaði í 11. sæti af
alls 12. Hann þjálfaði lið ÍR í hálfan vetur
ásamt Jóni Erni Guðmundssyni 2005-2006.
ÍR-ingar eru í 7. sæti deildarinanr með
10 stig að loknum 11 leikjum. Landsliðs-
maðurinn Sveinbjörn Claessen meiddist illa
á hné í upphafi tímabilsins og verður hann
ekkert með liðinu í vetur eftir aðgerð á
Hlakka til að fá þetta tækifæri
Gunnar Sverrisson ráðinn þjálfari ÍR-inga Tekur við af Jóni Arnari Fyrsti leikur gegn Njarðvík
SÆNSKA knattspyrnufélagið Kristianstad til-
kynnti í gær að það hefði gert nýja tveggja
ára samninga við íslensku landsliðskonurnar
Margréti Láru Viðarsdóttur, Erlu Steinu Arn-
ardóttur og Guðnýju Björk Óðinsdóttur. El-
ísabet Gunnarsdóttir þjálfari samdi fyrir
nokkru við félagið að nýju til tveggja ára.
Erla Steina hefur leikið með Kristianstad
frá haustinu 2007 þegar hún tók þátt í loka-
spretti liðsins í 1. deild. Hún hefur síðan leikið
með því í úrvalsdeildinni undanfarin tvö tíma-
bil og leikið 42 af 44 leikjum liðsins á þeim
tíma, hvern einasta í byrjunarliði, og skorað 3 mörk.
Guðný Björk kom til Kristianstad frá Val fyrir ári.
Hún lék alla 22 deildaleiki liðsins á árinu 2009,
alla í byrjunarliði.
Margrét Lára kom til Kristianstad frá Lin-
köping í júlí og spilaði níu síðustu leiki þess í úr-
valsdeildinni, alla í byrjunarliði, og skoraði eitt
mark.
Ulf Berglund, íþróttastjóri Kristianstad, lýsti
yfir mikilli ánægju með íslensku leikmennina á
vef félagsins í gær. Hann sagði að Erla væri
mikill leiðtogi og komin í hóp þeirra reyndustu í
liðinu, Guðný setti svip sinn á allar æfingar og
alla leiki með ákveðni og vinnusemi, og Margrét
Lára ætti mikið inni eftir að hafa spilað meidd allt síð-
asta tímabil. vs@mbl.is
Margrét, Erla og Guðný
sömdu við Kristianstad
Margrét Lára
Viðarsdóttir
HREIÐAR Levy Guðmundsson er annar tveggja
markvarða íslenska landsliðsins í handknattleik
sem leikur í úrslitakeppni Evrópumótsins í Aust-
urríki 19.-31. janúar.
Hreiðar er 29 ára gamall, fæddur 29. nóvember
1980. Hann hefur spilað 88 A-landsleiki fyrir Ís-
lands hönd og skorað í þeim 2 mörk. Hann var í
liðinu sem fékk silfurverðlaunin á ÓL í Peking
2008.
Hreiðar er ÍR-ingur að upplagi og lék með
meistaraflokki ÍR til ársins 2005. Hann var tvö ár
norðan heiða og lék með KA og síðan Akureyri.
Þaðan fór hann 2007 til Sävehof í Svíþjóð og síð-
asta sumar til Emsdetten í Þýskalandi. Þar er hann með liði sínu í baráttu
um sæti í efstu deild en Emsdetten er í öðru sæti norðurriðils 2. deildar.
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER EFTIR 14 DAGA
Hreiðar Levy Guðmundsson
STUTTUR og snarpur undirbún-
ingur karlalandsliðsins í handknatt-
leik fyrir Evrópumótið í Austurríki
hófst í gærmorgun. Það eru aðeins
tvær vikur í fyrsta leikinn á mótinu
en hann er gegn Serbum í Linz
þriðjudaginn 19. janúar. Fram að
þeim tíma æfir íslenska liðið stíft og
spilar fimm landsleiki, þann síðasta
aðeins tveimur dögum fyrir Serb-
aleikinn.
Íslenska liðið kom saman í nýja
handboltasalnum í Kórnum í Kópa-
vogi. Einum leikmanni var bætt við
hópinn í gær en það er Rúnar Kára-
son, leikmaður Füsche Berlín. Þar
með skipa 18 leikmenn hópinn en
sextán fara til Austurríkis. Reyndar
verður hægt að bæta við allt að
þremur leikmönnum þegar líður á
keppnina. Eins og áður hefur komið
fram eru Þórir Ólafsson og Logi
Geirsson að jafna sig af meiðslum.
Þeir voru báðir á æfingunni í gær en
það skýrist á næstu dögum hvort
þeir verði leikfærir í tæka tíð.
Ísland leikur fyrst við Serbíu, síð-
an við Austurríki og loks við Dan-
mörku í Linz en þrjú efstu liðin kom-
ast í milliriðil. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
Varið? Björgvin Páll Gústavsson markvörður freistar þess að verja frá Arnóri Atlasyni á æfingu í gær. Alexander Petersson fylgist grannt með.
Tvær vikur
í leikinn
við Serba