Morgunblaðið - 05.01.2010, Page 2
ÍSLENSKA U20 landsliðið í íshokkíi karla vann í gær
öruggan sigur á Taívan í fyrsta leik liðsins í 3. deild heim
meistaramótsins í íshokkíi sem þá hófst í Istanbúl í Tyrk
landi. Leiknum lauk með því að íslenska liðið gerði 11 m
gegn einu marki Taívan.
Fyrirfram var ekki gert ráð fyrir að mótstaða taívans
liðsins yrði mikil. Ísland hafði allan tímann yfirhöndina í
leiknum sem var mjög hraður en greinilegur munur var
tæknilegri getu liðanna.
Lotur leiksins fóru 2:0, 5:0 og 4:1 en skot á mark eftir
um voru 11:5, 11:7 og 13:10. Taívanar komust nálægt því
skora strax í fyrstu lotu þegar íslenska liðið fékk dæmt á
víti en Ævar Þór Björnsson markvörður gerði sér lítið fy
og varði vítaskotið. Íslenska liðið komst í 11:0 áður en T
anar náðu að komast á blað fimm mínútum fyrir leiksl
Josh Gribben, þjálfari íslenska liðsins, nýtti tækifæ
1956 – Vil
1957 – Vilh
1958 – Vil
1959 – Val
1960 – Vil
1961 – Vilh
1962 – Gu
1963 – Jón
1964 – Sig
1965 – Val
1966 – Ko
1967 – Gu
1968 – Ge
1969 – Gu
1970 – Erl
1971 – Hja
1972 – Gu
1973 – Gu
1974 – Ásg
1975 – Jóh
1976 – Hre
1977 – Hre
1978 – Skú
1979 – Hre
1980 – Sk
1981 – Jón
1982 – Ós
1983 – Ein
1984 – Ás
1985 – Ein
1986 – Eðv
1987 – Arn
1988 – Ein
1989 – Alf
1990 – Bja
1991 – Rag
1992 – Sig
1993 – Sig
1994 – Ma
1995 – Jón
1996 – Jón
1997 – Ge
1998 – Örn
1999 – Örn
2000 – Va
2001 – Ör
2002 – Ól
2003 – Ól
2004 – Eið
2005 – Eið
2006 – Gu
2007 – Ma
2008 – Ól
2009 – ??
Íþrótta
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA
Úrslit í fyrrinótt:
Cleveland – Charlotte .......................... 88:91
New York – Indiana ........................... 132:89
Toronto – San Antonio ......................... 91:86
Denver – Philadelphia...................... 105:108
LA Lakers – Dallas ............................ 131:96
Staðan í Austurdeild:
Boston Celtics 32 24 8 75,0%
Cleveland Cav’s 36 27 9 75,0%
Orlando Magic 33 24 9 72,7%
Atlanta Hawks 32 21 11 65,6%
Miami Heat 31 16 15 51,6%
Toronto Raptors 35 17 18 48,6%
Chicago Bulls 31 14 17 45,2%
Charlotte Bobcats 32 14 18 43,8%
Milwaukee Bucks 31 13 18 41,9%
New York Knicks 34 14 20 41,2%
Detroit Pistons 32 11 21 34,4%
Washingt. Wizards 31 10 21 32,3%
Indiana Pacers 33 10 23 30,3%
Philadelphia 76ers 33 10 23 30,3%
New Jersey Nets 33 3 30 9,1%
Staðan í Vesturdeild:
LA Lakers 33 27 6 81,8%
Dallas Mavericks 34 23 11 67,6%
Portland T-Blazers 35 22 13 62,9%
San Antonio Spurs 32 20 12 62,5%
Denver Nuggets 34 21 13 61,8%
Phoenix Suns 34 21 13 61,8%
Houston Rockets 34 20 14 58,8%
Oklahoma Thunder 33 18 15 54,5%
Utah Jazz 33 18 15 54,5%
Memphis Grizzlies 32 16 16 50,0%
New Orl. Hornets 31 15 16 48,4%
LA Clippers 32 14 18 43,8%
Sacramento Kings 34 14 19 42,4%
Golden St.Warriors 32 9 23 28,1%
Minnesota T-wolves 35 7 28 20,0%
ÍSHOKKÍ
HM U20 ára karla
3. deild í Tyrklandi:
A-riðill:
Ástralía – Búlgaría ................................. 11:1
Nýja-Sjáland sat hjá.
B-riðill:
Ísland – Taívan ....................................... 11:1
Tyrkland – Norður-Kórea....................... 3:8
Ísland mætir Norður-Kóreu á morgun.
HREFNA Jóhannesdóttir, ein reyndasta knattspyrnukona landsins, er hætt í KR og geng-
in til liðs við 1. deildarlið Þróttar úr Reykjavík.
Hrefna, sem er 29 ára gömul, er fimmti markahæsti leikmaður efstu deildar kvenna
hér á landi frá upphafi en hún hefur skorað 148 mörk í 173 leikjum í deildinni. Þar af
eru 132 leikir og 129 mörk fyrir KR en hún hefur auk þess
spilað með Breiðabliki, ÍBV og norska liðinu Medkila. Þá
var Hrefna í herbúðum Stjörnunnar um tíma síðasta vetur
en gekk aftur til liðs við KR áður en tímabilið hófst.
Hún er í níunda sæti yfir leikjahæstu leikmenn efstu
deildar frá upphafi og var efst af þeim sem léku í deildinni á
síðasta tímabili.
Hrefna skoraði 9 mörk í 11 leikjum fyrir KR í úrvalsdeildinni síð-
asta sumar en missti af síðustu sjö leikjum liðsins. Hún á að baki 10 A-landsleiki fyrir Íslands
hönd.
Þróttarar höfnuðu í öðru sæti A-riðils 1. deildar kvenna síðasta sumar en féllu síðan út gegn
FH, 3:4 samanlagt, í 8-liða úrslitum deildarinnar. vs@mbl.is
Hrefna í 1. deild með Þrótturum
KJÖRI íþróttamanns ársins 2009 verður lýst í
kvöld í hófi á Grand hóteli Reykjavík. Það eru
Samtök íþróttafréttamanna, SÍ, sem kjósa
íþróttamann ársins og er þetta í 54. sinn sem
SÍ stendur fyrir því.
Á aðfangadag var upplýst hvaða íþrótta-
menn höfnuðu í tíu efstu sætunum í kjörinu
að þessu sinni en í kvöld kemur í ljós hver
hinna tíu hreppir hnossið að þessu sinni. Alls
hlutu 30 íþróttamenn atkvæði í kjörinu að
þessu sinni sem 19 félagsmenn í SÍ tóku þátt
í.
Nöfn þeirra tíu sem til greina koma eru hér
til hliðar.
Fjórir af þessum íþróttamönnum voru einn-
ig á lista yfir tíu efstu í kjörinu í fyrra, Eiður
Smári, Guðjón Valur, Jón Arnór og Ólafur. Sá
síðastnefndi varð fyrir valinu á síðasta ári.
Í þau 51 skipti sem SÍ hefur staðið að kjör-
inu hafa 35 íþróttamenn orðið fyrir valinu.
Oftast hefur Vilhjálmur Einarsson hreppt út-
nefninguna, fimm sinnum, sonur hans, Einar,
Hreinn Halldórsson, Ólafur Stefánsson og
Örn Arnarson hafa verið kjörnir þrisvar sinn-
um hver. Vilhjálmur, Einar og Hreinn eru úr
hópi frjálsíþróttamanna. Ólafur úr hópi hand-
knattleiksmannna og Örn er sundmaður.
Alls hefur 31 karl verið kjörinn íþrótta-
maður ársins en aðeins fjórar konur hafa
hlotið þennan eftirsótta titil. Sú fyrsta var
handboltakonan Sigríður Sigurðardóttir árið
1964. Sundkonan Ragnheiður Runólfsdóttir
varð fyrir valinu 1991, Vala Flosadóttir
stangarstökkvari árið 2000 og knatt-
spyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir árið
2007.
Íþróttamenn úr níu íþróttagreinum hafa
verið útnefndir íþróttamaður ársins. Frjáls-
íþróttamenn hafa oftast orðið fyrir valinu eða
21 sinni. Handboltamennirnir eru 9 talsins,
sundmenn og fótboltamenn hafa 8 sinnum
verið valdir, kraftlyftingamenn 3 sinnum og í
eitt skipti hafa körfuboltamaður, júdómaður,
hestamaður og þolfimimaður hlotið sæmd-
arheitið.
Áður en kjöri íþróttamanns ársins verður
lýst mun ÍSÍ afhenda viðurkenningar til
þeirra íþróttakarla og -kvenna hjá sér-
samböndum sínum sem þótt hafa skarað fram
úr á árinu 2009. Þetta verður í fimmtánda
sinn sem Samtök íþróttafréttamanna og ÍSÍ
standa að sameiginlegri hátíð sem nær há-
punkti þegar Íþróttamaður ársins 2009 verður
útnefndur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurvegarar Sigríður Sigurðardóttir, handknattleikskona, var kjörin íþróttamaður ársins 1964 og Vala Flosadóttir, stangarstökkvari, árið 2000.
Tíu tilnefndir en einn
tekur við styttunni
Samtök íþróttafréttmanna lýsa kjöri Íþróttamanns ársins 2009 í kvöld
Kjörið fer fram í 54. skipti Frjálsíþróttafólk hefur oftast hreppt titilinn
Eftirtalið í
kjörinu, hé
Björgvin P
Bittenfeld
Eiður Smá
Barcelona
Guðjón Va
Rhein-Nec
Helena Sv
Bandaríkju
Helga Mar
Ármanni.
Hólmfríðu
Kristiansta
Jakob Jóh
Jón Arnór
Benetton T
Ólafur Ste
Real á Spá
Þóra Björg
Noregi.
Þessir
Hrefna
Jóhannesdóttir
KEFLVÍK-
INGAR eru langt
komnir með að
semja við banda-
rískan leikmann í
stað Rahson
Clark sem var
sagt upp störfum
rétt fyrir jól.
Guðjón Skúlason,
þjálfari liðsins,
sagði í gær að
leikmaðurinn sem um ræðir ætti að
vera fjölhæfur sóknarleikmaður,
tæplega 2 metrar á hæð. Guðjón
sagði að nafn leikmannsins yrði ekki
gefið upp fyrr en búið væri að skrifa
undir samning með formlegum
hætti. „Hann verður vonandi klár í
slaginn með okkur 10. janúar gegn
Breiðabliki,“ sagði Guðjón en Kefla-
vík er í fjórða sæti Iceland Express-
deildarinnar með 16 stig að loknum
11 umferðum. Clark skoraði tæplega
19 stig í leik með Keflavík auk þess
sem hann tók um 11 fráköst í leik.
seth@mbl.is
Keflvíkingar
fá liðsstyrk
Guðjón
Skúlason
FORMAÐUR danska handknatt-
leiksfélagsins GOG sagði í gærkvöld
að ákvörðun um framtíð félagsins
hefði verið frestað til dagsins í dag.
Áður hafði verið reiknað með nið-
urstöðu eftir stjórnarfund í gær,
hvort það yrði tekið til gjald-
þrotaskipta eða sett í greiðslu-
stöðvun. Formaðurinn, Henning
Van, sagði við DR að þriðji valkost-
urinn væri í sjónmáli en neitaði því
að um væri að ræða auðkýfing með
fullar hendur fjár.
„Nei, við fengum ekki jólasveininn
í heimsókn og lausnin er ekki fólgin í
því að við fáum mikla fjármuni í
hendurnar. En við skýrum nánar frá
þessu á morgun,“ sagði Van.
Guðmundur Þ. Guðmundsson,
þjálfar lið GOG, og Ásgeir Örn Hall-
grímsson er á meðal leikmanna liðs-
ins sem er í þriðja sæti dönsku úr-
valsdeildarinnar. vs@mbl.is
„Fengum ekki
jólasvein í
heimsókn“
Tíu marka sigur á Ta