Morgunblaðið - 05.01.2010, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010
Frjáls-íþróttafólkið
Einar Daði Lár-
usson og Jó-
hanna Ingadóttir
voru á sunnudag
útnefnd íþrótta-
maður og íþrótta-
kona ÍR fyrir árið
2009. Kjörið fór
fram í 18. skipti og var því lýst með
viðhöfn í ÍR-heimilinu. Bæði Einar
og Jóhanna náðu góðum árangri í
sínum greinum á nýliðnu ári. Einar
varð m.a. Norðurlandameistari í 400
m grindahlaupi í flokki 19 ára og
yngri og Jóhanna hjó nærri Íslands-
metinu í langstökki kvenna.
Diego Björn Valencia, karate-maður, er íþróttamaður Vík-
ings í Reykjavík árið 2009. Kjöri
hans var lýst 30. desember í Víkinni.
Diego varð Íslandsmeistari í +85 kg
og opnum flokki á nýliðnu ári.
Fimleikakonan Embla Jóhann-esdóttir var á gamlársdag út-
nefnd íþróttamaður Gróttu fyrir ár-
ið 2009. Embla er 15 ára gömul og
hefur æft fimleika hjá Gróttu frá
barnæsku. Hún stóð sig ákaflega vel
á mótum innanlands á árinu og átti
sæti í landsliði Íslands í fimleikum.
Embla varð í 3. sæti í fjölþraut á
NM unglinga, varð önnur á gólfæf-
ingum á sama móti og sigraði á móti
í Mílanó. Þá varð hún í þriðja sæti í
fjölþraut á Íslandsmótinu og hlaut
silfur fyrir gólfæfingar.
Ásdís Hjálms-dóttir, Ís-
landsmethafi í
spjótkasti
kvenna, er
íþróttamaður Ár-
manns fyrir ný-
liðið ár en kjörið
fór fram í 121 árs
afmæli félagsins
á dögunum. Við sama tækifæri var
frjálsíþróttakonan Helga Margrét
Þorsteinsdóttir valin efnilegasti
íþróttamaður Ármenninga. Ásdís
var í lok árs fremst í flokki íslenskra
frjálsíþróttamanna samkvæmt af-
rekslista Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandsins. Hún er í 22. sæti á
heimslista í spjótkasti. Hún er í 16.
sæti Evrópu í sinni grein og fremst
spjótkastskvenna á Norðurlöndum.
Helga Margrét er 18 ára gömul
og er ein efnilegasta sjöþrautarkona
heims um þessar mundir.
Goran Pandev landsliðsmaðurMakedóníu í knattspyrnu gekk
í raðir Ítalíumeistara Inter í gær og
skrifaði undir fimm ára samning við
félagið. Pandev var samningslaus
hjá Lazio í lok desember og vildi
ekki gera nýjan samning þar. Hann
er 26 ára sóknarmaður sem hefur
leikið með Lazio frá 2004. Hann hef-
ur leikið 52 leiki fyrir Makedóníu og
skorað í þeim 22 mörk.
Belgíska tenniskonan Justin Hen-in sneri aftur inn á keppnisvöll-
inn í gær þegar hún lagði Nadiu
Petrovu frá Rússlandi, 7:5 og 7:5, í
1. umferð á alþjóðlegu móti í Bris-
bane í Ástralíu. Henin, sem er 27
ára gömul, var hætt keppni en ákvað
seint á síðasta ári að taka fram tenn-
isspaðann á nýjan leik.
Þrátt fyrir að 20 mánaða hlé frá
keppni sýndi sú belgíska að hún hef-
ur engu gleymt hvað keppnisskapið
varðar og tókst með hörku að knýja
fram sigur.
Þrír leikmenn danska handknatt-leiksliðsins GOG, sem Guð-
mundur Þ. Guðmundsson landsliðs-
þjálfari stýrir, hafa kosið að yfirgefa
liðið. Peter Svensson, Fredrik Pet-
ersen og Minik Dahl Høegh. Pet-
ersen fer til Spánar en hinir til ann-
arra liða í dönsku úrvalsdeildinni.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Á UNDANFÖRNUM vikum hefur
liðið mátt sætta sig við 0:1 tap á
heimavelli gegn Aston Villa, 0:3
skell á móti Fulham á Craven Cott-
age og tapið á móti Leeds hefur
kallað fram margar spurningar.
Manchester United, sem hefur
hampað Englandsmeistaratitlinum
undanfarin þrjú ár, hefur tapað
fimm leikjum af 20 í úrvalsdeildinni
og „leikhús draumanna“ eins og
heimavöllur félagsins, Old Trafford,
er svo oft nefndur er ekki lengur
óvinnandi vígi fyrir mótherjana.
Aston Villa vann um miðjan síðasta
mánuð sinn fyrsta leik á Old Traff-
ord í 26 ár og Leeds United bætti
um betur og hrósaði sigri þar í
fyrsta sinn í 29 ár. Þá beið United
lægri hlut fyrir tyrkneska liðinu
Besiktas á heimavelli í Meistara-
deildinni í ágúst.
Ferguson sótillur
Sir Alex Ferguson upplifði í
fyrsta sinn á 23 ára starfstíma sín-
um hjá Manchester United að sjá
lið sitt tapa fyrir neðri deildarliði í
bikarkeppninni og Skotinn, sem á
gamlársdag varð 68 ára gamall, var
sótrauður af illsku eftir leikinn á
móti Leeds. Hann gagnrýndi sína
menn harkalega fyrir slaka frammi-
stöðu, sagðist hissa og hneykslaður,
og upplýsti að sumir þeirra yrðu
ekki valdir í leikmannahópinn sem
mætir Manchester City á útivelli í
fyrri viðureign Manchester-liðanna
í undanúrslitum ensku deildabikar-
keppninnar annað kvöld.
,,Við erum mannlegir og stundum
er frammistaðan með þeim hætti að
þú ert undrandi. En ég átti ekki von
á því í leik á móti Leeds. Ég var
hneykslaður og um leið hissa á lé-
legri frammistöðu liðsins,“ sagði
Ferguson við MUTV sjónvarpsstöð-
ina eftir leikinn.
Erfiður leikur á St.Andrews
Ferguson ætlaði sér alla leið í
bikarnum þetta árið en Manchester
United er það félag sem oftast allra
liða hefur hampað bikarmeistara-
titlinum eða 11 sinnum sinnum, síð-
ast fyrir sex árum.
Eftir leikinn gegn Manchester
City eiga Englandsmeistararnir
annað erfitt verkefni fyrir höndum
en um næstu helgi sækja þeir
spútniklið Birmingham heim á
St.Andrews. Birmingham er ósigrað
í 11 leikjum í röð í deildinni svo
lærisveinar Sir Alex þurfa að girða
sig í brók ætli þeir að fara með sig-
ur af hólmi úr þeim leik.
Sakna Cristiano Ronaldo
Sir Alex og margir leikmanna
Manchester United hafa sagt að
brotthvarf Cristiano Ronaldo úr lið-
inu hafi ekki haft áhrif á það en
sparkspekingar sem ekki tengjast
liðinu eru ekki í nokkrum vafa um
að United-liðið er töluvert veikara í
ár en undanfarin tímabil og greini-
legt að liðsmenn sakna Ronaldos.
Ekvadorinn Antonio Valencia átti
að fylla skarð Portúgalans en hefur
tekist það misjafnlega þó svo að af
og til hafi hann sýnt lipra takta. Þá
hefur Dimitar Berbatov verið eins
og ,,draugur“ inni á vellinum í
mörgum leikjum og sóknarleikurinn
nánast allur verið á herðum Wayne
Rooney. Þá hefur ekki bætt úr skák
fyrir meistarana öll þau meiðsli sem
herjað hafa á varnarmenn liðsins.
Þrír titlar enn í boði
Ef að líkum lætur eru hárþurrku-
dagar á æfingasvæði Manchester-
liðsins næstu dagana undir öruggri
handleiðslu Sir Alex Ferguson og
hver veit nema að honum takist að
stappa stálinu í sína menn. Það hef-
ur þessi frábæri knattspyrnustjóri
oftast gert og á nú, þegar einn bik-
ar er genginn honum úr greipum,
mun hann leggja allt kapp á að
vinna í það minnsta tvo af þeim
þremur titlum sem í boði eru fyrir
hans lið. Í úrvalsdeildinni þarf
Ferguson að skjóta Chelsea og Ars-
enal ref fyrir rass og í Meistara-
deildinni eru mótherjarnir ekki af
lakara taginu í 16-liða úrslitunum
sem verða í næsta mánuði. Sjöfaldir
Evrópumeistarar AC Milan etja
kappi við Manchester United með
David nokkrun Beckham innan-
borðs.
Reuters
Tíminn Alex Ferguson hefur að undanförnu verið tíðrætt um vanhæfi dómara til að ákvarða réttan uppbótartíma.
United hefur fallið á tíma í nokkrum leikjum að undanförnu, m.a. í bikarleiknum gegn Leeds á sunnudaginn.
Hárþurrkudagar hjá
Ferguson á Old Trafford
Það hriktir svo sannarlega í stoðum
hjá Englandsmeisturum Manchester
United. Eftir ósigur á heimavelli gegn
2. deildarliði Leeds í bikarkeppninni á
Old Trafford, 0:1, í fyrradag velta
margir því fyrir sér hvað sé eiginlega
að gerast í herbúðum Rauðu djöfl-
anna.
Krísa hjá Englandsmeisturum Manchester United Old Trafford er ekki
lengur óvinnandi vígi Ósigrar gegn Aston Villa og 2. deildarliði Leeds United
Í HNOTSKURN
»Manchester United hefurtapað þrívegis með stuttu
millibili, þar af tveimur leikj-
um á heimavelli.
»United var slegið út í bik-arnum af 2. deildarliði
Leeds á heimavelli og féll þar
með í fyrsta skipti fyrir liði ut-
an úrvalsdeildar undir stjórn
Alex Fergusons.
»Næsti leikur er á útivelligegn Birmingham sem
hefur ekki tapað í 11 leikjum í
röð.
Reuters
Daprir Wayne Rooney og Dimitar Berbatov eru áhyggjufullir þar sem þeir
bíða þess að hefja leik á ný eftir markið sem Leeds skoraði á sunnudaginn.