Morgunblaðið - 22.02.2010, Page 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2010
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
TÖLFRÆÐI er stór þáttur í umfjöllun um körfu-
knattleik. Tölfræðin gefur alla jafna nokkuð
góða mynd af frammistöðu einstakra leikmanna
en nýtist sjaldnast ein og sér til þess að greina af
hverju lið ná að kreista fram sigur. Þegar
gluggað er í tölfræði KKÍ frá bikarúrslita-
leiknum í kvennaflokki, á milli Hauka og Kefla-
víkur, þá stingur í augu sá munur sem var á lið-
unum í fráköstunum. Haukar tóku 51 frákast í
leiknum á meðan Keflavík tók 32 fráköst. Á móti
kemur auðvitað að hittni Keflvíkinga var mun
betri í leiknum, það liggur í hlutarins eðli að fari
skotið ofan í þá kemur frákastið ekki til. Í um-
ræddum bikarúrslitaleik var hins vegar meiri-
hluti þeirra frákasta sem Haukarnir tóku sókn-
arfráköst.
Haukar tóku 27 sóknarfráköst sem er í raun
með ólíkindum. Það þýðir einfaldlega að Hauk-
arnir fengu ítrekað annað tækifæri til þess að
koma boltanum ofan í þegar þeim brást boga-
listin. Það er ómetanlegt í leik sem þessum þar
sem spennan er mikil og taugarnar þandar. Auk
þess hafa sóknarfráköst sálfræðileg áhrif á leik-
menn. Leikmenn öðlast aukinn kraft þegar þeir
ná sóknarfráköstum og sjálfstraustið eykst.
Þessi tölfræði sýnir svo ekki verður um villst
hve mikla löngum leikmenn Hauka höfðu til þess
að vinna bikarinn og hversu mikið þær voru til-
búnar að leggja á sig til þess að landa honum.
Haukar enduðu í 5. sæti þegar deildakeppninni
var skipt upp í tvo riðla og lentu Íslandsmeist-
arar Hauka því í neðri riðlinum. Vegna þessa
töldu þær sig eflaust hafa ýmislegt að sanna í
bikarúrslitaleiknum og það hefur hjálpað þeim
að ná upp rétta hugarfarinu. Auk þess höfðu
Haukar tapað tvívegis fyrir Keflavík á tíma-
bilinu sem gerði það að verkum að Haukar voru
álitnir „litla liðið“ í bikarúrslitaleiknum.
Er það kannski svolítið skondið í ljósi mikillar
velgengni liðsins á undanförnum árum. Ekki er
þó hægt að horfa framhjá því að leikmannahóp-
ur liðsins er gerbreyttur frá því í fyrra. Haukar
misstu nokkra leikmenn til Hamars sem ákváðu
að fylgja gamla Haukaþjálfaranum Ágústi
Björgvinssyni til Hveragerðis. Á móti kemur að
liðið er með tvo mjög góða útlendinga auk „turn-
anna tveggja“, Telmu B. Einarsdóttur og Rögnu
Margrétar Brynjarsdóttur.
Tóku 27 sóknarfráköst!
Rauðir Leikmenn Snæfells voru ofsakátir þe
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„JÁ, ætli sjálfstraustið hafi ekki bara
verið í botni. Ég kom eiginlega sjálfri
mér á óvart,“ sagði María í samtali við
Morgunblaðið að leiknum loknum.
Hún sagði undirbúningsvinnu liðsins
hafa skipt sköpum. „Við vorum búnar
að undirbúa okkur vel og það sem við
lögðum upp með gekk frábærlega vel
eftir. Við vorum búnar að skoða Kefla-
víkurliðið og fara yfir leikaðferðir
þeirra. Þetta gekk upp hjá okkur og
það er æðislegt,“ sagði María enn-
fremur og sagði Haukana hafa verið
meðvitaða um að í bikarúrslitaleik
skiptir staðan í deildinni engu máli.
Eftir að deildakeppninni var skipt upp
í A- og B-riðla er Keflavík í 2. sæti A-
riðils en Haukar í 1. sæti í B-riðlinum.
Þar af leiðandi álitu flestir að Keflavík
væri líklegri aðilinn til þess að vinna
bikarinn auk þess hafði Keflavík unnið
báðar innbyrðisviðureignir liðanna í
vetur.
„Þetta var alveg óvart“
„Það lið sem kemur betur undirbúið
og berst allan tímann, það lið vinnur
svona úrslitaleiki. Þá skiptir ekki máli
hverjir eru efstir í deildinni eða hverj-
ir eru neðstir í deildinni. Þessir leikir
eru bara þannig að það er baráttan
sem skiptir máli en ekki staðan í deild-
inni,“ sagði María og var hógvær
varðandi sinn þátt í leiknum. Hún átti
ekki von á því að leika jafn stórt hlut-
verk í sóknarleiknum og raunin varð.
„Nei alls ekki. Þetta var alveg óvart!
Þegar maður er varamaður þá er
maður alltaf tilbúin til þess að koma
inn á og gera sitt besta. Stundum
gengur það upp og stundum ekki.
Þetta var bara minn dagur.“ Óhætt er
að taka undir það með Maríu enda
stendur hún uppi sem bikarmeistari
og maður leiksins. „Þetta verður ekki
mikið sætara. Sérstaklega þar sem ég
hef ekki staðið mig neitt sérstaklega
vel í deildinni,“ sagði María Lind sem
er aðeins tvítug að aldri en sýndi stál-
taugar og gerði mikilvægar körfur í
síðasta leikhlutanum.
Sóknarfráköstin kveiktu í liðinu
Hin bandaríska Heather Ezell hef-
ur farið á kostum hjá Haukum í vetur.
Eftir miklar breytingar á leik-
mannahópi liðsins hafði frammistaða
Ezell kveikt von um að Haukar gætu
unnið bikarinn. Ezell olli ekki von-
brigðum í úrslitaleiknum og skilaði því
sem til var ætlast. „Maður vill að sjálf-
sögðu ganga fram fyrir skjöldu í stóru
leikjunum og gera liðinu gagn. Ég
reyndi að gera það. Skotnýtingin var
reyndar ekki eins og best verður á
kosið en ég reyndi hvað ég gat til þess
að hjálpa liðinu. Það verður að hrósa
stóru leikmönnunum okkar því þær
stóðu sig frábærlega. Þegar skotin
klikkuðu þá voru þær mættar til þess
að taka frákastið og koma boltanum
ofan í. Samvinna gengur út á að hjálpa
liðsmönnum sínum og draga þá að
landi ef með þarf. Maður hafði því
ekki áhyggjur af því að reyna skotin
fyrir utan því maður vissi af samherj-
unum í fráköstunum,“ sagði Ezell þeg-
ar blaðamaður hljóp hana uppi á leið
til búningsherbergja að verðlaunaaf-
hendingu lokinni. Ezell telur grimmd
Haukakvenna í fráköstunum hafa gert
gæfumuninn ásamt öflugum varn-
arleik.
„Já ég held það. Við náðum fjölda-
mörgum sóknarfráköstum sem gáfu
okkur þar af leiðandi fleiri tækifæri í
sókninni. Þetta kveikti verulega í lið-
inu. Einnig lékum við mjög góða vörn
að mínu mati. Við eigum mikið hrós
skilið fyrir varnarleikinn að þessu
sinni. Við gerðum allt sem við gátum
til þess að stöðva sóknarleik þeirra
allt til leiksloka.“
„Drápu okkur í fráköstunum“
„Þær drápu okkur hreinlega í frá-
köstunum. Þær tóku sóknarfráköst
eins og þær fengju borgað fyrir það og
fengu þá alltaf annað tækifæri í sókn-
inni. Það var munurinn á liðunum í
dag. Þetta er allt of dýrt. Ég segi að
þetta hafi kostað okkur leikinn,“ sagði
hin leikreynda Birna Valgarðsdóttir
við Morgunblaðið en hún lék vel fyrir
Keflavík.
Morgunblaðið/Golli
Fimmti Telma B. Fjalarsdóttir með bikarinn á lofti og Haukastúlkur fagna óvæntum en verðskulduðum sigri á Keflvíkingum. Þetta er í fimmta sinn sem Haukakonur eru bikarmeistarar.
„Kom sjálfri mér á óvart“
María Lind valin best í úrslitaleiknum þegar Haukar unnu Keflavík Segist ekki hafa leikið vel í vetur
Kom af bekknum, sá og sigraði Ezell segir auðvelt að skjóta þegar samherjarnir taka fráköstin
María Lind Sigurðardóttir var valin
maður leiksins í bikarúrslitaleiknum í
körfuknattleik kvenna gegn Keflavík á
laugardaginn. María kom inn af vara-
mannabekknum og hitti nánast á óað-
finnanlegan leik. Á þeim 23 mínútum
sem hún spilaði skoraði María 20 stig
og tók 9 fráköst. Hitti úr 9 af 12 skot-
um innan teigs og 2 af 3 utan þriggja
stiga línunnar. Af 9 fráköstum tók hún
7 í sókn. María átti því drjúgan þátt í
því að Haukum tókst að landa sigri í
leik sem var nánast hnífjafn lengst af
og fimmta bikartitli félagsins.
Haukar – Keflavík 83:77
Laugardalshöll, bikarkeppni kvenna, Sub-
waybikarinn, úrslitaleikur, laugardaginn 20.
febrúar 2010.
Gangur leiksins:5:4, 13:13, 19:20, 29:33,
39:37, 46:45, 51:48, 56:53, 62:60, 64:60, 69:63,
74:67, 80:69, 82:73, 83:77.
Stig Hauka: Heather Ezell 25, María Lind
Sigurðardóttir 20, Ragna Margrét Brynjars-
dóttir 11, Telma B. Fjalarsdóttir 10, Kiki
Lund 9, Guðrún Ámundadóttir 7, Helena
Hólm 1.
Fráköst: 24 í vörn – 27 í sókn.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 22,
Kristi Smith 20, Bryndís Guðmundsdóttir 19,
Svava Ósk Stefánsdóttir 10, Rannveig Rand-
versdóttir 3, Pálína Gunnlaugsdóttir 3.
Fráköst: 28 í vörn – 4 í sókn.
Villur: Haukar 22 – Keflavík 20.
Dómarar: Davíð Hreiðarsson og Sigmundur
Már Herbertsson. Góðir.
Áhorfendur: Um 500.