Morgunblaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2010
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÞAR sem undirritaður er áhugamaður um kon-
ur, þá gerir hann sér grein fyrir því að í gær var
GoRed konudagurinn og var fólk hvatt til þess
að klæðast rauðu í tilefni af baráttunni gegn
hjartasjúkdómum. Fjöldi fólks klæddist rauðu
daginn áður og arkaði í Laugardalshöllina til
þess að hvetja sín lið í bikarúrslitaleikjum karla
og kvenna í körfuknattleik. Í báðum tilfellum
fögnuðu þeir rauðu sigri, Haukar í kvennaflokki
og Snæfell í karlaflokki. Stemningin á karla-
leiknum var ósvikinn. Hinir rauðu úr Stykk-
ishólmi öðrum megin í stúkunni og hinir gulu úr
Grindavík hinu megin.
Í hröðum og jöfnum bikarúrslitaleik er áhuga-
vert að fylgjast aðeins með stuðningsmönnunum
á pöllunum. Skyndilega stökkva allir þeir gulu á
fætur þegar Guðlaugur Eyjólfsson setur niður
þriggja stiga skot fyrir Grindavík. Nokkrum
sekúndum síðar stökkva allir hinir rauðklæddu á
fætur þegar stórskyttan Sean Burton svarar
með þriggja stiga skoti.
Sigur leikstjórnandans
Sá lágvaxni maður reyndist risi á meðal stóru
kallanna í leiknum og skoraði 36 stig. Oft er tal-
að um að það lið sem eigi betri leikstjórnanda í
bikarúrslitaleik fari með sigur af hólmi. Það
varð allavega raunin í þessu tilfelli því Sean Bur-
ton var sá leikmaður sem gerði gæfumuninn.
Arnar Freyr Jónsson leikstjórnandi Grindvík-
inga átti ekki alslæman leik í sjálfu sér. Hann gaf
til dæmis 11 stoðsendingar í leiknum og hann
hefur ekki það hlutverk hjá Grindavík að skora
mörg stig. Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindvík-
inga og Þorleifur Ólafsson leikmaður þeirra,
sögðu báðir við Morgunblaðið að liðið hefði farið
út fyrir leikskipulagið í leiknum. Það hefði verið
helsta orsökin fyrir tapinu.
Þær byrðar þarf Arnar Freyr væntanlega að
bera sem leikstjórnandi liðsins. Þar að auki
gerði hann sig sekan um tvenn fáranleg mistök á
lokamínútu leiksins. Annars vegar braut hann af
sér þegar Snæfell átti fimm sekúndur eftir á
skotklukkunni og fékk fyrir vikið nýja skot-
klukku. Hins vegar innsiglaði Arnar sigur Hólm-
ara með því að kýla Burton í síðuna rétt eftir að
Arnar minnkaði sjálfur muninn með laglegum
tilþrifum. Óskiljanleg hegðun.
GoRed körfuboltadagurinn
Morgunblaðið/Golli
egar bikarmeistaratitillinn var í höfn.
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„HANN var bara maðurinn. Það er
mjög einfalt mál. Hann var töffari
dagsins. Hann sneri leiknum og skaut
nánast út um allt en jafnframt fékk
hann menn til þess að spila með sér.
Þetta er einmitt svona svið sem al-
vöruleikmenn stíga upp á. Ég var
mjög ánægður með hann,“ sagði Ingi
Þór í samtali við Morgunblaðið eftir
að hafa handfjatlað bikarinn. Var Ingi
ekkert taugaveiklaður þegar Burton
var að láta vaða lengst utan af velli?
„Nei mér líður mjög vel þegar hann
sleppir boltanum. Ég er hvort sem er
með Hlyn Bæringsson undir körfunni
og frábæran mannskap á heildina lit-
ið. Þeir eru með hjartað á réttum stað
og það er gaman að þjálfa svoleiðs
lið,“ sagði Ingi Þór ennfremur.
Ingi gaf Burton byssuleyfi
Morgunblaðið bar það undir hetju
Hólmara, Sean Burton, hvort Ingi
hefði gefið honum leyfi til þess að láta
vaða undir öllum mögulegum kring-
umstæðum. „Ég hefði ekki gert þetta
ef hann hefði ekki gefið mér leyfi,“
sagði Burton og hló að spurningunni
en hélt svo áfram á alvarlegri nótum.
„Hann hefur fulla trú á mér. Hann
hefur gefið mér grænt ljós á að taka
skotin hvaðan sem er. Hann hefur
eiginlega meira álit á mér en ég sjálf-
ur og það hjálpar gríðarlega mikið.“
Hjartað og heilinn
Kalla má Inga heilann á bak við
Hólmarana. Lið Snæfells hefur verið
sterkt á undanförnum árum og með
leikmenn sem eru harðir af sér og til-
búnir að berjast. Ingi er kannski svo-
lítið ólíkur þeim en er maður sem
pælir í körfubolta allan sólarhringinn.
Líklega var Ingi einmitt sá ein-
staklingur sem Snæfell þurfti að fá.
Hugsuður frekar en nagli, því það
þarf ekki að segja Hlyni og félögum
að fara út á völlinn og djöflast. Sé Ingi
heilinn í liðinu þá er engin spurning
um að Hlynur sé hjartað. Þessi út-
sjónarsami baráttuhundur spilaði
bikarúrslitaleikinn meiddur á kálfa og
hafði nánast ekkert æft síðustu tíu
dagana.
„Maður gleymir því í svona leik og
sérstaklega á svona stundu,“ sagði
Hlynur þegar Morgunblaðið dró hann
frá fagnarlátunum um stund. „Ég er
svo sem ekki kvalinn, það er örugg-
lega hægt að hafa það verra en ég.
Það er einhver blóðköggull í kálf-
anum og þetta þarf að fá að jafna sig.
Þetta var mjög erfitt, ég neita því
ekki. Ég var kominn með krampa í
báða fæturna undir restina og gat
varla labbað upp völlinn. Ég reyndi
því bara að hirða fráköstin og gefa á
einhvern annan. Ég fann fljótlega í
þriðja leikhluta að ég hafði engar
lappir undir mér til að skjóta. Ég
prófaði að skjóta en það var bara
kraftlaust. Ég reyndi bara að einbeita
að mér að því að hjálpa til varn-
arlega,“ sagði Hlynur sem lét ekki sitt
eftir liggja þrátt fyrir meiðslin og reif
niður 19 fráköst.
Hlynur sá besti
Burton sparaði ekki stóru orðin um
Hlyn félaga sinn. „Hann er ótrúlegur.
Hlynur er besti stóri leikmaðurinn
sem ég hef spilað með á mínum ferli.
Hann er frábær. Mesti nagli sem ég
hef nokkru sinni spilað með. Hann er
með stærsta hjartað á vellinum í
hvert einasta skipti sem hann spilar
körfubolta og það er því alltaf gott að
hafa hann á sínu bandi,“ sagði Burton
spurður um álit sitt á Hlyni Bærings-
syni. Burton og Hlynur drógu vissu-
lega vagninn hjá Snæfelli í þessum
leik en í áhugaverðum bikarleikjum
koma gjarnan minni spámenn út úr
skugganum og láta ljós sitt skína. Í
þessum leik var það Guðlaugur Eyj-
ólfsson hjá Grindavík og Emil Þór Jó-
hannsson hjá Snæfelli sem gerði tvær
þriggja stiga körfur í síðasta leikhlut-
anum.
„Maður verður að vera með fullt
sjálfstraust þegar maður kemur inn á
í svona leik og taka þau skot sem
maður fær og setja þau niður. Það var
heldur betur ljúft að sjá þau fara nið-
ur undir þessum kringumstæðum.
Það var virkilega mikilvægt að setja
þessi skot niður,“ sagði Emil um sinn
þátt undir lokin. Hann sagði varnar-
leikinn hafa verið öflugan og hrósaði
Hlyni og Burton sérstaklega. „Við
spiluðum hörkuvörn og það var sam-
vinna í liðinu. Við stóðum saman og
börðumst fyrir þessu. Hlynur spilaði
meiddur en var alveg frábær og Sean
átti einnig frábæran leik.“
Burton fékk byssuleyfi og
plaffaði Grindvíkinga niður
Ingi sagði Burton vera töffara dagsins Hólmarar með hjartað á réttum stað Hlynur leiddi
Snæfell til sigurs þrátt fyrir meiðsl Hlynur er mesti nagli sem Burton hefur spilað með á ferlinum
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæ-
fells, hampaði bikarnum í körfuknatt-
leik í fyrsta skipti á laugardaginn en
áður hafði hann komist í bikarúrslit
með KR og tapað. Hann var skiljanlega
í skýjunum með árangurinn og hrósaði
sérstaklega bandaríska leikstjórnand-
anum Sean Burton, sem tók málin í
sínar hendur á löngum köflum í leikn-
um. Burton skoraði alls 36 stig og þar
af fimm þriggja stiga körfur. Margar
þeirra setti hann niður lengst utan af
velli og oftar en ekki í andlitið á varn-
armönnum Grindavíkur.
Morgunblaðið/Golli
Nagli Hlynur Bæringsson var að vanda í stóru hlutverki hjá Snæfelli og lyftir hér bikarnum eftir leikinn á laugardaginn á meðan samherjar hans fagna ákaft.
Snæfell – Grindavík 92:81
Laugardalshöll, bikarkeppni karla, Subway-
bikarinn, úrslitaleikur, laugardaginn 20.
febrúar 2010.
Gangur leiksins:1:6, 9:9, 18:20, 20:28, 32:30,
44:41, 56:54, 69:65, 74:69, 76:73, 84:77, 87:77,
92:81
Stig Snæfells: Sean Burton 36, Sigurður
Þorvaldsson 14, Jón Ólafur Jónsson 12,
Hlynur Bæringsson 10, Martin Berkis 9,
Emil Þór Jóhannsson 6, Pálmi Freyr Sig-
urgeirsson 3, Sveinn Davíðsson 2.
Fráköst: 26 í vörn – 14 í sókn.
Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 17,
Þorleifur Ólafsson 16, Darrel Flake 16, Arn-
ar Freyr Jónsson 15, Guðlaugur Eyjólfsson
9, Páll Axel Vilbergsson 4, Ómar Örn Sæv-
arsson 3, Ólafur Ólafsson 1.
Fráköst: 30 í vörn – 3 í sókn.
Villur: Snæfell 21 – Grindavík 23.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögnvald-
ur Hreiðarsson. Ágætir.
Áhorfendur: Tæplega 2.000.