Morgunblaðið - 12.03.2010, Síða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2010
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikar
A-DEILD, riðill 2:
Valur – Fram............................................... 1:1
Guðmundur Steinn Hafsteinsson 63. –
Hjálmar Þórarinsson 79.
Víkingur R. – Fjölnir ..................................3:0
Helgi Sigurðsson 5., Pétur Svansson 31.,
sjálfsmark 35.
Staðan:
Fram 4 3 1 0 10:4 10
FH 2 2 0 0 5:0 6
Víkingur R. 3 2 0 1 6:2 6
Selfoss 3 2 0 1 4:4 6
Valur 3 1 1 1 4:4 4
Fjölnir 4 1 0 3 5:11 3
Leiknir R. 2 0 0 2 4:6 0
KA 3 0 0 3 1:8 0
Evrópudeild UEFA
16-liða úrslit, fyrri leikir:
Lille – Liverpool ..........................................1:0
Edin Hazard 84.
Atlético Madrid – Sporting Lissabon.......0:0
Rautt spjald: Leandro Grimi (Sporting) 31.,
Tonel (Sporting) 89.
Hamburger SV – Anderlecht ....................3:1
Joris Mathijsen 23., Ruud van Nistelrooy
40., David Jarolím 76. – Jonathan Legear 45.
Rubin Kazan – Wolfsburg..........................1:1
Christian Noboa 29. – Zvjezdan Misimovic
67.
Benfica – Marseille......................................1:1
Maxi Pereira 76. – Hatem Ben Arfa 90.
Juventus – Fulham......................................3:1
Nicola Legrottaglie 9., Jonathan Zebina 25.,
David Trezeguet 45. – Dickson Etuhu 36.
Panathinaikos – Standard Liege..............1:3
Loukas Vyntra 48. – Axel Witsel 8., Milan
Jovanovic 16., Igor De Camargo 74. Rautt
spjald: Simao (Panathinaikos) 90.
Valencia – Werder Bremen.......................1:1
Juan Mata 57. – Torsten Frings 24. (víti)
Rautt spjald: Éver Banega (Valencia) 55.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin
FH – Haukar ........................................... 31:25
HK – Grótta ............................................. 29:24
Fram – Valur ........................................... 26:25
Staðan:
Haukar 15 11 2 2 384:354 24
HK 15 9 1 5 410:386 19
FH 15 9 1 5 423:393 19
Akureyri 14 8 2 4 368:350 18
Valur 15 7 2 6 374:359 16
Grótta 15 4 0 11 372:408 8
Stjarnan 14 3 1 10 326:371 7
Fram 15 3 1 11 387:423 7
1. deild karla
Fjölnir – Afturelding .............................. 19:32
Staðan:
Afturelding 15 12 1 2 420:334 25
Selfoss 14 12 0 2 443:326 24
ÍBV 13 9 0 4 391:336 18
ÍR 13 7 0 6 354:341 14
Víkingur R. 14 6 1 7 380:334 13
Fjölnir 15 1 1 13 289:484 3
Þróttur 14 0 1 13 300:422 1
Þýskaland
RN Löwen – Melsungen ........................ 35:26
Staða efstu liða:
Hamburg 23 20 1 2 771:621 41
Kiel 22 19 2 1 734:554 40
Flensburg 23 18 0 5 694:605 36
Göppingen 22 16 1 5 662:636 33
R.N. Löwen 23 15 1 7 700:621 31
Lemgo 22 13 2 7 621:579 28
Gummersbach 22 12 3 7 639:598 27
Grosswallstadt 22 12 3 7 611:584 27
Füchse Berlin 23 11 0 12 650:652 22
Lübbecke 23 8 3 12 628:637 19
Magdeburg 23 9 0 14 652:683 18
Melsungen 22 8 0 14 594:668 16
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA
Philadelphia – Charlotte ...................... 87:102
Boston –Memphis ................................. 91:111
Detroit – Utah ..................................... 104:115
Miami – LA Clippers ............................ 108:97
Minnesota – Denver............................ 102:110
Oklahoma City – New Orleans.............. 98:83
Dallas – New Jersey ............................... 96:87
San Antonio – New York........................ 97:87
Sacramento – Toronto.......................... 113:90
í kvöld
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Egilshöll: Leiknir R. – Selfoss ................... 19
Egilshöll: Þróttur R. – ÍBV......................... 21
Akraneshöll: Hvöt – BÍ/Bolungarvík ........ 20
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Kórinn: Afturelding – Haukar.................... 21
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Höllin Ak.: Akureyri – Stjarnan................. 19
1. deild karla:
Víkin: Víkingur – Þróttur....................... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Iceland-Express:
Stykkishólmur: Snæfell – Grindavík .... 19.15
Ásgarður: Stjarnan – KR....................... 19.15
Grafarvogur: Fjölnir – ÍR...................... 19.15
1. deild karla, lokaumferð:
Egilsstaðir: Höttur – Þór Þ......................... 18
Borgarnes: Skallagrímur – ÍA............... 19.15
Ásvellir: Haukar – Hrunamenn ............ 19.15
Vodafonehöllin: Valur – Þór Ak. ........... 19.15
Ísafjörður: KFÍ – Ármann..................... 19.15
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
EFTIR jafnar fyrstu tíu mínútur
skildu Kópavogsbúar gestina eftir
en kæruleysi með 8 marka forskot
hleypti Seltirningum aftur inn í leik-
inn. Munurinn varð minnstur þrjú
mörk eftir hlé en sóknarleikur
Gróttu var alltof staður til að gera
betur. Gróttumenn fengu aðeins of
mikla viðvörun í fyrri hálfleik þegar
varnartröllið Ægir Jónsson í Gróttu
fékk tveggja mínútna brottvísun
fyrir litlar sakir en fékk svo sjálfur
ekki neitt þegar hann var tuskaður
til. Það virðist oft eins og stóru
sterku strákarnir megi ekki taka á
þeim minni. Mesta athygli vakti
samt frammistaða manna, sem hafa
lítið fengið að spreyta sig hjá HK í
vetur.
Búinn að bíða eftir tækifærinu
„Ég fékk loksins tækifærið og það
er ekkert annað að gera en nýta það.
Ég er búinn að bíða heillengi eftir
þessu tækifæri og alltaf verið á tán-
um svo ég sprakk út núna,“ sagði
Lárus Helgi Ólafsson sem stóð sig
með prýði og varði 18 skot en hann
fékk tækifæri eftir að Sveinbjörn
Pétursson, aðalmarkvörður HK,
fékk tveggja leikja bann. „Ég fæ
næsta leik líka því Sveinbjörn er enn
í banni og við sjáum til hvað gerist
þá. Ef ég stend mig þar, set pressu á
Gunnar þjálfara; það þýðir ekkert
annað og maður verður að standa
sig því það er aldrei að vita hverju
kallinn tekur uppá,“ bætti Lárus við
og beindi setningunni til Magnúsar
Inga Stefánssonar, sem var hinn
markvörður HK í þessum leik. Hinn
senuþjófurinn er Bjarki Már.
Hysjum upp brækurnar
Matthías Árni Ingimarsson varn-
arjaxl Gróttu segir ekki seinna
vænna en að liðið fari í gang. „Við
náðum ekki að kveikja í vörninni í
fyrri hálfleik og lendum þá átta
mörkum undir og það er rosalega
erfitt að koma inní seinni hálfleik og
vinna það upp. Við náum reyndar
muninum niður í þrjú mörk og get-
um náð honum í eitt mark en náum
ekki aukaskrefinu til að ná því.
Við verðum að fara að hysja upp
okkur brækurnar og gera eitthvað
af viti. Við erum gjörsamlega komn-
ir upp að þessum margfræga vegg
og erum þétt upp við hann því tapið í
síðasta leik gegn Stjörnunni gerði
okkur mikinn óleik. Nú þurfum við
að fara að reyta inn stig ef við ætlum
að halda okkur í deildinni. Við erum
með fínt vel spilandi lið, að vísu ekki
með stærsta varamannabekk í
heimi,“ sagði Matthías Árni. Hann
stóð í ströngu í vörn Gróttu en brá
sér þó fram til að skora tvívegis,
annað eftir frábæra sendingu frá
hinu varnartröllinu, Ægi.
„Ægir átti flotta stoðsendingu á
mig og ég hefði átt að bæta við
marki í lokin en þar liggur líka vand-
inn, við náum ekki að keyra upp í
hraðaupphlaupum. Þungir menn
eins og við Ægir eru ekkert sérlega
fljótir upp völlinn en þegar við náum
að komast í fimmta gír nær maður
inní punktalínuna hinum megin.“
Senuþjófar
í Digranesi
Ný andlit í 29:24 sigri HK á Gróttu
Ferskir leikmenn stálu senunni í
Digranesi þegar HK lagði Gróttu
29:24 í gærkvöldi. Lárus Helgi Ólafs-
son kom inn fyrir Sveinbjörn Pét-
ursson og fór á kostum milli stang-
anna en í sókninni sýndi
hornamaðurinn Bjarki Már Elíasson
flotta takta auk þess að stinga af í
hraðaupphlaupum.
Digranes, úrvalsdeild karla, N1 deild-
in, fimmtudaginn 11. mars 2010.
Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 6:3, 7:5,
10:5, 11:8, 16:8, 17:12, 18:12, 19:15,
21:15, 22:19, 24:19, 24:21, 27:22,
27:24, 29:24.
Mörk HK: Bjarki Már Elíasson 7,
Valdimar Fannar Þórsson 6/2, Ragn-
ar Hjaltested 5/1, Atli Ævar Ingólfs-
son 4, Ólafur Víðir Ólafsson 3, Sverr-
ir Hermannsson 3, Bjarki Már
Gunnarsson 1.
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 18
(þar af 5 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Gróttu: Hjalti Þór Pálmason 6,
Jón Karl Björnsson 5/3, Anton Rún-
arsson 3, Davíð Hlöðversson 2, Arn-
ar Freyr Theódórsson 2, Heiðar Þór
Aðalsteinsson 2, Matthías Árni Ingi-
marsson 2, Halldór Ingólfsson 1, Atli
Rúnar Steinþórsson 1.
Varin skot: Gísli Rúnar Guðmunds-
son 16/1 (þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Hlynur Leifsson.
Áhorfendur: Tæplega 250.
HK – Grótta 29:24
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HEATHER Ezell körfuknatt-
leikskona frá Bandaríkjunum hefur
vakið athygli í vetur fyrir vasklega
framgöngu með Íslands- og bik-
armeisturum Hauka. Hún var í gær
heiðruð við frammistöðu sína í síðari
hluta Iceland Express deildarinnar
þegar hún var valin besti leikmaður
umferðanna 12 - 20. Úrvalsliðið
skipa, ásamt Ezell, þær Birna Val-
garðsdóttir, Keflavík, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir KR, Helga Hall-
grímsdóttir, Grindavík, og Signý
Hermannsdóttir, KR. Ágúst Björg-
vinsson, Hamri, var valinn besti
þjálfarinn og Julia Demirer, einnig
úr Hamri, var valinn mesti dugnað-
arforkurinn.
Tölfræðin segir sitt um frammi-
stöðu Ezell í vetur. Í seinni hluta
mótsins skoraði hún 28 stig að með-
altali í leik, tók 11 fráköst og gaf 7
stoðsendingar. Ezell er 23 ára gömul
og lék í hæsta gæðaflokki í banda-
ríska háskólaboltanum. Ezell er frá
Missouri og segist hafa byrjað
snemma að spila körfubolta. Hún
spilaði með Iowa State-háskólanum
og var í byrjunarliði öll fjögur árin
en liðið var í einum sterkasta riðl-
inum í háskólaboltanum. Hún var
fyrirliði Iowa á síðasta ári sínu og þá
var liðið einum sigri frá því að kom-
ast alla leið í undanúrslit keppn-
innar. Með þennan feril í há-
skólaboltanum þá liggur kannski
beinast við að spyrja hvernig það
kom til að Ezell kom til Íslands.
„Ég útskrifaðist síðasta vor og var
í æfingabúðum síðasta sumar þar
sem leikmenn geta sýnt sig og sann-
að. Umboðsmaður minn taldi Ísland
vera góðan valkost fyrir mig og ég
var spennt fyrir því. Það er úr færri
tilboðum að velja fyrir leikmenn
vegna efnahagsástandsins í heim-
inum og ég var því tilbúin að skoða
ýmsa möguleika, “ sagði Ezell í
Heather Ezell í sérflokki
Fékk upplýsingar um Ísland hjá Hardy og Mahoney
Best Heather Ezell hefur leikið frábæ
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,OKKUR hungraði í sigur á móti
Haukunum. Við vorum búnir að læra af
reynslunni og það kom ekki til greina
annað en að halda fengnum hlut. Við
urðum að vinna í þeirri stöðu sem við
erum í og með gríðarlegri baráttu, frá-
bærri vörn og markvörslu ásamt gíf-
urlegum vilja hafðist það. Við vorum
svo sannarlega tilbúnir og nú þurfum
við að byggja ofan á þetta,“ sagði
landsliðsmaðurinn Ólafur Guðmunds-
son, lykilmaður í FH-liðinu, við Morg-
unblaðið eftir leikinn.
Það mátti fljótt merkja í Hafn-
arfjarðarslagnum, sem komst aldrei á
almennilegt flug, að FH-ingar höfðu
meiri matarlyst og með viljann að
vopni ásamt samhentri liðsheild tókst
þeim að slá flest vopn úr höndum
Haukanna og hafa undirtökin nær allan
tímann.
Pálmar Pétursson stóð vaktina vel
fyrir aftan hörkuvörn FH-liðsins, sem
einhverra hluta vegna nær upp meiri
stemningu í leikjum gegn toppliðunum.
Bjarni Fritzson var drjúgur og þó svo
að Ólafur Guðmundsson hafi ekki hitt
rammann nægilega vel stóð Haukunum
mikil ógn af honum.
,,FH-ingunum langaði greinilega
meira að vinna en okkur. Við lékum því
Skorar FH-ingurinn Örn Ingi Bjarkason sendir boltann í mark Haukanna og Freyr B
Hungraðir
FH náði að leggja granna sína og
meistara í Haukum í fjórðu tilraun
Þungu fargi er létt af leikmönnum FH og
stuðningsmönnum þeirra eftir sex
marka sigur, 31:25, á margföldu meist-
araliði Hauka en liðin áttust við í Krik-
anum í gær. Eftir þrjú töp í röð gegn
erkifjendunum náði FH að innbyrða sæt-
an sigur og það verður því svart-hvít
helgi í Firðinum næstu dagana.