Ísfirðingur - 26.01.1980, Blaðsíða 3
ÍSFIRÐINGUR
///// Silfurgötu 5
siraumur ísafirði - Sími 3321
Heimilistæki í úrvali
AEG
/////
straumur
Silfurgötu 5 sími 3321
Mikilvæg málefni
Á fundi heilbrigðisnefndar
ísafjarðar, sem haldinn var
17. þ.m. var fjallað um mik-
ilvæg málefni í bænum. Á
fundi nefndarinnar var gerð
eftirfarandi bókun:
„Heilbrigðisnefnd óskar eftir
því að eftirtaldir liðir verði
teknir til greina við gerð fjár-
hagsáætlunar ísafjarðar-
kaupstaðar fyrir árið 1980:
Vatnsveita ísafjarðar.
Á fundi nefndarinnar með
bæjarráði 19. nóv. s.l. var
lagt til við bæjarstjórn að
Verkfræðiskrifstofu Sig.
Thoroddsen yrði falið að
fullvinna áætlun um öflun
ómengaðs neysluvatns fyrir
Úlfsár og Tunguárveitu og
að þær tillögur lægju fyrir í
lokfebr. 1980.
Þar sem rannsóknir á
neysluvatni okkar ísfirðinga
undanfarin ár hafa flestar
sýnt fram á að vatnið er
mengað, leggur nefndin til
að haFist verði handa um
framkvæmdir strax og fyrr-
greindar tillögur liggja fyrir
og tryggt verði nægilegt fjár-
magn til að ljúka megi þeim
hið fyrsta.
Holræsi.
Heilbrigðisnefnd bendir á
það ófremdarástand sem rík-
ir í holræsamálum ísFirð-
inga.
Nefndin beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til Bæjar-
stjórnar ísafjarðar, að full-
nægt verði þeim skilyrðum í
heilbrigðisreglugerð er varð-
ar losun skólps og gerð hol-
ræsa í kaupstöðum og leggur
til að fyrst verði hafist handa
um framkvæmdir sem
tryggja, að hætt verði losun
skólps í Úlfsá og Bæjará
(Hnífsdalsá.)
Hreinsun bæjarlandsins.
Undanfarin sumur hafa
vinnuflokkar unglingavinn-
unnar unnið að hreinsun í
bæjarlandinu. Jafnframt
hefur heilbrigðisnefnd, aug-
lýst svonefnda „hreinsunar-
viku.“
Ljóst er að þessi vinna
dugir ekki til og óskar nefnd-
in eftir því að viðbótarfjár-
magn verði veitt til þess að
fjarlægja allskonar drasl er
vinnuflokkarnir hafa ekki
tök á að fjarlægja, svo sem
bílhræ o.fl.
Nefndin gerir það að til-
lögu sinni að hreinsunarher-
ferð verði skipulögð á næsta
vori og til undirbúnings
verði tilkallaðir þeir aðilar er
málið vara að hálfu bæjar-
ins.
Má benda á hvílík hvatn-
ing það yrði bæjarbúum ef
bæjarfélagið sjálft gengi á
undan með góðu fordæmi og
forráðamenn þess leggðu
meiri áherslu á snyrti-
mennsku og góðan frágang.“
Blaðið tekur undir fram-
anskráðar ábendingar og til-
lögur heilbrigðisnefndarinn-
ar. Jafnframt verður að telja,
að t.d. hreinsun bæjarlands-
ins, sem mjög hefur verið
ábótavant undanfarin ár, og
þar með taldar fjörur, geti
ekki kostað óviðráðanlega
fjármuni. Úr því ófremdará-
standi sem verið hefur með
hreinsun bæjarlandsins verð-
ur að bæta.
Gerlafræðilegar
rannsóknir
Á fundi heilbrigðisnefndar
ísafjarðar 7. þ.m. var heil-
brigðisfulltrúa falið að fara
þess á leit við Heilbrigðiseft-
irlit ríkisins, að ráðherra
veitti viðurkenningu til
handa útibúi Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins á
ísaFirði til þess að fram-
kvæma gerlafræðilegar rann-
sóknir á sýnum fyrir heil-
brigðisnefndina. Er hér um
ítrekun að ræða, sbr. bréf frá
21. des. 1978.
Viðtalstímar
bæjarfulltr
Á fundi bæjarráðs ísa-
fjarðar 14. þ.m. urðu bæjar-
ráðsmenn sammála um að
upp verði teknir viðtalstímar
bæjarfulltrúa og var bæjar-
stjóra falið að auglýsa slíka
tíma.
3
Að baki
BAADER
býr tækniþróun
Einungis vatnsniður heyrist þegar
þessi nýja BAADER - vél flettir
roðinu af allt að 150 flökum á mínútu
Meðal fiskiðnaðarfyrirtækja um víða veröld er sú staðreynd þekkt, að
BAADER býður uppá hagkvæmustu lausnina með þeirri tækniþróun,
sem að baki BAADER vélanna býr.
BAADER 51 er ný roðflettingarvél byggð á rannsóknum og reynslu
undanfarinna ára. BAADER 51 roðflettir bolfisk og karfa með
afköstum og öryggi sem áður var talið óhugsandi. Aukin breidd
vélarinnar gerir kleift að fletta roðinu af 150 flökum á mínútu.
Roðinu er flett af þannig að silfurslikjan verður eftir á flakinu og
hráefnisnýting því ávallt í hámarki.
Mjög hljóðlátur gangur BAADER 51 stafar af fáum hreyfihlutum
vélarinnar, þannig að vatnsniðurinn yfirgnæfir ganghljóð vélarinnar.
Frá BAADER fæst meira en ný vél. Okkar reynsla er yðar hagur.
þjónustan HF.
Ármúla 5—Sími 85511—Reykjavík
Burðarmeiri flugvélar
Flugleiðir gerðu nýlega
samning við Korean Airlines
um kaup á fjórum Friend-
ship flugvélum. Þrem af
gerðinni F-27-200 og einni af
F-27-500. Tvær þessara flug-
véla hafa þegar verið seldar
til Finnair. Flugvélarnar
verða sóttar tii Seoul og flog-
ið til íslands í janúar. Tækja-
kosti tveggja þeirra, sem
Flugleiðir eiga verður breytt
til samræmis við það sem er í
Friendship vélum félagsins
og hefja þær síðan ílug á
innanlandsleiðum. Þá hefir
einnig komið til greina að
Flugleiðir taki að sér breyt-
Þá samþykkti bæjarráð að
stefna að því að halda opinn
bæjarmálafund í síðari hluta
febrúarmánaðar.
ingar á tækjakosti flugvél-
anna sem Finnair keyptu.
Samningar um það eru á
lokastigi.
Sem fyrr segir eru þessar
breytingar á flotanum gerðar
í því augnamiði að samræma
flugkostinn, en jafnframt
verður hér um burðarmeiri
flugvélar að ræða. Þannig
verður unnt að fljúga með
fullfermi frá flugvöllum sem
í dag verða að sæta takmörk-
un á farmi. Þá kemur einnig
til einföldun á varahlutalag-
er félagsins, þar sem allar
flugvélarnar eru búnar sams-
konar hreyflum og flestum
varahlutum.
Hefur látið
af ritstjórn
Dags
Erlingur Davíðsson
lét um áramótin af ritstjórn
Dags á Akureyri eftir aldar-
fjórðungs ritstjórn við mjög
góðan orðstír.