Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1982, Blaðsíða 14

Ísfirðingur - 15.12.1982, Blaðsíða 14
14 fSFIRÐINGUR Núpsskóli, mynd tekin vorið 1982 ið áfram, heimavist stækkuð svo að hún rúmaði 60 nem- endur, byggðar geymslur, smíðahús og jafnvel báts- bryggja. Fyrsti skólastjóri Reykja- nesskólans var Aðalsteinn Eiríksson (f. 1901) en for- maður skólanefndar héraðs- skólans eftir að sérstök skóla- nefnd kom fyrir hann, var Jón H. Fjalldal á Melgras- eyri. Skólinn starfaði í þrjá mánuði árlega framan af. Starfsskrá Reykjanesskóla hlaut staðfestingu með laga- setningu 1937. Aðilar að héraðsskólanum urðu þar með: ísafjarðarkaupstaður, N. — ísafjarðarsýsla og skóla- hérað barnaskólanna í Reykjanesi. Nokkur ung- mennafélög í sýslunni voru meðal þeirra aðila sem unnu að framgangi þessa máls. Mikið var um þegn- skylduvinnu eða sjálfboða- starf við skólann á fyrstu árum hans, m.a. var lóð skólans mjög löguð og sam- göngur að honum á landi og sjó gerðar greiðari en þær höfðu verið. Laugaskóli í Þingeyjarsýslu Sögu ungmenna- eða al- þýðuskóla í Þingeyjarsýslu má rekja aftur á 19. öld. Arnór Sigurjónsson hefur fjallað um þetta efni, og hann segir að vakningarald- an eftir þjóðhátíðina 1874 hafi haft áhrif í þessum efn- um. Snemma árs 1875 fór Sigurður Jónsson í Ystafelli fyrst að stunda unglinga- kennslu annars staðar en heima hjá sér, fyrst á Stóru- völlum og að Lundarbrekku í Bárðardal. Árið 1883 kenndi Guðmundur Hjalta- son í Nesi i Höfðahverfi, og sú kennsla fluttist síðan að Flléskógum í sömu sveit. Þessi skóli lagðist af um 1890 og þá hafði Sigurður í Ystafelli einnig hætt kennslu. Skólahúsið i Hlé- skógum var flutt að Ljósa- vatni og þar hófst unglinga- kennsla í því 15. janúar 1904 og var séra Sigtrygg- ur Guðlaugsson aðalkennari fyrstu tvo veturna, en 3. vet- urinn var Jónas Jónsson frá Hriflu aðalkennari. Þessi skóli stóð í 11 vetur, til vors 1914 og voru nemendur um og yfir 20 hverju sinni. Um líkt leyti var rekinn ung- lingaskóli á Húsavík, en þar var ekki heimavist eins og á Ljósavatni. Á útmánuðum 1918 hófst þriggja mánaða skóli að Breiðumýri í Reykjadal, ætl- aður unglingum og stóð ungmennafélagið Eíling þar í sveitinni mjög að stofn- un hans. Arnór Sigurjónsson kenndi. Arnór hafði numið nokkuð íslensk fræði í Reykjavík og síðan kynnti hann sér alþýðuskóla í ná- grannalöndunum í tvö ár. Eftir það stóð hann að end- urreisn Breiðumýrarskólans haustið 1921. Samband þingeyskra ungmennafélaga stóð traustlega að skólamál- inu, hafði ályktað um það og safnað talsverðu fé til byggingarframkvæmda. Arnór Sigurjónsson (1893—1980) frá Litlulaug- um sem var þingeyskur bóndasonur og gagnfræð- ingur frá Akureyri hafði með umræddri námsferð ut- an menntað sig eins og virt- ist nægja til forystu um skólahaldið. Hann gerðist nú frumkvöðull að stofnun Laugaskóla og fyrsti skóla- stjóri hans, en jafnframt og síðar mikilvirkur rithöfund- ur. Fáir á landinu gengu jafn skelegglega fram og hann við stofnun héraðs- skóla. Umræðan um stofnun al- þýðuskóla í sveit í Suð- ur—Þingeyjarsýslu var á lokastigi um þetta leyti, og deilur stóðu um staðarval. Grenjaðarstaður var nefnd- ur, enda fornt frægðarset- ur, en þá kom m.a. til skjal- anna hugmyndin um upp- hitun skólans með heitu vatni, og Sigurjón Friðjóns- son á Litlulaugum bauð að gjöf spildu úr jörð sinni og rétt til tveggja heitra lauga þar. Þar með voru staðar- í fyrsta sinn samþykkt 1929 i ráðherratíð Jónasar. I 1. grein laganna segir að hér- aðsskólar skuli vera að Núpi í Dýrafirði, Laugum í Reykjadal, Hvitárbakka i Borgarfirði og Laugarvatni. Þá segir að skólar þessir skuli vera sjálfeignarstofnan- ir. Ákvæði er um að heimilt sé að flytja héraðsskóla úr stað fyrir forgöngu skóla- nefndar og með samþykki fræðslumálastjórnarinnar. Þetta ákvæði virðist hafa verið sett inn i lögin vegna fyrirhugaðs flutnings Hvít- árbakkaskólans að Reyk- holti. í lögunum frá 1929 eru ennfremur ákvæði um, að skólarnir séu samskólar, ársdeildir ekki færri en tvær né fleiri en þrjár, og náms- timi ekki skemmri en sex mánuðir á ári, sex kennslu- stundir á dag. Þá segir að ríkið skuli greiða 6000 krónur i árlegan rekstrarkostnað til hvers héraðsskóla fyrir fyrstu 15 20 reglulega nemendur i skólanum og síðan 250 krón- ur úr því. Kennslugjald hvers nemanda vetrarlangt á að vera 60 krónur. Loks segir að stofnkostnaður hér- aðsskóla skuli að hálfu greið- ast úr ríkissjóði, enda sé tryggt framlag á móti. Þessi lög voru héraðsskól- unum vafalaust til mikils framdráttar, enda fór þeim fjölgandi. Árið 1930 var samþykkt að bæta nafni héraðsskólans á Reykjum i Hrútafirði inn i upptalning- una á skólunum í 1. grein laganna frá 1929. Árið 1937 var samþykkt að bæta enn inn í greinina nöfnum Reykjaness i N. — ísafjarðar- sýslu og Varmahliðar í Skagafirði. Um leið var svo kveðið á að námstimi i Reykjanesi þyrfti ekki að vera yfir þrjá mánuði á ári. Um Varmahlið er hins veg- ar það að segja að bið varð á að þar risi héraðsskóli. Árið 1937 var samþykkt á Alþingi þingsályktunartil- laga um að skora á ríkis- valsmálin útkljáð. Vorið 1924 i vondri tíð hófust framkvæmdir i landi Litlu- lauga. Hús varð fokhelt snemma i október. Breiðu- mýrarskólinn var síðast haldinn 1924 en vorið 1925 var fyrst hleypt af stokkun- um námskeiði í Laugaskóla hálfbyggðum. Sumarið 1925 var fyrsta innisundlaug landsins byggð í skólanum á Laugum. Her- bergi voru nú innréttuð. Bókasafn skólans varð mjög snarlega mikið að vöxtum en Arnór virðist hafa haft mjög ríkan skilning á mikil- vægi þess, enda munu nem- endur hafa skrifað margar ritgerðir með stuðningi þess. Formlega hófst skólahald 24. október 1925 og stóð þá til sumarmála. Þennan fyrsta vetur voru nemendur í yngri deild 33, í eldri deild 13, í matreiðsludeild 6 stúlk- ur, óreglulegir 9. í skólanum var stofnað sérstakt ung- mennafélag, sem sýnir hve tengslin við þá félagshreyf- ingu voru sterk. Á miðjum vetri lögleiddi ungmennafé- lagið algjört vínbindindi og stofnað var frjálst kaffibind- indi meðal nemenda. „Einskis tóbaks var neytt í skólanum og þó ekki tóbaks- bindindi né tóbaksbann'1. Þessi orð sýna flestu betur að hér var byggt á geysilega sterkum hugsjónalegum grundvelli. Þingeyingar studdu skóla sinn strax mjög vel og aðsókn að honum var frá upphafi mikil úr öllum nálægum sveitum. Fljótlega var sett á fót við Laugaskóla sérstök verknámsdeild, smíðadeild og kom vísir að henni veturinn 1930—1931. Fram kom að fyrsta ár Laugaskóla var þar sérstök stúlknadeild (matreiðslu- deild). Byggt var sérstaklega yfir húsmæðradeildina 1928—1929 við hliðina á al- þýðuskólanum og reis þar með Húsmæðraskóli Þingey- inga á Laugum. Löggjöf um alþýðuskóla og héraðsskóla Með lögum sem voru samþykkt á Alþingi 1917 var stofnaður fastur alþýðu- skóli á Eiðum upp úr bún- aðarskólanum sem þar hafði verið. Þetta skyldi vera tveggja bekkja skóli, alger- lega rekinn á kostnað lands- sjóðs, með tveimur föstum kennurum. Með lagabreyt- ingu 1933 voru ákvæði um verklegt búnaðarnám á Eið- um felld niður. Um Eiða- skóla giltu þannig sérstök lög. Svo er talið að Alþingi hafi í fyrstu ekki verið ginn- keypt til þess að styðja bygg- ingu héraðsskólans á Laug- um, en þó lét það árið 1923 í té fjárveitingu sem nam 2/5 byggingarverðs skólans, og þar með hófst byggingin. Með vissum hætti verður Jónas Jónsson frá Hriflu tal- inn faðir héraðsskólanna, en hann beitti sér fyrir stofnun sumra þeirra, einkum á Laugarvatni, í Reykholti og að Reykjum og mótaði þannig þá stefnu að slíka skóla ætti að byggja á jarð- hitasvæðum. Lög um héraðsskóla voru

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.