Morgunblaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2010
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Fjölnir – Víkingur .................................18:33
Staðan:
Selfoss 15 13 0 2 473:347 26
Afturelding 15 12 1 2 420:334 25
ÍBV 14 10 0 4 426:363 20
Víkingur R. 16 8 1 7 452:371 17
ÍR 15 7 0 8 402:406 14
Fjölnir 16 1 1 14 307:517 3
Þróttur 15 0 1 14 319:461 1
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla, úrslitakeppni, 1. leikur:
Haukar – Þór Þ......................................55:56
Þór Þ. er 1:0 yfir.
NBA
Denver – New Orleans .........................93:80
Miami – Orlando................................102:108
Eftir framlengingu.
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
A-DEILD, riðill 2:
Valur – Selfoss ..........................................3:0
Haukur Páll Sigursson 2, Guðmundur Haf-
steinsson.
Staðan:
FH 4 3 1 0 14:4 10
Fram 4 3 1 0 10:4 10
Víkingur R. 4 3 0 1 7:2 9
Selfoss 5 3 0 2 6:8 9
Valur 4 2 1 1 7:4 7
Fjölnir 5 1 0 4 6:17 3
KA 4 0 1 3 4:11 1
Leiknir R. 4 0 0 4 5:9 0
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
A-DEILD:
Fylkir – KR................................................1:1
um helgina
BLAK
Íslandsmót karla, Mikasadeildin:
Úrslitakeppni:
Ásgarður: Stjarnan – HK ..................L14.30
KA-heimili: KA – Þróttur R...............S16.00
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Seltjarnarnes: Grótta – Akureyri......S16.00
1. deild kvenna, N1-deildin:
Digranes: HK – Valur ........................L16.00
Safamýri: Fram – Stjarnan ...............L16.00
KA-heimili: KA/Þór – Haukar...........L16.00
Kaplakriki: FH – Fylkir ....................L16.00
1. deild karla:
Austurberg: Þróttur – ÍBV ...............L13.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin:
Undanúrslit, fjórði leikur:
Keflavík: Keflavík – Hamar ...............S19.15
Úrslitakeppni, 1. deild karla:
Vodafoneh.: Valur – Skallagrímur ....S20.00
KNATTSPYRNA
Vináttulandsleikur karla:
Kórinn: Ísland – Færeyjar ...................12.00
Deildabikar karla, Lengjubikar:
Reykjanesh.: Keflavík – Þróttur R. .L12.00
Reykjanesh.: Grindavík – Stjarnan ..L16.00
Boginn: Þór – Njarðvík ......................S13.00
Fj.byggðarh: Fjarðab. – Haukar.......S13.00
Kórinn: Grótta – HK ..........................S18:15
SUND
Íslandsmótið í 50 metra laug fer fram í
Laugardalslaug. Keppni hófst á fimmtudag
en keppt er í dag, laugardag og síðasti
keppnisdagurinn er á morgun, sunnudag.
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fer
fram um helgina. Keppt er í sex íþrótta-
greinum í Laugardalshöll, boccia, lyfting-
um, frjálsíþróttum og bogfimi. Borðtenn-
iskeppnin fer fram í TBR-húsinu. Keppni í
sundi fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Bogfimi ...................................L10-15, S9-13.
Frjálsar...............................................S14-17.
Lyftingar ............................................S14-17.
Boccia......................................L10-20, S9-13.
Borðtennis .........................................L10-17.
Sund ......................................L15-17, S 9-13 .
„FYRST og fremst þá ætlum við okkur sigur í þetta
skipti eftir að tapa fyrir þeim í fyrra,“ segir Ólafur
Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, spurð-
ur um landsleik Íslands og Færeyja í knattspyrnu
karla sem fram fer í Kórnum í Kópavogi á morgun.
Flautað verður til leiks klukkan 12 og eins og Ólafur
segir þá á íslenska landsliðið harma að hefna eftir
tap hinn 22. mars í fyrra, 2:1, í Kórnum.
„Færeyingar mæta með sitt sterkasta lið í leikinn
eftir því sem ég veit best. Mér sýnist að það vanti
tvo leikmenn sem voru að spila með þeim í undan-
keppni HM, en ég hef verið að skoða upptökur af
leikjum þeirra í keppninni,“ segir Ólafur en Rógvi
Jacobsen, fyrrverandi KR-ingur, og Jákup á Borg
hafa dregið sig út úr hópnum.
„Færeyingar eru með hörkulið sem við getum alls
ekki vanmetið. Á mörgum síðustu árum höfum við verið
í basli með þá.
Eins við þekkjum á þeim fjölda færeyskra fótbolta-
manna sem leikið hafa hér á landi á síðustu árum þá
eru þeir duglegir og leggja sig alltaf fullkomlega
fram í hverjum leik, reyndar eins og íþrótta-
menn eiga alltaf að gera,“ segir Ólafur sem
getur ekki stillt upp sínu sterkasta liðið þar
sem ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða.
Þar af leiðandi er enginn af þekktari og
reyndari atvinnumönnum Íslands með að
þessu sinni. Jóhann Berg Guðmundsson,
Kolbeinn Sigþórsson, sem eru á mála hjá
Alkmaar í Hollandi, eru í hópnum að þessu
sinni en þeir hafa fá tækifæri fengið með að-
alliði Alkmaar.
Vettvangur til að láta ljós
„Þessi leikur er kjörinn vett
skína nú þegar reynslumeiri le
strákarnir hér heima tvo leiki
an gegn Mexíkó ytra í næstu
að leika sem flesta leiki því a
stækkað þann hóp sem skip
Ólafur.
Spurður hvort hann ætli
manna sagði Ólafur það ekk
um það fyrirfram. Það fer e
hvernig ég spila úr hópnum
En markmiðin okkar eru
segir Ólafur Jóhannesson,
iben@mbl.is
Ætlum okkur fyrst og fremst sigur
Einbeittur Ólafur Jóhannesson vill ekk-
ert annað en sigur gegn Færeyjum.
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
ÞRIGGJA stiga körfu Guðrúnar Gróu
Þorsteinsdóttur fyrir KR áður en mín-
úta var liðin var fagnað gríðarlega en
þar við sat. Hún átti síðan að hafa
Heather Ezell úr Haukum í strangri
gæslu en fékk sína þriðju villu á 7.
mínútu og var þá geymd á bekknum.
Haukakonur tóku leikinn í sínar hend-
ur og náðu sannfærandi forystu en
héldu það ekki út. Þær voru of hrædd-
ar við að skjóta þó opin skot byðust og
þegar átti að láta vaða voru þær búnar
að vera of hræddar of lengi á meðan
KR-konur hristu af sér slenið.
„Við mættum ekki sem við“
„Ég get ekki sagt um hvort við vor-
um yfirspenntar eða undirspenntar
eða búnar að vinna fyrir leikinn eða
bara eitthvað annað en við mættum
ekki sem „við“ í fyrsta leikhluta og þá
erum við ekki jafngóðar og við eigum
að vera svo ég get ekki sagt annað en
að þetta var mjög erfitt,“ sagði Signý
Hermannsdóttir sem tók 13 fráköst,
varði fjögur skot og gerði 13 stig. „Við
bættum okkur samt í seinni hálfleik
þegar við komum sem annað lið og þó
við höfum ekki neitt rúllað yfir Hauka,
sem er flott lið, kom þetta hægt og bít-
andi, komumst yfir og sluppum í leiks-
lok. Ég hef ekki áður spilað í úrslitum
og hef þó spilað í þó nokkur ár en það
kveikir í mér, ég er kominn á stað þar
sem ég hef ekki verið áður og það er
ofboðslega gaman enda takmarkið að
landa þeim stóra.“
Guðrún Gróa var ekki há í tölfræð-
inni en hennar framlag við að gæta
Heather átti drjúgan þátt í sigrinum
og Jenny Pfeiffer-Finora leysti hana
af með ágætum enda skoraði Heather
ekki stig í fjórða leikhluta.
Morgunblaðið/hag
Öflug Unnur Tara Jónsdóttir úr liði KR brýst upp að körfunni og Telma Fjalarsdóttir er til varnar.
Sumarfrí í mars er ekki eitthvað sem
Haukakonur ætluðu sér er þær fengu
þriðja tækifærið til að leggja deild-
armeistara KR í Vesturbænum í gær-
kvöldi og lengi vel leit út fyrir að það
gengi eftir en svo seig KR yfir og vann
63:61. Þar spilaði inn í skotfælni Hafn-
firðinga, sem þorðu varla að skjóta á
körfu KR og sú fælni ágerðist – þeir
treystu á að útlendingarnir þeirra sæju
um slíkt en þeir voru orðnir þreyttir.
Skotfælnin varð
Haukum að falli
Þriðja tapið gegn KR-konum, sem eru komnar í úrslit
Eins og Morg-unblaðið
greindi frá í dag
glímir Magnús
Þór Gunnarsson
landsliðsmaður í
körfuknattleik við
meiðsli í hné.
Magnús fór í
speglun í gær og
fékk jákvæðar fréttir en óttast var að
Magnús yrði jafnvel frá keppni út
keppnistímabilið. Svo fór þó ekki
samkvæmt vefsíðunni Karfan.is en
Magnús missir þó engu að síður af
fyrsta leik Njarðvíkinga gegn Stjörn-
unni í úrslitakeppninni.
Helgi Magnússon hafði betur gegnsínum fyrri samherja Jakobi
Sigurðarsyni þegar lið þeirra mætt-
ust í Íslendingaslag í sænska körfu-
boltanum í gærkvöldi. Solna sigraði
96:82 en leikið var á heimavelli Sunds-
vall. Helgi átti góðan leik og gerði 17
stig fyrir Solna og Jakob skoraði 13
stig fyrir Sundsvall.
Dagur Sigurðs-son stýrði
liði sínu Füchse
Berlin til sigurs
gegn Düsseldorf á
útivelli 29:22 í
þýska handbolt-
anum í gærkvöldi.
Rúnar Kárason
var á leikskýrslu
hjá Berlínarliðinu en setti ekki mark
sitt á leikinn. Sturla Ásgeirsson skor-
aði 2 mörk fyrir heimaliðið og var auk
þess einu sinni rekinn út af í 2. mín-
útur.
Tonny Mawejje missir að öllum lík-indum af fyrstu leikjum ÍBV á
Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar
vegna þeirra hnémeiðsla sem hann
varð fyrir í leiknum gegn HK á dög-
unum. Liðbönd í hnénu sködduðust
en krossbönd og liðþófi eru í lagi eftir
því sem vefsíðan fótbolti.net hefur
eftir Heimi Hallgrímssyni þjálfara
ÍBV. Mawejje var lykilmaður í liði
ÍBV í fyrra en hann kemur frá Úg-
anda.
Knattspyrnumennirnir Helgi Val-ur Daníelsson og Garðar Jó-
hannsson voru báðir í byrjunarliði
Hansa Rostock sem sigraði Duisburg
3:1 í þýsku 2. deildinni í gærkvöldi.
Helgi lék allan leikinn en Garðar fór
af leikvelli á 74. mínútu.
Jermain Defoe, framherjinn snjallihjá Tottenham, verður frá keppni
næstu vikurnar vegna meiðsla. Þetta
er mikið áfall fyrir Lundúnaliðið sem
er í harðri baráttu um að ná fjórða
sætinu í úrvalsdeildinni en Defoe er
markahæsti leikmaður Tottenham á
tímabilinu.Eiður Smári Guðjohnsen
ætti þar með að færast ofar í gogg-
unarröðina en fastlega má búast við
því að þeir Roman Pavlyuchenko og
Peter Crouch verði saman í fremstu
víglínu þegar liðið mætir Stoke í dag.
Fólk sport@mbl.is
KR – Haukar 63:61
DHL-höllin, úrvalsdeild kvenna, Iceland Ex-
press deildin, undanúrslit, þriðji leikur föstu-
daginn 19. mars 2010.
Gangur leiksins: 3:0, 5:2, 5:11, 10:16, 12:18,
17:18, 17:24, 21:30, 26:34, 29:35, 37:39, 37:42,
42:42, 44:51, 49:51, 49:54, 55:54, 55:59, 62:59,
62:61, 63:61.
Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 15,
Jenny Pfeiffer-Finora 14, Signý Her-
mannsdóttir 13, Unnur Tara Jónsdóttir 13,
Hildur Sigurðardóttir 5, Guðrún Gróa Þor-
steinsdóttir 3.
Fráköst: 34 í vörn – 10 í sókn.
Stig Hauka: Kiki Lund 15, Heather Ezell 13,
Ragnar Margrét Brynjarsdóttir 10, Guðrún
Ósk Ámundadóttir 7, Helena Brynja Hólm 5,
Telma B. Fjalarsdóttir 4, María Lind Sigurð-
ardóttir 4, Sara Pálmadóttir 3.
Fráköst: 25 í vörn – 9 í sókn.
Villur: KR 16 – Hauka 20.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og
Jón Guðmundsson.
Áhorfendur: Um 120.
BIKARMEISTARALIÐ KA frá Ak-
ureyri tryggði sér sæti í úrslitum Ís-
landsmótsins í blaki karla, Mikasa-
deildinni, í kvöld með 3:1 sigri gegn
Þrótti úr Reykjavík. Þróttur vann
fyrstu hrinuna 25:21. Önnur hrinan
var jöfn og spennandi þar sem KA
hafði betur 25:22. Þróttur var með
yfirhöndina í þriðju hrinu þar sem
staðan var 23:22 fyrir Þrótt. KA
skoraði hinsvegar þrjú síðustu stig-
in og hafði betur 25:23. Fjórða hrin-
an var eign KA sem landaði 3:1
sigri. KA mætir Stjörnunni eða HK
í úrslitum. Stjarnan og HK eigast
við í Ásgarði í dag kl. 14.30 og þar
var HK með yfirhöndina 1:0 og geta
með sigri tryggt sér sæti í úrslitum
gegn KA. seth@mbl.is
KA í úrslit
um titilinn