Morgunblaðið - 26.03.2010, Page 1
FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
íþróttir
Handbolti Fjögur neðstu liðin unnu fjögur efstu liðin í úrvalsdeild karla. Valur kom í veg fyrir að
Haukar tryggðu sér sigur í deildinni. Fram áfram neðst þrátt fyrir góða ferð til Akureyrar. 2-3
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/hag
Troðsla KR-ingar unnu fyrsta Reykjavíkurslaginn gegn ÍR í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í körfubolta. Hér er
það Vesturbæingurinn Morgan Lewis sem treður boltanum með tilþrifum í körfu Breiðhyltinga. »4-5
STEFÁN Már
Stefánsson, at-
vinnukylfingur
úr GR, lék virki-
lega vel á opna
Al Torreal
mótinu á Spáni
sem lauk í gær
en mótið er hluti
af Hi5 mótaröð-
inni. Stefán hafn-
aði í öðru sæti í
mótinu á 7 undir pari samtals. Stef-
án lék 54 holur á 70, 70 og 69 högg-
um. Stefán var aðeins höggi á eftir
sigurvegara mótsins. Fyrir árang-
ur sinn hlaut Stefán 1875 evrur eða
í kringum 320 þúsund íslenskar
krónur. kris@mbl.is
Stefán lék
á 7 undir pari
Stefán Már
Stefánsson
KA lagði HK að velli, 3:0, í fyrsta
úrslitaleik liðanna um Íslandsmeist-
aratitil karla í blaki sem fram fór í
KA-heimilinu á Akureyri í gær-
kvöld, frammi fyrir um 200 áhorf-
endum.
Leikurinn var jafn og spennandi
lengst af en KA vann fyrstu hrinu
eftir framlengingu, 28:26. Önnur
hrinan var jöfn þar til í lokin þegar
KA tryggði sér sigurinn, 25:21. Í
þeirri þriðju náði KA góðri forystu
og lét hana ekki af hendi, lokatölur
25:20.
Liðin mætast aftur í Digranesi á
morgun. Takist KA-mönnum að
sigra aftur eru þeir Íslandsmeist-
arar en annars verður oddaleikur á
Akureyri á mánudagskvöld.
vs@mbl.is
KA vann fyrsta
úrslitaleikinn
„ÞAÐ var svo ótrúleg stemning á vellinum að ég
var eiginlega að vona að Mexíkóar myndu skora
mark, sem yrði síðan dæmt af vegna rangstöðu,
bara til þess að heyra fólkið fagna marki í smá-
stund,“ sagði Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu, við Morgunblaðið um leikinn
gegn Mexíkóum í Charlotte í fyrrinótt. Rúmlega
63 þúsund áhorfendur voru á leiknum, nær allir af
mexíkósku bergi brotnir, og skemmtu sér kon-
unglega þrátt fyrir jafnteflið gegn Íslandi.
„Þessi leikur og umgjörðin í kringum hann var
algjör upplifun, fyrir mig, leikmennina og alla í
kringum liðið. Stemningin var þannig að það var
hrikalega gaman að vera þarna frá fyrstu mínútu
til síðustu. Og úrslitin í leiknum skemmdu ekki
fyrir,“ sagði Ólafur en leiknum lauk með marka-
lausu jafntefli þar sem frammistaða óreynds ís-
lensks liðs var vonum framar.
Gunnar Gylfason, starfsmaður landsliðsnefnd-
ar, tók í svipaðan streng. „Þegar strákarnir komu
inn í klefa eftir leikinn sögðu þeir að þetta hefði
verið svo gaman að þeir væru til í að hlaupa aftur
út á völlinn og spila annan 90 mínútna leik,“
vs@mbl.is »7
Var að vona að Mexíkóar skoruðu
ANDRI Stefan
Guðrúnarson,
leikmaður
norska hand-
knattleiksliðsins
Fyllingen, verð-
ur frá keppni
næstu 6-8 mán-
uðina. Eins og
fram kom í
Morgunblaðinu í
gær meiddist
Andri á hné fyrir skömmu og hann
fór í speglun í gær.
„Þá kom í ljós að krossbandið er
illa farið, svo illa að það verður
meðhöndlað eins og það væri slit-
ið. Ég fer því í uppskurð með öllu
tilheyrandi og verð frá keppni
næstu 6-8 mánuðina,“ sagði Andri
við Morgunblaðið þegar þetta lá
fyrir.
Þar með liggur fyrir að Andri
leikur ekki á ný með Fyllingen
fyrr en nokkuð verður liðið á
næsta tímabil. Hann er samnings-
bundinn félaginu til vorsins 2011.
gummih@mbl.is
Andri frá í 6
til 8 mánuði
Andri Stefan
Guðrúnarson
„ÞAÐ liggur við að við höfum fengið
allar okkar óskir uppfylltar í þessum
drætti,“ sagði Ólafur Jóhannesson,
landsliðsþjálfari í knattspyrnu, við
Morgunblaðið í gær eftir að leikjaröð
Íslands í undankeppni EM lá fyrir.
Ísland leikur þrjá leiki í haust, tek-
ur á móti Noregi á Laugardalsvell-
inum 3. september, mætir Dönum
ytra 7. september, og fær síðan Cris-
tiano Ronaldo og félaga í portúgalska
landsliðinu í heimsókn 12. október.
Hinir fimm leikirnir fara fram á
næsta ári, þá verður aftur leikið við
þessar þrjár þjóðir og tvisvar við
Kýpurbúa.
Dregið var á þingi UEFA í Tel
Aviv í gær þar sem þjóðirnar í riðl-
inum höfðu ekki getað komið sér
saman um leikdagana.
„Við vildum fá útileikina gegn
Portúgal og Kýpur staka, vegna
langra ferðalaga, og það gekk eftir.
Við vildum fá heimaleik við Portúgal í
haust, og það gekk eftir. Svo verður
fínt að byrja á Norðmönnum á heima-
velli, við þekkjum þá vel síðan í síð-
ustu keppni,“ sagði Ólafur. vs@mbl.is
„Við fengum óskirnar uppfylltar“
RÚRIK Gíslason,
landsliðsmaður í
knattspyrnu,
skoraði glæsilegt
sigurmark fyrir
OB í gærkvöld
þegar lið hans
lagði Esbjerg að
velli, 2:1, á útivelli
í dönsku úrvals-
deildinni. Sig-
urinn var ákaf-
lega mikilvægur fyrir OB sem komst
með honum að hlið FC Köbenhavn á
toppi deildarinnar og skildi Esbjerg
eftir níu stigum aftar í þriðja sætinu.
Esbjerg komst yfir snemma leiks
en OB náði að jafna í fyrri hálfleik.
Um miðjan þann síðari var síðan
röðin komin að Rúrik sem hirti bolt-
ann af leikmanni Esbjerg á miðjum
vallarhelmingi heimaliðsins, lék að-
eins áfram, og sendi hann síðan í
netið með miklum þrumufleyg af
löngu færi.
Ólafur blóðugur af velli
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðs-
maður hjá SönderjyskE, þurfti að
hætta leik alblóðugur þegar lið hans
gerði markalaust jafntefli við Midt-
jylland í gærkvöld. Um miðjan síðari
hálfleikinn fékk Ólafur spark í and-
litið frá mótherja og fékk það slæm-
ar blóðnasir að honum var skipt af
velli.
Bröndby steinlá heima fyrir botn-
liðinu Köge, 1:3, og strax að leik
loknum var þjálfara liðsins, Kent
Nielsen, sagt upp störfum. vs@mbl.is
Glæsilegt
sigurmark
Rúriks
OB að hlið FCK
á toppi úrvalsdeildar
Rúrik
Gíslason