Morgunblaðið - 26.03.2010, Page 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
GEIR Sveinsson hefur heldur betur
blásið lífi í leikmenn Gróttu eftir að
hann tók við þjálfun liðsins á dög-
unum. Handbragð gamla landsliðs-
fyrirliðans sást vel á Gróttuliðinu
þegar það gerði góða ferð í Fjörðinn
og ég leyfi mér að segja niðurlægði
FH-inga á þeirra heimavelli. Með
öflugri vörn og frábærri markvörslu
gamla FH-ingsins, Magnúsar Sig-
mundssonar, unnu Seltirningar sjö
marka sigur, 30:23 og léku þar með
sama leik og fyrr í vetur þegar þeir
fögnuðu sigri í Krikanum.
Á meðan leikmenn FH-liðsins
sváfu þyrnirósarsvefni fyrstu tíu
mínútur leiksins skoruðu Gróttu-
menn hvert markið á fætur öðru og
það var ekki fyrr en eftir níu og hálfa
mínútu sem Bjarni Fritzson kom
FH-ingum á blað með marki úr víta-
kasti. Þá hafði Grótta skorað 8 mörk
og ég efast um að FH hafi fengið
aðra eins útreið á upphafsmínútum
leiks og raun bar vitni.
FH-ingar röknuðu aðeins úr
rotinu þegar líða fór á leikinn en það
var engu líkara en að timburmenn
væru svífandi yfir vötnum í her-
búðum liðsins. Þeim tókst þó að
þétta vörnina og minnka muninn
niður í tvö mörk, 19:17, en leikhlé
sem Geir Sveinsson tók í þeirri stöðu
kom Seltirningum á sporið á ný. Þeir
skoruðu fimm mörk í röð og gerðu út
um leikinn.
Magnús Sigmundsson var besti
leikmaðurinn í góðu Gróttuliði sem
barðist hetjulega og spilaði af mikilli
skynsemi. Vörnin með Ægi Hrafn
Jónsson, Matthías Ingimarsson og
Hjalta Pálmason var firnasterk og í
sókninni voru þeir Anton Rúnarsson
og Hjalti mjög ógnandi.
Leikur FH-inga var á lágu plani
rétt eins og gegn Stjörnumönnum
og mikið þarf að breytast í leik liðs-
ins ætli það að komast í úr-
slitakeppnina. Bjarni Fritzson var
skástur í ótrúlega viljalausu og á
löngum köflum andlausu liði.
Morgunblaðið/Ómar
Stórsigur Matthías Árni Ingimarsson, Gróttumaður, umkringdur af FH-ingum í leiknum í gærkvöld. Matthías og
félagar hans unnu óvæntan stórsigur í Kaplakrikanum og styrktu stöðu sína í geysiharðri fallbaráttu deildarinnar.
Grótta lék
sér að FH
Handbragð Geirs farið að sjást
Grótta komst í 8:0 í Krikanum
Kaplakriki, úrvalsdeild karla, N1-
deildin, fimmtudaginn 25. mars
2010.
Gangur leiksins: 0:8, 3:10, 6:11,
10:14, 11:16, 14:17, 17:19, 17:24,
20:28, 23:30.
Mörk FH: Bjarni Fritzson 12/5, Ólaf-
ur Gústafsson 6, Örn Ingi Bjarkason
2, Benedikt Reynir Kristinsson 1, Jón
Heiðar Gunnarsson 1, Bogi Eggerts-
son 1.
Varin skot: Pálmar Pétursson 6 (þar
af 2 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Gróttu: Hjalti Þór Pálmason
8/3, Anton Rúnarsson 7, Jón Karl
Björnsson 4, Arnar Freyr Theódórs-
son 4, Matthías Árni Ingimarsson 3,
Atli Rúnar Steinþórsson 3, Ægir
Hrafn Jónsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson
22/1 (þar af 6 til mótherja), Gísli
Guðmundsson 3 (þar af 1 til mót-
herja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar
Guðjónsson, ágætir.
Áhorfendur: Um 600.
FH – Grótta 23:30
Eftir Andra Yrkil Valsson
sport@mbl.is
„VIÐ brotlentum hrikalega í síðustu
umferð og miðað við spilamennsk-
una í þessum leik erum við ennþá
fastir í flakinu,“ sagði Rúnar Sig-
tryggsson, þjálfari Akureyrar, eftir
óvænt tap gegn botnliði Fram, 26:31.
Jafnræði var með liðunum allan
fyrri hálfleikinn og var staðan 13:13
þegar flautað var til leikhlés. Áfram
var jafnræði með liðunum eftir hlé
en um miðbik síðari hálfleiks fóru
gestirnir að gefa í og náðu fimm
marka forskoti þegar fimm mínútur
voru til leiksloka. Akureyringar voru
ákveðnir í að bíta frá sér og náðu að
minnka muninn á ný. En þeir klúðr-
uðu lykilsókn þegar skammt var eft-
ir og einfaldlega gáfust upp eftir
það. Gestirnir skoruðu síðustu þrjú
mörkin og lönduðu gríðarlega mik-
ilvægum stigum í botnbaráttunni.
Frammarar sýndu mikla baráttu all-
an leikinn og ætluðu sér greinilega
að fá eitthvað út úr leiknum enda
staða þeirra í deildinni heldur svört.
Magnús Erlendsson lokaði marki
þeirra og virtust heimamenn ekki
geta fundið leið framhjá honum.
Leikur Akureyringa var ekki
sannfærandi og var ekki að sjá að
þeir ætluðu að tryggja sér sæti í úr-
slitakeppninni. Þeir virtust ekki vita
í hvorn fótinn þeir ættu að stíga eftir
óvænt tap í síðustu umferð og eng-
inn virtist geta tekið af skarið og
haldið leik þeirra uppi. Gestirnir
náðu að halda Árna Þór Sigtryggs-
syni í skefjum mestallan leikinn og
munar um minna enda er hann bú-
inn að halda sóknarleik liðsins uppi
að undanförnu. En sigur Fram var
gríðarlega mikilvægur enda rær lið-
ið lífróður um að halda sæti sínu í
deildinni. „Þetta var hörkuleikur og
mjög erfitt. Við erum í þannig stöðu
að við þurfum að leggja okkur alla
fram í hverjum einasta leik og það
erum við að gera. Þrátt fyrir að okk-
ur vantaði lykilmenn í leiknum kom-
um við brjálaðir til leiks sem skilaði
sigri og það er frábært,“ sagði línu-
maðurinn sterki hjá Fram, Haraldur
Þorvarðarson.
Morgunblaðið/Ómar
Drjúgur Andri Berg Haraldsson
skoraði 5 mörk fyrir Framara.
„Erum fastir í flakinu“
Höllin Akureyri, úrvalsdeild karla, N1-
deildin, fimmtud 25. mars.
Gangur leiksins: 0:1, 4:4, 8:8, 11:8,
13:13, 17:17, 20:20, 22:27: 26:28, 26:31
Mörk Akureyrar: Oddur Grétarsson 6,
Árni Þór Sigtryggsson 4, Jónatan Þór
Magnússon 4, Heimir Örn Árnason 3,
Andri Snær Stefánsson 3/3, Guð-
mundur Hólmar Helgason 2, Geir Guð-
mundsson 2, Hörður Fannar Sigþórs-
son 2.
Varin skot: Hafþór Einarsson 9 (þar af
2 til mótherja), Hörður Flóki Ólafsson
4.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Fram: Haraldur Þorvarðarson 7,
Róbert Aron Hostert 6, Andri Berg
Haraldsson 5, Daníel Berg Grétarsson
4, Stefán Baldvin Stefánsson 3, Einar
Rafn Eiðsson 2/1, Guðjón Finnur
Drengsson 2, Arnar Birkir Hálf-
dánsson 1, Jóhann Karl Reynisson 1
Varin skot: Magnús Gunnar Erlends-
son 22, Sigurður Örn Arnarson 1/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf-
steinn Ingibergsson.
Áhorfendur: Um 900.
Akureyri – Fram 26:31
Óvæntur sigur hjá Fram fyrir norðan Annað tap Akureyringa í röð gegn
fallbaráttuliðum Varnarmenn Fram héldu Árna Þór Sigtryggssyni í skefjum
„ÞETTA gekk nákvæmlega eins og
við lögðum þetta upp. Það er rosa-
lega erfitt að halda svona miklu
forskoti eins og við náðum í byrjun.
Það er miklu erfiðara en fólk held-
ur en strákarnir héldu sem betur
fer haus,“ sagði Geir Sveinsson,
þjálfari Gróttumanna, við Morg-
unblaðið eftir sigurinn sæta á FH-
ingum.
„Við vorum búnir að kortleggja
FH-ingana vel. Ég sá leik þeira á
móti Stjörnunni og sá ákveðin sókn-
arfæri fyrir okkur en mjög góð
vinna drengjanna skilaði sér með
góðum sigri. Ég er stoltur af þeim.
Þeir stóðu sig gríðarlega vel. Ég
átti alveg von á að botnliðin þrjú
myndu vinna og þetta mót verður
jafnt og spennandi til loka,“ sagði
Geir eftir annan sigur sinna manna
í röð.
Vorum slegnir kaldir
„Við vorum bara slegnir kaldir.
Við undirbjuggum okkur vel fyrir
leikinn og vorum vel stemmdir fyr-
ir hann en fáum svo þetta rothögg í
byrjun. Það var erfitt að vinna upp
svona mikinn mun. Við vorum þó
ekki langt frá því en þetta féll
þeirra megin og Grótta átti bara
sigurinn skilinn. Geir er að gera
frábæra hluti með liðið og Maggi í
markinu var okkur ansi erfiður,“
sagði Einar Andri Einarsson, þjálf-
ari FH, við Morgunblaðið en eftir
tapið eru FH-ingar komnir niður í
fimmta sætið.
„Við erum í einhverri lægð en
ætlum ekki að búa til neina krísu út
af því. Við eigum enn möguleika á
að komast í úrslitakeppnina en til
þess þurfum við að vinna rest. Eftir
að við unnum Haukana virðist hafa
orðið spennufall en við ætlum ekki
að gefast upp og seljum okkur
dýrt,“ sagði Einar. gummih@mbl.is
Erfitt að halda svona forskoti